Morgunblaðið - 01.11.2012, Side 28

Morgunblaðið - 01.11.2012, Side 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012 Dalvegi 10-14 ▪ 201 Kópavogur ▪ Sími: 595 0570 ▪ parki.is Plankaparket í miklu úrvali Bjóðum einnig upp á sérframleitt parket eftir óskum hvers og eins. Burstað, lakkað, olíuborið, handheflað, reykt, fasað, hvíttað, eða hverning vilt þú hafa þitt parket ? Láttu drauminn rætast hjá okkur. Með vísan til greinar í Morgunblaðinu hinn 20. október er fjallar um málefni Jóns Stein- ars Gunnlaugssonar og Hæstarétt. Í þeirri grein kemur fram stað- festing á skrifum und- irritaðs á undanförnum árum um ólögleg vinnu- brögð og lögbrot af hálfu dómara í íslensku réttarkerfi. Í Morgunblaðsgreininni er staðfesting á því hvers konar kúg- unarafl er falið í réttarkerfinu þegar virtur lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari stígur fram og gefur yfirlýsingu um framferði sem einkennir réttleysisríkið Ísland þar sem allt eru glæpir sem ekki þjóna hagsmunum þeirrar klíku er ræður í dómskerfinu. Jón Steinar Gunnlaugsson á heið- ur skilinn fyrir hugrekki sitt að standa frammi fyrir þeirri hefni- gjörnu klíku sem samtök dómara eru. Endurupptaka mála fyrir íslensk- um dómstólum er sérkennilegur skrípaleikur sem ekki er ljóst hvort landsmönnum sé kunnugt um. Þar sem dómarar eru ófúsir til að viðurkenna mistök sín við uppkvaðn- ingu dóms þar sem mannréttindi eru brotin á þeim sem verða undir í nið- urstöðu dómara er viðhöfð sér- kennileg aðferð Hæstaréttar við úr- lausn varðandi ósk um endurupptöku máls. Hæstiréttur sendir fyrirspurn til mótaðilans í málinu sem hefur orðið ofan á í utanlagadóminum og spyr um afstöðu þess aðila til endur- upptöku. Sá sem hefur unnið mál með utanlagadómi samþykkir ekki eða gefur jákvæða umsögn um endurupptöku máls sem hann getur tapað á seinni stigum. Slíkur leikaraskapur er ein- kenni á réttleysisríkinu Íslandi undir forystu Hæstaréttar. Aumingjaskapur Hæstaréttar að játa aldrei mistök þótt sann- anir séu fyrirliggjandi er ljóður á ís- lensku réttarfari. Það að velta af- stöðu réttarins yfir á aðila að dómsmáli sem ekki er reiðubúinn til að hlíta réttlátri málsmeðferð og taka skellinn af mistökum sínum er skömm þjóðfélagsins, að búa við slíkt réttleysi í garð annarra þegna þess. Með nýlegu frumvarpi er gert ráð fyrir skipun nefndar sem ákveða á hvort mál skuli endurupptekið eða ekki. Það sem vekur undrun við lest- ur frumvarpsins er að þeir sem kveða upp ranga dóma skuli skipa sæti í umræddri nefnd og þar með gerast dómarar í eigin mistökum. Sam- kvæmt almennum skilningi á hugtak- inu vanhæfi eru allir aðilar dómskerf- isins vanhæfir svo og löglærðir aðilar sem bíða eftir að komast í stöðu dóm- ara. Hinir löglærðu aðilar sem bíða eftir dómarastöðu fara ekki að taka afstöðu gegn þeim sem eru í lyk- ilstöðu til að úrskurða hver hljóti næsta embætti dómara sem losnar. Af framansögðu sést að það sem fram kemur í frumvarpinu varðandi skipun umræddrar nefndar er hreinn leikaraskapur og sýndarmennska. Framgangurinn eins og gert er ráð fyrir með frumvarpinu er aðeins til að sýnast en verður ekki neinum til gagns nema fá nýjan stimpil á synj- anir um upptöku mála þar sem ut- anlagadómar hafa verið kveðnir upp. Einnig er það allundarlegt að ekk- ert vald í íslensku stjórnkerfi er reiðubúið til að taka til meðferðar lögbrot (mannréttindabrot) íslenskra dómara eða hindra íslenska dómara í að kveða upp dóma sem ekki sam- rýmast gildandi lögum í landinu. Dómurum líðst að fótumtroða ís- lenska lagasetningu að eigin geð- þótta og þurfa ekki að gefa upp hvaða lagabókstafur standi á bak við upp- kveðinn