Morgunblaðið - 29.10.2012, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 303. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. „Er ekki með klámmyndapíku“
2. Tvö rauð í fyrsta sigri United…
3. Gary Glitter handtekinn
4. Samkvæmi fór úr böndunum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Ísold Uggadóttir hlaut um helgina
verðlaun fyrir stuttmynd sína Útrás
Reykjavík á kvikmyndahátíðinni Sem-
inci í Valladolid á Spáni. Þá hlaut hún
nýverið heiðursverðlaun á stutt-
myndahátíð í Grikklandi.
Ísold verðlaunuð
fyrir Útrás Reykjavík
Á þessu ári eru
liðin 200 ár frá
því að Pétur Guð-
johnsen, fyrsti
organisti Dóm-
kirkjunnar, fædd-
ist. Af því tilefni
verða haldnir tón-
leikar í Dómkirkj-
unni í kvöld kl. 20
þar sem flutt verður tónlist eftir Pét-
ur og tónlist sem tengist honum og
starfi hans. Þá verður verk eftir
langalangafabarn Péturs frumflutt.
Verk fyrsta organista
Dómkirkjunnar flutt
Námskeið um ríflega 1000 síðna
verk Kristínar Marju Baldursdóttur
um listakonuna Karitas, úr bókunum
Karitas án titils og Óreiða á striga,
hefst hjá Endur-
menntun Háskóla Ís-
lands í kvöld. Nám-
skeiðið er í höndum
Soffíu Auðar Birg-
isdóttur bók-
menntafræðings
en gert er ráð fyr-
ir að Kristín Marja
komi í heimsókn.
Sjónum beint að
listakonunni Karitas
Á þriðjudag Vaxandi norðanátt, víða 10-15 m/s síðdegis. Snjó-
koma eða él á norðanverðu landinu, en úrkomulítið syðra. Frost 0
til 7 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðvestan 8-13 við austurströndina, ann-
ars hægari vindur. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 1 til 7
stig, hlýjast syðst, en vægt frost í innsveitum.
VEÐUR
Íslenska landsliðið í
handknattleik kemur
saman í dag og hefur
undirbúninginn fyrir
leikina gegn Hvít-
Rússum og Rúmenum í
undankeppni Evrópu-
mótsins. Aron Krist-
jánsson landsliðsþjálfari
stýrir íslenska liðinu í
fyrsta sinn en segist
búa lið sitt undir tvo
erfiða leiki. »4
Hefja undirbún-
inginn í dag
Gunnar Heiðar Þorvalds-
son fór mikinn með liði
Norrköping í sænsku
úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í gær. Gunnar
skoraði þrennu og hef-
ur þar með skorað
16 mörk í sænsku
deildinni þar
sem hann er
næst-
markahæsti
leikmaður
deildarinnar.
»1
Gunnar kominn með 16
mörk í sænsku deildinni
Sundkonan Eygló Ósk Gústafs-
dóttir úr Sundfélaginu Ægi var í
stuði á móti sem Sundfélag
Hafnarfjarðar stóð fyrir í
Ásvallalaug í Hafnarfirði um
helgina. Tvö Íslandsmet féllu á
mótinu og setti Eygló Ósk þau
bæði en hún náði meðal annars
að bæta 21 árs gamalt Íslands-
met í 1.500 metra skriðsundi. »1
Átti ekki von á að
setja tvö Íslandsmet
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Lionsklúbbar víða um land eru
komnir á fullt við undirbúning kút-
magakvölda, sem haldin eru á
ýmsum tímum yfir vetrarmán-
uðina.
Eru þessi kvöld yfirleitt helsta
fjáröflunarleið klúbbanna, sem í
kjölfarið hafa látið gott af sér leiða
til margs konar góðgerðarmála,
m.a. til tækjakaupa á Landspít-
alanum. Fullyrða má að stuðningur
Lionshreyfingarinnar við sjúkra-
stofnanir landsins nemur hund-
ruðum milljóna króna undanfarin
ár.
Lionsklúbbarnir Ægir og Fjölnir
í Reykjavík efndu til sameiginlegs
kútmagakvölds í fyrsta sinn síðasta
vetur. Allur ágóði rann til kaupa á
blöðruskanna fyrir hjartadeild
Landspítalans, eins og kemur fram
hér til hliðar.
