Morgunblaðið - 01.11.2012, Page 39

Morgunblaðið - 01.11.2012, Page 39
Hóras í Hamlet hjá Leikfélagi Reykjavikur vorið 1949. Hann lék þar síðan næstu árin og í Þjóðleik- húsinu, var fastráðinn leikari við Þjóðleikhúsið 1960-67 að undan- skildum árunum 1964 og 1965 er hann var ráðinn til Óperunnar í Stokkhólmi. Hann var síðan fast- ráðinn leikari við Leikfélag Reykjavikur 1967-92. Þá lék hann með leikhópnum Sex í bíl, sem fóru um landið um miðja síðustu öld. Jón lék um 120 hlutverk á sviði, þar af í fjölda ópera og söngleikja. Þá lék hann í útvarpsleikritum, sjónvarpsleikritum og m.a. í eftirtöldum kvikmyndum: Land og synir, 1980; Útlaginn, 1981; Gull- sandur, 1984; Magnús, 1989; Bíó- dagar, 1994, og Myrkrahöfðinginn, 1999, auk stuttmyndarinnar Síðasti bærinn. Jón leikstýrði 18 leikverkum hjá Leikfélagi Reykjavíkur og auk þess óperunni Carmen við Þjóð- leikhúsið. Með hestunum á Helgastöðum Jón flutti austur að Helgastöð- um í Biskupstungum 1992 og hef- ur átt þar heima sl. tuttugu ár: „Jú, jú. Ég er hér enn með nokkur hross og sé um þau og sjálfan mig með hjálp dætranna og góðra nágranna. En maður er farinn að eldast, er kominn með staf og á orðið erfiðara með allar hreyfingar. Ég finn það. En ég hef fulla fótavist, malla ennþá ofan í mig þó það sé nú ekki merkileg eldamennska. Ég fer allra minna ferða og ek um allt á gamla Cherokee jeppanum.“ Ætlarðu ekki að fara að koma í bæinn og byrja aftur að leika? „Nei, væni minn. Ég er löngu búinn að setja þann punkt. Ég er hræddur um að gamall karl með staf passi ekki í mörg hlutverk.“ Jón var formaður Leikfélags Reykjavíkur 1956-59, formaður Félags íslenskra leikara 1961-63, er heiðursfélagi Leikfélags Reykjavíkur og var sæmdur heið- ursverðlaunum Grímunnar 2005. Hann var einn af sex listamönnum í framvarðarsveit Leikfélags Reykjavíkur sem var heiðraður, árið 2009, með opnun margmiðl- unarþáttar um hann í forsal Borg- arleikhússins. Ævisaga Jóns, Sú dimma rausn, skráð af Jóni Hjart- arsyni leikara kom út 2001. Fjölskylda Jón kvæntist 15.12. 1956 Þóru Friðriksdóttur, f. 26.4. 1933, leik- konu. Hún er dóttir Friðriks Ólafssonar, skólastjóra Sjómanna- skólans í Reykjavík, og k.h., Láru Sigurðardóttur húsmóður. Jón og Þóra skildu. Dætur Jóns og Þóru eru Lára Jónsdóttir, f. 11.7. 1957, for- stöðumaður Hannesarholts við Grundarstíg, búsett í Reykjavík og á hún tvö börn, Iðunni Jóns- dóttur, f. 1987, og Tryggva Jóns- son, f. 1990; Kristín, f. 4.6. 1965, leikskólakennari á Selfossi. Bróðir Jóns var Halldór, f. 17.12. 1920, d. 7.12. 1979, versl- unarstjóri hjá Kaupfélagi Borg- firðinga í Borgarnesi. Foreldrar Jóns voru Sigurbjörn Halldórsson, f. 19.10. 1873, d. 2.3. 1948, verkamaður í Borgarnesi, og Ingunn Kr. Einarsdóttir, f. 28.6. 1896, d. 19.9. 