Morgunblaðið - 01.11.2012, Qupperneq 30
30 UMRÆÐANBréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012
Jólaskreytingar
Við seljum og setjum
upp jólaseríur
10% afsláttur af uppsetningu ef
þú kaupir seríurnar af okkur.
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
Margir halda að nóg sé að hrúga í sig
pillum vítamína og steinefna til að
bjarga mataræðinu. Að vísu getur
þetta komið í veg fyrir hörgul-
sjúkdóma en til
lengdar verða
áhrifin lakari
heilsa sé ekki
matarvenjum
breytt og hollari
matur valinn, rétt
fæði í stað rangs
fæðis.
Vitleysan byrj-
ar í rauninni við
matarinnkaupin.
Það þarf að byrja á að velja rétta
matinn. Aðalatriðið er að gæta þess
að kaupa sem mest af fersku og nátt-
úrulegu eða óunnu. Sérhver vinnsla
og geymsla matvæla fækkar lífefn-
unum: vítamínum og steinefnum. Allt
nýtt og ferskt úr jurtaríkinu er best.
Þetta gildir líka um kjöt- og fiskmeti.
Ferskur fiskur er villibráð sem er
betri en eldisfiskur. Hreyfifrjálst ald-
ar hænur eru minna stressaðar og
góður matur og verpa hollari eggjum.
Þegar kemur að kjöti almennt þá er
það varla mannamatur nema það sé
látið hanga nægjanlega.
Svín og kjúklingar í fjöldafram-
leiðslu eru alin upp hratt og í miklum
þrengslum sem stressar dýrin og
minnkar hollustu afurðanna.
Sé fersk matvara strax fryst niður
geymir hún áfram öll lífefnin.
Niðursoðinn, reyktur og kryddleg-
inn matur er síðri en ferskur.
Næst er það matseldin en þar er
auðvelt að skemma lífefnin.
Dagsfæðið mætti hafa 30-50% sem
hrámeti af hitaeiningaþörfinni.
Þetta gæti því verið matur úr
jurtaríkinu eða mjólkurvörur.
Hráan mat skyldi ávallt borða fyrst
á máltíðum. Þá er ráðlegt að tak-
marka át matvara og brauðs með
hvítum sykri, hvítu hveiti og unnum
hrísgrjónum. Súrar mjólkurvörur og
sumt súrmeti er gott til að viðhalda
þarmaflórunni.
Við þurfum náttúrulega fitu sem
orkugjafa eða allt að 30% af hitaein-
ingaþörfinni. Fituna fáum við úr
mjólk, rjóma, ostum, smjöri og fitu-
olíum. Handpressuð ólífuolía er ein af
hollari jurtaolíum. Olíuna má nota í
salöt, bakstur og til steikingar eða
smjör við hóflegan hita. Steiktur mat-
ur er ekki bestur varðandi hollustuna.
Til að fá besta samsetningu fitu í
líkamanum eru 10 g lýsis góð en það
eru um tvær matskeiðar daglega.
Allur innmatur er hollur.
Sé soðið í vatni skyldi ávallt hafa
sem minnst vatn og nota lok. Helst
skyldi nýta soðið eða drekka það. Í
soðinu eru ýmis lífefni. Gufusuðan er
enn betri.
Fimm máltíðir á dag eru taldar
betri en þrjár og fara betur með melt-
ingarfærin. Morgunverður gæti verið
samsettur með 25% dagshitaein-
ingaþarfar, morgunkaffi 10%, hádeg-
isverður 30%, síðdegiskaffi 10% og
kvöldverður svo 25%.
Ekki er kaffi hollast drykkja, frem-
ur jurtate eða safi. Hollast væri að
takmarka matarsaltsát niður í 3 g á
dag og væri betra að nota sjávarsalt
sem er 80% af styrk steinsalts. Þá
mætti líka nota þaramjöl í stað salts.
Allir ættu að taka inn C-vítamín. C-
vítamín er óverulegt í mjólk og geta
kálfarnir efnasmíðað það eftir þörfum
en ekki maðurinn, einn fára dýra.
Þetta er einföld leið til heilsu-
samlegs mataræðis sem hefði enn
mest af heilum upprunalegum líf-
efnum í matnum sem er hollast og lík-
aminn þarfnast svo nauðsynlega.
Vandi nútímamataræðis er of lítið
af lífefnum.
PÁLMI STEFÁNSSON
efnaverkfræðingur.
Heilsusamlegt blandað mataræði
Frá Pálma Stefánssyni
Pálmi Stefánsson
Ég held að flestir séu á því að það eru
fáir þingmenn sem hafa lagt sig eftir
að tala fyrir hagsmunum hins al-
menna manns.
Ríkisstjórnin og
þingmenn stjórn-
arflokkanna hafa
svikið öll loforð
sem þeir gáfu um
að virða samninga,
fara að jafnrétt-
islögum og slá
skjaldborg um
heimilin svo eitt-
hvað sé nefnt.
