Morgunblaðið - 13.11.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2012
SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA
SÉRSMIÐI
innréttingar, borðplötur, sprautulökkun
info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is
S: 897 2225
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Tekjur ríkissjóðs hafa verið að
aukast mun meira á árinu en áætl-
anir gerðu ráð fyrir. Bæði kemur
þetta fram í upplýsingum fjármála-
ráðuneytisins um greiðsluafkomu
ríkissjóðs fyrstu níu mánuði ársins
og einnig í umfjöllun fjárlaganefnd-
ar um fjáraukalagafrumvarpið fyrir
árið 2012.
Innheimtar tekjur ríkissjóðs á
fyrstu níu mánuðum ársins jukust
um 12,2% á milli ára og námu alls
363,6 milljörðum króna. Í tekjuáætl-
un fjárlaga var reiknað með tekjum
upp á 343,2 milljarða. Innheimtan er
því rúmlega 20 milljörðum meiri,
eða 5,9% yfir áætlun. Eru nær allir
skattar að skila ríkissjóði auknum
tekjum, ef fjármagnstekjuskattur er
undanskilinn og vörugjöld af bens-
íni. Á fyrstu níu mánuðunum er fjár-
magnstekjuskattur þannig að skila
sex milljörðum minni tekjum en eft-
ir sama tímabil í fyrra.
Frávik með fyrirvara
Aukning á völdum tekjuliðum sést
nánar á meðfylgjandi mynd en til
viðbótar má nefna að skatttekjur og
tryggingagjöld jukust samanlagt
um 33 milljarða, eða um 11% milli
ára. Þá jukust vörugjöld af ökutækj-
um um 58%, sem er aðallega vegna
innflutnings á bílaleigubílum.
Í tilkynningu fjármálaráðuneytis-
ins um greiðsluafkomuna er tekið
fram að fráviki á tekjuáætlun beri
að taka með fyrirvara, þar sem arð-
greiðslur hafi innheimst fyrr en
reiknað var með. Einnig hefur inn-
heimst nokkuð af óreglulegum
tekjum sem ekki var gert ráð fyrir.
Sé leiðrétt fyrir þessum atriðum eru
innheimtar tekjur ríkisins engu að
síður 4,1% yfir áætlun, eða upp á
354,2 milljarða króna á fyrstu níu
mánuðum ársins.
Á dagskrá þingsins í dag
Fjárlaganefnd Alþingis hefur af-
greitt frá sér fjáraukalögin 2012 og
er stefnt að framhaldi 2. umræðu
um frumvarpið með atkvæða-
greiðslu á þingfundi í dag. Sé borið
saman við fjárlög 2012 aukast heild-
artekjur ríkissjóðs í ár um 6,3 millj-
arða, í 529 milljarða, en heildargjöld
aukast um 11,3 milljarða, fara í 555
milljarða. Eru breytingartillögur
fjárlaganefndar þá teknar með í
reikninginn en þegar fjáraukalaga-
frumvarið var lagt fram var reiknað
með viðbótartekjum upp á 10,6
milljarða og viðbótargjöldum upp á
12,5 milljarða.
Í áliti 1. minnihluta nefndarinnar,
sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
skiluðu af sér, þau Kristján Þór Júl-
íusson, Ásbjörn Óttarsson og Ragn-
heiður Ríkharðsdóttir, er bent á að í
tekjuáætlun fjárlaga fyrir 2012 hafi
verið gert ráð fyrir nýrri tekjuöflun
upp á 20,7 milljarða. Veiðigjöld muni
skila 3 milljörðum hærri tekjum en
búist var við og arðgreiðslur í rík-
issjóð verði 3,3 milljörðum hærri.
Arður frá Landsvirkjun á að skila
1,8 milljörðum og 3,5 milljörðum frá
Seðlabankanum.Einnig er bent á að
eignasölu upp á 7,6 milljarða hafi
verið frestað, að undanskildum 716
milljónum af sölu ótilgreindra eign-
arhluta.
Höskuldur Þór Þórhallsson,
Framsóknarflokki, skilaði séráliti í
minnihluta fjárlaganefndar.
Tekjur ríkisins aukast um 12%
Ríkið innheimti 363,6 milljarða í tekjur fyrstu níu mánuði ársins Tekjuáætlun gerði ráð fyrir 343
milljörðum Fjáraukalög afgreidd úr nefnd Veiðigjöld og arðgreiðslur skila meiru en búist var við
Tekjuaukning ríkissjóðs
Dæmi um nokkra tekjuliði, janúar til september 2011 og 2012 (í milljónum króna)
Tekjuskattur einstaklinga
2011 2012 2011 2012 2011 2012
2011 20122011 20122011 2012
Tekjuskattur lögaðila Eignarskattar
Virðisaukaskattur Vörugjöld af ökutækjum Tekjur alls
66.107
72.137
Breyting: +9,1% Breyting: +105,4% Breyting: +66,9%
Breyting: +11,4% Breyting: +58,4% Breyting: +12,2%
11.113
22.825
5.542
9.249
83.498
93.046
1.995
3.160
324.041
363.604
Samkvæmt nefndaráliti meiri-
hluta fjárlaganefndar um fjár-
aukalögin fyrir árið 2012 eru
lagðar til 577 milljónir króna til
greiðslu skaðabóta til verktaka-
fyrirtækjanna ÍAV og NCC vegna
Héðinsfjarðarganga. Hæstirétt-
ur dæmdi ríkið til að greiða fyr-
irtækjunum bætur vegna missis
hagnaðar þegar Vegagerðin
hafnaði á sínum tíma öllum til-
boðum í gerð ganganna. Hér-
aðsdómur hafnaði bótakröfum
fyrirtækjanna en þau áfrýjuðu
til Hæstaréttar, sem sneri
dómnum við í haust. Var ríkið
dæmt til að greiða 259 milljónir
króna í skaðabætur, auk drátt-
arvaxta frá október 2007 til
greiðsludags. Samkvæmt áliti
nefndarmeirihlutans er reiknað
með 318 milljónum króna í
dráttarvexti, eða alls 577 millj-
ónum króna í bætur.
