Morgunblaðið - 18.12.2012, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2012
Atli Vigfússon
Mikið vantar upp á að hægt sé að
anna eftirspurn eftir þingeyskum
jólatrjám þetta árið. Ástæðan er sú
að flest tré í Suður-Þingeyjarsýslu
eru á kafi í snjó og hvorki hægt að
höggva þau, né ná þeim úr snjónum.
Engin tré verða til sölu úr Vagla-
skógi nú fyrir jólin og að sögn Ólafs
Ingólfssonar, bónda í Hlíð í Þingeyj-
arsveit, sem starfar við umhirðu
trjáa í Fellsskógi og Fossselsskógi,
verður hann einungis með 40 tré til
sölu í stað u.þ.b. 300 trjáa á sl. ári.
Fólk á svæðinu þarf því að leita út
fyrir hérað, en hjálparsveitir sem
hafa haft tré af þessu svæði í sölu
munu t.d. á tré austan af landi úr
skógum þar sem fannfergi er minna.
Ólafur segir að tjón hafi orðið
mjög mikið á trjánum vegna bleyt-
ustórhríða og hundruð trjáa ef ekki
þúsundir séu brotin. Ekki verður
hægt að gera sér grein fyrir tjóninu
að fullu fyrr en snjóa leysir í vor.
Margir skógarbændur hafa því séð
áratuga vinnu sína verða að engu.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Ekki hægt að höggva jólatré vegna snjóa
Rauðgreni Ólafur Ingólfsson, bóndi í Hlíð, með nokkur rauðgrenitré sem
hann náði úr fönninni, en góður vöxtur hefur verið á trjám í Þingeyjarsýslu
undanfarið. Flest tré í Suður-Þingeyjarsýslu eru hinsvegar á kafi í snjó.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur
samþykkt að fella niður álagningu
sorpgjalda ársins og leggja ný gjöld á,
heldur lægri en þau fyrri.
Úrskurðar-
nefnd um um-
hverfis- og auð-
lindamál felldi
niður álagningu
sorphirðugjalds á
eiganda húss í
Borgarnesi.
Niðurstaðan
grundvallaðist á
því að samkvæmt
lögum um holl-
ustuhætti og
mengunarvarnir megi gjöld aldrei
vera hærri en sem nemur rökstudd-
um kostnaði við veitta þjónustu eða
framkvæmd eftirlits. Í lögum um
meðhöndlun úrgangs segir sömuleið-
is að innheimt gjald skuli aldrei vera
hærra en sem nemur þeim kostnaði
sem falli til í sveitarfélaginu við með-
höndlun úrgangs og tengda starf-
semi.
Sorphirðugjöldin voru hækkað um
5% frá fyrra ári og námu í heild um 60
milljónum kr. Úrskurðarnefndin taldi
að það væri umfram kostnað sveitar-
félagsins.
Gjöldin sem nú hafa verið lögð á
eru tæplega 7% lægri en þau sem lögð
voru á í byrjun árs og verða því held-
ur lægri en á árinu 2011. Húseigandi í
Borgarnesi sem greitt hefur 31 þús-
und kr. á í raun að greiða 28.900 krón-
ur og fær því um 2.100 króna inneign
á sorpgjaldareikning næsta árs.
Hvert heimili í dreifbýli þarf að
greiða 17.400 krónur og hvert frí-
stundahús 11.700 krónur. Þá verða
innheimtar 15.200 krónur fyrir hvert
aukasorpílát vegna söfnunar og förg-
unar. helgi@mbl.is
Sorpgjöld felld nið-
ur og lögð á að nýju
Páll S. Brynjarsson
sveitarstjóri
Borgarbyggð bregst við úrskurði
SVIÐSLJÓS
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Áfengissala hér á landi jókst veru-
lega á árunum fyrir hrun, þ.e. frá
2006-2008. Eftir samdrátt sem staðið
hefur yfir frá árinu 2009 er salan
hinsvegar að færast í svipað horf og
hún var fyrir þessi þensluár. Þetta er
á meðal þess sem fram kemur í um-
sögn Áfengis- og tóbaksverslunar
ríkisins (ÁTVR) um frumvarp til
laga um ráðstafanir í ríkisfjármál-
um, svokallaðan bandorm.
Miðað við upplýsingar sem finna
má í umsögninni voru tæplega 13,4
milljónir lítra af áfengi seldar hér á
landi árið 2001, fjórum árum seinna
var heildarsala á áfengi komin upp í
rúmlega 17,2 milljónir lítra en salan
náði hámarki árið 2008 þegar hún
nam tæplega 20,4 milljónum lítra.
