Morgunblaðið - 01.11.2012, Síða 14

Morgunblaðið - 01.11.2012, Síða 14
ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Töluvert hefur snjóað í Eyjafirði frá því í vikubyrjun. Veturinn sem sagt loksins kominn fyrir alvöru. Enn er þó alls staðar vel fært, en spáin býsna slæm næstu daga.    Arnheiður Jóhannsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands (MN) frá næstu áramótum. Hún tekur við af Ásbirni Björgvinssyni sem hefur stýrt stofunni frá 2008.    Arnheiður er rekstrarfræð- ingur og með masterspróf í al- þjóðamarkaðsfræði. Hún hefur síð- ustu misseri leitt uppbyggingu Air 66N flugklasans hjá Markaðsstofu Norðurlands.    Ásbjörn Björgvinsson hefur lengi starfað í ferðabransanum og svaraði af einlægni, þegar spurt var hvers vegna hann væri að hætta hjá MN: „Ég er ástfanginn!“    Hann bað sér sem sagt konu „og hún sagði já! Hún rekur versl- un í Reykjavík getur ekki flutt hana norður þannig að ég fylgi hjartanu. Það má segja að amma mús hafi dregið mig suður!“ Unn- ustan, Hildur Guðnadóttir, á versl- unina Ömmu mús – handavinnu- hús...    Sýning Bernharð Valssonar ljósmyndara, „Promo shots“ var opnuð í bókasafni Háskólans á Ak- ureyri í vikunni og stendur til 30. nóvember. Myndir Benna eru flest- ar af heimsfrægum tónlist- armönnum og leikurum og voru til sýnis í Ketilhúsinu í sumar.    Arndís Bergsdóttir heldur í dag kl. 17 erindið Söfn í kynjuðu ljósi í Borgarsal Samkomuhússins á veg- um AkureyrarAkademíunnar. Þar fjallar hún um rannsóknir sem gerðar hafa verið á frásögnum safna af konum og hinu kvenlega.    Íslandsvinurinn Robin Nolan, sú mikla gítarkempa, er kominn til landsins ásamt tríói sínu og heldur tónleika á Græna hattinum í kvöld. Þar mun sígaunadjassinn duna og flautað verður til leiks kl. 21.    Gylfi Ægisson verður með tón- leika og uppistand á sama stað ann- að kvöld, þar sem hann flytur sín bestu lög og fer með gamanmál.    Hljómsveitin Thin Jim heldur svo útgáfutónleika á Græna hatt- inum á laugardagskvöldið. Hann flytur þá lög af nýútkomnum diski sem ber heitið This Is Me.    Akureyrarvaka á 19. öld heitir samkoma sem haldin verður í Pakkhúsinu við Hafnarstræti á sunnudaginn kl. 16. Kvæðamanna- félagið Gefjun býður gesti vel- komna og verður þeim „kippt aftur til ársins 1862, boðið er upp á stemmur og kveðandi, vikivaka, þjóðlagakór og aðra söngmennt sem vinsæl var á þessu fæðingarári kaupstaðarins Akureyri,“ segir í til- kynningu. Þórarinn Hjartarson, formaður Gefjunar, lofar fróðlegri skemmtun.    Leikritið Á sama tíma að ári verður sýnt í Hofi í kvöld og annað kvöld, og svo aftur um næstu helgi. Um er að ræða gestasýningu frá Borgarleikhúsinu, þar sem leika Guðjón Davíð Karlsson og Nína Dögg Filippusdóttir.    Friðrik Ómar verður svo með útgáfutónleika í Hofi á laugardags- kvöldið í tilefni nýrrar sólóplötu, Outside the Ring. Titillagið er þýð- ing Jóns Óttars Ragnarssonar á ljóði Steins Steinarr, Utan hrings- ins. „Amma mús dró mig suður“ Ljósmynd/Haraldur Logi Hringsson Gaman í snjónum Gabríel Ómar Logason, sem er 7 ára, í snjónum í Drekagili í gær, nýkominn heim úr skólanum. Nýr stjórnandi Arnheiður Jóhanns- dóttir, Markaðsstofu Norðurlands. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012 Salan á Neyðarkallinum hefst í dag. Þetta er önnur stærsta fjáröflun Slysavarnafélagsins Landsbjargar á hverju ári. Reiknað er með að rúmlega 2.000 þúsund sjálfboðaliðar muni standa vaktina þessa helgina. Verða þeir staðsettir við allar helstu verslanir landsins auk þess að ganga í hús. Er þetta í sjöunda sinn sem félagið stendur fyrir sölu á Neyðarkall- inum og hafa landsmenn ætíð stutt vel við bakið á björgunarsveitum landsins. Neyðarkallinn hefur verið í gervi rústabjörgunarmanns, fjallabjörg- unarkonu, skíðamanns