Morgunblaðið - 13.11.2012, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2012
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Þrátt fyrir að ljóst sé að mörg sjáv-
arútvegsfyrirtæki eru skuldsett fram
úr hófi, en skuldir greinarinnar juk-
ust um 250% á árunum 2002 til 2008,
þá er ekki hægt að skipa öllum fyr-
irtækjum í sama flokk í þeim efnum.
Þegar horft er til ársins 2009 voru
skuldir átta stærstu sjávarútvegsfyr-
irtækjanna, sem eru handhafar um
50% fiskveiðikvótans, aðeins um
þriðjungur heildarskulda atvinnu-
greinarinnar.
Á þetta er bent í nýrri skýrslu
greiningardeildar Arion banka um ís-
lenskan sjávarútveg, en þar kemur
ennfremur fram að ef tekið er mið af
skuldsetningu á hvert þorskígildis-
tonn þá samsvari skuldir minni út-
gerðarfyrirtækja tvöfaldri skuldsetn-
ingu þeirra stærstu. Á árunum 2007
til 2008 jukust skuldir sjávarútvegs-
ins um ríflega 70%, einkum vegna
gengisfalls krónunnar, en skuldir átta
stærstu fyrirtækjanna hins vegar um
35%. „Meðalstórar og minni útgerðir
hafa því hlutfallslega tekið á sig tals-
vert meira högg í kjölfar hrunsins,“
segir í skýrslu Arion.
Þessi hlutfallslega mikla skuldsetn-
ing minni sjávarútvegsfyrirtækjanna
hefur mikil áhrif á framlag þeirra til
fjármunamyndunar, þar sem lítið
svigrúm verður til fjárfestinga eftir
að tekið hefur verið tillit til afborgana
af þungri skuldabyrði. Á síðustu árum
hafa gögn bent til þess að stærri út-
gerðir, sem standa fjárhagslega betur
en önnur fyrirtæki, hafi staðið undir
stórum hluta af fjárfestingum grein-
arinnar.
Fjárfesting í hlutfalli við EBITDA
– hagnaður fyrir afskriftir, skatta og
fjármagnsliði – hefur þó minnkað
verulega hjá sjávarútvegsfyrirtækj-
um á síðustu árum; frá því að vera yfir
60% árið 2004 í ríflega 10% á árinu
2009. Aukin hagræðing og bati í
rekstrarafkomu fyrirtækjanna skýrir
þessa þróun að hluta til. Hins vegar,
að því er fram kemur í skýrslu Arion
banka, gæti önnur skýring á lítilli
fjárfestingu innan geirans „verið sú
óvissa sem hefur ríkt um framtíð fisk-
veiðistjórnunar í landinu“.
Í skýrslunni er einnig vakin athygli
á því að skuldsetning íslenskra sjáv-
arútvegsfyrirtækja sé nú orðin sú hin
sama og í Noregi. Við upphaf síðasta
áratugar var skuldsetning í norskum
sjávarútvegi umtalsvert hærri, en
samfara lánsfjárbólunni 2004 til 2008,
þá tóku skuldir í íslenskum sjávarút-
vegi fram úr þeim norska. Að und-
anförnu hefur þó orðið breyting á í
þessum efnum og á árinu 2009 voru
skuldir í íslenskum sjávarútvegi, sem
hlutfall af EBITDA, komnar á par við
skuldir í norskum útgerðarfyrirtækj-
um.
Þrefalt meiri arðsemi en í ESB
Samhliða skuldahjöðnun í íslensk-
um sjávarútvegi hefur arðsemi grein-
arinnar, mælt sem EBITDA af heild-
artekjum, aukist mikið á umliðnum
árum. „Arðsemi íslensks sjávarút-
vegs,“ segir í skýrslu Arion banka,
„hefur verið svipuð og í Noregi og oft
á tíðum meiri enda þótt norskur sjáv-
arútvegur hafi þar til nýlega þegið
miklar greiðslur frá norska ríkinu.“
Jafnframt er bent á í skýrslunni að
þegar búið er að draga frá styrki ESB
til evrópska fiskiskipaflotans, sem
nema að meðaltali um 50% af afla-
verðmæti, þá er arðsemin í íslenskum
sjávarútvegi miklu hærri en í ESB –
og til dæmis þrefalt meiri á árinu
2008.
Ekki hægt að skipa öllum
fyrirtækjum í sama flokk
Minni sjávarútvegsfyrirtæki með meiri skuldir Skuldsetning á pari við Noreg
Meiri arðsemi á Íslandi
EBITDA og ríkisstyrkir til sjávarútvegs sem prósentuhlutfall af tekjum
Heimild: Greiningardeild Arion banka
35%
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
35%
30%
25%
20%
15%
19
92
19
93
19
94
19
95
19
96
19
97
19
98
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
Styrkur Noregur (vinstri ás)
EBITDANoregur (hægri ás)
EBITDA Ísland (hægri ás)
Minni skuldir, meiri
arðsemi í sjávarútvegi
» Skuldsetning íslenskra
sjávarútvegsfyrirtækja hefur
minnkað síðustu ár. Hún er
þó hlutfallslega þyngst hjá
minni og meðalstórum fyr-
irtækjum.
» Árið 2009 voru skuldir í
íslenskum sjávarútvegi á pari
við það sem gerist í Noregi,
en arðsemin var meiri hér-
lendis.
