Morgunblaðið - 01.11.2012, Page 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012
Við erum
á Nýbýla
veginum
!
(gamla T
oyota hú
sið) sími
571 6222
Opið virk
a daga 1
2-18
laugarda
ga 12-17
Misstu ekki af
tímamóta-
tilboði!
Aðeins nokkrir dagar eftir! Komdu og
leyfðu Avis að létta þér útborgunina.
Bílafjármögnun
LandsbankansAvis
Þú
www.avisbilasala.is
Bílasala
Nissan Qashqai 2011
Söluverð 4.150.000 kr.
Bílafjárm. Landsbankans 3.320.000 kr.
Eftirstöðvar 830.000 kr.
Avis hluti 335.000 kr.
Þín útborgun 495.000 kr.
Heildarverð til þín 3.815.000 kr.
VW Polo 1.2 2011
Söluverð 1.880.000 kr.
Bílafjárm. Landsbankans 1.504.000 kr.
Eftirstöðvar 376.000 kr.
Avis hluti 150.000 kr.
Þín útborgun 226.000 kr.
Heildarverð til þín 1.730.000 kr.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 26. október var
spilað á 17 borðum.
Úrslit urðu þessi í N/S
Friðrik Hermannss. – Auðunn Guðmss.
386
Oliver Kristóferss. – Magnús Oddss. 376
Jóhann Benediktss. – Erla Sigurjónsd. 364
Sverrir Jónsson – Óli Gíslason 356
A/V
Knútur Björnss. – Sæmundur Björnss. 402
Kristján Björnss. – Júlíana Sigurðard. 352
Skarphéðinn Lýðss. – Stefán Ólafss. 347
Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmannss. 344
Þriðjudaginn 23. október var
sveitakeppni milli eldri borgara
Í Hafnarfirði og Reykjavík. Spil-
að var á 10 borðum. Hafnfirðingar
unnu með 153 stigum gegn 144.
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Sunnudaginn 28/10 var spilaður
tvímenningur á 9 borðum. Hæsta
skor kvöldsins í Norður/Suður.
Oddur Hanness. – Árni Hannesson 250
Karólína Sveinsd. – Sveinn Sveinsson 242
Þórður Ingólfss. – Björn Arnarson 240
Austur/Vestur
Gróa Guðnad. – Unnar A. Guðmundss. 283
Birgir Kristjánss. – Jón Jóhannss. 247
Davíð Sigurðss. – Ragnar Haraldsson 239
Spilað er í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19.
Sveit Karls Sigurhjartarsonar
vann deildakeppnina
Sveit Karls Sigurhjartarsonar er
deildameistari en mótið var spilað
um helgina. Sveitin fékk 245 stig.
Ísveit Karls spiluðu ásamt honum
Sævar Þorbjörnsson, Anton Har-
aldsson, Pétur Guðjónsson og Sig-
urbjörn Haraldsson.
Í 2.sæti varð sveit Chile með 234
stig og í 3. sæti varð sveit Jóns Ás-
björnssonar hf. með 213 stig. Í
sveit Karls spiluðu ásamt honum
Sævar Þorbjörnsson, Anton Har-
aldsson, Pétur Guðjónsson og Sig-
urbjörn Haraldsson.
Í 2. deild varð hlutskörpust sveit
Þriggja frakka með 262 stig. Í
sveitinni spiluðu Hjördís Sigur-
jónsdóttir, Kristján Blöndal, Guð-
mundur Baldursson, Steinberg
Ríkarðsson, Rúnar Einarsson og
Guðjón Sigurjónsson. Í öðru sæti
varð sveit Stubbana með 242 stig
og í 3. sæti varð sveit Vestra með
238 stig.
Jafet Ólafsson forset BSÍ afhenti
verðlaun í mótslok.
Félag Eldri borgara
í Reykjavík
Mánudaginn 27. okt. var tví-
menningskeppni hjá Bridsdeild
Félags eldri borgara í Rvík að
Stangarhyl 4. Spilað var á 12 borð-
um. Meðalskor var 216 stig. Besta
skor N-S:
Magnús Oddss. – Oliver Kristóferss. 273
Ægir Ferdinandss. – Helgi Hallgrss. 266
Siguróli Jóhannss. – Auðunn Helgas. 253
Jón Þór Karlss. – Björgvin Kjartanss. 248
A-V
Friðrik Jónsson – Tómas Sigurjónss. 270
Magnús Jónss.– Gunnar Jónsson 242
Höskuldur Jónsson – Einar Einarss. 241
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 239
Bridsfélag Reykjavíkur
Að loknum 2 kvöldum af 8 hjá
BR er staðan þessi.