Þess í stað hafa stjórnarflokkarnir
slegið skjaldborg um bankana og fjár-
mögnunarfyrirtækin. Þúsundir heim-
ila og fyrirtækja eru gjaldþrota vegna
aðgerða eða aðgerðaleysis þessa fólks,
sem tilheyrir stjórnarflokkunum og
Hreyfingunni, sem hefur verið með-
virk.
En mitt í svartnættinu á hinn al-
menni borgari málsvara á þingi, sem
er Guðlaugur Þór Þórðarson, sem hef-
ur borið af fyrir dugnað við að halda til
haga vanefndum ríkisstjórnarinnar,
t.d. í atvinnumálum, og benda á leiðir
sem gætu gagnast fólki í baráttu sinni
um heimilin, gegn bönkunum og rík-
isstjórninni. Tillaga hans um reiknivél
til að fólk geti reiknað sjálf út stöðu
lána sinna er athyglisverð og eitt
dæmið um hvers erinda þessi þing-
maður gengur á þingi.
Verði þetta að veruleika þarf fólk
ekki að treysta á einhliða útreikninga
bankanna, sem eru ekkert annað en
gráðugir andstæðingar fólksins í
landinu, enda einkavæddi Stein-
grímur J. bankana og seldi þá erlend-
um ofurgróðasjóðum, sem er slétt
sama um okkur. Þar sáum við hvar
hugur Steingríms J. lá. Það var ekki
hjá fjölskyldum landsins. Ég er auð-
vitað ekki að halda því fram að Guð-
laugur Þór sé sá eini sem ber hag hins
almenna manns fyrir brjósti, en full-
yrða má að þannig þenkjandi þing-
menn finnast ekki í stjórnarflokk-
unum, dæmin sanna það. Hins vegar
má nefna nöfn eins og Vigdísi Hauks-
dóttur, Illuga Gunnarsson, Einar
Guðfinnsson, sem hefur yfirburða-
þekkingu á sjávarútvegsmálum, Sig-
mund Davíð og Gunnar Braga. Allt er
þetta fólk tilbúið að vinna fyrir fólkið
frekar en bankana. Þetta eru þing-
mennirnir sem við eigum að styðja á
þingi. Við þurfum að passa okkur á að
láta nú ekki kosningaloforð Samfylk-
ingarinnar og Vinstri grænna glepja
okkur, við höfum reynslu af því að það
er marklaust fólk.
ÓMAR SIGURÐSSON
skipstjóri.
Öflugur þingmaður
Frá Ómari Sigurðssyni
Ómar Sigurðsson
Ég fagna útkomu bókar um Gísla á
Uppsölum. Höfundur hennar kom
vel fyrir í Kastljósi Sjónvarpsins.
Vonandi kafar höfundur djúpt. Af-
skiptaleysið af
högum Gísla er
blettur á þjóðinni.
Það má alveg
þakka Ómari
Ragnarssyni fyr-
ir að kynna Gísla
Gíslason fyrir
þjóðinni. Hins
vegar verð ég
alltaf fyrir óþæg-
indakennd hvert sinn sem ég sé þá
kynningu. Það var ekki annað en
andlegt ofbeldi að láta Gísla taka
hattinn ofan.
Hann gerði það ekki með gleði.
Örugglega hafa þá rifjast upp fyrir
honum gömul ónot og dónaskapur
honum sýndur. Það var líka öfgafull
og vafasöm gamansemi að láta þetta
visna kuldastrá fara í sjómann við
sterkasta mann heimsins. Gísli hefur
samt örugglega séð að þessir keis-
arar voru naktir. Já, það er beinlínis
ljótt að reyna að hefja sig upp með
þessum hætti. Þetta efni sýnir Sjón-
varpið aftur og aftur og hælist af.
Það er svo mesta hneisan í þessu
að myndirnar frá heimsókn Ómars
til Gísla skyldu ekki ýta yfirvöldum
til að koma Gísla til hjálpar. Haft er
á orði, að hann hafi ekki viljað neina
hjálp þiggja. Það finnst mér vart
nokkur skýring.
Það liðu því enn fimm löng ár hjá
Gísla í myrkri og kulda. Hann var
orðinn dauðvona, þegar gripið var
inn í hans mál og honum komið á
sjúkrahús þar sem hann lést á gaml-
ársdag 1986. Á sjúkrahúsinu kom í
ljós að hann var hjálpinni feginn og
þakklátur fyrir hana, enda martröð-
inni lokið.
Að Gísla látnum gerði ég þessa
limru:
Hann var áralangt aleinn að sýsli
enda varð röddin að hvísli.
Kyrrðin svo hljótt
kjökrar í nótt
því genginn er Uppsala-Gísli.
HELGI KRISTJÁNSSON,
Ólafsvík..
