Morgunblaðið - 01.11.2012, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012
skapa Héðni töluverð verkefni en
fyrirtækið er t.d. með starfsemi í 500
fermetra þjónustuverkstæði á
Grundartanga, auk fleiri tilfallandi
verkefna fyrir stóriðjufyrirtæki ann-
ars staðar.
„Þó að ekki séu neinar stór-
framkvæmdir í gangi er alltaf eitt-
hvað að gerast. Allir þessir aðilar
þurfa viðhald,“ segir Guðmundur.
Þegar mest lét um miðja síðustu
öld voru hátt í 500 manns á launa-
skrá hjá Héðni en eru í dag rúmlega
100 eins og áður greinir. Hefur lítils
háttar fjölgun orðið síðan fyrirtækið
flutti sig um set í nýtt húsnæði í
Hafnarfirði fyrir fjórum árum. Guð-
mundur segist geta bætt við sig enn
fleiri starfsmönnum en mikill skort-
ur er á faglærðum málmiðnaðar- og
véltæknimönnum hér á landi. Auk
ríflega 100 starfsmanna eru um 20
erlendir starfsmenn, ráðnir til
skamms tíma.
Með sterk ítök í Noregi
„Það vantar alltaf góða menn.
Eldri málmsmiðir eru að hætta og
það er þörf á meiri nýliðun í grein-
inni. Bæði fyrir og eftir hrun hefur
fjöldi erlendra málmiðnaðarmanna
starfað í landinu. Þetta eru fyrir-
myndarstarfsmenn, og ekkert út á
þá að setja, en við viljum frekar ráða
Íslendinga til vinnu, ekki síst þegar
atvinnuleysi er þetta mikið ennþá,“
segir Guðmundur.
Eftir hrunið hafa mörg íslensk
fyrirtæki reynt að finna sér verkefni
erlendis. Guðmundur segir Héðins-
menn hafa byrjað á því vel fyrir
hrun. Árið 2000 keypti Héðinn 73%
hlut í norska fyrirtækinu Peder Hal-
vorsen A/S Kjellfabrikk, sem fram-
leiðir gufukatla og ýmis tæki fyrir
norska olíuiðnaðinn. Peder Hal-
vorsen er ríflega 160 ára gamalt
fyrirtæki í Flekkefjord og er annað
af tveimur stærstu fyrirtækjum
sinnar tegundar í Noregi. Hluturinn
í PH var seldur fyrir um þremur ár-
um.
„Við erum áfram með sterk ítök í
Noregi og alltaf með stöðug verkefni
þar. Einnig höfum við verið að störf-
um í Skotlandi og Færeyjum en
þessi verkefni komu hvorki til af
hruninu né eru uppistaðan í okkar
starfsemi. Þetta er bara góð viðbót
og við ætlum okkur ekkert sér-
staklega að sækja meira fram á er-
lendum markaði.“
Guðmundur segir fyrirtækið
standa vel fjárhagslega og skuld-
irnar litlar þrátt fyrir að hafa ráðist í
mikla fjárfestingu í Hafnarfirði í
miðju hruni. Stjórnendur og eig-
endur Héðins hafi í gegnum tíðina
einbeitt sér að kjarnastarfsemi,
forðast alla ævintýramennsku og
sýnt aðhald í rekstrinum.
„Við leggjum mesta áherslu á að
þjóna okkar viðskiptavinum á Ís-
landi, þar er framtíðin,“ segir Guð-
mundur og er bjartsýnn á að Héðinn
nái 100 árunum og vel það.
Enginn bilbugur á Héðni níræðum
Góð verkefnastaða hjá málmfyrirtækinu Héðni í Hafnarfirði Vantar faglærða menn til vinnu
Fyrirtækið að stórum hluta í eigu afkomenda annars stofnenda Héðins fyrir 90 árum í Reykjavík
Morgunblaðið/RAX
Stjórnendur Guðmundur S. Sveinsson, lengst t.v., stýrir Héðni nú, en lykilstjórnendur með honum og stórir hlut-
hafar eru Ingimar Bjarnason, rekstrarstjóri smiðjunnar, og Rögnvaldur Einarsson, yfirmaður tæknideildar.
» Saga Héðins byggist á göml-
um merg. Járnsmiðja hafði
verið starfandi í Aðalstræti 6b
frá 1895, fyrst hjá Sigurði
Jónssyni og síðan Bjarnhjeðni
Jónssyni, nemanda Sigurðar.
