Morgunblaðið - 29.10.2012, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2012
VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA
Dreifikerfi Póstsins er það víðtækasta
á landinu. Fimm daga vikunnar fá 99%
heimila og fyrirtækja afhentar sendingar
sem Pósturinn dreifir. Stór bílafloti og hópur
reyndra starfsmanna gerir þér kleift að velja
lausnir sem henta þörfum þíns fyrirtækis.
Við getum sent nánast hvað sem er, bæði
stórt og lítið – hratt eða á hagkvæman hátt.
Vörudreifing Vöruhýsing
Sendla-
þjónusta
Fyrirtækja-
þjónusta
Auglýsinga-
póstur
Viðskipta-
pakkar til
útlanda
www.postur.is
VÍÐTÆKASTA
DREIFIKERFIÐ
GEFUR VÍÐTÆKAR
LAUSNIR
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
2
-1
8
6
7
Það hvarflar að manni aðSvíar séu illa haldnir afeinhvers konar vel-ferðar-samviskubiti, svo
staðráðnir virðast þeir vera í því
að draga fram allt það versta sem
mögulega gæti leynst undir yf-
irborðinu í
sænsku sam-
félagi og tyfta
sig fyrir það í
hverri bók-
inni á fætur
annarri.
Í glæpasög-
unni Box 21
er sjónum
beint að því
ógeðslega
samfélags-
meini sem mansal er, og ekkert er
dregið undan þegar lýst er hvern-
ig sænskir millistéttarkarlar fá
útrás fyrir kynferðislegar brengl-
anir á litháskum unglingsstúlkum
sem hnepptar eru í þrældóm með
loforðum um betra líf í velferð-
arríkinu.
Box 21 er óvenjuleg glæpasaga í
uppbyggingu að því leyti að sjálf-
ur glæpurinn sem lögregla rann-
sakar á sér ekki stað fyrr en um
miðja bók. Hinn glæpurinn, sá
faldi og viðvarandi, er mansalið
sem lögreglan ýmist lítur vísvit-
andi framhjá eða hefur ekki burði
til að uppræta. Að öðru leyti er
þetta fremur hefðbundin skandin-
avísk glæpasaga. Það rignir lát-
laust allan tímann og lögreglu-
maðurinn í forgrunni er þung-
lyndur einstæðingur sem fer sínar
eigin leiðir.
Sagan virðist skrifuð með bíó-
mynd í huga og sem slík gæti hún
án efa orðið spennandi. Bókin er
hins vegar of langdregin og flétt-
urnar í söguþræðinum fyrirsjáan-
legar, jafnvel svo að lesandinn
pirrar sig á því að lögreglan skuli
ekki kveikja á perunni fyrr. Efni-
viðurinn hreyfir óhjákvæmilega
við manni og kannski getur bókin
orðið til þess að opna augu ein-
hverra fyrir þeim hryllingi sem
þetta nútímaþrælahald er. Hins
vegar skín það í gegn að lagt var
upp með þessi bókaskrif ekki til
þess að segja sögu heldur til að
koma boðskap á framfæri. Þegar
yfir lauk fannst undirritaðri höf-
undar í of miklum predikunar-
stellingum og keyrði um þverbak
þegar kom að eftirmálanum í lok-
in. Ef sagan er góð kemur hún
boðskapnum á framfæri án þess
að höfundar þurfi að útskýra hvað
þeir eru að reyna að segja og
hvernig lesandanum eigi að líða
yfir því.
Box 21 bbmnn
Eftir Roslund & Hellström. Sigurður Þór
Salvarsson þýddi. Uppheimar. 411 bls.
UNA
SIGHVATSDÓTTIR
BÆKUR
Svíar með
samviskubit
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga