Morgunblaðið - 29.10.2012, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2012
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Heilsa
Nýtt byrjendanámskeið hefst 5.
nóvember.
MFM miðstöðin
Sími: 568 3868
www.matarfikn.is
Snyrting
Babaria-snyrtivörur loksins á
Íslandi.
Babaria er fjölbreytt vörulína sem er
unnin úr náttúrulegum hráefnum og
hentar þörfum allrar fjölskyldunnar
fyrir alla daglega umhirðu húðar.
Vörurnar fást í netversluninni
www.babaria.is
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Saumavélar- saumavélaviðgerðir
Nýjar og notaðar saumavélar í úrvali.
Viðgerðir á flestum gerðum sauma-
véla. Skoðaðu úrvalið á saumavelar.is
eða hringdu í s. 892 3567 eftir
hádegi alla daga.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir,
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi. fannar@fannar.is
s. 551 6488.
Staðgreiðum gull,
demanta og úr.
Hringar, hálsmen, armbönd,
rolex,cartier, patek philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér
að kostnaðarlausu.
www.kaupumgull.is
upplýsingar í síma 661 7000
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
TILBOÐ - TILBOÐ -TILBOÐ
Fallegir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Litir: grátt og svart,
stakar stærðir.
TILBOÐSVERÐ: 3.500 kr.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Bílar
GULLFALLEGUR LAND ROVER
Range Rover H S E. SVARTUR MEÐ
SVÖRTU LEÐRI, ekinn 120 Þ. MÍLUR,
bensín, sjálfskiptur. Verð 2,7 milljónir.
Rnr.105476.
ÓSKUM EFTIR VINNUVÉLUM OG
TÆKJUM Á SKRÁ.
sala@bifreidar.is
bifreidar.is
Réttarhálsi 2, 110 Reykjavík.
S. 577 4777.
http://www.bifreidar.is
Bílaþjónusta
Hjólbarðar
Kebek neglanleg vetrardekk
- tilboð
Vinsæl dekk í Kanada
175/65 R 14 kr. 10.500
185/65 R 14 kr. 11.900
185/55 R 15 kr. 15.900
185/65 R 15 kr. 12.900
195/65 R 15 kr. 13.900
205/55 R 16 kr. 14.900
205/60 R 16 kr. 16.900
215/60 R 16 kr. 17.900
215/65 R 16 kr. 18.900
205/50 R 17 kr. 18.900
225/65 R 17 kr. 24.900
Gildir til 29.10. 2012
Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b,
201 Kópavogi, s. 5444 333.
Ökukennsla
Kenni á BMW 116i
Snorri Bjarnason,
sími 892 1451.
Bilaskoli.is
Glæsileg kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Þægileg og háþróuð kennslubifreið.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
Glerjun og gluggaviðgerðir
Lása- og hurðaviðgerðir ásamt öðrum
smíðaverkefnum.
Glugga- og hurðaþjónustan,
s. 895 5511, smidi.is.
Múr- og lekaviðgerðir
Sveppa- og örverueyðing
Vistvæn efni notuð
Húsaviðgerðir
www.husco.is
Vönduð vinna
Áratuga reynsla
Sími 555-1947 Gsm 894-0217
Byssur
GÆSASKOT 42 gr MAGNUM
Frábær gæði, hóflegt verð. Byssu-
smiðja Agnars, s. 891-8113.
Dreifing: Sportvörugerðin,
s. 660-8383. www.sportveidi.is
Til leigu
Studíó Vesturberg
Við Vesturberg 195 ,111 Reykjavík,
60 fermetrar, laust, jarðhæð, frekar
hrátt, sérinngangur, húsnæðið er ekki
samþykkt sem íbúðarhúsnæði þar af
leiðandi fást ekki húsaleigubætur.
Rafmagn og hiti er EKKI innifalinn í
leigunni, langtímaleiga sem þýðir 12
mánuðir eða lengur, laust. Kr. 90.000.
tveir mánuðir fyrirfram, kr. 180.000,
sem er fyrsti og síðasti mánuður
leigusamningsins. Vinsamlegast
takið fram í svari við auglýsing-
unni frá hvaða tíma ykkur vantar
húsnæðið og hve langan tíma,
takk. osbotn@gmail.cm
✝ Margrét TinnaGuðmanns-
dóttir Petersson
fæddist í Reykjavík
9. maí 1991. Hún
lést á heimili sínu
16. október 2012.
