Morgunblaðið - 29.10.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 2012
Fólk þarf sennilega að vera orð-ið dálítið gleymið til að hlusta
á ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur á
flokksráðsfundi Samfylkingarinnar
um helgina án þess að brosa að
minnsta kosti út í annað.
Ræðan var flutteins og Sam-
fylkingin hefði alls
ekki átt sæti í rík-
isstjórn fyrr en eftir
fall bankanna og
enginn sem hlustaði
og ekki mundi sög-
una gat látið sér
detta í hug að flokkurinn hefði átt
aðild að hrunstjórninni svokölluðu.
Enn síður hefði verið hægt aðímynda sér að Jóhanna hefði
sjálf átt sæti í þeirri stjórn og
meira að segja stýrt ráðuneyti á
mikilvægu sviði efnahagsmála.
Fleira var undarlegt í ræðunni,eins og til dæmis sá einlægi
ásetningur formanns Samfylking-
arinnar að halda áfram að ein-
angra flokkinn í íslenskri pólitík.
Ekki aðeins fóru margir drjúgirhlutar ræðunnar í að lýsa
fullum fjandskap við Sjálfstæð-
isflokkinn og útiloka þar með sam-
starf við hann, heldur hélt hún
áfram að mála Samfylkinguna
lengra út í horn vegna ESB-
sérviskunnar.
Hún fullyrti að á næsta kjör-tímabili kæmi að ákvörðun
um aðild að ESB, en hvern ætlar
Samfylkingin þá að fá með sér í
áframhaldandi aðlögunarvið-
ræður?
Hvorki almenningur né aðrirstjórnmálaflokkar vilja elta
Samfylkinguna í ESB-málinu. Eru
aðrir samfylkingarmenn sáttir við
að vera úti í horni með Jóhönnu?
Jóhanna
Sigurðardóttir
Hornmálning
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 28.10., kl. 18.00
Reykjavík 3 skýjað
Bolungarvík 3 skýjað
Akureyri 0 skýjað
Kirkjubæjarkl. 1 skýjað
Vestmannaeyjar 3 heiðskírt
Nuuk 2 alskýjað
Þórshöfn 5 skýjað
Ósló -1 skýjað
Kaupmannahöfn 5 léttskýjað
Stokkhólmur 1 heiðskírt
Helsinki -2 heiðskírt
Lúxemborg 6 heiðskírt
Brussel 7 léttskýjað
Dublin 7 súld
Glasgow 8 skýjað
London 8 léttskýjað
París 10 léttskýjað
Amsterdam 8 léttskýjað
Hamborg 5 léttskýjað
Berlín 5 léttskýjað
Vín 4 skýjað
Moskva 6 skúrir
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 16 heiðskírt
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 12 léttskýjað
Aþena 23 skýjað
Winnipeg -2 skýjað
Montreal 12 alskýjað
New York 14 alskýjað
Chicago 8 skýjað
Orlando 20 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
29. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:04 17:20
ÍSAFJÖRÐUR 9:20 17:14
SIGLUFJÖRÐUR 9:03 16:56
DJÚPIVOGUR 8:36 16:47
Málþing með notendum Faxaflóahafna
Mánudaginn 29. október, kl. 16:00 í þjónustumiðstöðinni á Skarfabakka
Til þess að kynna það sem efst er á baugi hjá Faxaflóahöfnum sf. og fræðast
um starfsemina á hafnarsvæðum fyrirtækisins boða Faxaflóahafnir sf. til
málþings mánudaginn 29. október í þjónustumiðstöðinni á Skarfabakka.
Dagskrá málþingsins á að snerta málefni sem flestra á hafnarsvæðum
Faxaflóahafna sf. og verður sem hér segir:
Ávarp: Hjálmar Sveinsson, formaður stjórnar Faxaflóahafna sf. –•
skipulagsmál.
Gísli Gíslason, hafnarstjóri - rekstur og framkvæmdir á vegum•
Faxaflóahafna sf. árið 2013.
Þór Sigfússon – Íslenski sjávarklasinn.•
Sigvaldi Jósafatsson – höfnin, togarar og ferðaþjónusta.•
Svanbjörg Hróðný Einarsdóttir – Viðey og tengslin við höfnina.•
Umræður og fyrirspurnir.•
Fundurinn er opinn öllum, en þeir sem eru með starfsemi á hafnarsvæðum
Faxaflóahafna sf. eru sérstaklega hvattir til að mæta. Á fundinum gefst
tækifæri til þess að koma með fyrirspurnir og ábendingar um það sem
varðar hafnarrekstur, þjónustu og aðstöðu fyrir viðskiptavini.
Gísli Gíslason,
hafnarstjóri
Marteinn Æg-
isson hefur
ákveðið að gefa
kost á sér í 4. sæti
í flokksvali Sam-
fylkingarinnar í
Suðurkjördæmi,
sem fram fer 16.-
17. nóvember.
Marteinn starfar
hjá velferðarsviði Reykjavík-
urborgar, ásamt því að vera sitjandi
formaður knattspyrnudeildar Þrótt-
ar í Vogum. Marteinn segir í tilkynn-
ingu að áhugi sinn á pólitík hafi auk-
ist mikið frá því að kreppan skall á.
Hann vilji taka þátt í að koma hjól-
um atvinnulífsins aftur í gang.
Áhugi hans liggi þó einna mest í
íþróttalífinu þar sem íþróttir al-
mennt séu besta forvörnin fyrir ungt
fólk í dag. Marteinn er einstæður
faðir, en sonur hans, Eggert, hefur
búið hjá honum sl. þrjú ár.
Stefnir á 4. sætið
hjá Samfylkingu
STUTT
Álfheiður Inga-
dóttir alþing-
ismaður hefur
ákveðið að gefa
kost á sér í for-
vali Vinstri
grænna fyrir
þingkosning-
arnar í vor en
það fer fram 24. nóvember n.k. Hún
leitar eftir stuðningi í 2. sæti í
Reykjavík.
Álfheiður var kosin á þing vorið
2007. Hún er núna formaður þing-
flokks VG og varaformaður stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefndar þings-
ins. Þá á hún sæti í umhverfis- og
samgöngunefnd og í forsætisnefnd
þingsins.
Á síðasta þingi var Álfheiður for-
maður velferðarnefndar og við-
skiptanefndar 2009 og 2011. Hún
hefur átt sæti í mörgum öðrum
nefndum þingsins og var heilbrigð-
isráðherra 2009-2010. Álfheiður er
jafnframt fulltrúi í umhverfis- og
auðlindanefnd Norðurlandaráðs og
var um tíma formaður flokkahóps
vinstri grænna sósíalista í ráðinu.
Gefur kost á sér í
2. sæti í Reykjavík