Flugfélagið SAS kynnti í gærmorg-
un viðamiklar sparnaðaraðgerðir
upp á 2,6 milljarða danskra króna
og fækkun starfsmanna. Fram kom
í fréttum í gær að ESB hefur heim-
ilað ríkisstjórnum Danmerkur, Sví-
þjóðar og Noregs að veita félaginu
90 milljarða króna ríkisábyrgð, en
ríkissjóðir þessara landa eiga 50% í
félaginu.
Í aðgerðunum felst einnig að
dótturfélagið SAS Ground Hand-
ling, sem er þriðja stærsta flugþjón-
ustufyrirtæki Evrópu, verði útvist-
að, en hjá þessu dótturfélagi starfar
um einn þriðji allra starfsmanna
SAS. Þá hyggst SAS selja norska
innanlandsflugfélagið Widerøe, auk
ýmissa eigna en búist er við því að
sala hlutabréfa muni skila SAS
þremur milljörðum danskra króna.
Miklar uppsagnir eru fyrirhugað-
ar, en í þeim felast m.a. uppsagnir á
800 starfsmönnum sem starfa í höf-
uðstöðvum fyrirtækisins. Þær verða
nú fluttar á einn stað, til Stokk-
hólms, en áður voru þær í Dan-
mörku, Svíþjóð og Noregi. Að auki á
að fækka stjórnendum.
Þeir sem halda störfum sínum
munu þurfa að sæta launalækkun-
um og réttindi til eftirlauna verða
skert.
Starfsfólk SAS fær viku til að
ákveða hvort það gengur að skil-
málum stjórnenda fyrirtækisins um
launalækkanir. Lækkunin nemur
um 15%. Stéttarfélag SAS-starfs-
manna í Noregi tilkynnti í gær-
morgun að það samþykkti ekki
þessar lækkanir og danskir starfs-
menn SAS eru að skoða málið, sam-
kvæmt frétt Politiken.dk í gær.
„Þetta er lokaútkallið, ef SAS á
að lifa áfram. Við höfum fengið
þetta lokatækifæri til að byrja upp á
nýtt og koma þessum breytingum í
gegn,“ er m.a. haft eftir Rickard
Gustafson, forstjóra SAS, í yfirlýs-
ingu.
Uppsagnir og sparnaður hjá SAS
Viðamiklar aðgerðir og eignasala til
þess að ná tökum á rekstrinum hjá SAS
AFP
Forstjórinn Rickard Gustafson seg-
ir að þetta sé lokaútkallið.
● Rannsóknasetur verslunarinnar
áætlar að jólaverslunin aukist um 7%
frá síðasta ári. Leiðrétt fyrir verðhækk-
unum má ætla að hækkunin nemi um
2,5% að raunvirði.
Áætlað er að heildarvelta í smá-
söluverslun í nóvember og desember
verði tæplega 67 milljarðar króna án
virðisaukaskatts.
Ætla má að hver Íslendingur verji að
meðaltali um 43.000 kr. til innkaupa
sem rekja má til árstímans, samkvæmt
tilkynningu frá Rannsóknasetrinu.
Áætlar að jólaverslun
aukist um 7% í ár
● Eftirspurn eftir
olíu mun aukast
næstu tvo áratugi
en það skýrist
einkum af eftir-
spurn frá þróun-
arlöndunum og
Bandaríkjunum,
samkvæmt nýrri
skýrslu Alþjóða-
orkumálastofnunarinnar (International
Energy Agency).
Telur stofnunin að eftirspurnin eigi
eftir að aukast um 14% frá 2012 til árs-
ins 2035 og ná 99,7 milljónum tunna á
dag. Eru þetta 700 þúsund fleiri tunnur
heldur en spá IEA hljóðaði upp á.
Verð á hráolíu mun halda áfram að
hækka og fara í 125 dollara tunnan árið
2035 en er 107 dalir í ár að meðaltali.
Aukin olíueftirspurn
● Framtakssjóður Íslands hefur selt
7% eignarhlut sinn í Icelandair Group,
en fyrir átti félagið 19,01%. Þetta kem-
ur fram í flöggun til Kauphallarinnar.
Eftir viðskiptin er Lífeyrissjóður versl-
unarmanna stærsti einstaki hluthafinn
með 14,36%. Í júní 2010 keypti sjóð-
urinn 30% hlut í félaginu á genginu 2,5
en hefur síðan þá losað sig við rúmlega
10%. Ætla má að Framtakssjóðurinn
innleyst rúmlega 200% hagnað á þess-
ari fjárfestingu síðustu 2 ár
Selur 7% í Icelandair
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
,10.23
+,-./-
,+.-4-
,,.2/-
+4.1+-
+2/./+
+.5+3/
+45.++
+52.22
+,-.-/
,10.-3
+,3.45
,+.45,
,,.0,0
+4.130
+2/.-4
+.5,,,
+45.54
+52.34
,,3.+13/
+,4.+5
,1/.23
+,4.20
,,.1,5
,,.04
+4.+2
+25.,3
+.5,54
+43.,3
+50.,/
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Sérsmíðaðar innréttingar
Hjá GKS færð þú faglega ráðgjöf er varðar
sérsmíði á innréttingum.
Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og gæðasmíði
alla leið inn á þitt heimili.