Morgunblaðið - 29.10.2012, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2012
Hugsjónamenn hafa oft ekki tíma til að hugsa um afmæli sínog Guðmundur G. Þórarinsson, fyrrverandi forseti Skák-sambands Íslands, er í þeim hópi, en hann er 73 ára í dag.
„Ég er ekki alinn upp við það að halda upp á nein afmæli og ég fylg-
ist ekki með því enda er þetta ekki neitt afmæli,“ segir hann. Minnir
á að hann reki eigin verkfræðistofu og hafi mikið að gera í alls kon-
ar verkfræðistörfum.
Félagarnir Guðmundur og Einar S. Einarsson, sem jafnframt er
fyrrverandi forseti Skáksambandsins, hafa verið óþreytandi í að
minna á mikilvægi þess að halda skákeinvígi Bobbys Fishers og Bo-
rys Spasskys í Laugardalshöll sumarið 1972 á lofti og hafa lagt
áherslu á að komið verði upp einvígissafni í Reykjavík um þetta
„skákeinvígi allra tíma“ auk þess sem þeir vilja sjá minnismerki um
það í grennd við Laugardalshöll. „Menn gera sér ekki grein fyrir
hvað þetta var stór atburður,“ segir Guðmundur. Hann bendir á að
útlendingar hafi sýnt einvíginu mikinn áhuga. Á annað hundrað
bækur hafi verið skrifaðar um viðureignina, kvikmyndir og sjón-
varpsþættir gerðir um baráttuna og ekki sjái fyrir endann á er-
lendri umfjöllun. Erlendir ferðamenn hafi þurft að standa í röð til
þess að komast að leiði Fischers í Laugardælakirkjugarði en meira
þurfi til. Margt tengist einvíginu „og því verður ekki komið fyrir í
einhverju skúmaskoti,“ segir Guðmundur. steinthor@mbl.is
Guðmundur G. Þórarinsson 73 ára
Morgunblaðið/Ómar
Fundur Guðmundur og Einar sáu gestabók Laugardalshallar frá
1972, sem Fischer og Spassky skrifuðu í, fyrst fyrir skömmu.
Einvígi allra tíma
má ekki gleymast
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Á
smundur fæddist í
Reykjavík 29.10. 1982 en
ólst upp lengst af í Dala-
sýslu. Hann lauk bú-
fræðiprófi frá Landbún-
aðarháskólanum á Hvanneyri árið
2002 og BSc-prófi í almennum búvís-
indum frá Landbúnaðarháskóla Ís-
lands 2007.
Ásmundur er sauðfjárbóndi á
Lambeyrum í Dalasýslu og rak þar
innflutnings- og sölufyrirtæki með
vörur fyrir landbúnað til 2011.
Formaður Heimssýnar
Ásmundur sat í stúdentaráði Land-
búnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri
2001-2002, var formaður stúdentaráðs
2004-2005, formaður Félags sauð-
fjárbænda í Dalasýslu 2005-2010, for-
maður svæðisfélags Vinstri hreyfing-
arinnar – Græns framboðs í Dölum
2005-2007, situr í háskólaráði Land-
búnaðarháskóla Íslands frá 2009 og
er formaður Heimssýnar frá 2010.
Ásmundur hefur verið alþm. í
Norðvesturkjördæmi frá 2009
fyrir Vinstri hreyfinguna – Grænt
framboð, utan flokka og fyrir Fram-
sóknarflokkinn.
Ásmundur sat í Allsherjarnefnd
Alþingis 2009-2010, fjárlaganefnd
2009-2011, menntamálanefnd 2009-
2010, sjávarútvegs- og landbún-
aðarnefnd frá 2009 og 2010-2011, fé-
lags- og tryggingamálanefnd 2010-
2011, samgöngunefnd 2011, um-
Ásmundur Einar Daðason alþingismaður - 30 ára
Fjölskyldan í fjárhúsunum Ásmundur og Sunna Birna, ásamt dætrunum Aðalheiði Ellu og Júlíu Hlín.
Sýn á heiminn allan –
ekki bara Evrópu
Í útreiðartúr Ásmundur og dæturnar á ferð. Júlía Hlín hjá föður sínum en
Aðalheiður Ella orðin þaulvön hestakona.
Guðmunda Kr. Jónsdóttir,
Selfossi, fyrrverandi hús-
freyja á Vorsabæjarhóli í Flóa,
er níræð í dag, 29. október.
Hún heldur upp á afmælis-
daginn með fjölskyldu sinni.
Árnað heilla
90 ára
Reykjanesbær Alexander Hlíðberg fæddist 9.
janúar kl. 13.37. Hann vó 2.880 g og var 50 cm
langur. Foreldrar hans eru Brynja Dögg og
Óskar Hlíðberg.
Nýr borgari
Það er ekki oft sem fimm ættliðir
í beinan kvenlegg hittast en það
er ekki svo með þennan kvenlegg,
því þær eru svo heppnar að vera
allar í nágrenni hver við aðra. Hér
má sjá Ástu Helgadóttur, fædd
26. maí 1920, og heldur hún á
dótturdótturdóttur sinni, Gabrí-
ellu Hill, sem fæddist 28. maí síð-
astliðinn. Fyrir aftan þær standa,
frá vinstri talið: Elín Jónsdóttir,
fædd 1944, langamma Gabríellu,
Ásta María Sigurðardóttir, fædd
1964, amma Gabríellu, og Silja
Sigurðardóttir, fædd 1990, móðir
hennar. Þær búa allar í Land-
eyjum nema Silja og Gabríella
sem búa á Hvolsvelli.
Fimm ættliðir í beinan kvenlegg
Árin segja sitt1979-2012
BISTRO
Laugarásvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 553 1620 | laugaas.is