dóm. Auk þess sem falsanir í gerðarbækur dóms eru ekki kallaðar falsanir heldur sérstaklega illa ígrundaðar bókanir af hálfu dómara. Með vísan til þess sem hér er ritað er íslenskt réttleysi sambærilegt við réttleysi þegnanna á tímum Sov- étríkjanna og á tímum nasista þar sem þeir ríktu. Öll andmæli gegn valdníðslunni eru barin niður með óttanum um hefndaraðgerðir af hálfu dómara, sbr. ummæli þeirra lög- manna sem ekki hafa treyst sér til að sækja mál gegn lögbrotum dómara vegna hefndaraðgerða þeirra, þ.e. dómaranna. Endurupptaka mála Eftir Kristján Guðmundsson »Endurupptaka mála fyrir íslenskum dómstólum er sérkenni- legur skrípaleikur sem ekki er ljóst hvort lands- mönnum sé kunnugt um. Kristján Guðmundsson Höfundur er fv. skipstjóri. Í grein „Nýi sloppur keisarans“ í Lækna- blaðinu árið 2005 gagn- rýndi ég harðlega sýndarmennsku og fordæmalaust dóm- greindarleysi á Land- spítalanum. Þar hafði forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar „stað- ið vaktina á tauga- deild“ í fjölmiðla- ljósum. Hann sagði sárþjáðum skjólstæðingi mínum að hann hefði ekkert á deildinni að gera. Fólk dræpist bara á spítölum. Skráði ekk- ert. Í aðalfréttum sjónvarps 20. sept- ember kom fyrsta sprengjuárásin. Auðvitað í RÚV. Aðstoðarland- læknir hældi Kára og bar ljúgvitni gegn mér. Með bros á vör. Yfirlækn- ir taugadeildar nefndi Kára ekki! Bak við tjöldin herti Kári stöðugt tökin. Hinn 19. október sendi Jó- hann Hjartarson hdl. stjórnum LÍ og LR hótunarbréf: 1) fyrrnefnd grein JT verði afmáð tafarlaust úr vefútgáfu Læknablaðs- ins, 2) því verði lýst yfir af Lækna- blaðinu og útgefendunum þess, LÍ og Læknafélagi Reykjavíkur, saman eða sitt í hvoru lagi, að i) birting hennar hafi verið mistök og að ii) umbj. minn verði beðinn afsökunar á birtingunni, 3) að fyrrgreind yf- irlýsing verði birt í næsta tölublaði Læknablaðsins með jafn áberandi hætti og grein JT á sínum tíma, þ.e. að tekin verði heil blaðsíðan undir yfirlýs- inguna. Lýsi stjórn LÍ ekki yfir gagnvart undirrit- uðum að hún fallist á þær kröfur sem hér eru settar fram innan einnar viku áskilur umbj. minn sér rétt til að grípa til allra annarra til- tækra réttarúrræða án frekari við- varana.“ Mýs en ekki menn Formennirnir Sigurbjörn Sveins- son og Óskar Einarsson urðu um- svifalaust við kröfum Kára. Hug- lausir földu þeir sig á bak við sveit þriggja lækna sem þeir á laun fólu afmarkað tímabundið verkefni. Undir forystu Arnar Bjarnasonar, heiðursfélaga LÍ, var ég veginn úr launsátri með ljúgvitni landlæknis. „Stjórnir læknafélaganna fela ykkur hér með að taka ákvörðun um það hvort umrædd grein Jóhanns Tómassonar skuli tekin af vefnum, einstök atriði hennar eða hún öll, tímabundið eða varanlega og hvort biðjast skuli afsökunar í næsta tölu- blaði á birtingu greinarinnar. Ef svarið við síðarnefnda atriðinu er já- kvætt óska stjórnirnar eftir að sú af- Ofbeldisverk stjórn- armanna Lækna- félags Íslands Eftir Jóhann Tómasson Jóhann Tómasson Fyrrihluta ársins 2008 komst í fréttirnar djúpstætt ósam- komulag innan Austur- landsfjórðungs um gerð nýs heilsársvegar yfir Öxi fyrir árið 2011. Þarna skiptast Aust- firðingar í tvær and- stæðar fylkingar þegar hart er deilt um hvort vegagerð á illviðrasömu og snjóþungu svæði í 530 m hæð sé hrein rökleysa eða ekki. Sem liður í mótvægisaðgerðum stjórnvalda gegn kvótaskerðingunni telja andstæðingar framkvæmdar- innar þessa aðgerð marklausa og að það sé tímaskekkja og stórt skref aftur á bak að beina allri vetr- arumferð upp í þessa hæð yfir sjávarmáli. Enn fleiri lands- byggðarþingmenn við- urkenna að það sé liðin tíð að leggja vegi yfir fjöll