Morgunblaðið - 01.11.2012, Page 27

Morgunblaðið - 01.11.2012, Page 27
um forsendum. Af því leiðir að fordæmisgildi dómsins er takmark- að fyrir bílasamninga og aðra samninga þar sem mismunurinn er ekki umtalsverð fjárhæð. Sérfræð- ingur FME tekur undir það að óvissa sé um fordæmisgildi dóms- ins í slíkum tilvikum. Í umræddu dómsmáli reynir ekki á að lögaðili getur ólíkt ein- staklingi dregið frá greiðslur sem kostnað í bókhaldi fyrirtækisins sem getur haft áhrif við mat á því hvort fjárhæð teljist umtalsverð. Við mat á því hvort fjárhæðin sé umtalsverð er í dómi Hæstaréttar fundinn mismunurinn á end- urreiknaðri fjárhæð og höfuðstól skuldarinnar eins og hann hefði átt að standa miðað við fjölda greiddra afborgana, hinn 10. mars 2011. Sú fjárhæð er síðan borin saman við upphaflegan höfuðstól lánsins frá 2006. Þessum for- sendum er ekki mótmælt af hálfu Arion banka, enda þótt virði höf- uðstólsins sé m.a. vegna verðbólgu augljóslega ekki það sama á árinu 2006 og 2011 og eðlilegra að sam- anburðurinn tæki tillit til þess. Kröfugerð Af hálfu Arion banka var út- reikningsaðferð Borgarbyggðar, ekki mótmælt. Ekkert er því til fyrirstöðu að Hæstiréttur fallist á aðra uppgjörsaðferð ef krafa er gerð um það og hægt að sýna fram á að hún feli í sér réttari nið- urstöðu. Í fréttatilkynningu Arion banka kemur fram að bankinn tel- ur enn það álitaefni til staðar, hvernig skuli standa að end- urútreikningi. Ábyrgð stjórnenda Ákvörðun stjórnenda fjármála- fyrirtækja um að endurreikna samninga sem ekki falla bersýni- lega undir fordæmi Hæstaréttar, getur falið í sér brot á lögbundn- um skyldum þeirra. Sú ákvörðun gæti bakað þeim persónulega skaðabótaábyrgð, komist Hæsti- réttur að því að ekki eigi að víkja frá meginreglunni um fullar efndir. Jafnframt gæti slík háttsemi stjórnenda fallið undir umboðs- svikaákvæði almennra hegning- arlaga. Það er því fráleitt að gera þá kröfu að þeir ákveði að end- urreikna samninga við þessar óvissu lagalegu aðstæður. Í réttarríki eiga menn og fyr- irtæki þess kost að leita til óháðra dómstóla og njóta réttlátrar máls- meðferðar. Fyrir liggur að enn eru álitaefni uppi um svokölluð geng- istryggð lán og nokkur dómsmál bíða úrlausnar. Það er eðlilegt og í samræmi við grundvallarreglur um þrískiptingu ríkisvaldsins að dóm- stólar leiði þau mál til lykta. » Í réttarríki eiga menn og fyrirtæki þess kost að leita til óháðra dómstóla og njóta réttlátrar máls- meðferðar. Fyrir liggur að enn eru álitaefni uppi um svokölluð geng- istryggð lán og nokkur dómsmál bíða úrlausn- ar. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012 Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Grandagarði 8 | Sími: 862 9010 | kokkurinn@kokkurinn.is veisluþjónusta hinna vandlátu Kokkurinn hjálpar þér að halda hina fullkomnu veislu Árshátíðir Brúðkaup Erfidrykkjur Fermingar Fundir Kynningar Þema kokkurinn.is Ferskur fiskur öll hádegi í Víkinni Vantar þig heimasíðu? ...eða er kominn tími til að hressa upp á þá gömlu? Við setjum upp heimasíður sem aðlaga sig að öllum skjástærðum. Fyrirtæki með yfir 20 ára reynslu Sími 553 0401 www.tonaflod.is Verð frá 14.900 kr. + vsk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.