Morgunblaðið - 01.11.2012, Page 43

Morgunblaðið - 01.11.2012, Page 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Indíana er manneskja sem ætlast til alls af öðrum, en gefur ekkert í staðinn. Hún er í raun skemmda epl- ið í körfunni,“ segir Sigrún Edda Björnsdóttir, en hún fer með hlut- verk Indíönu Jónsdóttur í leikritinu Gullregni eftir Ragnar Bragason í leikstjórn höfundar sem frumsýnt verður á nýja sviði Borgarleikhúss- ins í kvöld kl. 20. „Indíana er svokallaður kerfis- fræðingur því hún lifir á bótum þó að það sé ekkert að henni. Hún býr í blokk í Fellahverfinu þar sem hún er umkring fólki af erlendum uppruna sem hún fyrirlítur. Hún er ekki mjög sjarmerandi persóna og er kannski mesta gribba leikbókmenntanna ef frá er talin Soffía frænka í Kardi- mommubænum. Ég skil ekkert af hverju ég var beðin að leika hana,“ segir Sigrún Edda kímin. Óttinn knýr manneskjurnar til vafasamra verka En krefst það ekki mikils af þér sem leikara að finna til samkenndar með slíkri persónu til þess að geta miðlað henni með árangursríkum hætti til áhorfenda? „Jú, svo sannarlega. Mín glíma felst í því að skilja og finna forsend- urnar fyrir því af hverju hún er eins og hún er. Ég vona að við svörum þeirri spurningu í leikritinu. Við get- um þá kannski reynt að koma í veg fyrir að manneskjur verði eins og hún er með því að taka ábyrgð á okkur sjálfum og börnunum okkar. Ég held að hver einasta manneskja eigi í sér góðan þráð, einhvern fal- legan kjarna. Stundum getur bara verið djúpt á honum af því að óttinn býr til þykkan skráp og knýr fólk til vafasamra verka. Ég hef heyrt að vinnuferlið við uppsetninguna hafi verið fremur óvenjulegt. Getur þú lýst því fyrir mér? „Ég hitti Ragnar fyrst í janúar á þessu ári þar sem hann sagði mér undan og ofan af hugmynd sinni að leikritinu. Hann sagði mér hver litur minnar persónu væri í sögu hans. Í framhaldinu hittumst við fjórum sinnum þar sem hann lagði fyrir mig ákveðnar spurningar sem kröfðust mikillar rannsóknarvinnu af minni hálfu. Hann hitti aðra leikara verks- ins einslega með sama hætti. Í maí hittumst við loks allir leikararnir og byrjuðum þá að vinna spunavinnu út frá lykilsetningum frá Ragnari. Hann tók þetta allt saman upp á kameru og var með 90 klst. spuna- efni til að skrifa leikritið út frá í sumar. Í raun má segja að Ragnar vinni eftir sömu aðferðum og Mike Leigh þegar hann gerir kvikmyndir sínar, nema Ragnar færir þessar að- ferðir inn í leikhúsið. Þetta er fyrsta skipti, svo ég viti til, sem svona hef- ur verið unnið í leikhúsi. Þetta er mjög gefandi vinnuferli, bæði krefj- andi og skemmtilegt, enda al- gjörlega ný aðferð fyrir mér,“ segir Sigrún Edda og tekur fram að hún voni að fleiri sýningar verði unnar með þessum hætti í íslensku leik- húsi. Kjarni þess að vera Íslendingur Í lýsingu á verkinu kemur fram að líf Indíönu taki umskiptum þegar embættismaður tilkynnir henni að uppræta skuli allar gróðurtegundir sem ekki voru til staðar á Íslandi fyrir árið 1900, en það þýðir að fjar- lægja þarf úr garði blokkarinnar gullregn sem Indíana hefur ræktað og hlúð að. „Við erum í verkinu að skoða hver sé kjarninn í því að vera Íslendingur og hvort það sé eftirsóknarvert. Er- um við ekki bara öll