Morgunblaðið - 29.10.2012, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2012
H
a
u
ku
r
1
0
.1
2
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hrl.
sigurdur@kontakt.is
Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta.
Skráning á www.kontakt.is
Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í•
tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar.
Upplýsingar og skráning á www.kontakt.is.
Stórt þvottahús og efnalaug. Góð tæki og stöðugur vöxtur.•
Þekkt tískufataverslun í Kringlunni. Góð umboð.•
Heildverslun með tæknivörur fyrir matvælaiðnaðinn. Ársvelta 80 mkr.•
Heildverslun með fatnað og vefnaðarvöru. Ársvelta 170 mkr.•
Góð afkoma.
Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki tengt byggingariðnaði.•
Stöðug ársvelta um 150 mkr. og rúmlega 20 mkr. EBITDA.
Þekktur skyndibitastaður. Ársvelta 70 mkr.•
Innflutningsfyrirtæki með tæknivörur á vaxandi markaði.•
Ársvelta 60 mkr. og yfir 100% álagning.
Lítil en rótgróin bókaútgáfa sem sérhæfir sig á ákveðnu sviði.•
Stöðug velta allt árið.
Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki með vinsæla fjárfestingavöru fyrir•
heimili. Stærsta fyrirtækið á þessu sviði og hefur verið með stöðuga
veltu (um 130 mkr.) síðustu árin. Góður hagnaður og hagstæðar skuldir
sem hægt er að yfirtaka.
Veitingastaður / verslun
Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is
Það er mánudagur!
Fiskur í matinn?
Bjóðum upp á glæsilegt úrval úr fiskborðinu okkar.
Frábæru fiskibollurnar á aðeins 849 kr/kg.
Kíktu við í dag, opið til 18:15
Eftir Líneyju Sigurðardóttur
Þórshöfn | Rjúpnavertíðin er haf-
in og veiðiglatt byssufólk skondrar
um fjöll og firnindi í von um að
rekast á rjúpu, þennan hvítfiðraða
hænsfugl sem mörgum þykir
ómissandi á jólaborðið.
Á Þórshöfn er mikil hefð fyrir
jólarjúpu og næstu vikurnar verð-
ur aðalumræðuefnið í plássinu
hversu mörgum fuglum menn hafa
náð. Skotstað og aðstæðum þarf að
lýsa vel og njóta augnabliksins,
enda er ekki um marga veiðidaga
að ræða, aðeins níu. Að ganga til
rjúpna er gömul hefð sem hefur
verið sterk hér á Langanesi. Rjúp-
an var þó ekki alltaf jólamatur hjá
horfnum kynslóðum, hún var á
borðum hversdagsins en jólamat-
urinn var hangikjöt og svið, segir
fyrrverandi íbúi á Skálum á
Langanesi.
Bókasafnið fékk 130 þúsund
Ungmennin hér taka snemma
þátt í lífi og starfi þeirra fullorðnu,
þar eru veiðiferðirnar ekki und-
anskildar. Unglingsdrengir hafa
líka beðið spenntir eftir rjúpnatím-
anum og fara á fjöll með feðrum
og vinum þar sem þeir læra að um-
gangast skotvopn og væntanlega
náttúruna sjálfa af virðingu.
Áhugi margra þeirra liggur á
þessu sviði, eins og bókavörðurinn
í skólasafninu komst að, þegar
hann var að hvetja unga menn til
meiri lestrar. Óskabækurnar voru
Skotvopnabókin og Veiðar á villt-
um fuglum og spendýrum. Stóra
bílabókin var líka á listanum og
verður hún lesin eftir rjúpna-
vertíð.
Mörg lítil bókasöfn hafa úr litlu
að spila til bókakaupa og þegar
bókavörður leitaði eftir styrk hjá
fyrirtækjum og félagasamtökum
til bókakaupa vegna lestrarátaks
brugðust Verkalýðsfélag Þórs-
hafnar og Sparisjóður Þórshafnar
vel við beiðninni og gáfu samtals
130.000 krónur. Svona er mann-
lífið gott á Þórshöfn.
Veiðibækur vinsæl-
astar á bókasafninu
Mikið rætt um rjúpuna á Þórshöfn næstu vikurnar
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Veiðibækur Ungu mennirnir á bókasafninu á Þórshöfn, Jón Fannar og Mar-
inó Níels, með óskabækurnar, sem fjalla um skotvopn og veiðar.
Þrettán gefa kost á sér í flokksvali Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík sem fram fer 16.-17.
nóvember. Niðurstöður flokksvalsins verða
bindandi fyrir átta efstu sætin, það er fjögur í
hvoru Reykjavíkurkjördæminu, og verður
fléttulistum beitt við uppröðun á listana,
þannig að fyrir liggur að kona leiði í öðru kjör-
dæminu og karl í hinu.
Þrír setja stefnuna á 1. sæti í Reykjavík-
urkjördæmi, en það eru þau Sigríður Ingi-
björg Ingadóttir í 1.-2. sæti, Valgerður
Bjarnadóttir í 1.-2. sæti og Össur Skarphéð-
insson, sem gefur kost á sér í 1. sæti. Athygli
vekur að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
skilaði ekki inn framboði í prófkjör Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík en Ásta hefur verið
þingmaður frá árinu 1995 og situr nú sem for-
seti Alþingis.
Hún hefur setið fyrir Þjóðvaka, Alþýðu-
flokkinn og Samfylkinguna.
„Ég hef ákveðið að taka ekki þátt í próf-
kjörinu í Reykjavík. Tíminn verður að leiða
það í ljós hvað framtíðin ber í skauti sér,“
sagði Ásta í samtali við mbl.is í gær.
Þrettán í flokksvali en ekki Ásta
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
„Hátíðin í ár var vel sótt þótt rign-
ingin hafi vitanlega aðeins truflað
fólk,“ segir Jóhann Jónsson, eig-
andi Ostabúðarinnar á Skólavörðu-
stíg, um Kjötsúpudaginn sem fram
fór á laugardaginn. Súpuunnendur
þurftu að umbera rigningu mestan
hluta dags, en fæstir létu hana á
sig fá og víðs vegar um Skóla-
vörðustíg mátti sjá gesti ylja sér á
rammíslenskri kjötsúpu með
lambakjöti. Í tengslum við hátíðina
var efnt til dósasöfnunar til
styrktar bændum sem misstu fé
sitt í áhlaupinu fyrir norðan fyrr í
mánuðinum. „Ekki liggur fyrir
hversu mikið safnaðist, það kemur
í ljós að talningu lokinni. Dósirnar
eru nú í endurvinnslu og á næstu
dögum kemur í ljós hversu há
söfnunarupphæðin er í ár,“ segir
Jóhann.
Morgunblaðið/Eggert
Gott Úlfar á Þremur Frökkum skenkti súpu af krafti í rigningunni.
Gæddu sér á rjúkandi
kjötsúpu í rigningunni