1986, húsmóðir og verkakona. Úr frændgarði Jóns Sigurbjörnssonar Jón Sigurbjörnsson Jónatan Jakobsson b . í Svalhöfða, fór til Ameríku Margrét Skúladóttir frá Tannstaðabakka Einar Jónatansson verkam. í Rvík Katrín Böðvarsdóttir frá Hrútatungu Ingunn Einarsdóttir húsfr. og verkak. í Borgarnesi Böðvar Guðmundsson b. á Skarði í Haukadal Elín Kristín Tómasdóttir húsfr. á Skarði Kristján Halldórsson smiður á Stangarbakka Sigurlaug Jónsdóttir húsfr. á Stangarbakka Halldór Kristjánsson b. á Ingjaldsstöðum í Kelduhverfi Kristín Sigurveig Árnadóttir húsfr. á Ingjaldsstöðum Sigurbjörn Halldórsson verkam. í Borgarnesi Árni Árnason b. á Gunnarsstöðum í Þistilfirði Jóhannes Árnason smiður á Ytra-Álandi Arnbjörg Jóhannesdóttir húsfr. á Gunnarsstöðum Jóhannes Árnason b. á Gunnars- stöðum Sigríður Jóhannesdóttir húsfr. á Gunnars- stöðum,móðir Steingríms J. Sig- fússonar ráðherra Morgunblaðið/Sverrir Afmælisbarnið Er Jón tók við heið- ursverðlaunum Grímunnar 2005, hélt hann eftirminnilega ræðu um málvöndun. ÍSLENDINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012 Sigurður Einarsson, útgerð-armaður og forstjóri Ísfélags-ins í Vestmannaeyjum, fædd- ist í Reykjavík 1.11. 1950, sonur hins kunna útgerðarmanns, Einars Sig- urðssonar, og k.h., Svövu Ágústs- dóttur húsfreyju. Einar var sonur Sigurðar, formanns á Heiði í Vest- mannaeyjum, í beinan karlegg frá Sigurði, pr. á Ólafsvöllum, bróður Sæmundar, föður Tómasar Fjöln- ismanns. Svava var dóttir Ágústs, verka- manns í Reykjavík Guðmundssonar, fulltrúa bæjarfógeta og kaupmanns í Reykjavík Guðmundssonar. Eftirlifandi kona Sigurðar er Guð- björg Matthíasdóttir kennari og eignuðust þau fjóra syni, Einar, Sig- urð, Magnús og Kristin. Sigurður lauk stúdentsprófi frá MR 1970, embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1974 og öðlaðist hdl.-réttindi 1983. Hann var framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar Vestmannaeyja hf. 1974-92 og forstjóri Ísfélags Vestmannaeyja eftir sameiningu Hraðfrystistöðvarinnar og Ísfélags- ins, frá ársbyrjun 1992 og til dauða- dags. Sigurður gegndi fjölda trún- aðarstarfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn, var í forsvari fyrir sjávarútvegs- nefnd hans, var bæjarfulltrúi í Vest- mannaeyjum frá 1986 og til dauða- dags, formaður bæjarráðs um skeið, og var oddviti lista sjálfstæð- ismanna. Sigurður sat lengi í stjórn SÍF, SH, Coldwater Seafood í Bandaríkj- unum, Icelandic Freezing Plants Ltd. í Bretlandi og LÍÚ, í stjórn Fé- lags íslenskra fiskimjölsframleið- enda, í stjórn Fiskmarkaðs Vest- mannaeyja, Vinnuveitendasambands Vestmannaeyja og formaður þess um skeið, sat í stjórn Útvegsbænda- félags Vestmannaeyja,var stjórn- arformaður Tryggingamiðstöðv- arinnar, sat í stjórn Skeljungs og fleiri fyrirtækja í Vestmannaeyjum