Morgunblaðið - 01.11.2012, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 01.11.2012, Qupperneq 25
25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012 Skin og skuggi Langur skuggi skagaði fram líkt og blýantsoddur og tók á móti góðum gesti sem átti erindi í Ráðhúsið í Reykjavík í vetrarstillu og glampandi sólskini á dögunum. Árni Sæberg Í ræðum sínum á flokkssamkomum Samfylkingarinnar sem og á Alþingi hefur Jóhanna Sigurð- ardóttir forsætisráð- herra oft vitnað til þessarar meintu bar- áttu um Ísland. Þó sagan geymi ágæt dæmi um árang- ursríkt samstarf Sjálf- stæðisflokks og Alþýðuflokksins þá gefur vinstri armur Samfylking- arinnar, undir stjórn Jóhönnu Sig- urðardóttur, ekki vonir um að slíkt samstarf geti endurtekið sig. Enda er blessuð konan með Sjálfstæð- isflokkinn á heilanum sem pólitískan höfuðóvin vinstri afla og stefnu þeirra. Þar hefur hún rétt fyrir sér, Sjálfstæðisstefnan er og verður póli- tískur höfuðóvinur vinstri afla á Ís- landi. Sennilega hefur barátta hægri og vinstri stefnu í íslenskri pólitík ekki verið greinilegri um langt ára- bil. Nú er tekist á um grunngildin sem við viljum byggja samfélag okk- ar á. Það hefur áður verið tekist á um þessi grunngildi og íslenska þjóðin hefur verið svo gæfusöm að halda öfga vinstri flokkum frá stjórn landsins, með örfáum undantekn- ingum þó. Baráttan um Ísland snýst um nýt- ingu náttúruauðlinda okkar, afkomu grunnatvinnuvega, skattastefnu, frelsi og svigrúm einstaklinga til at- hafna. Reynslan hefur sýnt okkur að frjálst framtak og frumkvæði ein- staklinga er aflvaki framfara. Núverandi stjórnvöld hafa með aðgerðum sínum og aðgerðaleysi heft frelsi einstaklinga og fyrirtækja með þeim afleiðingum að allir halda að sér höndum. Einstaklingar í fyr- irtækjarekstri sem og fyrirtæki hafa verið ofsótt með óhóflegum skatta- álögum, svikum á gefnum loforðum og undirrituðum samningum. Fram- kvæmdamönnum fækkar og þeir sem voga sér að reyna að skara fram úr eru sviptir arðsvoninni og brenni- merktir sem glæpamenn. Eðlileg þróun í nýtingu náttúruauðlinda okkar er gerð tortryggileg og þeir sem vilja standa vörð um eflingu höfuðatvinnugreina okkar eru kall- aðir gæslumenn sérhagsmuna. Vinstri menn hafa einstakan hæfi- leika til að tefja hluti og kunnugleg svör þeirra eru m.a. „Þarf að skoða betur“ og „Búið er að skipa nefnd“. Allir þessir tafaleikir eru til þess fallnir að koma í veg fyrir fram- kvæmdir og afleiðingarnar blasa við í hinum mikla skorti á fjárfestingu á flestum sviðum íslensks athafnalífs og viðvarandi atvinnuleysi. Vera má að einhverjum finnist að um tíma hafi ekki verið staðinn nægjanlegur vörður um grunngildi í stefnu Sjálfstæð- isflokksins. Eflaust hafa þeir eitthvað til síns máls. En það breytir engu um að stefna flokksins er enn og verður í fullu gildi. Það er okkar sem nú skipum forystusveit flokksins, alþing- ismanna, sveitarstjórn- armanna og for- ystufólks í sjálfstæðisfélögum um allt land, að sýna fólk- inu í landinu að við höfum engu gleymt. Við séum tilbúin að læra af reynslunni og skipa fjöldahreyfingu flokksmanna undir gunnfána stefnu flokksins. Sjálfstæðisstefnan