Morgunblaðið - 18.12.2012, Side 1

Morgunblaðið - 18.12.2012, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 8. D E S E M B E R 2 0 1 2  Stofnað 1913  297. tölublað  100. árgangur  DRAMATÍK, ENDURFÆÐING OG INNILEIKI MERCEDES BENZ A-CLASS SIGURVEGARI SKÍÐAGANGA ER SKEMMTILEG FJÖL- SKYLDUÍÞRÓTT BÍLAR ULLUR HELDUR NÁMSKEIÐ 10NÝJAR ÍSLENSKAR PLÖTUR 40  Kynnisferðir íhuga alvarlega að kæra útboð Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) á akstri milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og Reykjavíkur. Fyrirtækið skoðar að bera málið undir Samkeppniseftir- litið og íhugar að kæra útboðið í heild til kærunefndar útboðsmála. Kynnisferðir hafa verið með flug- rútuna frá 1976 og með sérleyfið í mörg ár. Allrahanda hafa einnig verið með þjónustu á leiðinni um tíma og veitt samkeppni, í trássi við vilja SSS. Í útboði SSS er gert ráð fyrir að einum verktaka verði falið að annast aksturinn og ekki víst að þessi fyrir- tæki hreppi hnossið. Þá er gert ráð fyrir að hluti fargjaldatekna, að lág- marki 35%, verði notaður til að efla almenningssamgöngur á svæðinu. „Við höfum fjárfest mikið í vöru- merki, aðstöðu, bílum, söluleiðum og viðskiptasamböndum til þess að komast á þann stað sem við erum á nú. Við sjáum ekki ástæðu til að bjóða út almenningssamgöngur þeg- ar samkeppni virkar á leiðinni. Hver er þörfin?“ segir Kristján Daníels- son, framkvæmdastjóri Kynnis- ferða. Fyrirtækið hefur lýst því yfir að það muni aka áfram á leiðinni, hver sem niðurstaða útboðs verður. Gunnar Þórarinsson, formaður Sambands sveitarfélaga á Suður- nesjum, segir að fyrirtækin muni geta keppt um að fá samninginn. Í því felist samkeppnin. »18 Munu aka áfram þótt aksturinn til flugstöðvarinnar hafi verið boðinn út Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Grundvallaratriðið í þessu er að handhafar aflaheimilda eiga stjórnarskrárvarinn rétt til aflaheimilda sinna. Það er óumdeilt enda kemur fram í athugasemdum við frumvarpið að ekki sé hróflað við þeim rétti sem til staðar er. Það breytir því ekki að ákvæðið sem slíkt er mjög gagnrýn- isvert,“ segir Friðrik J. Arn- grímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, um 34. grein stjórnlagafrum- varpsins um sam- eiginlega eign þjóðarinnar á náttúruauðlindum. Fengu álitsgerð lögfræðistofu Lögmannsstofan Lex vann álitsgerð fyrir LÍÚ vegna stjórnlagafrumvarpsins og er ein niðurstaðan sú að samþykkt frumvarpsins myndi skapa algera réttaróvissu um stöðu réttinda hjá handhöfum aflaheimilda. Þá er það mat Arnórs Snæbjörnssonar, lögfræðings hjá atvinnuráðuneytinu, að til- laga stjórnlagaráðs um að fella brott 2. máls- grein 72. greinar stjórnarskrárinnar sé rök- studd með skýringum sem séu „reistar á hæpnum eða villandi forsendum“. En þar er m.a. kveðið á um heimild löggjafans til að takmarka rétt erlendra aðila til að eiga fast- eignir á Íslandi. MÁkvæði stjórnlagaráðs »17 Skapar óvissu í greininni  „Ákvæðið sem slíkt er mjög gagnrýnisvert“ „Sameiginleg eign þjóðar“ » Í 34. grein stjórn- lagafrumvarpsins segir að auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki séu í einkaeigu skuli vera sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar. dagar til jóla 6 Skyrgámur kemur í kvöld www.jolamjolk.is „Við erum ekki tilbúnir að lýsa því yfir að við munum framlengja samninginn eins og málin líta út núna,“ sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, eftir að hann kom af fundi í gær þar sem fulltrúar SA og ASÍ tilgreindu ólík sjónarmið sín. Samtök atvinnulífsins munu ekki hafa frumkvæði að því að segja upp kjarasamningum, að sögn Vilmundar Jósefssonar, for- manns SA. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir að þó að meginmarkmið um kaupmátt- araukningu hafi náðst sé ábyrgð stjórnvalda mikil þegar kemur að minni hagvexti en áætlaður hafði verið. »4 Morgunblaðið/Árni Sæberg Fyrsti fundurinn SA og ASÍ komu saman á fundi í gær og ræddu kjaramál. ASÍ er ekki tilbúið að framlengja samninga Feðgarnir Skúli Skúlason og Guðmundur Margeir frá Hallkelsstaðahlíð nældu sér í síld sem lá dauð í fjörunni í Kolgrafafirði í gær. Nokkuð hefur verið um að bændur hafi náð sér í síld í fjörunni og hér má sjá feðg- ana bera síldina að hestakerru þar sem síldin var söltuð jafnharðan. Feðgarnir segjast ætla að nota síldina í fóður fyrir kindurnar á bæn- um. Fulltrúar Hafrannsóknastofnunar funduðu í gær í sjávarútvegsráðuneytinu vegna máls- ins og munu sérfræðingar fara í dag að rann- saka aðstæður í firðinum. Í framhaldinu verður tekin ákvörðun um Nýta síldina til fóðurs  Bændur sóttu sér síld í Kolgrafafirði  Sérfræðingar skoða aðstæður í dag og taka á ákvörðun um hvort hreinsunar sé þörf  Enn líf í firðinum Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Fínt fóður Nóg var að gera í Kolgrafafirði í gær. Þessir feðgar settu síldina beint í söltun og hyggjast nota hana sem kindafóður. hvort og þá með hvaða hætti hreinsunarstarf mun fara fram. „Það er ekki auðvelt að tína fiskinn af botninum. Ef fiskurinn er þarna í gríðarlegu magni getur myndast grútur sem getur fest í fugli. Því gæti þurft að hreinsa þarna til að koma í veg fyrir mengun,“ segir Þorsteinn Sigurðsson sviðsstjóri nytja- stofnasviðs Hafrannsóknastofnunar. Fyrir viku mældust 250-270 þúsund tonn af síld í firðinum en að sögn Þorsteins náði hluti hennar að flýja kaldan sjóinn. „Við höf- um heyrt af því að það sé enn töluvert af síld þarna. Það kemur þó betur í ljós [í dag] þeg- ar við förum á staðinn.“ Ljósmynd/Erlendur Bogason Síld á botninum Erlendur Bogason kafari myndaði botn Kolgrafafjarðar í fyrradag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.