Morgunblaðið - 13.11.2012, Page 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2012
Bréf til blaðsins
„Lög um breytingu á lögum um
málefni aldraðra, lögum um heil-
brigðisþjónustu, lögum um al-
mannatryggingar og lögum um
kosningar til Alþingis (sameining
vistunarmats-
nefnda).“ Breyt-
ingar þessar
voru sam-
þykktar á Al-
þingi 20. mars
2012 og öðluðust
gildi 1. júní
2012.
Þar með hurfu
úr lögum og
reglugerðum
orðin vistun og
vist. Dagvist verður dagdvöl, vist-
maður verður heimilismaður, eldra
fólk flytur og býr á hjúkr-
unarheimilum. Vistunarmat verður
færni- og heilsumat sem lýsir til-
gangi matsins á skiljanlegan og
jákvæðan hátt.
Með þessum breytingum á orða-
vali var tekið tillit til ábendinga
frá Landssambandi eldri borgara
við breytingu laganna. Óskilj-
anlegt er að nota annað orðalag
þegar fjallað er um aldraða. Engir
aðrir eru t.d. vistaðir á heimilum
sínum en hjúkrunarheimili er
heimili þeirra sem þar búa.
Orð eru til alls fyrst. Þau hafa
áhrif á skoðun, skilning og viðhorf
okkar til aldurshópa, málefna og
hluta. Þau skapa jákvæða eða nei-
kvæða sýn á umhverfi okkar sem
mögulega fylgir okkur allt lífið.
Þegar við eldumst þá viljum við
halda reisn okkar og að talað sé
um okkur og við okkur eins og áð-
ur. Við breytumst ekki í sér þjóð-
flokk þó við verðum lasburða og
gömul.
Þrátt fyrir að ný hugmynda-
fræði og breytt hugarfar sé að
ryðja sér til rúms innan öldr-
unarmála tekur tíma að breyta
orð- og hugtakanotkun sem fast
er orðið í málinu.
Lagabreytingar eru ekki nóg ef
ekki er tekið tillit til þeirra. Ég
skora því á alla landsmenn, sér-
staklega heilbrigðisstarfsmenn og
fjölmiðlafólk, sem eru í sérlega
góðri aðstöðu til að hafa áhrif á
málfar, að tileinka sér þessi nýju
hugtök og orðalag.
Hrósa skal því sem vel er gert
og þakka skal því fyrir góðar und-
irtektir og skilning, bæði hjá vel-
ferðarráðherra og velferðarnefnd
Alþingis í sambandi við afgreiðslu
þessara málfarsbreytinga.
RAGNHEIÐUR
STEPHENSEN,
formaður FaMos, Félags aldr-
aðra í Mosfellsbæ og nágrenni og
situr í stjórn LEB.
Landsmenn, takið eftir
Frá Ragnheiði Stephensen
Ragnheiður
Stephensen
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C
Opið alla virka daga 12-18 og laugardaga frá 11-16
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
Tískuvöru-
verslun fyrir
konur á
öllum aldri