Morgunblaðið - 01.11.2012, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012
ILVA Korputorgi, sími 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
DAGSKRÁ
Lifandi tónlist
Frostrósir
Friðrik Ómar
Happdrætti
KYNNINGAR
Karl K. Karlsson
Hafliði súkkulaðimeistari
MARSEILLE sápur
Kaffitár
Búrið
ÓTRÚLEG TILBOÐ
30% af öllum
CHRISTMAS jólavörum,
MARSEILLE sápum,
kertum og púðum
KONUKVÖLD
FIMMTUDAGINN 1. NÓVEMBER
Frá 18:30-21:00
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves
hófst í gærkvöld með fjölda við-
burða í borginni. Að sögn Gríms
Atlasonar, framkvæmdastjóra há-
tíðarinnar, fer hátíðin vel af stað
og voru mörg þúsund erlendir há-
tíðargestir í miðborginni í gær-
kvöldi. „Þetta lítur glæsilega út,“
sagði hann þegar blaðamaður
náði tali af honum í gærkvöld.
Fellibylurinn Sandy sem gekk
yfir Bandaríkin setti strik í reikn-
inginn og þurfti bandaríska sveit-
in Swans að afboða sig þar sem
hún komst ekki frá New York.
Grímur segir að hamfarirnar
vestra hafi ekki hindrað för
margra gesta.
„Þeir eru mjög fáir. Við höfum
heyrt af tíu afbókunum frá fólki
sem kemst ekki og við endur-
greiðum það allt saman að
sjálfsögðu,“ segir Grímur.
Hljómsveitin Retrobot var ein
af þeim sem stigu á stokk í gær-
kvöld en þessi mynd var tekin á
tónleikum hennar á Gamla
Gauknum.
Iceland Airwaves var hleypt af stokkunum í gærkvöld
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Veðurtepptir
fengu miða
endurgreidda
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Hlutfall kvenna sem aðeins hafa lok-
ið grunnskólaprófi eða minna er
töluvert hærra á Suðurlandi og Vest-
fjörðum en annars staðar á lands-
byggðinni. Menntunarstig á höfuð-
borgarsvæðinu er umtalsvert meira
en annars staðar á landinu.
Þetta er á meðal þess sem kemur
fram í tölum Byggðastofnunar um
menntun fólks eftir landshlutum.
Slíkar upplýsingar hafa aldrei áður
verið teknar saman, eftir því sem
fram kemur á vef stofnunarinnar.
Kemur ekki á óvart
Á Vestfjörðum og Suðurlandi
kemur á móti að hlutfall kvenna sem
hafa lokið grunnháskólanámi er um
tvöfalt hærra en karla. Þegar litið er
til heildarinnar er hæsta hlutfall íbúa
með aðeins lágmarksmenntun að
finna á Suðurnesjum.
Árni Ragnarsson, sérfræðingur á
þróunarsviði Byggðastofnunar, kann
ekki skýringar á muninum á körlum
og konum á Suðurlandi og Vestfjörð-
um. Hann segir tölurnar annars í
raun staðfesta í grófum dráttum það
sem menn töldu sig vita, sérstaklega
um muninn á höfuðborgarsvæðinu
og landsbyggðinni.
„Þetta sýnir augljósan mun á sam-
setningu íbúafjöldans. Menntun
fólks gefur vísbendingu um sam-
keppnishæfni og nýsköpunarskilyrði
sem eru þá kannski ekki sambærileg
á landsbyggðinni við höfuðborgar-
svæðið. Það kemur ekki á óvart en
þetta er í fyrsta skipti sem tekst að
koma höndum á þetta.“
Innlegg í sóknaráætlanir
Landshlutasamtök sveitarfélaga
búa sig nú undir að gera sóknaráætl-
un fyrir landshlutana. Menntun er á
meðal þeirra samfélagsþátta sem
Byggðastofnun kannar í tengslum
við þá gerð og segir Árni að þessar
niðurstöður séu umhugsunarefni í
þeirri gerð.
Hann nefnir að iðnmenntun sé al-
geng úti á landi og því komi sam-
dráttur í iðnaði niður á fólki þar.
„Þá er þetta spurning um færnina
til að takast á við nýja hluti og
endurnýja sig. Þar skiptir menntun-
in máli,“ segir hann.