og Reykjavík. Sigurður var vinfastur, yfirlætis- laus og farsæll stjórnandi, bjó yfir mikilli þekkingu á íslenskum sjávar- útvegi og bar mjög hag Vest- mannaeyja fyrir brjósti. Hann lést langt um aldur fram, 4.10. árið 2000. Merkir Íslendingar Sigurður Einarsson 95 ára Lára Gunnarsdóttir 90 ára Guðmundur Guðmundsson 85 ára Borghildur Einarsdóttir Sigurður B. Markússon 80 ára Anna Guðrún Jónsdóttir Anna Hlíf Finnsdóttir Jóhanna Jóhannsdóttir Magnús Jakobsson Yngvi Ragnar Loftsson 75 ára Guðdís Sæunn Guðmundsdóttir Guðmundur B. Kjartansson Guðný Helga Árnadóttir Ólafur Þórðarson 70 ára Anna Norris Jón Jóhannsson Kristín Guðmundsdóttir Unnur Halldórsdóttir 60 ára Dagný Gloria Sigurðsson Guðný S. Þorleifsdóttir Gunnhildur Björg Emilsdóttir Hansína Sigurgeirsdóttir Sigurbjörn Ásgeirsson 50 ára Bríet Pétursdóttir Geir Magnús Zoëga Gunnar Þór Schiöth Elfarsson Helga Guðlaug Einarsdóttir Hjalti Jóhannesson Ingi Thor Jónsson Jevgenija Klocko Jón Kristinn Valdimarsson Jökull Helgason Maria Janikula Sigurþór Heimisson Stefán Magnús Skúlason 40 ára Bryndís Lúðvíksdóttir Guðbjörg Gabríelsdóttir Guðmundur Haukur Þórsson Ólafur Þór Jóelsson Rebekka Ómarsdóttir Sævar Jósep Gunnarsson Valdemar Þór Viðarsson Vilhjálmur Goði Friðriksson Víðir Már Hermannsson Þórir Brjánn Ingvarsson 30 ára Ágúst Aron Gunnarsson Ásthildur Valgerðardóttir Berglind Smárad. Thorarensen Eiður Örn Gylfason Engilráð Ósk Einarsdóttir Guðfinnur Þórir Ómarsson Helga María Heiðarsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Jón ólst upp í Nes- kaupstað, lauk MS-prófi í jarðeðlisfræði við HÍ og starfar við jarðhitarann- sóknir hjá Mannviti. Maki: Yizreel Manuel Ur- quijo Torres, f. 1983, starfsm.frístundaheimilis. Foreldrar: Jón Ingi Krist- jánsson, f. 1953, starfs- maður hjá B&L í Reykja- vík, og Kristín Árnadóttir, f. 1959, verslunarmaður hjá Samkaupum á Egils- stöðum. Jón Einar Jónsson 30 ára Guðbjörn ólst upp í Keflavík, lauk sveinsprófi í rafvirkjun frá FS og er rafvirki hjá Rafmúla. Maki: Þórdís Þórisdóttir, f. 1985, sjúkraliði og starfsmaður á leikskóla. Synir: Svavar Þór, f. 2008; Óðinn Elí, f. 2011. Foreldrar: Guðrún Guð- mundsdóttir, f, 1956, og Gunnar Gunnlaugsson, f. 1954. Fósturfaðir: Guðjón Svavar Jensen, f. 1961. Guðbjörn Gunnarsson 30 ára Valur ólst upp í Vesturbænum, lauk prófi sem rafeindavirki frá Iðn- skólanum í Reykjavík og er nú rafeindavirki hjá Securitas. Systkini: Elías Freyr, f. 1979; Eva María, f. 1987, og Elvar Jón, f. 1989. Foreldrar: Guðmundur Jón Elíasson, f. 1954, læknir í Reykjavík, og Sig- ríður Valsdóttir, f. 1955, þjónustufulltrúi í Arion banka. Valur Árni Guðmundsson Draghálsi 14 - 16 110 Reykjavík Sími 4 12 12 00 www.isleifur.is Hægt er að senda mynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.