Morgunblaðið - 01.11.2012, Page 22

Morgunblaðið - 01.11.2012, Page 22
22 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012 Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Hillary Clinton, sagði í gær að sjálf- stæði Kosovo, sem stjórnvöld í Kos- ovo lýstu yfir einhliða 2008 og hefur verið harðlega mótmælt af Serbíu, væri óumdeilanlegt og hvatti leið- toga ríkjanna til að „sýna hug- rekki.“ Clinton fundaði með forseta Kos- ovo, Atifete Jahjaga, og forsætisráð- herranum, Hashim Thaci, og sagði við blaðamenn eftir fundinn að Evr- ópusambandsaðild, sem er háð bættum samskiptum milli Kosovo og Serbíu, væri öruggasta leiðin að langtíma stöðugleika, velmegun og friði. „Við munum mótmæla allri um- ræðu um breytingar á yfirráða- svæðum eða endurskoðun á stöðu Kosovo sem sjálfstæðs ríkis. Þessi mál eru ekki til umræðu,“ sagði Clinton og ítrekaði stuðning stjórn- valda í Washington við albönsk stjórnvöld Kosovo. Eina leiðin að aðild Stjórnvöld í Belgrad og Pristina tóku upp viðræður í mars í fyrra með milligöngu Evrópusambandsins en þær miðuðu m.a. að því að auð- velda daglegt líf íbúa Kosovo, bæði Albana og Serba, sem margir lenda í vanda í stjórnkerfinu vegna um- deildrar stöðu svæðisins. Upp úr viðræðunum slitnaði þegar þjóð- ernissinnar unnu sigur í þingkosn- ingum í Serbíu í maí síðastliðnum. Margir Kosovo-búar eru tor- tryggnir í garð sáttaumleitana við Serba en forsætisráðherrann Thaci ítrekaði í gær skuldbindingu Kosovo gangvart viðræðunum. „Þessar samræður eru eina leiðin sem liggur að Evrópusambandsað- ild. Eðlileg samskipti ríkjanna eru hagur Kosvo, Serbíu og svæðisins,“ sagði ráðherrann á blaðamanna- fundi með Clinton. Lög og reglur nái yfir alla Utanríkisráðherrann bandaríski sagði jafnframt að Bandaríkin vildu sjá að lög og reglur næðu til alls landsins en í norðurhluta Kosovo, þar sem meirihluti íbúa er Serbar, hafa stjórnvöld í Pristina engin ítök og aðskilið stjórnkerfi er rekið með fjárstuðningi frá Serbíu. Ráð- herrann hvatti stjórnvöld þó til að taka tillit til áhyggjuefna serbneska minnihlutans. Clinton kom til Kosovo beint frá Serbíu en þaðan mun hún halda til Króatíu, sem verður aðildarríki í Evrópusambandinu í júlí næstkom- andi. Evrópusambandið hefur lagt áherslu á að aðildarviðræður við Serba séu skilyrtar því að árangur náist í viðræðunum milli Serbíu og Kosovo. Sjálfstæði Kosovo óumdeil- anlegt og ekki til umræðu  Utanríkisráðherra Bandaríkjanna ítrekar stuðning við stjórnvöld í Pristina AFP Samstaða Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Hashim Thaci, forsætisráðherra Kosovo, voru innileg á blaðamannafundi í gær. Efri deild rúss- neska þingsins samþykkti í gær umdeilt laga- frumvarp sem útvíkkar skil- greininguna á því hvað fellur undir landráð. Frum- varpið var sam- þykkt nánast ein- róma, með 138 atkvæðum, en einn sat hjá. Samkvæmt lögunum flokkast það nú ekki eingöngu undir landráð að koma leynilegum upplýsingum til erlendra stjórnvalda, heldur einnig að veita ráðgjöf eða fjárhagsaðstoð, t.d. til alþjóðlegra samtaka, ef þau eru þátttakendur í „starfsemi sem beinist gegn öryggi Rússlands“. Núgildandi lög taka ekki til al- þjóðlegra samtaka en aðgerða- sinnar og lögfræðingar hafa bent á að svo lausleg skilgreining gæti leitt til þess að það gæti talist ólög- legt að deila upplýsingum með sam- tökum á borð við Amnesty Int- ernational eða jafnvel að áfrýja máli til Mannréttindadómstóls Evr- ópu. Aðgerðasinnar segja löggjöfina þátt í róttækum aðgerðum stjórn- valda gegn andstæðingum sínum, í hefndarskyni fyrir mótmælin sem brutust út þegar Vladimir Pútín tók aftur við embætti forseta. Samþykktu umdeilt frumvarp Vladimir Pútín Tollyfirvöld í Sviss hafa gerð upptæk fleiri en 500 tára- gashylki frá Kína sem hafa verið dulbúin sem sakleys- islega útlítandi varalitir og kveikjarar. Hylkin voru til sýnis á blaðamannafundi sem haldinn var í gær og héldu tollverðir sýnikennslu fyrir fjöl- miðlafólkið, sem hélt sig í hæfilegri fjarlægð. 500 táragashylki gerð upptæk AFP Táragas í varalitum og kveikjurum Arabaheimurinn myndi anda léttar ef Ísrael gerði árásir á kjarnorku- stöðvar í Íran, sagði forsætisráð- herra Ísraels, Benjamin Netanyahu, í viðtali við franska vikublaðið Paris- Match sem kom út í gær. Netanyahu, sem staddur er í tveggja daga heimsókn í Frakklandi, sagði að ef árásir yrðu gerðar á kjarnorkustöðvarnar myndi fimm mínútum seinna mikill léttir breiðast út á svæðinu. „Íran er ekki vinsælt í arabaheim- inum, langt í frá,“ sagði ráðherrann. „Og stjórnvöld sumra nágrannaríkja Íran og íbúar þeirra hafa góðan skilning á því að þeim stafar líka ógn af kjarnorkuvopnum í Íran, ekki bara Ísrael,“ sagði hann. Netanyahu hefur sagt að kjarn- orkuveldið Íran sé ógn við tilvist ísraelska ríkisins og hefur ítrekað neitað að útiloka hernaðaraðgerðir gegn landinu. Samkvæmt frétt AFP sagði for- sætisráðherrann að efnahagslegar refsiaðgerðir kæmu vissulega illa við Íran en að þær hefðu ekki á nokkurn hátt haft áhrif á kjarnorkuáætlun landsins. Margir hafa haft áhyggjur af því að aðgerðir Ísraela gegn kjarnorku- stöðvum í Íran séu yfirvofandi en Netanyahu hefur lýst því yfir að ekk- ert verði af slíkum aðgerðum fyrr en í fyrsta lagi næsta vor eða sumar. Forsætisráðherrann sagði í viðtal- inu að hann og Frakklandsforseti, Francois Hollande, myndu ræða saman um raunhæfar leiðir til að herða á refsiaðgerðum gegn Íran. holmfridur@mbl.is Segir Írani ekki vinsæla  Yrði léttir ef Ísrael réðist á kjarnorkustöðvar AFP Hittast Leiðtogarnir funduðu í gær. -Viðhaldsfríir gluggar Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 28 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Yfir 40 litir í boði! Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.