Að sögn Óskars Hallgrímssonar
hjá Ægi hafa kútmagakvöldin fylgt
klúbbnum frá stofnun hans árið
1957. Eru þau jafnan haldin fyrsta
föstudag í mars.
„Upprunalegi hvatinn að þessu
var stuðningur klúbbsins við Sól-
heima í Grímsnesi en heimilisfólkið
þar hefur verið okkar skjólstæð-
ingar gegnum tíðina. Á síðasta ári
buðum við Fjölni að koma í sam-
starf og héldum við kútmagakvöld
sameiginlega. Það samstarf var
mjög gott og ætlunin að halda því
áfram,“ segir Óskar, sem ásamt
Fjölnismönnum og fleiri félögum í
Ægi er þegar kominn á fullt við
undirbúning næsta kvölds, 1.
mars 2013. Ekki er ráð nema í
tíma sé tekið.
Síðast voru útbúnir um 400
kútmagar, en um er að ræða
þorskmaga sem eru hreins-
aðir að innan og þeir síð-
an fylltir með þorsklifur
eða mjölblöndu. Þykir
þetta mikill herramannsmatur.
„Margir Lionsklúbbar hafa tekið
upp þessa hefð í ýmsum myndum.
Hjá okkur er þetta gríðarleg mat-
arveisla með yfir 40 sjávarréttum,
allt frá hefðbundnum réttum yfir í
ævintýralegar útfærslur sem við
sjáum sjaldan á borðum,“ segir
Óskar en klúbbarnir hafa und-
irbúið veisluna í góðu samstarfi við
kokkana á Hótel Sögu og fleiri
góða aðila sem lagt hafa til hrá-
efni.
Óskar segir Lionsmenn hafa
mikla ánægju af þessu starfi.
„Hugsjónin er fólgin í því að við
gefum aldrei peninga, heldur styðj-
um góð málefni með gjöfum og
tækjakaupum. Þetta framlag Lions
og annarra félaga hefur skipt
miklu fyrir samfélagið. Öll okkar
vinna í þessu er gefin og allur
ágóðinn af starfinu rennur óskipt-
ur til góðra málefna,“ segir Óskar.
Kútmagarnir gefa vel af sér
Lionsmenn öflugir
í fjáröflun til
góðgerðarmála
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Kútmagar Vaskir félagar í Lionsklúbbunum Ægi og Fjölni við undirbúning síðasta kútmagakvölds. Þá tróðu þeir í
um 400 kútmaga sem kláruðust eins og annað sjávarfang. Allur ágóði af kvöldinu rann til góðgerðarmála sem fyrr.
Björn Zoëga, forstjóri Landspít-
alans, segir að á undanförnum
tveimur árum hafi spítalinn fengið
gjafir og tæki að andvirði vel á
þriðja hundrað milljónir króna,
bæði frá Lions-hreyfingunni og
mörgum öðrum aðilum.
„Þetta hefur bjargað okkur
mörgum sinnum með lífs-
nauðsynleg tæki og fram-
kvæmdir,“ segir Björn og
telur að gjafirnar séu um
50% af því sem spítalinn ver
til meiriháttar tækja-
kaupa á ári hverju.
Hagnaður af
síðasta kútmagakvöldi Lionsklúbb-
anna Ægis og Fjölnis rann óskiptur
til góðra málefna, m.a. til kaupa á
blöðruskanna fyrir hjartadeild
Landspítalans. Kostaði tækið 1,2
milljónir króna og var afhent í sum-
ar. Við það tækifæri kom fram að
mikil þörf hefði verið fyrir blöðru-
skanna á hjartadeildinni. Áður hefði
þurft að fá slíkt tæki lánað af öðr-
um deildum, en það þótti mjög
óheppilegt m.t.t. sýkingarhættu.
Sl. vor fékk Landspítalinn að gjöf
augnlækningatæki að andvirði 20
milljónir kr. Var það gefið í tilefni af
60 ára afmæli Lions á Íslandi.
Bjargað okkur mörgum sinnum
FORSTJÓRI LANDSPÍTALANS UM GJAFIR TIL TÆKJAKAUPA
Björn
Zoëga