Morgunblaðið - 29.10.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2012
Morgunblaðið/RAX
Verslun Svava Eyjólfsdóttir, barnabarn Guðsteins, rekur verslunina í dag
en hún tók við rekstrinum af föður sínum um síðustu aldamót.
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Árið 1918 er merkilegt fyr-ir margar sakir. Evrópalauk mannskæðu ogkostnaðarsömu stríði sem
staðið hafði yfir frá árinu 1914 og
leikið efnahag flestra ríkja álfunnar
grátt. Íslendingar samþykktu
sambandslagasamninginn við Dan-
mörku, frostaveturinn mikli gekk yfir
og spænska veikin herjaði á þjóðina.
Það er erfitt að ímynda sér að við slík-
ar aðstæður gæti skapast grundvöll-
ur fyrir traustum rekstri. Vandamál
umheimsins og hér heimafyrir stóðu
þó ekki í vegi fyrir Guðsteini Eyjólfs-
syni klæðskera og konu hans Guð-
rúnu Jónsdóttur sem hófu saman
sjálfstæðan rekstur undir nafni Guð-
steins, rekstur sem enn í dag stendur
traustum fótum undir nafninu Versl-
un Guðsteins og hefur verið í eigu
sömu fjölskyldunnar frá upphafi.
Svava Eyjólfsdóttir, barnabarn Guð-
steins, rekur verslunina í dag en hún
tók við rekstrinum af föður sínum um
síðustu aldamót og rekur hana enn.
Í takt við nýjan tíma
Afar fátítt er að fyrirtæki á Ís-
landi nái jafn háum aldri og Verslun
Guðsteins en hún fagnar 100 ára af-
mæli sínu áður en áratugurinn er á
enda. Svava segir lykilatriði að versl-
unin staðni ekki og leiti sífellt leiða til
að takast á við nýja tíma. „Í kjölfar
innflutningshaftanna kom afi upp
skyrtugerð árið 1937 en þær voru
framleiddar undir merkinu Reylon.
Eins voru saumaðar peysur og jakka-
föt í versluninni. Upp úr 1960 dró úr
innflutningshöftum og þá var fram-
leiðslu jakkafata hætt. Skyrtur og
peysur voru þó framleiddar í versl-
uninni langt fram eftir áttunda ára-
tugnum.“ Í dag stendur verslunin
frammi fyrir öðrum áskorunum, m.a.
samkeppni við fjölda tískuverslana og
aukinni verslun fólks á netinu. Líkt
og faðir Svövu og afi hennar gerðu á
sínum tíma hefur hún aðlagað versl-
unina nýjum tíma og breyttum að-
stæðum. Hún hefur svarað kalli tím-
ans um breytingar og fært út
kvíarnar þannig að viðskiptavinir
hennar geta nú keypt sér föt frá
versluninni í gegnum netið á slóðinni
gudsteinn.is. „Ég hef alltaf lagt
áherslu á að sinna vel þeim trausta
hópi viðskiptavina sem hafa verið í
viðskiptum við okkur í gegnum tíðina.
En það er líka mikilvægt að horfa
fram á veginn og nýta þau tækifæri
sem tæknin gefur okkur og því hef ég
sett upp vefverslun Guðsteins,“ segir
Svava og bendir á að með vefversl-
uninni breikki hópur viðskiptavina
verslunarinnar og hún geti þjónað
viðskiptavinum sínum á landsbyggð-
inni betur.
Heldur enn í hefðina
Yngra fólk sækir í auknum mæli
í verslunina að sögn Svövu en hún
segir tískuna vera þess eðlis að
ákveðnir litir, snið og stíll komi allt-af
aftur í tísku. „Ég er farin að selja
ungum mönnum sixpensara aftur í
nokkrum mæli og slaufur eru líka að
koma í tísku aftur.“
Þrátt fyrir að tískan gangi í
hringi og Verslun Guðsteins aðlagi
sig tíðarandanum hverju sinni segir
Svava verslunina vera íhaldssama að
því leyti að halda í vörumerki og við-
skipti við gömul erlend fjölskyldufyr-
irtæki. „Við kaupum vandaðar vörur
frá fyrirtækjum erlendis sem mörg
hver eru eldri en Verslun Guðsteins
og gjarnan eru þetta fyrirtæki sem
hafa verið í eigu sömu fjölskyldunnar
lengi.“ Að sögn Svövu leggur hún
Í takti við tímann
Verslunarrekstur hefur tekið stakkaskiptum undanfarna áratugi. Miðbær Reykja-
víkur og Laugavegurinn hafa átt í harðri samkeppni við verslunarmiðstöðvar
sem risið hafa um allt höfuðborgarsvæðið. Enn er þó að finna gamlar og rót-
grónar verslanir í miðborginni sem fylgjast líka með og opna vefverslun.