Gísli á Uppsölum var
hæddur og yfirgefinn
Frá Helga Kristjánssyni
Helgi Kristjánsson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson á
smágrein í Mbl. 27.10. með titlinum:
Hvenær er bylting lögleg? Svarið er
einfalt, samkvæmt skilgreiningu
getur bylting aldrei verið lögleg! Því
bylting merkir kollvörpun stjórn-
arfars, og heimild til þess getur ekki
verið í lögum neins ríkis. Hér er þá
líka gerður greinarmunur á byltingu
og valdráni, t.d. herforingja, þar sem
aðeins er skipt um æðstu stjórn-
endur. Jafnvel þegar slíkum ólýð-
ræðislegum kúgurum er steypt, get-
ur ekki verið heimild til þess í
landslögum.
Annað mál er
hvort árangur
byltingar er
ásættanlegur eða
telst æskilegur
fyrir eftirkom-
endur. Aug-
ljóslega er það
rétt merking til-
vitnunarinnar í
Strindberg: „I
fall den [revolutionen] lyckas blir
[den] sanktionerad.“ En það er tátó-
lógía, segir bara það sem fyrr var
sagt í sömu setningu. Dæmi Hann-
esar í greinarlok eru fráleit, þótt
frönsku byltingunni 1789 hafi meðal
annars fylgt blóðsúthellingar og ein-
ræði, þá nær engri átt að telja það
eðlilega afleiðingu þess að afnema
forréttindi aðals og klerka, enda
leiddi þessi bylting einnig til þess að
afnema tolla innan Frakklands, sem
sé til að auðvelda verslun og fram-
leiðslu. Voru það ósköp?
Hannes lýkur grein sinni á því að
óska eftir athugasemdum og leið-
réttingum, og hér með skal sagt að
tal hans um byltingu er allt of yf-
irborðslegt, segir engum neitt.
ÖRN ÓLAFSSON,
bókmenntafræðingur
í Kaupmannahöfn.
Lögleg bylting?
Frá Erni Ólafssyni
Örn Ólafsson
Á uppvaxtarárum mínum mátti lesa
kristilegar og uppbyggilegar hug-
vekjur í Morgunblaðinu eftir Billy
Graham, þar sem hann hafði sér-
stakan greinadálk. Einnig var sjón-
varpið á þeim tíma með stutta hug-
vekju fyrir svefninn, sem prestar sáu
um áður en velferðaræðið rann á
landsmenn.
Nú orðið finnst mér fjölmiðlar
orðnir æði andlausir. Þar er lítið eða
ekkert sem hressir sálina. Þess í stað
eru þeir þreytandi og andlega nið-
urdrepandi, uppfullir af endalausum
stælum og deilum um veraldleg mál-
efni, sem snúast eingöngu um auð og
völd. Það er þreytandi líf, einskonar
krabbameinslífsstíll, sem altekur fólk
í gegndarlausu æði við söfnun verald-
arauðæfa, án þess að fá nokkurn tíma
nóg, og þannig endar það líf sitt, ófull-
nægt og vansælt, því ágirndin seðst
aldrei. Það er án hugvekja á hlaupum
eftir síðustu auglýsingu af nýrri sölu-
vöru rándýrri, sem það verður að
komast yfir, hvað sem það kostar.
Mér er sem ég sjái fyrir mér hinar
gömlu hugvekjur hans Grahams
gamla eða heyri enduróm prestanna í
þátíð: „Hegðið yður eigi eftir öld
þessari, heldur takið háttaskipti með
endurnýjun hugarfarsins.“ (Róm
12:2)
Graham hefði bætt við: „Þér voruð
eigi leystir með hverfulum hlutum,
silfri eða gulli, frá fánýtri hegðun yð-
ar, heldur með dýrmætu blóði
Krists.“ (1. Pétursbréf 1:18-19)
Menn keppast stöðugt eftir ytri yf-
irburðum, hinnar hégómlegu sýnd-
armennsku og leita fullnægjunnar í
stærri og nýrri jeppum en nágrann-
ans, húsi á betri heldrimanna stað og
launahækkunum. Þegar ég virði fyrir
mér þessa vansælu og aumk-
unarverðu samferðamenn mína, sem
þola ekki meðalmennskuna, finn ég
stöðugt þá þrá í brjósti mér, að vekja
þá til lífsins með orðum meistara
míns, sem sagði við ríka manninn:
„Ef þú vilt verða fullkominn skaltu
fara, selja eigur þínar og gefa fátæk-
um og munt þú eiga fjársjóð á himn-
um.“ (Matteus 19:21) Það er gjört hér
með.
Ég læt að lokum fljóta með heil-
ræði, sem róað getur þreytta hugi
þeirra manna, sem haldnir eru söfn-
unaráráttu veraldarglingursins en
það segir: „Sæll er sá maður, sem
hefur yndi af lögmáli Drottins og
hugleiðir lögmál hans dag og nótt.“
(Sálmur 1:1-2) Sú sæla er ósvikin og
stendur öllum til boða og brúks, –
ókeypis.
EINAR INGVI MAGNÚSSON,
áhugamaður um andleg málefni.
Endurnýjun hugarfarsins
Frá Einari Ingva Magnússyni