Síðan þá hefur heildarsala ÁTVR á
áfengi dregist saman um tæplega
tvær milljónir lítra en á síðasta ári
seldi ÁTVR rúmlega 18,4 milljónir
lítra af áfengi. Sala á sterku áfengi
var mest árið 2008 en þá nam hún
tæplega 1,1 milljónum lítra. Strax
árið 2009 fór salan niður í 919 þús-
und lítra, árið þar á eftir nam hún
828 þúsund lítrum og í fyrra var
heildarsala sterks áfengis 798 þús-
und lítrar. Þá spáir ÁTVR því að
heildarsalan á sterku áfengi á þessu
ári muni nema 760 þúsund lítrum, en
það væri 4,92% samdráttur frá því
fyrra.
Sala á sterku áfengi dróst umtals-
vert meira saman við hrunið heldur
en sala á léttvíni/styrktu víni og bjór.
Þannig dróst salan á sterku áfengi
saman um 16,38% á milli áranna
2008 og 2009. Á sama tíma dróst sala
á léttvíni/styrktu víni um 3,30% og
sala á bjór einungis um 0,87%.
Lágt áfengisverð fyrir hrun
Ef skoðuð er verðþróun þriggja
áfengistegunda, St. Émelion-rauð-
víns, Egils Gull bjórs í 50cl dósum og
Stolichnaya vodka, þá sést að verð á
áfengi lækkaði talsvert á þensluár-
unum fyrir hrun. Frá hruni hefur
verðþróunin á öllum þrem tegund-
unum verið á uppleið ár frá ari ef frá
er talið St. Émelion-rauðvínið en
verðþróun þess fór eilítið niður á við
á milli áranna 2010 og 2011.
Þá bendir ÁTVR í umsögn sinni á
fyrri athugasemdir sínar um ókosti
flatra hækkana á áfengisgjaldi en að
öðru leyti gerir stofnunin ekki at-
hugasemdir við efni frumvarpsins.
Áfengissala dregst saman
Sala á áfengi jókst verulega á góðærisárunum Á sama tíma fór verðþróunin á
áfengi lækkandi ÁTVR spáir því að sölutölur fyrir þetta ár muni sýna samdrátt
Verðþróun þriggja áfengistegunda 1995-2011
120
110
100
90
80
70
60
Rauðvín (St.Émilion) Bjór (Egils Gull 50cl) Vodka (Stolichnaya)
19
95
19
96
19
97
19
98
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
Margmenni mætti til þess að heiðra Elísabetu Reykdal
þegar hún fagnaði 100 ára afmæli sínu í gær.
Í afmælið mætti meðal annarra Erling Sigurður Ein-
arsson, yngsti afkomandi Elísabetar. Hér er hann í
fangi pabba síns, Einars Sigurðssonar, en hann er son-
ur Sigrúnar Einarsdóttur sem er dóttir Elísabetar.
Morgunblaðið/Kristinn
Nú er öldin önnur
Magnús Stefánsson verður áfram
bæjarstjóri sveitarfélagsins Garðs
þótt meirihlutinn sem réð hann til
starfa sé fallinn. Þetta segir Einar
Jón Pálsson, nýkjörinn forseti bæj-
arstjórnar. Á bæjarstjórnarfundi
fyrr í mánuðinum var gengið frá
uppgjöri við Ásmund Friðriksson
sem fyrri meirihluti sagði upp í vor.
Bæjarstjórn kom saman til fund-
ar í gærkvöldi til að staðfesta
myndun nýs meirihluta D- og L-
lista. D-listinn hefur í raun hreinan
meirihluta á ný því í gær var Kol-
finnu S. Magnúsdóttur, sem kosin
var af D-lista en sagði sig úr meiri-
hlutanum og myndaði meirihluta
með N- og L-lista fyrr á árinu, veitt
lausn frá störfum í bæjarstjórn.
Hún óskaði sjálf eftir lausn, af per-
sónulegum ástæðum. Inn kemur
varamaður af D-lista. Að meirihlut-
anum stendur einnig fulltrúi L-
listans og hefur meirihlutinn því 5
fulltrúa af sjö. „Við ákváðum að
mynda öflugan meirihluta,“ segir
Einar Jón.
Magnús
áfram bæj-
arstjóri
Aukinn meirihluti
í bæjarstjórn Garðs
Hugljúfar gjafir
Kimmidoll á Íslandi | Ármúla 38 | Sími 588 5011
NATUSKI „Courageous”
My spirit is confident
and resolute