Mikill munur á menntun
Í fyrsta skipti sem menntun fólks eftir landshlutum er tekin saman Flestir
með lágmarksmenntun á Suðurnesjum Mikill munur á körlum og konum
Menntun eftir sóknaráætlunarsvæðum
Heimild: Byggðastofnun
Heild
Suðurnes
Höfuðborgarsvæðið
Vesturland
Vestfirðir
Norðurland vestra
Norðurland eystra
Austurland
Suðurland
8.806
489
5.483
413
202
242
923
310
745
Fjöldi
25% 5% 17% 20% 23% 11%
38% 4% 14% 23% 17% 4%
19% 4% 18% 19% 27% 14%
35% 6% 18% 23% 15% 4%
33% 7% 13% 26% 17% 4%
36% 14% 24% 16% 5%6%
31%
35%
37%
17%
13%
14%
21%
23%
24%
20%
18%
15%
5%
5%
4%
7%
6%
6%
Grunnskólapróf eða minna Starfsnám í framhaldsskóla Stúdentspróf
í framhaldsskóla Iðnnám/verknám/Meistarapróf í iðngrein Grunnnám í
háskóla Framhaldssnám í Háskóla
Heildarálagning á lögaðila nemur
118,5 milljörðum króna á þessu ári en
hún nam 104,6 milljörðum í fyrra.
Mismunurinn er 13,9 milljarðar sem
jafngildir 13,23% hækkun milli ára.
Þetta kemur fram í samantekt
ríkisskattstjóra um álagningu opin-
berra gjalda á lögaðila álagningarárið
2012. Er þá meðtalin fyrirfram-
greiðsla á árinu 2012 sem er til komin
vegna viðbótar á sérstakan skatt á
fjármálafyrirtæki. Nemur viðbótin
2,2 milljörðum kr. vegna væntanlegr-
ar álagningar á árinu 2013.
Alls voru 37.084 lögaðilar á skatt-
grunnskrá í lok síðasta árs og þar af
sættu 11.800 lögaðilar áætlun eða
31,82% af skattgrunnskrá. Til
samanburðar sættu 11.686 lögaðilar
áætlun á síðasta ári eða 32,02% af
skattgrunnskrá.
Tekjuskattur hækkar verulega
Heildarálagningin á árinu 2012
skiptist þannig að 69,3 milljarðar
koma til af tryggingagjaldi sem
hækkar um 5,95% milli ára.
Tekjuskattur er 42,15 milljarðar og
hækkar um 16,15%. Sérstakt gjald á
lífeyrissjóði er 1.538 milljónir. Fjár-
magnstekjuskattur var 1,39 milljarð-
ar króna sem er 22,54% meira en
álagningarárið 2011.
Útvarpsgjald er tæpar 602 milljón-
ir og lækkar um 3,67% frá fyrra ári.
Búnaðargjald er tæpar 190 milljónir
og hækkar um 8,41%.
baldura@mbl.is
Álögur aukast milli ára
Heildarálagning á lögaðila hækkar um 13,23% frá 2011
Viðbótarskattar á fjármálafyrirtæki upp á 2,2 milljarða
Greiða á fjórða milljarð
» Sérstakur skattur á
fjármálafyrirtæki er 1.046
milljónir króna og hækkar um
6,91% frá fyrra ári.
» Fjármálafyrirtækin greiða
nú 2.232 milljónir króna í við-
bót á þennan skatt.
» Samanlagt gera þetta 3.278
milljónir króna á þessu ári.
» Fjármagnstekjuskattur er
1,39 milljarðar í ár en var 16,3
milljarðar á árinu 2007.
„Það fór vél frá
okkur áðan til
New York. Það
er búið að opna
flugvöllinn og ég
geri ráð fyrir að
það verði eðli-
legt flug hér eft-
ir,“ sagði Guðjón
Arngrímsson,
upplýsingafulltrúi Icelandair, í
gærkvöldi um flug félagsins til
Bandaríkjanna. Þremur ferðum
var frestað vegna fellibylsins
Sandy og til stóð að fara aukaferð
til New York af þeim sökum í
gær. Fyrir því fékkst þó ekki
leyfi.
Flug til Bandaríkj-
anna aftur í fastar
skorður eftir Sandy
Haraldur Eiríksson, veðurfræð-
ingur á Veðurstofunni, segir að
ekki sé útilokað að leifar fellibyls-
ins Sandy berist hingað til lands.
Það sé hins vegar ekki áhyggjuefni
þar sem hann hafi blásið úr sér
mesta kraftinn þegar hann gekk á
land í Bandaríkjunum og Kanada.
Hafa ekki áhyggjur
af leifum stormsins