Móðir hennar er
Selma Aradóttir, f.
14. mars 1974. Sam-
býlismaður hennar
er Jóhann Freyr
Jónsson. Faðir
hennar er Guðmann Ólfjörð Guð-
mannsson, f. 29. júlí 1970. Systk-
ini Tinnu eru, sammæðra, Saga
Marie Petersson, f. 24. júlí 2001,
og, samfeðra, Óðinn Guðmanns-
son, f. 23. apríl 1991.
Tinna ólst upp í Gautaborg í
Svíþjóð hjá móður
sinni og fóstur-
föður, Martin Pet-
ersson, til 16 ára
aldurs en þá flutti
hún til Akureyrar
og bjó hjá ömmu
sinni og afa í Birkil-
undi 2. Hún stund-
aði nám við Verk-
menntaskólann á
Akureyri. Með námi
vann hún á sumrin á
golfvellinum á Þverá hjá afa sín-
um auk þess sem hún vann sem
þjónn á ýmsum veitingastöðum á
Akureyri.
Útför Margrétar Tinnu fer
fram frá Akureyrarkirkju í dag,
29. október, kl. 13.30.
Hví fölnar jurtin fríða
og fellir blóm svo skjótt?
Hví sveipar barnið blíða
svo brátt hin dimma nótt?
Hví verður von og yndi
svo varpað niður í gröf?
Hví berst svo burt í skyndi
hin besta lífsins gjöf?
(Björn Halldórsson í Laufási)
Elsku besta barnið okkar.
Það er svo erfitt að kveðja þig,
sárara en nokkur orð fá lýst.
Þú varst okkar líf og yndi frá
fyrsta degi sem þú leist dagsins
ljós. Við höfðum aldrei séð fal-
legra barn enda eru það forrétt-
indi að fá að eignast langömmu-
og langafabarn, en vera samt á
miðjum aldri sjálf. Ekki minnk-
aði ánægjan og stoltið eftir því
sem árin liðu og þú óxt úr grasi.
Sífellt fallegri og elskulegri, svo
ótrúlega hæfileikarík á öllum
sviðum, best af öllu var þó við-
vera þín, hlý, glettin og ástrík.
Eftirsjáin er mikil, en samt
eigum við svo mikið að þakka að
hafa haft þig hjá okkur í 21 ár.
Þú munt lifa með okkur hvern
dag sem okkur endist, ævina á
enda.
Hafðu þökk fyrir allt elsku
barn. Megi englar Guðs vaka yfir
þér.
Þín langamma og langafi,
Margrét Kristinsdóttir
og Gunnar Sólnes.
Tinna er farin.
Hver er sanngirnin í þessum
heimi?
Ósjálfrátt hugsar maður til
sinna barna og spurningarinnar
„hvað ef?“ og kremur það móð-
urhjartað enn meira. Það á eng-
inn að þurfa að jarða barnið sitt.
Eftir standa góðar minningar
um Tinnu. Þessi fallega stelpa
sem var með eitt fallegasta og
breiðasta brosið sem ég hef séð.
Það geislaði alltaf af henni og
aldrei bar hún neitt annað með
sér en jákvæðni og fallega sýn á
heiminn.
Það er mér ómetanleg minning
þegar ég sótti Tinnu á flugvöllinn
að vetri til þegar hún var að koma
frá Svíþjóð. Markmiðið var að
skutla henni á Reykjavíkurflug-
völl nánast beint frá Keflavíkur-
flugvelli þar sem næsti viðkomu-
staður var Akureyri í faðm ömmu
og afa. Veðrið breyttist og var
fluginu aflýst. Ekki var um neitt
annað að velja en að búa um
prinsessuna hjá okkur og bíða
eftir að veðrinu slotaði. Í fyrstu
var búið um inni hjá yngri stelp-
unni þar sem jafnöldrurnar voru
svo feimnar. Ekki leið á löngu þar
til ég sá dýnuna dregna inn í ung-
lingaherbergið og hlátrasköllin
byrjuðu með tilheyrandi gelgju-
látum. Eftir þetta var það frekar
regla en ósk að fá að sækja Tinnu
á völlinn svo Viktoría Rós og
Tinna gætu spjallað saman.
