Morgunblaðið - 04.12.2012, Síða 10
10 DAGLEGT LÍFHreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012
Signý Gunnarsdóttir
signy@mbl.is
É
g er bara dæmigerð
manneskja sem er
kannski undir nokkuð
miklu álagi eins og við
erum mjög mörg,“ seg-
ir Ingibjörg Birna Ólafsdóttir sem
stofnaði góðgerðarfélagið Dýrmæt
heilsa – dýrmæt börn á árinu. Haust-
ið 2011 var Ingibjörg undir töluverðu
álagi og eina nóttina var hún seint á
ferðinni og hafði verið með verk fyrir
brjóstinu í nokkra klukkutíma sem
ágerðist síðan og leiddi út í handlegg
og í kjálkann auk örs hjartsláttar.
„Ég vissi að þetta voru einkenni sem
gætu bent til hjartaáfalls. Ég fann að
ég var að missa meðvitund í bílnum.“
Ingibjörg hringdi í 112 og gaf upp
einkennin. Hún komst heim þangað
sem sjúkraflutningamennirnir komu
og tóku blóðþrýstinginn og settu á
hana hjartalínurit. „Þá sást að blóð-
þrýstingurinn var vel yfir 220, þannig
að það var greinilegt að það var eitt-
hvað athugavert en hjartalínuritið
virtist hins vegar vera í lagi.“
Var undir of miklu álagi
Ingibjörg var flutt á spítalann
um nóttina þar sem hún fékk
sprengitöflu og læknirinn tók hana
tali og bað hana vinsamlegast um að
reyna að draga úr álaginu. Líkaminn
væri að kvarta undan álagi og nú
þyrfti hún að forgangsraða rétt.
„Ég jafnaði mig smám saman á
þessu en svo 18. desember skaut dag-
setningunni 12.12.12 upp í höfuðið á
mér og þessi hugmynd kom til mín.
Ég sá fyrir mér að ganga 1200 kíló-
metra og synda 120 kílómetra. Ég
Hreyfir sig
fyrir veik börn
Ingibjörg Birna Ólafsdóttir setti sér það markmið að ljúka við 1200 km göngu og
120 km sund á árinu 2012 og að safna peningum fyrir Barnaspítala Hringsins.
Núna, 12.12.12, mun hún svo afhenda söfnunarupphæðina.
Sund Ingibjörg segir aldrei ófært í sundlaugarnar en á þessari mynd hefur hún
nýlokið við að synda síðasta kílómetrann af þeim 120 sem hún synti á árinu.
Morgunblaðið/Kristinn
Göngugarpur Af þeim 1.200 km sem Ingibjörg gekk á árinu skilaði hún
mörgum þeirra af sér í Kópavogsdalnum.
Á meðan einhverjir láta snjókomu og
fannfergi norðan heiða trufla sig eru
fjöldamargir sem fagna þessari
björtu gjöf veðurguðanna. Nú er til-
valið að gramsa í geymslunni og
finna til skíðin, brettin og skóna og
gera fjölskylduna klára í að halda til
fjalla.
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli var opn-
að fyrir 10 dögum og á heimasíðu
svæðisins, hlidarfjall.is, má nálgast
allar upplýsingar um þjónustutíma,
veður, rútuferðir og skíðaskóla. Þeir
sem hræðast snjófok og lélegt
skyggni geta skoðað vefmyndavél-
arnar á heimasíðunni áður en bíllinn
er hlaðinn og nestið smurt. Á heima-
síðunni má einnig finna kort sem út-
listar allar lyftur, skíðaleiðir og
nokkrar gönguskíðabrautir. Enginn
þarf því að fara óundirbúinn í brekk-
urnar. Á skíðum skemmti ég mér –
trallallala.
Vefsíðan www.hlidarfjall.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hlíðarfjall Um 600 manns renndu sér á fyrsta skíðadegi í Hlíðarfjalli í ár.
Þegar jörð huldi snjór
Nú er hægt að forskrá sig bæði í
Kaldárhlaupið og Gamlárshlaup ÍR á
www.hlaup.is. Forskráningu lýkur í
hið fyrrnefnda laugardagskvöldið 15.
desember kl. 22:00 en hið síð-
arnefnda sunnudagskvöldið 30. des-
ember kl. 24:00. Forskráning er til
þæginda fyrir hlaupara sem þá þurfa
eingöngu að fá afhent númer þegar
þeir mæta í hlaup. Þess ber að geta
að ef hlaupari forfallast verður að
láta vita um slíkt á netfangið hlaup-
@hlaup.is í síðasta lagi áður en for-
skráningu lýkur til að eiga rétt á end-
urgreiðslu (nema aðrar reglur gildi
fyrir viðkomandi hlaup).
Endilega…
…forskráið
ykkur í hlaup
Gamlárshlaup Sveinki sprettir úr spori.
Mikil þörf er á að auka við daglega
hreyfingu Breta og hvetja þá til að
ganga eða hjóla styttri vegalengdir
frekar en að nota bílinn. Í grein á vef-
síðu breska dagblaðsins The Guardi-
an kemur fram að stjórnvöld þurfi að
hvetja til þess innan vinnustaða og
skóla að fólk hreyfi sig meira og
stuðningur verði veittur til einhvers
konar aðgerða. Í nýlegri rannsókn
sem gerð var innan heilbrigðisgeir-
ans kemur fram að nærri ? breskra
karlmanna og ¾ kvenna stundi ekki
nægilega hreyfingu til að viðhalda
hreysti.
Í dag gengur eða hjólar hver Breti
að meðaltali tæplega 129 km minna á
ári en fyrir áratug. Í dag hjóla aðeins
2% Breta reglulega á milli staða mið-
að við 26% Hollendinga og 19%
Dana. Segja aðstandendur rannsókn-
arinnar að átakinu sem hefja þurfi nú
í Bretlandi megi líkja við 50 ára bar-
áttu við að draga úr reykingum fólks.
Hreyfingarleysi Breta
Rannsókn sýnir að stjórnvöld
þurfa að grípa til aðgerða
London Ætli ferðamenn verði orðnir þeir einu sem nenna að ganga um borgina?
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
TAKTU ÞÁTT Í
JÓLARÚLLULEIK PAPCO!
Með því að kaupaWC pappír og eldhúsrúllur frá Papco fyrir jólin
áttu möguleika á að vinna glæsilegan vinning í jólarúlluleiknum.
Fjöldi frábærra vinninga, snjóbretti, bindingar og skór frá
Mohawks, úlpur frá Cintamani, Hamax-sleði, árskort í Hlíðarfjall
og margt, margt fleira!
WWW.PAPCO.IS
STYRKJUM
GOTT MÁLEF
NI!
EIN RÚLLA
AF HVERRI
SELDRI PAK
KNINGU
RENNUR TI
L MÆÐRA-
STYRKSNEF
NDAR
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA