Morgunblaðið - 01.11.2012, Page 20

Morgunblaðið - 01.11.2012, Page 20
FRÉTTASKÝRING Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Daglegt amstur tók aftur við hjá íbú- um á austurströnd Bandaríkjanna þegar birti í gærmorgun, þrátt fyrir að ummerki um eyðileggingarmátt fellibylsins Sandy væru allt um kring. Í gær voru enn 6,2 milljónir án raf- magns í 16 ríkjum en 8,2 milljónir voru rafmagnslausar þegar mest lét, og í New Jersey var fólk varað við því að líklega yrði vika eða meira þar til rafmagn kæmist á alls staðar að nýju. Kauphöllin í New York var opnuð í gær eftir tveggja daga lokun og JFK- og Newark-alþjóðaflugvellirnir opn- uðu fyrir takmarkaða flugumferð en LaGuardia var lokaður vegna skemmda. Þá var akstur hafinn á flestum strætisvagnaleiðum innan New York-borgar á miðvikudag og aftur mátti sjá fólk í röðum við biðstöðvarnar. Umferð gekk þó nokkuð hægt enda var neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar enn í lamasessi og verð- ur líklega næstu 4-5 daga, að sögn borgarstjórans Michael Bloomberg. Hátt vatnsyfirborð í lestargöngum undir Austuránni gerði eftirlits- mönnum erfitt fyrir við að meta skemmdir á mikilvægum búnaði og sagði Joseph Lhota, yfirmaður sam- göngukerfisins, að hugsanlega yrðu leiðir opnaðar í áföngum og að kostn- aðurinn við viðgerðir gæti orðið gríðarlegur. Þúsundir enn fastar Um 5 milljónir manna nota neðan- jarðarlestarkerfið í New York á degi hverjum og m.a. vegna óvissu um af- kastagetu almenningsamgangna í borginni voru skólar áfram lokaðir í gær. Kennslu var einnig víða aflýst í skólum í New Jersey en þar voru björgunarmenn önnum kafnir, þar sem þúsundir komust hvergi af heim- ilum sínum í borginni Hoboken, sem fór afar illa út úr flóðunum. „Það hafa orðið miklar skemmdir á hverri einustu lestarleið í New Jer- sey,“ sagði ríkisstjórinn Chris Christie. „Stórum hluta lestartein- anna hefur skolað í burtu,“ bætti hann við. Þegar nánar var að gáð kom í ljós að sjórinn hafði unnið skemmdir á 65 eimreiðum og 257 lestarvögnum og áætlað er að marg- ar vikur muni líða þar til lestarferðir meðfram strandlengju ríkisins geta hafist á ný. Þegar fellibylurinn var farinn hjá og vatnið rénaði sást hvernig flóðið hafði breytt stórum húsahverfum í New York og New Jersey í strandbæi. Götur voru huldar sandi og annars staðar var skólp farið að blandast flóðvatninu. Um kl. 19 í gær, að íslenskum tíma, höfðu a.m.k. 50 látist í fárviðrinu í Bandaríkjunum og Kanada en er Sandy gekk lengra inn í land fylgdu henni hríðarbylir í Ohio, Penn- sylvaníu og Vestur-Virginíu og á hátt liggjandi svæðum nam ofankoman allt að 90 sentimetrum. „Óvissan er verst,“ sagði Jessica Levitt, íbúi í Connecticut, í samtali við AFP, en hún sagði að jafnvel þótt hún vissi að heimili hennar hefði orð- ið fyrir skemmdum, gæti hún ekki hafið viðgerðir þar sem húsin í hverfinu væru enn umlukin vatni. Skarð hoggið í rottustofninn Barack Obama Bandaríkjaforseti heimsótti í gær þau svæði sem verst urðu úti í New Jersey en orðræða stjórnmálamanna snéri oft að sam- hug og samstöðu á erfiðum tímum í kjölfar eyðileggingarinnar. Það fór þó fyrir ofan garð og neðan hjá ein- hverjum en lögreglan í New York hafði í gær handtekið a.m.k. 13 fyrir að hafa farið ránshendi um borgina á þriðjudag. Í borgum á borð við New Bruns- wick í New Jersey var íbúum ráðlagt að sjóða allt drykkjarvatn og ríkis- stjóri New York-ríkis notaði Twitter til að benda fólki á að þrífa og sótt- hreinsa allt sem hefði blotnað. Þá sagði New York Times frá því í gær að samkvæmt heilbrigðiseftirliti New York-borgar hefðu flóðin sem fylgdu fellibylnum líklega minnkað rottustofn borgarinnar umtalsvert en á móti kæmi að þær sterkbyggðari, sem hefðu komist af, hefðu líklega flúið upp á yfirborðið. Endurreisn eftir öldurótið  Sandy veldur gríðarlegri eyðileggingu í New Jersey  Strætisvagnasamgöngur komnar aftur í gang í New York  Opnað fyrir flugumferð  6,2 milljónir enn án rafmagns  Fleiri en 50 látnir AFP Sjór Myndir teknar af bandarísku strandgæslunni sýna vel hvernig vatn flæddi yfir heilu hverfin í New Jersey þegar Sandy gekk á land. Landganga fellibylsins Sandy Fárviðrið færðist inn eftir landinu á þriðjudag eftir að hafa valdið ómældu tjóni og eyðileggingu við austurströndina. 200 km USA KANADA WASHINGTON D.C. Baltimore New York Boston Toronto Montreal OTTAWA Philadelphia 17.00 Mánudag (21.00 GMT) 8.00 Þri. Mið. Fim. Áætluð leið ATLANTSHAF Heimild: nhc.noaa Vatn og eldur » „Afl móður náttúru hefur fengið á okkur öll,“ sagði Obama áður en hann hélt til New Jersey og lofaði að öll úr- ræði yrðu nýtt við björgunar- aðgerðirnar. » Allt að 100 hús eru talin hafa orðið eldinum í Breezy Point-hverfinu í Queens að bráð og þar standa nú eftir rústir einar. » Í New Jersey áttu slökkvi- liðsmenn erfitt með að komast að eldum sem kviknuðu vegna jarðgasleka í strandbænum Mantoloking. 20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012 Hamfarirnar í Bandaríkjunum Á sama tíma og Barack Obama, forseti Banda- ríkjanna, ferðað- ist um hamfara- svæðin í New Jersey með rík- isstjóranum og repúblikananum Chris Christie, setti Mitt Rom- ney kosningamaskínu sína í efsta gír á ný og hélt þrjá kosningafundi í Flórída, þar sem hann hefur naumt forskot á keppinaut sinn. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur forsetinn hins vegar naumt forskot á Romney í flestum þeim ríkjum þar sem tvísýnt er um úrslit, s.s. Ohio, Iowa og Colorado. Hann þykir hafa staðið sig vel í þeim erf- iðleikum sem Sandy hefur kallað yfir Bandaríkjamenn en þar sem aðeins fimm dagar eru til kosninga, er ljóst að hvorugur frambjóðand- inn má við því að stíga feilspor. Styttist í kosningar Barack Obama

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.