Morgunblaðið - 01.11.2012, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 01.11.2012, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012 Finndu okkur á facebook.com/lindexiceland Embellished glamour. Toppur, 3995,– fyrir mikla sókn. Frá tíunda áratug síðustu aldar hefur aflinn hins vegar verið um 570 þús. tonn að jafnaði. Eins og áður segir er aflamark næsta árs milljón tonn, en ráðgjöf Al- þjóða hafrannsóknaráðsins var upp á 940 þúsund tonn. Á þessu ári var ráð- gjöfin 751 þúsund tonn og aflamarkið það sama. Í fyrra voru ráðgjöf og afla- mark 703 þúsund tonn og aflinn 720 þúsund tonn. Aukningin meiri en þorskafli við Ísland Á næsta ári verður því heimilt að veiða 250 þúsund tonnum meira af þorski í Barentshafi heldur en í ár. Nemur þessi aukning meira en öllum þorskafla á Íslandsmiðum á yfir- standandi fiskveiðiári, en aflamark í þorski er 195.400 tonn. Undanfarið hafa komið fram áhyggjur hérlendis af þessum mikla þorskafla úr Barentshafi og í ein- hverjum tilvikum hefur aukinn þorsk- afli þegar valdið lækkun á fiskafurð- um frá Íslandi. Fleira spilar þó inn í eins og slæmt efnahagsástand við Miðjarðarhafið og víðar í Evrópu. Fram kom í fréttaskýringu í blað- inu fyrir rúmum mánuði að ýmis teikn eru um að þrýstingur til lækkunar á heimsmarkaðsverði á þorski muni aukast á næstu misserum, að mati greiningardeildar ráðgjafar- fyrirtækisins Markó Partners. Þar kom fram að um fjórðungslækkun varð á mörkuðum með þurrkaðan saltfisk á Spáni og Portúgal á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra. Minni sókn og umhverfis- skilyrði þorskinum hagstæð  Stofninn í Barentshafi hefur vaxið hratt  Aflamark hækkað um 250 þúsund tonn Þorskur í Barentshafi Heildarafli (þús. tonna) 1990-2011 Aflamark 2012 og 2013 1.400 1.200 1.000 800 600 400 200 0 H ei ld ar afl i( þú s. to nn a) 1990 2013 FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Samspil umhverfisbreytinga og veiði- stjórnunar eru taldar meginástæður þess hversu mjög þorskstofninn í Barentshafi hefur braggast á síðustu árum. Fyrir aðeins rúmlega tveimur áratugum var þessi sami stofn mjög lélegur og heildarþorskaflinn úr Bar- entshafi aðeins um 200 þúsund tonn. Nú er öldin önnur og í síðasta mánuði ákváðu stjórnvöld í Noregi og Rúss- landi að aflamark á þorski í Barents- hafi yrði ein milljón tonna á næsta ári, sem er meira en í áratugi. Kjörhiti á stærra svæði, vanmat á árgöngum Einar Hjörleifsson, fiskifræðingur, segir að nýliðun þorsks í Barentshafi hafi verið við og yfir meðallagi á síð- asta áratug. „Á þessum tíma hefur sóknin minnkað gríðarlega mikið, að mestu vegna takmarkana stjórn- valda, og hlutfallslega meira en hér við land,“ segir Einar. „Hitastig sjávar hefur hækkað og það svæði þar sem er kjörhiti fyrir þorsk hefur stækkað. Skilin milli kalds- og hlýsjávar hafa verið að fær- ast norður og austur og fiskurinn hef- ur fært sér þetta í nyt. Þá hefur verið að koma inn í aflann eldri fiskur sem ekki kom fram í vísindaröllum á hefð- bundnum rannsóknastöðum. Í ljósi þessa eru árgangar frá 2004 og 2005 nú metnir mun sterkari en áður var talið. Hugsanlega hafa menn verið of seinir að stækka rannsóknasvæðið í ljósi breyttra aðstæðna.“ Gott ástand loðnustofnsins „Ástand loðnustofnsins í Barents- hafi, sem er ein helsta fæða þorsks- ins, er ágætt og er það meðal annars talið vera vegna þess að lítið hefur verið þar af síld, sem talin hefur verið afræningi loðnu í Barentshafi. Önnur fæðuskilyrði virðast vera góð ef marka má meðalþyngd, sem er ná- lægt meðaltali eða í mesta lagi 10% undir í einstaka aldursflokkum. Það sem mestu skiptir er að nýlið- un hefur verið þokkaleg og hrygning- arstofninn er sterkur síðasta áratug. Á þessum tíma hafa aldrei komið verulega lélegir árgangar. Undanfarið hafa umhverfisskilyrði verið þorskinum hagstæð, en