Sveit Chile 127 stig
Sveit VÍS 123 stig
Sveit Lögfræðistofu Íslands 110 stig
Að 4 kvöldum loknum verður
mótinu skipt upp í tvær deildir.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Eitthvað hafði skát-
inn misskilið boðskap-
inn. Honum hafði ver-
ið sagt að gera eitt
góðverk á dag og af
takmörkuðum skiln-
ingi sínum dró hann
gömlu konuna yfir
götuna þó svo að hún
hefði verið á allt ann-
arri leið.
Þetta datt mér í
hug þegar ég fór að kynna mér
starfsemi fyrirtækis sem nefnist
Starf ehf. Það er í aumingjagæsku-
bransanum, fær miklar fjárhæðir
frá Atvinnuleysistryggingasjóði til
að vera gott við atvinnulausa. Aug-
lýsir sig með gylliboðum, lofar
„persónulegri þjónustu“ og „við
þjónustum þig“. Gæskunni lýkur þó
fljótlega fyrir hinn atvinnulausa
þegar svipan fer á loft.
Þvingunin
Með þvingunum er fólk skikkað
á fjögurra daga námskeið til að
læra að gera ferilskrá, fylla út um-
sóknir, senda umsóknarbréf, rata
um netsíður sem bjóða upp á störf
og fleira. Eflaust er þetta afar
gagnlegt fyrir fjölmarga en bara
ekki alla. Fjöldi fólks kann þetta og
sinnir þessu daglega eða að
minnsta kosti á reglubundnum
fresti.
Persónuleg þjónusta Starfs ehf.
er engu að síður svo ópersónuleg
að fyrirtækið gerir öllum skylt að
sækja svona námskeið.
Öllum óskum, beiðnum
eða mótmælum um að
fá að sleppa við nám-
skeiðið er umsvifalaust
hafnað.
Svipunni sveiflað
Kona nokkur var
skikkuð á námskeiðið
en gat ekki mætt
fyrsta daginn vegna
þess að þann dag var
vetrarfrí í skólanum
hjá tveimur ungum
börnum hennar og hún þurfti að
sinna þeim heima. Hefði konan
ekki verið atvinnulaus hefði hún
áreiðanlega fengið frí í vinnunni
eða að minnsta kosti getað tekið út
orlofsdag til þess arna. Hjá Starfi
ehf. var brugðist ókvæða við, í
svipunni hvein og henni var hótað
bótamissi. Konan lét sig ekki held-
ur fór í velferðarráðuneytið sem
vísaði henni á Vinnumálastofnun og
þar loksins fékk hún frí fyrsta dag
námskeiðsins. Ekki missti hún þó
af neinu enda hafði hún enga þörf
á námskeiðinu.
Hótun skapar hlýðni
Aðferðafræði Starfs ehf. er um
margt gagnrýnisverð. Það gengur
ekki að þvinga fullorðið fólk, án til-
lits til menntunar, þekkingar og
reynslu, til að mæta á námskeið
sem það hefur ekkert gagn af. Þar
með er ekki tekið tillit til þarfa eða
óska einstaklingsins heldur gert
ráð fyrir að aðstæður allra séu hin-
ar sömu. Þetta er algjörlega óvið-
unandi og í raun svo vitlaust að
ekki tekur nokkru tali.
Atvinnuleysi er böl. Hins vegar
er ekki á það bætandi þegar sá at-
vinnulausi er tuskaður til og starf
hans, skoðun og verk eru dregin í
efa og honum gert að haga sér á
allt annan hátt en skynsemi hans
segir.
Fjöldi fólks kvartar undan Starfi
ehf., yfirleitt er það vegna þess að
því er ofboðið. Fæstir þora hins
vegar að koma fram opinberlega
vegna ótta við að verða á einhvern
hátt refsað.
Starf ehf. á að vera fyrir at-
vinnulausa en virðist þess í stað
vera til fyrir sjálft sig í aum-
ingjagæskubransanum þar sem lit-
ið er niður á atvinnulausa, talað til
þeirra með hroka og litið fram hjá
sjálfstæði einstaklingsins og skyn-
semi hans.
Svo hjápar alltaf í viðskiptum að
komast í þá stöðu að gera öðrum
tilboð „sem þeir geta ekki hafnað“.
Með hótunum býður Starf
ehf. persónulega þjónustu
Eftir Sigurð
Sigurðarson » Það gengur ekki að
þvinga fullorðið fólk,
án tillits til menntunar,
þekkingar og reynslu,
til að mæta á námskeið
sem það hefur ekkert
gagn af.
Sigurður Sigurðarson
Höfundur er rekstrarráðgjafi.