Fyrir nokkrum helgum fékk
ég dásamlega heimsókn frá
mæðgunum Selmu og Tinnu.
Þær sátu spakar og drukku kaffi.
Þær hlógu og geislaði hamingjan
af Tinnu þegar hún sagðist ætla
að fá sér stóran fugl sem hún
gæti kennt að tala. Ég leiðbeindi
þeim um staðinn sem hann feng-
ist á, bað þær að leyfa mér að
fylgjast með. Eftir að hafa faðm-
að þær mæðgur héldu þær af
stað í fuglaleiðangur. Þetta var
það síðasta sem ég sá af Tinnu.
Ég kveð fallega stelpu með
sorg í hjarta og bið æðri mátt að
styrkja fjölskylduna á þessum
erfiðu stundum.
Helga Linnet og fjölskylda.
Hvar byrjar maður á minning-
argrein? Við erum svo heppin að
hafa ekki oft um ævina þurft að
skrifa slíka grein. Það er þyngra
en tárum taki að vita til þess að
við höfum kvatt Margréti Tinnu í
hinsta sinn. Suma hluti er bara
ekki hægt að skilja.
Margrét Tinna var stór per-
sónuleiki. Hún var yndisleg
manneskja með mikla útgeislun.
Hún var góð vinkona og við eig-
um góðar minningar um þessa
frábæru stelpu sem fór allt, allt of
snemma. Á stundu sem þessari
getur maður lokað augunum og
séð hana ljóslifandi fyrir sér á
pallinum heima í Aðalstræti að
leika sér. Þannig ætlum við að
halda í hana. Góð, skemmtileg,
falleg, það eru orðin sem munu
lýsa Tinnu í hjörtum okkar. Ljós-
ið hennar mun lýsa innra með
okkar um ókomna tíð.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Hvíldu í friði elsku Tinna okk-
ar, við elskum þig.
Við viljum votta fjölskyldu
Tinnu okkar dýpstu samúð á
þessum erfiðu tímum.
Fjölskyldan í Aðalstræti 80b,
Aníta Eldjárn Kristjáns-
dóttir, Helga Aðalbjörg
Jóhannsdóttir, Juan Gabriel
Rios Kristjánsson, Karen
Mist Kristjánsdóttir,
Kristján Eldjárn Jóhann-
esson og Kristján Eldjárn
Kristjánsson.
Við svo skyndilegt fráfall
ungrar stúlku í blóma lífsins
verður maður smár og máttvana,
spyr spurninga en fær engin
svör. Harmur okkar allra er
meiri en orð fá lýst og hugur okk-
ar hjá fjölskyldu Tinnu sem alla
tíð hefur umvafið hana kærleika
og hlýju. Nú þarf að takast á við
það erfiða verkefni að lifa áfram
án hennar. Ung móðir, lítil systir,
faðir, fósturfaðir, móðurbróðir,
amma, afi, langamma, langafi,
fjölskyldan og vinirnir.
Tinna var augasteinn ömmu
sinnar, vinkonu okkar Helgu, og
við svo heppin að hafa átt margar
yndislegar stundir með henni.
Minningin um Tinnu er ljúf, stóru
björtu augun hennar, fallega
brosið og smitandi hláturinn. Allt
gefur þetta okkur styrk inn í
komandi tíma.
Elsku Selma, Tinna þín mun
lifa áfram á æðri stigum. Þú varst
ung þegar hún kom í heiminn og
ung var hún tekin frá þér. Þú
gafst henni allt sem móðir getur
gefið barni sínu, umhyggjan
skein úr andliti þínu frá fyrsta
degi. Ykkar stóra og sérstaklega
samheldna fjölskylda mun ásamt
vinum hjálpa þér og þínum nán-
ustu að takast á við þessa miklu
sorg. Við vitum að með æðruleysi
er hægt að læra að lifa með sorg-
inni og takast á við lífið framund-
an. Það hefur örugglega verið ósk
elsku Tinnu þinnar.
Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér,
vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
(Hallgrímur Pétursson)
Kæru vinir, fjölskylda Mar-
grétar Tinnu, við sendum okkar
dýpstu samúðarkveðjur til ykkar
allra. Hugur okkar er hjá ykkur
öllum stundum.
Helena, Einar,
Anna Pála, Sindri
og Sunna Mjöll.
Margrét Tinna G.
Petersson
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið.
Minningargreinar