577 milljónir
í skaðabætur
HÉÐINSFJARÐARGÖNG
Héðinsfjarðargöng vígð árið 2010.
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Lögfræðingar tékkneska flug-
félagsins Holidays Czech Airlines
eru að skoða mál er varðar skuld
sem félagið
greiddi til Isavia
með tilliti til
hugsanlegra
næstu lagalegu
skrefa, að sögn
Hönu Hejskovu,
upplýsingafull-
trúa Holidays
Czech Airlines.
Hejskova vildi
þó ekki svara
frekari fyrirspurnum Morgun-
blaðsins um málið.
Flugvélin sem um ræðir var í
þjónustu Iceland Express en það
flugfélag hefur nú hætt rekstri eft-
ir að Wow air keypti reksturinn í
október síðastliðnum.
Umrædd skuld Holidays Czech
Airlines við Isavia, sem olli því að
farþegavél á vegum félagsins var
kyrrsett í níu daga, var vegna allra
þeirra gjalda sem flugrekendum
ber að greiða á Keflavíkurflugvelli,
þetta staðfestir Friðþór Eydal,
upplýsingafulltrúi Isavia. „Þetta
voru öll gjöldin sem flugvellinum
tilheyra,“ segir Friðþór. Áður hafði
verið greint frá því að skuldin væri
vegna ógreiddra lendingargjalda.
Ýmiss konar gjöld
Samkvæmt upplýsingum frá
Keflavíkurflugvelli þurfa flug-
rekstraraðilar að greiða ýmis gjöld
á flugvellinum en um getur verið
að ræða háar upphæðir. Þannig er
lendingargjald 8,15 bandaríkjadoll-
arar fyrir sérhver þúsund kílóa af
hámarksflugtaksmassa flugvélar-
innar. Stæðisgjald er ekkert fyrir
fyrstu sex klukkutundirnar en fyr-
ir næstu 24 klukkustundir þar á
eftir samsvarar það 0,50 banda-
ríkjadollurum fyrir hver byrjuð
þúsund kíló af þunga flugvélarinn-
ar.
Þá er flugverndargjald greitt
fyrir hvern flugfarþega með loft-
fari frá Keflavíkurflugvelli en und-
anþegin gjaldskyldu eru börn und-
ir tveggja ára aldri, skráðar
áhafnir loftfara og þeir farþegar
sem hafa viðkomu hér á landi sam-
kvæmt farseðli á milli annarra
landa og Norður-Ameríku. Gjaldið
nemur 1.440 krónum fyrir hvern
fullorðinn farþega, 660 krónum
fyrir börn á aldrinum tveggja til
tólf ára.
Einnig þurfa flugrekstraraðilar
að greiða farþegagjöld en þau
greiðast fyrir hvern farþega með
loftfari frá Keflavíkurflugvelli.
Gjaldið er 1.200 krónur fyrir hvern
fullorðinn farþega, 675 krónur fyr-
ir börn á aldrinum tveggja til tólf
ára og 40 krónur vegna þjónustu
við fatlaða og hreyfihamlaða. Loks
greiðist innritunargjald, 600 krón-
ur, fyrir hvern farþega með loftfari
frá Keflavíkurflugvelli. Sömu und-
anþágur frá gjaldskyldu og gilda
um flugverndargjaldið gilda varð-
andi farþegagjöld og innritunar-
gjald.
Holidays Czech Airlines
skoðar næstu skref
Skuld félagsins við Isavia var vegna alls konar gjalda
Ljósmynd/Steve Tarbuck
Iceland Express Flugvél Holidays Czech Airlines var í þjónustu Iceland Ex-
press en hún var kyrrsett í níu daga vegna skuldarinnar við Isavia.
Hana Hejskova
Mörður Árnason, framsögumaður
tillögu um vernd og orkunýtingu
landsvæða, þ.e. rammaáætlunar,
segist vonast til þess að nefndarálit
um málið verði lagt fram í umhverf-
is- og samgöngunefnd á morgun og
að það verði samþykkt síðar í vik-
unni. Mörður segist telja að meiri-
hluti sé fyrir því í nefndinni að til-
lagan verði samþykkt óbreytt.
Til stóð að ræða rammaáætlun-
ina á fundi nefndarinnar í gær-
morgun en fallið var frá því þar
sem gestir, sem höfðu verið boðaðir
á fundinn, komust ekki. Fundinum
var síðar frestað vegna forfalla
nefndarmanna.
Þá er beðið eftir umsögn atvinnu-
veganefndar en hún mun funda
með gestum í dag og á morgun;
fulltrúum úr umhverfisráðuneyt-
inu, Sveini Runólfssyni land-
græðslustjóra og Ólafi Arnalds
jarðvegsfræðingi og prófessor við
Landbúnaðarháskólann.
Kristján L. Möller, formaður
nefndarinnar, segir að málið verði
síðan aftur tekið til umræðu á fundi
nefndarinnar á fimmtudag og þá til
að leggja lokahönd á umsögnina.
Fjöldi funda um
rammaáætlunina