Skinfaxi - 01.11.2012, Page 35
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 35
aftur tökum á þyngdinni. „Ég óttast frekar
að verða ruglaður og fá þráhyggju af
æfingunum.“
Kristian er víða virkur í félagsstarfi. Hann
var formaður menningarsamtakanna
Noregs Ungdomslag og tekur þátt í stjórn-
málum af krafti. Hann segir tímaskort enga
afsökun fyrir því að sleppa því að hreyfa
sig. „Í guðanna bænum – Obama hreyfir
sig á hverjum degi og ég er ekki önnum
kafnari en hann!“ segir Kristian. „Þetta
snýst um forgangsröðun. Þú verður að
vakna tveimur tímum fyrr á morgnana og
hreyfa þig ef ekki vill betur til.“
Offita karla alvarlegt
vandamál sem lítið er
rætt
Í bókinni segir Kristian sögu sína á opin-
skáan og hreinskilinn hátt. Hann segist
hafa hafið umræðu sem þekktist ekki fyrr.
„Þessi saga hefur verið sögð áður af kon-
um en ekki körlum,“ segir hann.
Líkamsímynd kvenna er rædd reglulega.
Útlitsbreytingar, útlitsdýrkun, offita og
lystarstol eru allt stef sem við þekkjum úr
umræðunni. Hvernig fótósjoppaðar silíkon-
bombur verða að fyrirmyndum ungra
stúlkna – fyrirmyndir sem engin leið er að
líkjast. Kristian vísar til norskrar rannsókn-
ar sem gerð var meðal 15 ára stelpna.
Helmingur þeirra áleit sig of feitar en rann-
sóknir sýndu að aðeins um 15% þeirra
voru raunverulega of feitar.
En vandamálið er líka til staðar hjá körl-
um. Vöðvastæltar nærbuxnafyrirsætur eru
fyrirmyndirnar sem yngri karlarnir vilja líkj-
ast. „Það eru fáir staðir sem karlmenn, sem
eru ósáttir við líkama sinn, getað leitað til.
Þetta er mikið einkamál. Vinir mínir sögðu
ekkert þegar ég léttist um 60 kíló. Þeir byrj-
uðu ekki að ræða við mig fyrr en ég skrif-
aði bókina. Þetta er samt líka mjög opin-
bert mál því það sjá allir líkama þinn. Hann
er forsíðan þín.“
Og eins og Kristian orðar það: „Það vill
enginn vera feitur. Viðhorfið til feitra er
mjög neikvætt. Þegar þú sérð einhvern
sem er mjög feitur hugsarðu með þér að
það sé eitthvað að hjá honum. Hann hafi
enga sjálfsstjórn, að hann sé óhreinn. Þeir
sem eru feitir svitna vissulega meira. Feitt
fólk er líka minna virði fyrir samfélagið.
Það vinnur minna því það er líklegra til að
veikjast. Offita karla er að verða eitt af stóru
heilsufarsvandamálunum. Evrópa – og í
raun heimurinn allur – er að þyngjast og á
því höfum við ekki efni.“
Þegar öllu er á botninn hvolft er mikil-
vægast að sættast við sjálfan sig. „Ég fæ
aldrei líkama eins og David Beckham. Ég
er ekki sáttur við mig í dag en ég verð það
aldrei. Við sem fullorðið fólk verðum að
taka á honum stóra okkar og viðurkenna
að líkamar okkar eru mismunandi.“
Að mati Kristians þarf ólíkar lausnir eftir
því hver á í hlut. „Það þarf að gera þetta af
skynsemi, með virðingu fyrir körlum og
konum á ólíkan hátt.“ GG
„Ég var í hættu að fá
hjartasjúkdóm og mig
langaði til að sofa
oftar hjá.“
„Það vill enginn vera feitur. Við-
horfið til feitra er mjög neikvætt.
Þegar þú sérð einhvern sem er
mjög feitur hugsarðu með þér að
það sé eitthvað að hjá honum.“