Skinfaxi - 01.11.2012, Side 40
40 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
skilja varla hvert annað,“ segir Hafþór og brosir.
Elísabet og Egill segja að átakið hafi verið
mest í byrjun. „Fyrst rann þetta allt saman í
einn graut,“ segir Elísabet. „Það gekk brösug-
lega að rifja upp dönskuna sem reynt var að
troða ofan í mann til fjölda ára,“ bætir Egill
við og segir okkur sögu frá vandræðum sem
hann lenti í við að panta sér McDonaldsborg-
ara í byrjun ferðarinnar. „Stöðugt áreiti af
skandinavísku kveikti þó á gömlum heila-
svæðum,“ segir hann en hann kynnti hluta af
niðurstöðum síns hóps á dönsku. Skandinav-
ískan efldist einnig hjá Elísabetu. „Fyrst þurfti
ég alltaf að láta þýða fyrir mig yfir á ensku eða
íslensku en það kom smátt og smátt og
gaman þegar aðrir byrjuðu að samgleðjast
mér þegar ég skildi eitthvað!“
Kolbrún Lára Kjartansdóttir og Eygló Hrund
Guðmundsdóttir frá Hvammstanga segja að
dönskuverðlaun úr grunnskólanum hafi dug-
að stutt þegar út í alvöruna var komið. Í
dönskukennslunni virðist skorta talþjálfun.
Þær segjast staðráðnar í að taka sig á í dönsk-
unni fyrir næstu NSU-viku sem þær eru
ákveðnar í að taka þátt í og hvetja fleiri til að
leggja meiri rækt við tungumálanámið.
Valdísi Ösp fannst ánægjulegt að sjá hvernig
Íslendingarnir efldust þegar á leið helgina.
„Það gekk mjög vel að vinna á skandinavísku
og mér fannst íslenski hópurinn standa sig
vel í því – allir komu með opnum hug og mörg
hver voru farin að tjá sig þokkalega undir lok
helgarinnar sem var virkilega skemmtilegt.“
Hópurinn kom því ánægður heim þótt ferðin
hafi á köflum verið erfið. „Við fengum ekki
mikinn frítíma og danskan gat vafist fyrir
manni,“ segir Orri. Kolbrún og Eygló eru bún-
ar að taka frá tíma fyrir ungmennaviku NSU
sem UMFÍ heldur næsta sumar. „Við ætlum
að senda tölvupóst í fyrramálið og skrá okk-
ur,“ segja þær í rútunni á leið frá Leifsstöð
þegar komið er miðnætti á þriðjudagskvöldi.
Þakklæti er efst í huga Elísabetar. „Þetta er
rosaleg lífsreynsla sem ég mun aldrei gleyma
og nota það sem eftir er. Ég er svo þakklát
yfir því að fá að kynnast svona skemmtilegu
og gefandi fólki og að hafa eignast nýja vini.“
GG
Farið yfir hugmyndirnar með
stjórn NSU. Formaðurinn,
Morten Meng, hefur orðið.
Hvað er NSU?
NSU eru regnhlífarsamtök með samtals
ríflega eina milljón félaga úr hinu norr-
æna samfélagi. Innan þeirra safnast
saman íþrótta-, skáta-, menningar- og
æskulýðsfélög auk samtaka ungra
bænda með það að markmiði að nota
styrkleika hvert annars til að þróa ein-
staklinga og stofnanir. NSU stendur
reglulega fyrir ungmennavikum, leið-
togaskólum og fleiri viðburðum sem
dreifast á milli aðildarfélaganna. Höfuð-
stöðvarnar eru í Danmörku.
Nánari upplýsingar um samtökin eru á
www.nsu.is.
Hópurinn
sem fór út
Valdís Ösp Árnadóttir, Keflavík (leiðtogi)
Egill Gunnarsson, UÍA
Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir, UDN
Eygló Hrund Guðmundsdóttir, USVH
Gunnar Gunnarsson, UÍA
Hafþór Vilberg Björnsson, HSK
Kolbrún Lára Kjartansdóttir, USVH
Orri Davíðsson, HSK
Ár sjálfboðaliðans, dagur félagasamtaka
Rauði hópurinn: Hafþór og Kolbrún Lára, Valdís leiðbeinandi.
Verkefnið var í því fólgið að hverju landi var úthlutaður einn
mánuður til að kynna ýmiss konar sjálfboðaliðasamtök og
félagasamtök fyrir landsmönnum. Síðasta laugardag mán-
aðarins áttu félögin að standa fyrir viðburði eða kynningu á
starfseminni. Þau gátu farið í skóla eða á vinnustaði, verið
með bása, sýnikennslu eða gjörninga. Með þessu vildum við
ná til nýrra félaga. Í desember áttu fulltrúar allra landanna að
hittast á einum stað þar sem yrði lokahátíð og jafnvel verð-
launaafhending fyrir besta sjálfboðaliðann, áhugaverðustu
kynninguna eða slíkt.
Norræni rúnturinn/Rútan
Blái hópurinn: Gunnar og Elísabet.
Hugmyndin snerist um að ná til nýrra félaga, mennta væntan-
lega leiðtoga og hrósa efnilegu fólki fyrir vel unnin störf. Í stað
þess að ungmennin komi til samtakanna og segi hvað þau
langi til að gera töldum við tíma vera kominn til að félögin fari
til ungmennanna og sýni þeim hvað hægt sé að gera. Hug-
myndin gengur út á að setja upp leiðtogaskóla á hjólum. Fólki,
frá aðildarfélögum NSU, sem sýnt hafi áhuga og leiðtogahæfni,
sé safnað saman í rútu ásamt leiðbeinendum sem ferðist um
Norðurlöndin. Rútan stoppi í völdum borgum og bæjum. Þar
standi nemendurnir fyrir viðburði þar sem þeir nýti sér það
sem þeir hafi lært, auglýsi samtökin fyrir nýjum félögum og
hvetji þá til að sýna frumkvæði í sinni heimabyggð.
Ungdomsorganisationer.com
Græni hópurinn: Egill, Eygló Hrund og Orri.
Hugmyndin var að gera nýja heimasíðu fyrir öll félögin í NSU.
Hún átti að vera notendavæn, gagnvirk og vera miðlægur
gagnagrunnur um allt starfið. Notandi átti að geta farið inn á
hana og valið land, svæði og áhugamál. Þannig átti hann að
fá lista yfir öll félög sem sinntu áhugamálum hans á svæðinu.
Að lokum gat notandi smellt á nafn félagsins og fengið nánari
upplýsingar um það. Vefurinn átti að koma bæði notendum
og félögum að gagni. Þarna fengu félögin að auglýsa sig á
jafnréttisgrundvelli sem jafnframt auðveldar notanda að leita
að upplýsingum um tómstundastarf. Vel má ímynda sér að
þetta komi fólki til góða sem er nýflutt á óþekktar slóðir.
„Helgin virkjaði
ákveðnar heilastöðvar
sem legið hafa í dvala í
einhvern tíma.“
Velkomin á Selfoss
Eigum góða daga á Selfossi 4.–7. júlí 2013