og firnindi þegar þeir fullyrða að tími jarðganga sé kominn. Milli Djúpavogs og Eg- ilsstaða styttist vega- lengdin mjög mikið með upp- byggðum Axarvegi sem er mikil samgöngubót yfir sumarmánuðina. Ekki er sjálfgefið að þessi vegur tryggi örugga heilsárstengingu allan ársins hring þegar snjóþyngsli á þessum þröskuldi ná 6-10 m hæð. Alltaf mun Öxi lenda í klóm nátt- úruaflanna. Á þessu svæði sem er alltof illviðrasamt hverfur snjósöfnun aldrei og sömuleiðis veðurhæð sem farið hefur upp í 30 metra á sekúndu. Í þessum vítahring festast menn þegar dæmið stoppar hvergi ef reynt verður að byggja upp 8 m háan veg á þessu snjóþunga svæði. Fyrr verður stigið á tærnar á oddvitum fortíð- arinnar. Þá myndu fulltrúar fjárveit- ingavaldsins og Vegagerðarinnar berja í borðið og segja hingað og ekki lengra þegar í ljós kemur hver kostnaðurinn verður. Tillöguna um að Axarvegur verði lagður niður í Berufjörð á snjóþungu svæði í mikl- um hliðarhalla fyrir neðan Manna- beinahjalla án þess að öryggi öku- manna skipti máli myndi brjálæðingur samþykkja. Gegn þessari hugmynd tala skynsamir landsbyggðarþingmenn. Á þessu svæði geta aurskriður, snjóflóð og grjóthrun sem enginn sér fyrir kost- að alltof mörg mannslíf ef vegurinn sópast niður hlíðina. Í 200 m hæð fyrir ofan Beitivelli er þetta ekki heppilegasta vegstæðið til að auka umferðaröryggi og draga úr slysa- hættu. Allt tal um að með uppbyggðum heilsársvegi yfir Öxi flytjist öll snjó- þyngslin þaðan yfir á Breiðdalsheiði er fyrirsláttur. Krafan um að loka heiðinni milli Skriðdals og Breiðdals- víkur undir því yfirskini að engin um- ferð sé um þennan fjallveg er árás á lífæð Breiðdælinga. Besta lausnin er að fá tvenn stutt veggöng inn í Breið- dal sem tengja Berufjörð enn betur við Skriðdal þegar vegirnir í Kamba- skriðum og á Fagradal lokast vegna blindbyls og snjóflóða. Nógu erfitt er að sitja uppi með slysahættuna sem enginn losnar við á öllu svæðinu milli Stöðvarfjarðar og Hornafjarðar án þess að enn fleiri fjallvegir bætist við um ókomna framtíð. Þótt samgöngu- bætur stytti vegalengdirnar, auki ör- yggi ökumanna og sameini byggð- irnar getur líka verið erfitt að sýna fram á ótvíræða arðsemi. Eftir að efnahagskreppan skall á mun eitthvað af þeim vegafram- kvæmdum sem fyrrverandi rík- isstjórn lofaði að loknum alþing- iskosningum 2007 frestast tímabundið. Vegna aukinnar verð- bólgu og verðbóta sem Vegagerðin greiðir verktökum upp að vissu marki hrökkva fjárveitingar ekki eins langt og búist var við. Til þess að tap- ið á vetrarþjónustu Vegagerðarinnar færi ekki yfir einn milljarð króna var ákveðið að hætta snjómokstrum á nokkrum fjallvegum á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi seint á árinu 2008 þegar í ljós kom að kostnaður- inn við samfelldan mokstur á Ax- arveginum hækkaði alltof mikið. Andstæðingar Fáskrúðsfjarðar- og Norðfjarðarganganna standa nú uppi sem einangrað steintröll úr tengslum við raunveruleikann þegar þeir halda að öllum fjármunum sé stolið frá Öxi. Varasamt er að gera langtímaáætlun sem tengist fortíð- inni þegar því er lofað að uppbyggður vegur á illviðrasömum og snjóþung- um svæðum verði hindrunarlaus allt árið í 500-600 m hæð. Það getur Vegagerðin aldrei tryggt. Þeir sem leggjast gegn öllum jarðgangagerð- um næstu áratugina eiga engan rétt á þeim þrjátíu árum síðar. Öxi í klóm náttúruaflanna Eftir Guðmund Karl Jónsson »Ekki er sjálfgefið að þessi vegur tryggi örugga heilsársteng- ingu allan ársins hring þegar snjóþyngsli á þessum þröskuldi ná 6- 10 m hæð. Guðmundur Karl Jónsson Höfundur er farandverkamaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.