blóm hvert með sínum lit sem skreytum engið? Ind- íana berst fyrir erlendu tré en er á sama tíma á móti öllum innflytjend- unum sem búa í blokkinni hennar, enda er ekki hægt að lýsa henni öðruvísi en sem rasista, fasista og nasista. Við erum þannig að velta upp ýmsum spurningum um íslenskt samfélag. Vissulega er þetta frekar alvarlegt umræðuefni, en við höfum valið að lýsa sýningunni sem kóm- ískum harmleik. Því þó að höfundur gangi nærri persónum sínum þykir honum í raun mjög vænt um fólk.“ Auk Sigrúnar Eddu leika í sýning- unni þau Brynhildur Guðjónsdóttir, Halldór Gylfason, Halldóra Geir- harðsdóttir og Hallgrímur Ólafsson. Tónlist verksins semur Mugison, en þetta mun vera frumraun hans í ís- lensku leikhúsi. „Skemmda eplið í körfunni“  Leikritið Gullregn eftir Ragnar Bragason í leikstjórn höf- undar frumsýnt á nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld kl. 20 Mæðgin Sigrún Edda Björnsdóttir og Hallgrímur Ólafsson í hlutverkum sínum sem mæðgin. Út um gluggann sést glitta í hið örlagaríka gullregn. Ljósmynd/Grímur Bjarnason Bastarðar - fjölskyldusaga (Stóra sviðið) Fim 1/11 kl. 20:00 5.k Þri 6/11 kl. 20:00 9.k Lau 10/11 kl. 20:00 Fös 2/11 kl. 20:00 6.k Mið 7/11 kl. 20:00 10.k Sun 11/11 kl. 20:00 Lau 3/11 kl. 20:00 7.k Fim 8/11 kl. 20:00 11.k Sun 4/11 kl. 20:00 8.k Fös 9/11 kl. 20:00 Ný stórsýning frá Vesturporti, loks á Íslandi. Aðeins sýnd í 3 vikur! Á sama tíma að ári (Stóra sviðið og Hof) Fim 1/11 kl. 20:00 í Hofi Lau 17/11 kl. 19:00 9.k Lau 24/11 kl. 19:00 10.k Fös 2/11 kl. 20:00 í Hofi Lau 17/11 kl. 22:00 aukas Fös 30/11 kl. 20:00 aukas Lau 10/11 kl. 19:00 í Hofi Fim 22/11 kl. 20:00 aukas Lau 1/12 kl. 19:00 11.k Lau 10/11 kl. 22:00 í Hofi Fös 23/11 kl. 20:00 aukas Sun 2/12 kl. 20:00 aukas Hjartnæmur og bráðfyndinn gamanleikur. Sýnt í Hofi 1, 2 og 10 nóvember Gulleyjan (Stóra sviðið) Sun 18/11 kl. 14:00 15.k Sun 25/11 kl. 14:00 17.k Sun 9/12 kl. 14:00 Lau 24/11 kl. 14:00 16.k Sun 2/12 kl. 14:00 Sun 16/12 kl. 14:00 Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma Rautt (Litla sviðið) Sun 18/11 kl. 20:00 22.k Fim 22/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00 Þri 20/11 kl. 20:00 Sun 25/11 kl. 20:00 Lau 1/12 kl. 20:00 Mið 21/11 kl. 20:00 Þri 27/11 kl. 20:00 Sun 2/12 kl. 20:00 Margverðlaunað meistaraverk. Aukasýningar í nóvember og desember Gullregn (Nýja sviðið) Fim 1/11 kl. 20:00 frums Fim 15/11 kl. 20:00 8.k Lau 1/12 kl. 20:00 aukas Fös 2/11 kl. 20:00 2.k Fös 16/11 kl. 20:00 aukas Fös 7/12 kl. 20:00 15.k Lau 3/11 kl. 20:00 3.k Lau 17/11 kl. 20:00 9.k Lau 8/12 kl. 20:00 16.k Sun 4/11 kl. 20:00 4.k Sun 18/11 kl. 20:00 10.k Fös 14/12 kl. 20:00 17.k Fim 8/11 kl. 20:00 aukas Lau 24/11 kl. 20:00 11.k Lau 15/12 kl. 20:00 aukas Fös 9/11 kl. 20:00 5.k Sun 25/11 kl. 20:00 12.k Sun 16/12 kl. 20:00 aukas Lau 10/11 kl. 20:00 6.k Fim 29/11 kl. 20:00 13.k Sun 11/11 kl. 20:00 7.k Fös 30/11 kl. 20:00 14.k Mannlegt verk um íslenskt fólk og útlenskt tré Saga Þjóðar (Litla sviðið) Fim 1/11 kl. 20:00 aukas Lau 10/11 kl. 20:00 6.k Lau 24/11 kl. 20:00 11.k Fös 2/11 kl. 20:00 3.k Sun 11/11 kl. 20:00 7.k Fim 29/11 kl. 20:00 12.k Lau 3/11 kl. 20:00 4.k Fim 15/11 kl. 20:00 aukas Fös 30/11 kl. 20:00 13.k Sun 4/11 kl. 20:00 