Morgunblaðið - 01.11.2012, Síða 8

Morgunblaðið - 01.11.2012, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012 Fellibylurinn „Sandy“ hefurvaldið miklu tjóni og usla á norðausturströnd Bandaríkjanna. Manntjón er meira en fyrstu upp- lýsingar bentu til og fjárhagstjón er talið í tugum milljarða dollara.    Þess háttar náttúruvá gerir sembetur fer boð á undan sér og yfirvöld gátu því gert tvennt: Gripið til nokkurra varna, en þó einkum haft uppi alvarlegar aðvaranir, hvatt fólk til að hverfa af hættusvæðum og eins opnað öruggt skjól fyrir þá sem þurftu.    Enn sem komið er a.m.k. hafastjórnvöld vestra ekki verið sökuð um andvaraleysi.    En þrátt fyrir alvöru málsinsleyfa menn sér að horfa til annarra þátta.    Þannig velta skýrendur upphugsanlegum áhrifum veður- hamsins á kosningaúrslit vestra, eftir aðeins 5 daga. Repúblikanar, sem hafa verið í nokkurri sókn, ótt- ast að atburðirnir opni forsetanum ríkulegan aðgang að þjóðinni, sem ekki sé hægt að gagnrýna, á mikil- vægu augnabliki.    Og á meginlandinu austan hafs, íEvrópu, var þessi hugleiðing sett fram:    Ef „Sandy“ stefndi á Evrópumyndum við þegar í stað hefja undirbúning leiðtogafundar, sem samþykkja myndi drög að laga- legum grunni hönnunarvinnu, sem nota mætti vildi einhver sam- bandsþjóðanna vilja smíða nýjan björgunarbát til að bregðast við flóðum.“ Fellibylur og fjörugt ímyndunarafl STAKSTEINAR Veður víða um heim 31.10., kl. 18.00 Reykjavík 3 skýjað Bolungarvík 0 alskýjað Akureyri 0 snjókoma Kirkjubæjarkl. 3 skýjað Vestmannaeyjar 1 skýjað Nuuk -5 heiðskírt Þórshöfn 6 skúrir Ósló 0 frostrigning Kaupmannahöfn 7 skýjað Stokkhólmur 5 heiðskírt Helsinki 0 heiðskírt Lúxemborg 10 heiðskírt Brussel 10 heiðskírt Dublin 7 skýjað Glasgow 6 skúrir London 12 léttskýjað París 12 léttskýjað Amsterdam 11 heiðskírt Hamborg 8 heiðskírt Berlín 7 heiðskírt Vín 7 léttskýjað Moskva -1 skýjað Algarve 17 léttskýjað Madríd 11 skýjað Barcelona 18 léttskýjað Mallorca 17 léttskýjað Róm 12 skúrir Aþena 18 skýjað Winnipeg 2 skúrir Montreal 15 skúrir New York 8 alskýjað Chicago 4 skýjað Orlando 17 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 1. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:13 17:11 ÍSAFJÖRÐUR 9:31 17:03 SIGLUFJÖRÐUR 9:14 16:45 DJÚPIVOGUR 8:46 16:37 Oddný Harðar- dóttir alþingis- maður býður sig fram í 1. sæti í for- vali Samfylking- arinnar fyrir Suðurkjördæmi sem fram fer 16. og 17. nóvember. Fram kemur í tilkynningu frá framboði Oddnýjar að hún hafi tekið að sér mörg krefjandi ábyrgðarstörf á yfirstandandi kjörtímabili. Hún hafi orðið fjármálaráðherra fyrst kvenna og verið formaður mennta- mála- og fjárlaganefndar. „Oddný starfar með hag barna að leiðarljósi og leggur áherslu á ábyrga hagstjórn, atvinnumál, ný- sköpun og fjölbreytt framboð náms. Hún tekst á við verkin af heið- arleika, yfirvegun og festu og vinn- ur að almannahag af dugnaði og hugsjón,“ segir í tilkynningunni. Oddný opnar kosningaskrifstofu í Reykjanesbæ á Hafnargötu 31, 2. hæð á morgun kl. 17. Býður sig fram í 1. sæti í forvali Garðar H. Guð- jónsson, blaðamað- ur og ráðgjafi, hef- ur tilkynnt þátttöku sína í for- vali VG í Suð- vesturkjördæmi 24. nóvember næstkomandi. Hann óskar eftir stuðningi í 2.-3. sæti listans. Fram kemur í tilkynningu, að Garðar hafi starfað við blaða- mennsku og ritstörf, verið upplýs- ingafulltrúi Neytendasamtakanna og Rauða krossins og unnið kynn- ingarstörf fyrir félagasamtök og stofnanir sem starfa að neyðarþjón- ustu, forvörnum, almannavörnum, neytendavernd og mannúðarmál- um. „Garðar býður fram krafta sína til að vinna að stefnumálum VG með áherslu á velferð, jafnrétti, neytendavernd, atvinnu- og um- hverfismál,“ segir m.a. í tilkynning- unni. Garðar er 49 ára, kvæntur og á dóttur og þrjú barnabörn. Óskar eftir stuðn- ingi í 2.-3. sæti Náttúrulegt fagnaðarefni fyrir frumurnar! Sulforaphane, sérvirka efnið úr brokkolí, kann að vera lykillinn að heimsins áhrifaríkustu vörn gegn hrörnun fruma og ótímabærri öldrun. Cognicore byggir á sulforaphane úr lífrænt ræktuðum brokkolí spírum sem virkar eins og kveikjuþráður á innbyggt varnarkerfi líkamans Hjálpar líkamanum að auka framleiðslu eigin andoxunar- efna sem er margfalt áhrifaríkara en nokkur andoxunarefni í fæðunni! Stuðlar að sleitulausri vernd, styrkingu og endurnýjun fruma Brokkolítöflurnar - Cognicore® Daily Tvær á dag! Fyrir margþætt heilsusamleg áhrif á líkamann og unglegra útlit! Fást í helstu heilsubúðum og apótekum www.brokkoli.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.