Skinfaxi - 01.11.2012, Qupperneq 29
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 29
þar sem ég er núna,“ sagði Hekla Kolka
Hlöðversdóttir í samtalinu við Skinfaxa.
– Hver var ástæðan fyrir því að þú ákvaðst
að fara í íþróttalýðháskóla?
„Ég útskrifaðist úr framhaldsskóla í maí
og vildi aðeins ná að lifa lífinu og upplifa
eitthvað nýtt áður en ég færi í háskóla.
Mig langaði að ferðast, gera eitthvað
skemmtilegt og stunda íþróttir og svona
íþróttalýðháskóli er fullkomin blanda af
þessu þrennu. Þegar ég fór að skoða lýð-
háskóla á netinu leit Idrætshøjskolen i
Århus mjög vel út. Þessi skóli bauð upp á
þær íþróttir sem ég hafði áhuga á og var á
frábærum stað.“
– Hvað kom þér einna helst á óvart?
„Það sem kom mér helst á óvart var það
hvað allir hér eru vingjarnlegir og skemmti-
legir. Bæði kennararnir og skólastjórinn eru
góðir vinir nemendanna og eru alltaf til í
að hjálpa með hvað sem er. Sambandið
milli starfsfólksins í þessum skóla og nem-
endanna er allt öðruvísi en í venjulegum
skólum á Íslandi. Sá kennari sem er á vakt
tekur þátt í þeim viðburðum sem eru á
kvöldin og kemur einnig oft með fjöl-
skylduna sína í kvöldmat hjá okkur.“
– Er þetta ekki þroskandi og hvetur þú
ekki alla til að upplifa svona dvöl?
„Þessi skóli leggur mikið upp úr því að
þroska nemendur sína, bæði sem einstakl-
inga og sem hóp. Mikil áhersla er lögð á
hópavinnu, listrænu hliðina okkar og að
við stígum út úr þægindahring okkar. Ég
mæli eindregið með því að allir upplifi
svona dvöl, þetta er ótrúlega gaman! Ég
hef lært mjög mikið af dvöl minni hér, skól-
inn og íþróttirnar eru ótrúlega skemmti-
legar, ég hef kynnst helling af nýju frábæru
fólki og kennararnir í þessum skóla eru
æðislegir. Að þurfa að kynnast fólki og tjá
sig á öðru tungumáli en þínu eigin er
einnig eitthvað allir hafa gott af því að
prófa.“
– Hefur þú ekki kynnst mörgum nýjum
vinum í skólanum?
„Ég er búin að kynnast mjög mörgu fólki
og eignast marga nýja vini síðan ég byrj-
aði í skólanum. Þessi skóli er frekar lítill og
mikið er lagt upp úr félagslífinu hérna
þannig að allir kynnist vel. Þegar aðeins
leið á önnina voru allir farnir að þekkja alla.“
– Var ekki erfitt að komast inn í dönskuna?
„Fyrir mig var það ekkert svo erfitt því
að ég bjó í Danmörku þegar ég var yngri
þannig að ég kunni dönskuna fyrir. En ég
er búin að bæta orðaforða minn helling
við það að vera hér og tala hana á hverjum
degi. Flestir íslensku nemendurnir hér í
skólanum eru farnir að geta talað dönsku
daglega en bjarga sér annars á ensku ef
rétta orðið kemur ekki á dönsku.“
– Hvernig er venjulegur skóladagur og hvað
eruð þið að læra?
„Venjulegur skóladagur byrjar á morgun-
mat rúmlega sjö og svo er 2–3 tíma æfing
í þeirri íþrótt sem við stundum hér. Síðan
er hádegismatur og samverustund þar sem
við fáum allar upplýsingar sem við þurfum
fyrir vikuna. Tvisvar í viku erum við í íþrótta-
vali á morgnana þar sem meðal annars er
hægt að velja um pilates, multisport,
powersport og parkour. Aðra tvo daga
erum við svo í valfagi eftir hádegi þar sem
við fáumst við eitthvað annað en íþróttir.
Það er t.d. þjálfunarfræði, leiklist, söngur
og lagaskrif, listasmiðja o.fl. Skólinn klár-
ast yfirleitt um 3–4-leytið. Miðvikudagar
eru ólíkir hinum dögunum því að þá æfum
við ekki aðalíþróttina okkar. Á miðvikudög-
um er íþróttaval og síðan einkaþjálfun ef
aðalíþróttin er fitness. Það sem eftir er af
deginum er síðan menningardagur þar
sem við fáum fyrirlestra, förum á söfn eða
tónleika og fleira.“
– Hvað ætlar þú að vera lengi í skólanum
í vetur?
„Þegar ég byrjaði í skólanum var ég ekki
viss um hvort ég ætlaði bara að vera eina
önn eða heilt ár. Eftir smátíma hér í skólan-
um var ég viss um að ég vildi vera áfram
aðra önn, þessi skóli er frábær!
– Hafið þið farið í einhver ferðalög í vetur?
„Já. Eftir fyrstu tvær vikurnar fórum við í
þriggja daga ferð í sumarhús, klukkutíma
frá Århus, til að kynnast betur. Nokkrum
vikum seinna fórum við svo vikuferð á æðis-
legan stað tveimur tímum frá Århus.
Síðan var utanlandsferð til Club La Santa
á Lanzarote í miðjum nóvember og fót-
boltaferð til Liverpool í Bretlandi í enda
nóvember.“
– Heldurðu að dvölin í skólanum eigi eftir
að nýtast þér síðar?
„Dvölin í þessum skóla er eitthvað sem
ég á aldrei eftir að gleyma og á eftir að nýt-
ast mér alla mína ævi. Ég hef lært svo mikið
nýtt og kynnst fullt af nýju fólki,“ sagði
Hekla Kolka Hlöðversdóttir í samtali við
Skinfaxa.
Ég mæli eindregið
með því að allir upplifi
svona dvöl, þetta er
ótrúlega gaman!
Ég er búin að kynnast
mjög mörgu fólki og
eignast marga nýja
vini síðan ég byrjaði í
skólanum.
Efri mynd: Mathias, Hugrún, Hekla Kolka og Hilma. Myndin er úr ferð
þeirra til Sletten.
Neðri mynd: Íslenski hópurinn. Frá vinstri: Kari, Íris, Hilma, Hugrún, Hekla
Kolka og Sævar. Á myndirnar vantar Jakob Fannar.