vill brúa bil milli ólíkra stétta, ber hag allra stétta fyrir brjósti og vill efla sam- hug heildarinnar. Við viljum standa vörð um hagsmuni þeirra sem ein- hverra hluta vegna mega sín minna í okkar samfélagi. Sjálfstæðisstefnan er jafnaðarstefna í því tilliti að hún tryggir öllum sömu möguleika til náms, heilbrigðisþjónustu og ann- arra félagslegra þátta, ásamt því að koma í veg fyrir að það myndist gjá á milli þeirra sem meira hafa og þeirra sem minna hafa, með óeðli- legri skiptingu arðsins. En sjálf- stæðisstefnan er ekki þvingandi stefna jöfnunar þar sem enginn má skara fram úr og allur hvati til ár- angurs er að engu gerður. Í mörgu tilliti stendur þjóðin á tímamótum og hefur skýrt val um hvert stefna skuli. Vill hún velja framtíð í anda lýðræðis og sjálfstæðis undir kjör- orðinu „stétt með stétt“ eða kýs hún vinstri öfl sem með sanni má segja að fari fram undir kjörorðinu stétt gegn stétt? Tækifærin liggja við fætur okkar, tækifæri til að efla íslenskt samfélag á grunni eðlilegrar nýtingar á þeim náttúruauðlindum sem landið býr að. Aðeins sterk staða Sjálfstæð- isflokksins eftir næstu kosningar getur tryggt að á þeim grunni verði skapaðar aðstæður í okkar sam- félagi til eflingar atvinnu- og verð- mætasköpunar sem tryggir þann grunn sem við þurfum til að geta m.a. brugðist við þeim vanda sem steðjar að íslenskum heimilum og fyrirtækjum. Eftir Jón Gunnarsson »Enda er blessuð kon- an með Sjálfstæð- isflokkinn á heilanum sem pólitískan höf- uðóvin vinstri afla og stefnu þeirra. Þar hefur hún rétt fyrir sér. Jón Gunnarsson Höfundur er alþingismaður. Baráttan um Ísland Stór hópur fólks stendur nú frammi fyrir alvarlegum vanda vegna þess að það skuldar of mikið í húsnæði sínu. Þessi vandi er ekki einungis tilkominn vegna bankahrunsins heldur erum við að súpa seyðið af áherslum ríkisvaldsins í hús- næðismálum und- anfarna áratugi og vanhugsaðri innkoma bankanna á húsnæð- islánamarkaðinn. Hátt lánshlutfall, ríkisábyrgð á lánum og vaxtabætur ýttu undir skuldsetningu. Fólk var hvatt til skuldsetningar í stað þess að hjálpa því að eignast húsnæði sitt. Undirritaður hefur margoft bent á þetta vandamál og þegar ég var formaður SUS gerðum við úttekt á húsnæðiskerfinu sem birt var árið 1995. Þá kom í ljós að ef fram- lögum hins opinbera væri breytt í styrk til fyrstu húsnæðiskaupa hefði styrkurinn verið 2,8 milljónir á verðlagi þess árs. Síðan þá hef ég reynt að koma fram með leiðir til að hjálpa fólki að eignast í húsnæði sínu í stað þess að hvetja fólk beint og óbeint til skuld- setningar. Staðan í dag er mjög alvarleg en hún verður óviðráðanleg fyrir fjölda heimila sem eru með verð- tryggð lán ef nýtt verðbólguskot verður á næstu misserum. Það er augljóst að þeir sem hafa haft mögu- leika á að taka óverð- tryggð lán hafa gert það en eftir standa þeir sem hafa ekki eiga möguleika á að losna úr verð- tryggðu lánunum. Afleit staða Staðan í sinni einföldustu mynd er þessi: Kaupmáttur fólks hefur lækkað mikið, raunvirði og jafnvel nafnvirði eigna á mörgum stöðum sömuleiðis, en raunvirði lána staðið í stað og nafnvirði þeirra hækkað. Þeir sem hafa fengið