aukas Fös 16/11 kl. 20:00 8.k Fös 7/12 kl. 20:00 14.k Fim 8/11 kl. 20:00 aukas Lau 17/11 kl. 20:00 9.k Lau 8/12 kl. 20:00 15.k Fös 9/11 kl. 20:00 5.k Fös 23/11 kl. 20:00 10.k Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum. Íslenski Dansflokkurinn: Októberuppfærsla (Stóra sviðinu) Sun 18/11 kl. 20:00 Sun 25/11 kl. 20:00 It is not a metaphor, Cameron Colbert og Hel haldi sínu, Jérôme Delbey Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Gullregn – frumsýnt í kvöld kl 20 Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið) Sun 4/11 kl. 14:00 17.sýn Sun 18/11 kl. 17:00 22.sýn Lau 29/12 kl. 14:00 Sun 4/11 kl. 17:00 18.sýn Sun 25/11 kl. 14:00 Lau 29/12 kl. 17:00 Lau 10/11 kl. 13:00 Aukas. Sun 25/11 kl. 17:00 Sun 30/12 kl. 14:00 Sun 11/11 kl. 14:00 19.sýn Sun 2/12 kl. 14:00 Sun 30/12 kl. 17:00 Sun 11/11 kl. 17:00 20.sýn Sun 2/12 kl. 17:00 Sun 6/1 kl. 13:00 Lau 17/11 kl. 13:00 Aukas. Sun 9/12 kl. 14:00 Sun 6/1 kl. 16:00 Sun 18/11 kl. 14:00 21.sýn Sun 9/12 kl. 17:00 Sun 13/1 kl. 13:00 Sýningar í desember komnar í sölu. Tryggið ykkur sæti því miðarnir fljúga út! Tveggja þjónn (Stóra sviðið) Fim 1/11 kl. 19:30 6.sýn Lau 10/11 kl. 19:30 11.sýn Fös 23/11 kl. 19:30 16.sýn Fös 2/11 kl. 19:30 7.sýn Fim 15/11 kl. 19:30 12.sýn Lau 24/11 kl. 19:30 17.sýn Lau 3/11 kl. 19:30 8.sýn Fös 16/11 kl. 19:30 13.sýn Fim 29/11 kl. 19:30 18.sýn Fim 8/11 kl. 19:30 9.sýn Lau 17/11 kl. 19:30 14.sýn Fös 30/11 kl. 19:30 19.sýn Fös 9/11 kl. 19:30 10.sýn Fim 22/11 kl. 19:30 15.sýn Lau 1/12 kl. 19:30 20.sýn Óborganlega skemmtilegur nýr gamanleikur! Jónsmessunótt (Kassinn) Fim 1/11 kl. 19:30 Aukas. Fös 9/11 kl. 19:30 13.sýn Lau 17/11 kl. 19:30 16.sýn Fös 2/11 kl. 19:30 10.sýn Lau 10/11 kl. 19:30 14.sýn Fim 22/11 kl. 19:30 17.sýn Lau 3/11 kl. 19:30 11.sýn Fim 15/11 kl. 19:30 Aukas. Fös 23/11 kl. 19:30 18.sýn Sun 4/11 kl. 19:30 12.sýn Fös 16/11 kl. 19:30 15.sýn Lau 24/11 kl. 19:30 19.sýn Meinfyndið nýtt íslenskt verk, svört kómedía beint úr íslenskum samtíma. Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið ) Fim 31/1 kl. 20:30 19.sýn Fös 8/2 kl. 20:30 21.sýn Sun 3/2 kl. 20:30 20.sýn Sun 10/2 kl. 20:30 Síðasta sýning 25.10 - Nýtt sýingatímabil hefst eftir áramót! Með fulla vasa af grjóti (Samkomuhúsið Akureyri) Lau 26/1 kl. 20:00 Ak. Sun 27/1 kl. 14:00 Ak. Sýningar á Akureyri Ástin (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 2/11 kl. 22:00 Frums. Sun 4/11 kl. 20:00 Lau 10/11 kl. 22:00 Lau 3/11 kl. 22:00 Mið 7/11 kl. 20:00 Sun 11/11 kl. 20:00 Ólafía Hrönn á trúnó í Þjóðleikhúskjallaranum Gamli maðurinn og hafið (Kúlan) Mið 7/11 kl. 19:30 Fim 8/11 kl. 19:30 Sun 11/11 kl. 19:30 Miðasala hafin. Aðeins þessar fjórar sýningar í nóvember. Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið) Lau 24/11 kl. 11:00 Sun 25/11 kl. 12:30 Sun 2/12 kl. 11:00 Lau 24/11 kl. 13:00 Lau 1/12 kl. 11:00 Sun 2/12 kl. 12:30 Lau 24/11 kl. 14:30 Lau 1/12 kl. 13:00 Lau 8/12 kl. 11:00 Sun 25/11 kl. 11:00 Lau 1/12 kl. 14:30 Lau 8/12 kl. 13:00 Miðasala hafin á vinsæla aðventuleikrit Þjóðleikhússins - og miðarnir rjúka út! Nýjustu fréttir (Kúlan ) Fim 1/11 kl. 18:00 Fös 2/11 kl. 17:00 Allra síðasta sýning 2.nóvember. Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.