Morgunblaðið - 01.11.2012, Page 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012
Ég verð upptekinn allan daginn í vinnu og ætla ekkert að haldaupp á þetta á sjálfana afmælisdaginn. Ég býð fjölskyldu minniog vinum í kaffi á sunnudaginn,“ segir Sigurþór Albert Heim-
isson, þjónustustjóri tölvu- og vefþjónustu Listaháskóla Íslands og
leikari með meiru, sem fagnar fimmtugsafmæli sínu í dag. Þjónusta
við tölvukerfið í Listaháskólanum er hans meginstarf en einnig kenn-
ir hann framsögn og ræðumennsku í Háskólanum í Reykjavík. Byrj-
aði hann þeirri kennslu í Tækniháskólanum fyrir 15 árum, en skólinn
rann sem kunnugt er inn í HR árið 2005.
Sigurþór er með fleiri járn í eldinum. Hann kennir útlendingum ís-
lensku hjá Alþjóðasetrinu og er leiðsögumaður á sumrin. Hann er
lærður leikari en sté af leiksviðinu tímabundið fyrir nokkrum árum,
þegar honum bauðst starfið hjá Listaháskólanum. „Þetta er eins og
með skátana, eitt sinn leikari, ávallt leikari. Ég bregð mér alltaf í leik-
listina annað slagið,“ segir Sigurþór en hann hefur m.a. verið kynnir
og sögumaður á barna- og fjölskyldutónleikum Töfrahurðarinnar í
tónlistarsafninu í Kópavogi. Kemur þar fram sem DJ Sóri og kynnir
klassíska tónlist fyrir ungu kynslóðinni. Töfrahurðin verður einmitt
með sýningu í Salnum í Kópavogi 2. desember í tilefni útgáfu hljóð-
bókarinnar Englajól. Sigurþór lætur ekki þar við sitja og syngur í
kirkjukór Neskirkju, sem er að æfa Messías eftir Handel fyrir tón-
leika 9. desember nk. Um er að ræða tónleika þar sem gestir mega
taka hressilega undir með kórnum. „Ég er þannig að eðlisfari að geta
aldrei sagt nei þegar ég er beðinn um eitthvað og hef því meira en
nóg að gera, sem er bara gaman.“ bjb@mbl.is
Sigurþór Albert Heimisson 50 ára
Morgunblaðið/G.Rúnar
Ægisíðan Sigurþór Albert Heimisson ásamt eiginkonu sinni, Ólöfu
Kristínu Sigurðardóttur, við heimili þeirra á Ægisíðunni.
Eitt sinn leikari,
ávallt leikari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Svava Jóns-
dóttir verður
áttræð á morg-
un, 2. nóvember.
Í tilefni afmæl-
isins tekur
Svava á móti
gestum laugar-
daginn 3. nóv-
ember frá kl. 15
til 18, í framsóknarhúsinu í Grindavík,
Víkurbraut 27.
80 ára
Árnað heilla
Brúðhjón Þau hafa
valið hvort annað,
hún og hann, og ját-
ast hvort öðru í Ve-
stre Fríkirkju í Osló,
laugardaginn 3. nóv-
ember kl. 15. Hún:
Ingunn Stav Joh-
anssen, Kristians-
and, Noregi. Hann:
Smári Johnsen,
Hafnarfirði.
Brúðkaup
J
ón fæddist að Ölvalds-
stöðum í Borgarhreppi,
ólst þar upp og á Beig-
alda skamma hríð, en
lengst af í Borgarnesi.
Hann lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Reykvíkinga
1941, stundaði leiklistarnám hjá
Lárusi Pálssyni 1944-45, fór til
Bandaríkjanna og stundaði leik-
listarnám við The American Aca-
demy of Dramatic Arts í New
York City og lauk þaðan prófum
vorið 1948, stundaði söngnám í
New York með leiklistarnáminu,
stundaði söngnám í Mílanó og í
Róm á Ítalíu 1951-64 og stundaði
söngnám hjá Sigurði Demetz
árum saman.
Jón hóf leiklistarferil sinn sem
Jón Sigurbjörnsson, leikari og söngvari – 90 ára
Með dætrunum Leikarinn og söngvarinn með dætrum sínum, Láru og Kristínu.
Leikarinn góði með
hlýju, djúpu röddina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Clark Gable tíminn Jón skoðar „stjörnumynd“ af sér frá 1947 á margmiðl-
unarsýningu LR um Jón í forsal Borgarleikhússins, árið 2009. Inga Jóna
Þórðardóttir, stjórnarformaður Leikfélagsins, fylgist sposk með.
Reykjavík Helena Ísold fæddist 9. maí
kl. 9.09. Hún vó 3.995 g og var 52 cm
löng. Foreldrar hennar eru Svandís
Björk Ólafsdóttir og Haukur Björns-
son.
Nýr borgari
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
LAGERSALA
2. HÆÐ FJARÐAR
Föstudaginn 2. Nóv.
Og laugardaginn 3. Nóv.
fjordur@fjordur.is
www.fjordur.is
Opið: Mán. - fös. 10:00-18:00
Lau. 11:00-16:00