» Bjarnhjeðinn lést 1920 en
1922 keyptu Bjarni Þor-
steinsson og Markús Ívarsson,
smiðjuna og nefndu hana Hjeð-
in til heiðurs forveranum.
Bjarni
Þorsteinsson
Sverrir
Sveinsson
Sveinn
Guðmundsson
Markús
Ívarsson
Úr 90 ára söguSVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Það er engan bilbug á okkur að
finna, við höldum áfram djarfir,“
segir Guðmundur S. Sveinsson,
framkvæmdastjóri Héðins, en
málmfyrirtækið fagnar 90 ára af-
mæli sínu í dag. Hinn 1. nóvember
árið 1922 var Vjelsmiðjan Hjeðinn
stofnuð, eins og hún hét og var staf-
sett til ársins 1929, og var fyrst til
húsa í Aðalstræti 6b í hjarta Reykja-
víkur, á sömu slóðum og Morgun-
blaðshöllin var reist síðar meir.
Stofnendur voru Bjarni Þor-
steinsson vélfræðingur og Markús
Ívarsson vélstjóri. Héðinn er eitt
elsta starfandi iðnfyrirtæki landsins
og veitir ríflega 100 manns atvinnu.
Saga fyrirtækisins er sérstök að
því leyti að það er að stórum hluta
enn í eigu afkomenda annars stofn-
enda þess, Markúsar. Tengdasonur
hans var Sveinn Guðmundsson, sem
var forstjóri Héðins í 40 ár. Synir
Sveins og Helgu Markúsdóttur eru
við stjórnvölinn í dag; Guðmundur
er framkvæmdastjóri og Sverrir
stjórnarformaður. Sá síðarnefndi
tók við forstjórastarfinu af föður sín-
um árið 1983 og gegndi því til 1992,
þegar Guðmundur tók við. Auk fjöl-
skyldu þeirra bræðra eru nokkrir
núverandi starfsmenn Héðins í eig-
endahópi fyrirtækisins.
Njóta góðra viðskiptavina
Guðmundur segir verkefnastöð-
una í dag vera prýðilega.
„Það helgast af því að við höfum
okkar góðu og traustu viðskiptavini
sem halda okkur gangandi. Á meðan
við höfum þá, og reynum að þjónusta
þá eins vel og við getum, þá njótum
við þess,“ segir Guðmundur en flest
verkefni Héðins eru vegna sjávar-
útvegsfyrirtækja, bæði við viðhald á
skipaflota, verksmiðjum og öðrum
tækjabúnaði. „Útgerðarfyrirtækin
hafa verið okkur hvað tryggust, al-
veg frá fornu fari.“
Stóriðjufyrirtækin eru einnig að
Eftir að hafa verið með höfuð-
stöðvar í Reykjavík og síðar Garða-
bæ hefur Héðinn verið til húsa á Gjá-
hellu í Hafnarfirði frá árinu 2008,
skammt frá Álverinu í Straumsvík.
Nýverið lauk uppsteypu á 800 fer-
metra viðbyggingu við höfuðstöðv-
arnar. Þetta var gert vegna aukinna
verkefna og til að geta komið upp
nýrri og fullkominni fimm ása fræsi-
vél á renniverkstæðinu. Þetta er
önnur stækkunin á aðeins fjórum ár-
um á nýjum stað, en árið 2012 var
húsnæðið stækkað um 500 fermetra.
Alls er grunnflötur húsnæðisins
kominn í 7.300 fermetra.
„Nýja fræsivélin er hluti af ástæðu
fyrir stækkuninni en frá því að við
fluttum höfum við búið við sífelld
þrengsli. Við vorum of gætnir þá, og
erum að bæta úr því núna,“ segir
Guðmundur S. Sveinsson.
Stækka þurfti
nýja húsnæðið
Ný viðbygging hýsir m.a. fræsivél
Morgunblaðið/RAX
Höfuðstöðvar Héðinn flutti úr Garðabæ í Hafnarfjörð árið 2008 og hefur
síðan þá bætt 1.300 fermetrum við höfuðstöðvarnar á Gjáhellu 4.
Keilulegur Flans- og búkkalegur Hjólalegusett Nála- og línulegur
LEGUR
Í BÍLA OG TÆKI
www.falkinn.is
Það borgar sig að nota það besta!
th
or
ri@
12
og
3.
is
/3
1.
31
3
TRAUSTAR VÖRUR
...sem þola álagiðKúlu- ogrúllulegur