ef þau ganga til baka þá skilar það lélegri framleiðni. Ekkert slíkt virðist hins vegar vera í gangi,“ segir Einar. Afli úr þorskstofninum í Barents- hafi frá síðari heimsstyrjöld fram til 1980 var að meðaltali um 800 þús. tonn. Á níunda áratugnum var aflinn að meðaltali um 350 þús. tonn þrátt Guðmundur Örn Jóhannsson segist í yfirlýsingu hafa verið settur „í aðal- hlutverk glæpamanns sem fram- kvæmdastjóri Slysavarna- félagsins Lands- bjargar, með af- bökun, tilklippt- um samtölum, textainnskotum og villandi fram- setningu“. Hann finni sig því knú- inn til að bregð- ast við frétta- flutningi af „meintu misferli“ en tilefnið er myndband sem birt var á Youtube en í því er hann sakaður um pen- ingaþvætti og gjaldeyrisbrask. Guðmundur, sem kominn er í leyfi frá störfum sínum hjá Landsbjörg, telur birtingu myndbandsins kunna að varða við lög. Gagnrýnir efnistök fjölmiðla „Undirritaður hefur sent kæru til lögreglu þar sem óskað er eftir rannsókn á myndbandagerð, dreif- ingu þess og birtingu, þ.m.t. birt- ingu fjölmiðla, þar sem vegið er að æru og trúverðugleika undirritaðs sem og þeirra samtaka sem hann hefur starfað fyrir. Kann þetta að brjóta í bága við almenn hegning- arlög. Hefur forsvarsmönnum fjöl- miðla sömuleiðis verið sent bréf af sama tilefni. Fordæmir undirritaður óábyrgan fréttaflutning og mun skoða réttar- stöðu sína gagnvart fjölmiðlum sér- staklega,“ segir í tilkynningunni Kært til lögreglu „Undirritaður hefur ekki á nokk- urn hátt gerst brotlegur gagnvart Slysavarnafélaginu Landsbjörg sem undirritaður harmar að sé dregin inn í fréttaflutning þennan. Und- irritaður telur líkur benda til að hinn ónefndi framleiðandi myndbands sé óheillamaður sem hefur verið kærð- ur til lögreglu vegna umfangsmikilla svika í viðskiptum við aðila á Íslandi og erlendis. Er undirritaður einn þeirra sem töpuðu fjármunum vegna lána til fyrirtækja tengdra honum,“ segir í yfirlýsingu Guð- mundar. Hann kveðst hafa óskað lið- sinnis lögreglu. Krefst rannsóknar á upptöku Guðmundur Örn Jóhannsson  Segir myndbandið á Youtube afbökun Samkvæmt reglugerð um veiðar á Norður- íshafsþorski í ár, sem byggist á samningi Ís- lands, Noregs og Rúss- lands frá 1999, mega íslensk skip veiða 6.835 tonn innan norskrar lögsögu. Heimilt er að hafa allt að 30% meðafla í öðr- um tegundum. Í efnahagslögsögu Rússlands utan 12 sjómílna fengu íslensk skip með sama hætti 4.272 tonna úthlutun. Einnig hér gilda sérreglur um meðafla sem getur verið allt að 20% í ýsu og 10% í öðrum tegundum. Heimildum þessum er út- hlutað samkvæmt aflahlutdeild. Miðað við 25% aukningu aflamarks á þorski í Barentshafi á næsta ári aukast heimildir íslenskra skipa um tæplega 2.800 tonn af þorski upp úr sjó. Veiðar á aflaheimildum ársins eru langt komnar, en í gær var eitt ís- lenskt skip, Sigurbjörg ÓF, á leið á miðin í rússneskri lögsögu. Skipið var þá komið að 200 mílna mörkunum við Noreg og var reiknað með að hefja veiðar um helgina. Heimildir skipa eru mismiklar og mun talsvert um að þær séu fluttar á milli. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Fiskistofu hafa Venus HF, Kleifaberg RE og Kaldbakur EA veitt mest í norskri lögsögu í ár, en öll hafa þau landað yfir þúsund tonnum af slægðum þorski úr Barentshaf- inu. Rússlandsmegin hafa Kleifabergið, Venus og Sigurbjörg ÓF veitt mest. Íslendingar stunduðu þorskveiðar í Barentshafi og við Svalbarða á fyrri hluta tuttugustu aldar. Veiðar lágu hins vegar niðri um langt árabil eða til 1993. Aukið aflamark íslenskra skipa SIGURBJÖRG ÓF Á LEIÐ TIL VEIÐA Í RÚSSNESKRI LÖGSÖGU Rangt föðurnafn Ranglega var farið með föðurnafn Ingunnar Ásdísar Sigurðardóttur, fyrrverandi forseta Soroptimista- sambandsins, í Morgunblaðinu í gær. Beðist er velvirðingar á mis- tökunum. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.