en er núna í gervi björgunarkafara. Sala á Neyðarkall- inum hefst í dag Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra hlaut nýsköp- unarverðlaunin í opinberri þjón- ustu og stjórnsýslu 2012 fyrir verkefnið SignWiki, en verðlaunin voru afhent í annað sinn í gær. Alls voru 62 verkefni frá 31 stofnun og 11 sveitarfélögum til- nefnd til nýsköpunarverðlaunanna. SignWiki verkefnið, sem hlaut verðlaunin, er upplýsingakerfi og þekkingarbrunnur þar sem tákn- málsorðabók og táknmálsnámi er miðlað í tölvur, spjaldtölvur og síma. Fram kemur í tilkynningu að SignWiki nýtist sem orðabók, til kennslu og í samskiptum við heyrnarlausa, fyrir almenning og til rannsókna og hafi gjörbreytt aðgengi að táknmáli og miðlun þess. Fimm önnur verkefni fengu sér- stakar viðurkenningar fyrir ný- sköpun í opinberri þjónustu og stjórnsýslu. Það voru Blindra- bókasafn Íslands fyrir Librodigi- tal, Orkustofnun fyrir varmadælu- vef, Öldrunarheimili Akureyrar fyrir Hænsnahöllina, Reykjavík- urborg fyrir Betri Reykjavík og Sjúkratryggingar Íslands fyrir Réttindagátt – gagnagátt. Verðlaunahafar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sem afhenti verðlaunin, Val- gerður Stefánsdóttir frá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, Jón Gnarr, borgarstjóri, Ragnar M. Gunnarsson frá Sjúkratryggingum Íslands, Brit Bieltvedt frá Öldr- unarheimili Akureyrar, Þóra Sigríður Ingólfsdóttir frá Blindrabókasafni Íslands, Sigurður Ingi Friðleifsson Orkustofnun og Halldór Halldórsson, Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra fékk nýsköpunarverðlaun STUTT Árlegur dagur upplýsingatækninnar, UT-dagurinn, verður haldinn föstudaginn 2. nóvember á Hótel Hilton Nordica í Reykjavík. Innanríkisráðuneytið stendur að dagskránni í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfé- laga og Skýrslutæknifélagið. Fram kemur í tilkynningu að UT-dagurinn verði með öðru sniði en síðustu ár því fyrir hádegi verði settar upp vinnustofur en eftir hádegið fundi innanríkisráðuneytið með hópi starfsmanna ríkis og sveitarfélaga ásamt fulltrúum hagsmunaaðila um nýja stefnu um upplýsinga- samfélagið. Vinnustofurnar eru öllum opnar, skrá þarf þátttöku á vefnum sky.is eigi síðar en kl. 11 í dag, 1. nóvember. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um dagskrána. Kastljósinu á UT-deginum verður beint að því sem efst er á baugi í mála- flokknum, svo sem rafrænu lýðræði, öryggi, hagræðingu, rafrænni þjón- ustu og endurnýtanlegum gögnum. Þá verður rætt um mælikvarða fyrir opinbera vefi. Árlegur dagur upplýsingatækninnar Fjölskylduhjálp Íslands stendur fyrir jólamarkaði á Hafnargötu 90 í Reykjanesbæ frá 1. nóvember til 15. desember. Verða sjálfboðaliðar þar við af- greiðslu alla dag vikunnar frá klukkan 13 til 18. Fram kemur í tilkynningu að á boðstólum verði mikið úrval af fatnaði á alla fjölskylduna, hug- myndir að jólagjöfum og jólaskrauti. Þá óska sam- tökin eftir seljanlegum vörum til styrktar starfinu. Matargjafir hjá Fjölskylduhjálp Íslands árið 2011 voru 25.586 talsins. Jólamarkaður í Reykjanesbæ Tri ehf. Suðurlandsbraut 32 104 Reykjavík www.tri.is Verslunin er opin: Alla virka daga kl. 09:00-18:00 Laugardaga kl. 10:00-16:00 Storm Fly Jacket Verð: 26.990 kr. Tilboð: 21.592 kr. Storm Fly Jacket Verð: 26.990 kr. Tilboð: 21.592 kr. Nike peysa Verð: 16.990 kr. Tilboð: 13.592 kr. Filament Tight Verð: 11.900 kr. Tilboð: 9.592 kr. Miller LS Verð: 6.990 kr. Tilboð: 5.592 kr.Element Thermal tight Verð: 14.990 kr. Tilboð: 11.992 kr. Vetrar-hjólreiðajakki Verð: 22.990 kr. Vetrar-hjólreiðabuxur (þykkar) Verð: 22.990 kr. Vatnsheldar hjólreiðabuxur Verð: 19.990 kr. Vetrar hlaupa- og hjólafatnaður -20% -20% -20% -20% -20% -20%

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.