lækkun á sín- um lánum eru þeir sem tóku lán sem hafa verið dæmd ólögleg. Ekki sér þó enn fyrir endann á þeim málum m.a. vegna aðgerða og að- gerðaleysis ríkisstjórnarinnar. Í þeim löndum sem við berum okkur saman við er verið að létta skulda- byrði með hóflegri verðbólgu, sem rýrir raunvirði lána, og með afar lágum stýrivöxtum, sem nýtist þeim sem eru með lán með breyti- legum vöxtum. Það sama er að ger- ast hér á landi hjá því fólki sem er með óverðtryggð lán en það sama gildir ekki um þá sem eru með verðtryggð lán. Stærsti eigandi verðtryggðra lána er Íbúðalána- sjóður en hann er í raun gjaldþrota og hefur verið bjargað með fram- lögum úr ríkissjóði upp á um 33 milljarða króna. Enn þarf Íbúða- lánasjóður um 14 milljarða að lág- marki í viðbótarframlög. Til að setja þetta í samhengi þá nema þau um 2⁄3 af kostnaði við að reisa nýjan Landspítala með nútímatækjabún- aði. Íbúðalánasjóður er fjármagn- aður af lífeyrissjóðum að mestu leyti, eða um 70%, en er með rík- isábyrgð sem gerir það að verkum að áföllin lenda alltaf á skattgreið- endum. Hvað á fólk mikið í húsinu sínu? Vandinn sést mjög greinilega á þessari mynd en hér er hlutfall eig- infjár hjá íbúðaeigendum miðað við mismunandi kaupdaga. Málið er einfalt, það fólk sem keypti á ár- unum 2006-2008 er með neikvæða eiginfjárstöðu. Sjá töflu. Jóhönnulánin Þeir sem fengu lán á árinu 2008 hafa farið langverst út úr hruninu. Eini aðilinn sem lánaði til íbúðar- húsnæðis á því ári var Íbúðalána- sjóður. Sjóðurinn var á ábyrgð þá- verandi félagsmálaráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur. Sjá meðf. graf. Við værum án nokkurs vafa í betri málum ef sjóðurinn hefði ver- ið varkárari í lánveitingum en við breytum ekki fortíðinni. En það er mikilvægt að læra af henni. Í annarri grein mun ég koma fram með hugmyndir sem ég tel geta hjálpað til að leysa núverandi vanda og einnig koma í veg fyrir að við lendum aftur í sambærilegri stöðu. Eftir Guðlaug Þór Þórðarson » Stærsti eigandi verð- tryggða lána er Íbúðalánasjóður en hann er í raun gjald- þrota og hefur verið bjargað með framlögum úr ríkissjóði upp á um 33 milljarða króna. Enn þarf Íbúðalánasjóður um 14 milljarða að lág- marki í viðbótarframlög. Guðlaugur Þór Þórðarson Höfundur er alþingismaður. Skuldavandinn Eiginfjárhlutfall í upphafi árs 2012 miðað við 5-35% eiginfjárhlutfall á kaupdegi Kaupdagur 5% 10% 15% 20% 25% 30% 35% 1. jan. 2004 12,1 16,8 21,4 26,0 30,7 35,3 39,9 1. jan. 2005 -8,1 -2,4 3,3 9,0 14,7 20,4 26,0 1. jan. 2006 -29,7 -22,9 -16,1 -9,2 -2,4 4,4 11,2 1. jan. 2007 -29,7 -22,8 -16,0 -9,2 -2,4 4,5 11,3 1. jan. 2008 -39,8 -32,5 -25,1 -17,7 -10,4 -3,0 4,3 Þróun veitingar húsnæðislána hjá ÍLS frá jan. 2007 til nóv. 2010 8 ma. kr. 7 ma. kr. 6 ma. kr. 5 ma. kr. 4 ma. kr. 3 ma. kr. 2 ma. kr. 1 ma. kr. 0 ja n. m ar s m aí jú lí se pt . nó v. ja n. m ar s m aí jú lí se pt . nó v. ja n. m ar s m aí jú lí se pt . nó v. ja n. m ar s m aí jú lí se pt . nó v. 2007 2008 2009 2010 Almenn útlán Önnur útlán 6.870.998.729 4.229.119.463 Hrun 5.579.303.613 Merkilegir toppar á hrundögum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.