Morgunblaðið - 18.12.2012, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 18.12.2012, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2012 Þeir sem hafa áhuga á útivist og fjall- göngum ættu að kætast því hin vin- sæla æfingaáætlun „Toppaðu með 66°NORÐUR og Íslenskum fjallaleið- sögumönnum“ hefst um miðjan jan- úar. Verkefnið, sem er nú haldið í sjötta skipti, nær hámarki með ferð á Hvannadalshnjúk. Þátttakendur geta valið um tvær dagsetningar, 25. maí og 1. júní. Áætlun verkefnisins er í tveimur þáttum. Annars vegar eru sextán göngur, m.a. á Fimmvörðuháls, sem ætlað er að efla kunnáttu, líkam- legt form og reynslu þátttakenda áður en haldið er á hnjúkinn. Hins vegar eru fyrirlestrar og námskeið. Í fyrra náðu hátt í hundrað manns að standa á hæsta tindi Íslands eftir að hafa tekið þátt dagskránni. Hægt er að gefa gjafabéf í verkefnið sem gæti verið til- valin jólagjöf fyrir útivistarfólk. Stefnan tekin á Hnjúkinn Hátt í 100 manns náðu að standa á hæsta tindi Íslands Toppað Þátttakendur geta valið um tvær dagsetningar, 25. maí og 1. júní. Ljósmyndir/Guðmundur Hafsteinsson Skíðað Íslandsgangan fer fram á sex stöðum snemma á næsta ári, í Reykjavík verður Bláfjallagangan 2. febrúar. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is V ið höfum verið á göngu- skíðum undanfarnar þrjár vikur í Bláfjöllum og það lítur mjög vel út með snjóalög fyrir okk- ur,“ segir Þóroddur F. Þóroddsson en hann er formaður hjá skíðagöngu- félaginu Ulli. „Við stefnum að því að hafa námskeið fyrstu helgarnar í jan- úar, bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Skíðagöngunámskeið eru fyr- ir fólk á öllum aldri og við skiptum fólki í nokkra hópa eftir getu og reynslu. Námskeiðin verða í Bláfjöll- um og þar erum við með gönguskíði fyrir þá sem ekki eiga slíkar græjur.“ Þurfum ekki mikinn snjó „Félög, fjölskyldur og vinnu- staðir geta haft samband við okkur og við útbúið námskeið fyrir viðkomandi, en það þurfa að vera að lágmarki fimm manns á hverju námskeiði, og helst ekki fleiri en 25-30 manns. Hver leiðbeinandi getur ekki haft fleiri en tíu í einu og við viljum líka hafa gott rými og aðstæður til að sinna fólki í skálanum,“ segir Þóroddur og bætir við að fólk geti skráð sig á lista heima- síðu félagsins ullur.wordpress.com, ef það hefur áhuga á að koma á nám- skeið. Þá fær viðkomandi sendar upp- lýsingar þegar að námskeiði kemur, sem fer eftir veðri og snjóalögum. „Það þarf miklu minni snjó fyrir gönguskíði heldur en svigskíði.“ Unglingarnir eru fljótir að tileinka sér tæknina „Það er mjög misjafnt hversu fljótt fólk er að ná tökum á gönguskíð- unum. Grunnnámskeiðið stendur í rúman klukkutíma og fólk fær ótrú- lega mikið út úr því. Eftir það er um að gera að fólk fari á skíðin og prófi sig áfram. Við segjum stundum við fólk sem kemur á námskeið hjá okkur að ef það geti farið nokkrum sinnum á gönguskíðin á næstu tíu dögum eftir námskeið muni því fara fljótt fram. Mjög margir fá harðsperrur eftir fyrstu ferðina og þá er fínt að fara aft- ur um leið og fólk hefur náð þeim úr sér. Fólk er mjög misjafnt, með jafn- vægi og annað. En unglingar sem koma til okkar á námskeið eru skot- fljótir að tileinka sér þetta, hvort sem þeir hafa stundað svigskíði eða ekki.“ Krakkar geta byrjað þegar þau eru fimm ára Þóroddur segir að jafnt og þétt fjölgi hjá Ulli, nú séu skráðir félags- menn orðnir um hundrað og áttatíu, þar af um þrjátíu börn, sextán ára og yngri. Í vetur eru fimm ár frá því fé- lagið var stofnað og hann segir áhug- ann í samfélaginu alltaf að vaxa. „Gönguskíðaiðkun er mjög góð fjöl- skylduíþrótt, krakkar geta byrjað að fara á gönguskíði um fimm ára aldur, jafnvel yngri.“ Margir stunda skíða- göngu sér til dægrastyttingar en svo eru líka þeir sem keppa. „Innan félagsins eru nokkrir unglingar sem munu taka þátt í bikarmótum í vetur, 13-15 ára, og fullorðnir verða þar líka.“ Ullur býður upp á námskeið í janúar Jafnt og þétt fjölgar hjá skíðagöngufélaginu Ulli. Nú eru skráðir félagsmenn orðn- ir um hundrað og áttatíu, þar af um þrjátíu börn, sextán ára og yngri. Í vetur eru fimm ár frá því félagið var stofnað og áhuginn í samfélaginu alltaf að vaxa, enda er gönguskíðaiðkun mjög góð fjölskylduíþrótt, Á aðventunni í góðu veðri eða jafn- vel yfir jólahátíðina sjálfa er bæði frískandi og notalegt að fá sér göngutúr. Í höfuðborginni búa íbú- ar að því að geta sótt útivistar- svæði í næsta nágrenni við sig og þeirra á meðal má nefna Heiðmörk. En á vefsíðunni www. heidmork.is má finna gönguleiðakort af svæð- inu. Það er ekki vitlaust að skoða það áður en haldið er af stað en á vefsíðunni má líka nálgast nánari upplýsingar um svæðið og ýmsa jólalega viðburði sem þar fara fram á næstunni. Svo er bara að klæða sig vel og arka af stað með kakó- brúsann á bakinu. Vefsíðan www.heidmork.is Krútt Þessar kanínur virðast una sér mæta vel í Heiðmörk. Gönguleiðir á aðventunni Morgunblaðið/Ómar Í ár mun Trimmklúbbur Seltjarnarness halda kirkjuhlaup á annan í jólum, líkt og undanfarin ár. Lagt verður af stað frá Seltjarnarneskirkju kl. 10.00. Áður en hlaupið hefst flytur sr. Bjarni Þór Bjarnason stutta jólahugvekju í kirkj- unni. Leiðin liggur fram hjá Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni, Landakots- kirkju, Hjálpræðishernum, Dómkirkj- unni, Fríkirkjunni, Kirkju aðventista, Hallgrímskirkju, Háteigskirkju, Kirkju óháða safnaðarins, Fossvogskapellu, Neskirkju og Seltjarnarneskirkju. Hver og einn getur hlaupið á sínum hraða en vegalengdin er u.þ.b. 14 km. Auð- velt er að stytta leiðina ef fólk vill og að loknu hlaupi býður Seltjarnarnes- kirkja hlaupurum upp á heitt kakó og smákökur. Endilega … … hlaupið í kirkjuhlaupi Kirkjuhlaup Hlaupið verður framhjá nokkrum kirkjum borgarinnar. Morgunblaðið/Júlíus Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Gjafir sem gleðja Verð 17.000 kr. LAUGAVEGI 5 SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI SÍMI 577 1660

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.