Við búðarborðið Guðsteinn Eyjólfsson klæðskeri við búðarborðið árið
1963, en hann starfaði við verslunina allt þar til hann lést 1972.
Allir ættu að kunna að binda bindis-
hnút, þó ekki væri nema bara eina
gerð. Það er aldrei að vita hvenær sá
hæfileiki kemur að notum. Vissulega
kunna flestir karlmenn í það minnsta
einn hnút en það getur verið gott að
kunna einn til tvo til viðbótar til að
auka á fjölbreytnina og bæta útlitið á
svipstundu. Þá færist í aukana að
konur gangi með bindi og þar sem
bindishnútar eru almennt ekki hluti
af uppeldi stúlkna eins og gjarnan er
hjá drengjum, koma heimasíður á
borð við tie-a-tie til hjálpar. Hvernig á
að binda Windsor eða hálfan Wind-
sor? eða Pratt-hnút? Þessir hnútar
og fleiri eru kenndir á síðunni en hún
er einstaklega þægileg og auðlesin.
Útlitið er flott og á síðunni má finna
upplýsingar um það hvað telst hæfi-
leg lengd á bindi, hvaða hnútur fer
við hvað þykkt og auðvitað eru mynd-
bönd sem sýna gerð hnútanna.
Vefsíðan www.tie-a-tie.net
Konur Það eru ekki bara karlmenn sem ganga með bindi.
Bindishnútar fyrir öll tækifæri
Á morgun kl. 17 getur fólk farið frítt í
bíó því ókeypis er á kvikmyndasýn-
ingar Konfúsíusarstofnunar norður-
ljósa. Þá verður sýnd í Odda stofu 101
kvikmyndin Vasaþjófurinn. Hún er frá
árinu 1997 og segir frá litla vasaþjóf-
inum Wu sem komst aldrei af götunni
eins og vinir hans. Þegar hann verður
ástfanginn af vændiskonu fer hann
að hugsa um framtíðina, en getur
hann losað sig úr viðjum fortíð-
arinnar? Leikstjórinn, Jia Zhangke,
hlaut Gullna ljónið á kvikmyndahátíð-
inni í Feneyjum 2006. Honum er lýst
sem hugsanlega „mikilverðasta kvik-
myndagerðarmanni samtímans“.
Endilega …
… sjáið
Vasaþjófinn
Vasaþjófurinn Athyglisverð mynd.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Húsið við Laugaveg 34 hefur hýst Versl-
un Guðsteins frá árinu 1929 en húsið er
meira en bara verslunarhúsnæði. Guð-
steinn og Guðrún gerðu sér heimili á
þriðju hæð hússins og leigðu út ein-
staklingsherbergi í risinu. Á öndverðum
fjórða áratugnum leigði Edith Jónsson
ballettkennari íbúðina, og bjó þar ásamt
dóttur sinni Helenu. Í salnum á hæðinni
kenndi Edith ballett. Hún átti flygil og
um tíma var MA-kvartettinn þar við æf-
ingar. Seinna bjó þýsk fjölskylda á hæð-
inni, landflótta Gyðingar. Húsið á sér því
einstaka og merka sögu en tengsl þess
við Verslun Guðsteins og fjölskyldu
verða alltaf órjúfanleg.
Húsið við Laugaveginn
HEIMILI OG VERSLUN
GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ -ÞAÐ ER TENGI
Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 • www. tengi.is • tengi@tengi.is
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050
HANNAÐU BAÐHERBERGIÐ MEÐ TENGI
Almar sturtuhausar
Mora sturtusett
Ifö salerni