Morgunblaðið - 01.11.2012, Síða 1

Morgunblaðið - 01.11.2012, Síða 1
F I M M T U D A G U R 1. N Ó V E M B E R 2 0 1 2  Stofnað 1913  256. tölublað  100. árgangur  –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG SKASSIÐ OG SKEMMDA EPLIÐ Í KÖRFUNNI NÝSKÖPUN SEM UMBYLTIR HEIMINUM KENNSLUBÓK Í ÞRÍVÍDD UM LÍKAMANN VIÐSKIPTABLAÐ ÁÞREIFANLEG LÍFFRÆÐI 10GULLREGN FRUMSÝNT 43  Áform um upp- töku eftirlits- gjalds vegna markaðseftirlits með lækninga- tækjum eru harðlega gagn- rýnd í umsögn- um við frumvarp velferð- arráðherra til velferðarnefndar Al- þingis. Halda tannlæknar því fram að hækkanir á aðföngum þeirra muni lenda beint á sjúklingum. Gjaldið mun leggjast á fjölmarga vöruflokka og er bent á í umsögn- um að það muni m.a. verða lagt á tannþræði, plástra, tannkrem, smokka og barnableiur. »4 Gjald á tæki leggst á tannþráð og krem Á sér langa sögu » Starfsmenn Actavis á Ís- landi eru nú um 730. » Saga fyrirtækisins á Íslandi nær aftur til ársins 1956 þegar forveri Actavis, Pharmaco, var stofnað. » Pharmaco hóf að framleiða lyf árið 1960. Þorsteinn Ásgrímsson thorsteinn@mbl.is Samruni bandaríska lyfjafyrirtæk- isins Watson og Actavis hefur öðl- ast formlegt gildi, en um það var tilkynnt seint í gærkvöldi. Þar með verður til þriðja stærsta samheita- lyfjafyrirtæki í heimi með áætlaða samanlagða veltu upp á um 1.000 milljarða króna á þessu ári. Sigurður Óli Ólafsson, fyrrver- andi forstjóri Actavis og forstjóri samheitalyfjasviðs Watson, mun áfram stýra því sviði hjá nýja félag- inu. Hann segir ekki stefnt að því að fækka starfsmönnum á Íslandi heldur frekar að fjölga þeim. Mikið af vel menntuðu fólki „Það góða við Ísland er að það er mikið af vel menntuðu fólki í efna- fræði, lyfjafræði og verkfræði. Það er mjög auðvelt að fá gott starfs- fólk og það er númer eitt,“ segir hann. Hjá nýja fyrirtækinu munu starfa 17 þúsund manns í 60 löndum. Höfuðstöðvarnar verða í Bandaríkjunum þar sem nú eru höfuðstöðvar Watson, en alþjóðleg- ar höfuðstöðvar verða staðsettar í Zug í Sviss þar sem Actavis hefur nú aðstöðu. Þar munu starfa um 140 manns, þar af töluvert af Íslendingum. Þótt Watson sé að kaupa Actavis verður nafn sameinaða félagsins Actavis, m.a. vegna þess að Actavis er víðast hvar þekktara vörumerki. MActavis og Watson »Viðskipti Stefna frekar að fjölgun  Sameining Actavis og Watson hefur tekið gildi  Óbreytt starfsemi á Íslandi  Mun starfa undir nafni Actavis  Ársveltan um 1.000 milljarðar króna Morgunblaðið/RAX Smiðja Málmsmiður að störfum hjá Héðni í gær. „Það vantar alltaf góða menn,“ segir Guðmundur S. Sveinsson, framkvæmdastjóri málmfyrirtækisins Héð- ins í Hafnarfirði, en 90 ár eru í dag síðan fyrirtækið var stofnað. Guðmundur segir verkefnastöðuna góða og að fyrirtækið standi vel fjárhagslega. Skuldir eru litlar þrátt fyrir mikla fjárfestingu í nýjum höfuðstöðvum en 800 fermetra viðbygging stækkar grunnflöt húsnæðisins í 7.300 fermetra. „Eldri málmsmiðir eru að hætta og það er þörf á meiri nýliðun í greininni. Bæði fyrir og eftir hrun hefur fjöldi erlendra málmiðnaðarmanna starfað í landinu. Þetta eru fyrirtaksstarfsmenn, og ekkert út á þá að setja, en við viljum frekar ráða Íslendinga til vinnu, ekki síst þegar atvinnuleysi er þetta mikið ennþá.“ »18 Næg vinna og vantar menn  Góð verkefnastaða hjá Héðni  Fagna 90 árum Íslenska karlalandsliðið í handknattleik vann fyrsta leikinn undir stjórn Arons Kristjánssonar þegar liðið mætti Hvít-Rússum í fyrsta leik sín- um í undankeppni Evrópumótsins í Laugardals- höllinni í gær. Íslendingar höfðu undirtökin allt frá byrjun og var sigurinn aldrei í hættu. Loka- tölur urðu 36:28, þar sem Aron Pálmarsson skor- aði 12 mörk og nýi fyrirliðinn, Guðjón Valur Sig- urðsson, skoraði 11 mörk. » Íþróttir Öruggur sigur í fyrsta leiknum undir stjórn Arons Morgunblaðið/Ómar Á annað hundrað björgunarsveitar- manna á höfuðborgarsvæðinu, við Eyjafjörð og Tröllaskaga voru í gær- kvöld kallaðir út og settir í við- bragðsstöðu vegna leitar að týndum manni í Skagafirði. Maðurinn fór við annan mann í fjárleitir við Þorljótsstaðafjall í gamla Lýtingsstaðahreppi, innst í Skagafirði, í gærmorgun. Hann skil- aði sér ekki síðdegis og hófu þá björgunarsveitir í Skagafirði leit. Hávaðarok og skafrenningur var á svæðinu þegar leitin hófst. Seint í gærkvöldi hafði hún engan árangur borið. Vonskuveður fram á laugardag Veðurútlit á svæðinu er slæmt. Veðurstofa Íslands spáir vonsku- veðri og ofankomu á Norður- og Austurlandi í dag og að það muni herða á hvassviðrinu á morgun. Því er síðan spáð að veður gangi niður síðdegis á laugardag. Leita manns í illviðri í Skagafirði Heimavarnarliðar björguðu þús- undum manna sem voru fastir á heimilum sínum í New Jersey í gær eftir að fellibylurinn Sandy reið þar yfir og olli stórtjóni í ríkinu. Staðfest er að 62 týndu lífi í fár- viðrinu í Bandaríkjunum. Íslendingur sem býr í Jersey City segir marga íbúa þar hafa fyllst ótta. »6 og 20 Eyðileggingin vegna Sandy er gífurleg AFP

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.