Morgunblaðið - 18.12.2012, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2012
Morgunblaðið/ ÞÖK
Fisvél Flugmaður undirbýr flugtak
frá Tungubökkum í Mosfellsbæ.
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Orsök flugslyss sem varð á Fimm-
vörðuhálsi 17. mars 2010 þegar fis-
vél brotlenti þar, var vanmat á að-
stæðum og reynsluleysi flugmanns
vélarinnar.
Rannsóknarnefnd flugslysa
(RNF) skilaði nýlega af sér loka-
skýrslu um slysið en vélin sem um
ræðir, fisvél af gerðinni Fly Synt-
hesis Storch CL, brotlenti í yfirflugi
á Fimmvörðuhálsi með þeim afleið-
ingum að vélin steyptist fram yfir
fyrir sig og loftskrúfa hennar fór of-
an í jörðina. Tilgangur flugsins var
sá að skoða eldgosið í Fimmvörðu-
hálsi. Flugmanninn sakaði ekki.
Útrunnið flughæfnisskírteini
Í skýrslu RNF kemur fram að
flughæfnisskírteini vélarinnar. Þá
kom einnig í ljós við rannsókn RNF
að Fisfélag Reykjavíkur hafði al-
mennt ekki endurnýjað flughæfn-
isskírteini fisvéla árlega líkt og
kveðið er á um í reglugerð um
vélknúin fis. Þó er tekið fram í
skýrslunni að í kjölfar slyssins og
rannsóknar RNF á því hafi verið
gerð bót á þessu. Loks beinir RNF
því til fisfélaga að þau kynni fé-
lagsmönnum sínum lög og reglur
um rannsóknir flugslysa m.a. til að
félagsmenn tilkynni án tafar flug-
slys og alvarleg flugatvik á hreyf-
ilknúnum fisum til FME og sömu-
leiðis svo þeir hrófli ekki við
rannsóknarvettvangi slyss en flug-
maður fisvélarinnar sem brotlenti á
Fimmvörðuhálsi hafði pakkað henni
saman aftan á pallbíl áður en rann-
sakandi RNF kom á vettvang.
„Það var ekki á öllum vélum en
þetta er í rauninni tiltölulega mikið
formsatriði vegna þess að viðhald
fisvéla er á ábyrgð flugmannanna
en ekki annarra,“ segir Ágúst Guð-
mundsson, formaður Fisfélags
Reykjavíkur, spurður út í at-
hugasemdir RNF um skort á end-
urnýjun flughæfnisskírteina.
Ágúst segir að athugasemdum
RNF verði fylgt eftir af hálfu félags-
ins í fullu samráði við nefndina.
Flugmaður fisvélar vanmat aðstæður
Brotlenti á Fimmvörðuhálsi Vélin var með útrunnið flughæfisskírteini
Hæstiréttur stað-
festi í gær gæslu-
varðhalds-
úrskurð yfir
fjórmenning-
unum sem hand-
teknir voru fyrir
helgi í tengslum
við rekstur ólög-
legs spilavítis í
Skeifunni í Reykjavík.
Grunsemdir eru um að fjár-
hættuspilið hafi verið notað til pen-
ingaþvættis.
Átta voru handteknir á þriðju-
dagskvöld í síðustu viku þegar lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu lét til
skarar skríða gegn spilavíti sem
rekið var í atvinnuhúsnæði í Skeif-
unni í Reykjavík.
Helmingnum var sleppt daginn
eftir en þrír karlar og ein kona,
sem talin eru tengjast rekstrinum,
voru úrskurðuð í gæsluvarðhald til
föstudagsins 21. desember. Fjór-
menningarnir kærðu úrskurðinn til
Hæstaréttar, sem staðfesti hann í
gær.
Að sögn Jóns H.B. Snorrasonar
aðstoðarlögreglustjóra og saksókn-
ara hjá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu gengur rannsóknin eins og
efni standa til og er unnið að því að
ljúka rannsóknum á þeim hlutum
málsins sem ljúka þurfi áður en
gæsluvarðhald rennur út á föstu-
dag.
Spilavítisfólk verður
áfram í varðhaldi
Héraðsdómur
Reykjaness hef-
ur dæmt átján
ára pilt í fimm
mánaða fangelsi
fyrir árás og til-
raun til stór-
felldrar árásar á
stjúpföður sinn.
Árásina
framdi pilturinn 13. nóvember í
fyrra á heimili þeirra. Hann var
sakfelldur fyrir að slá stjúpföður
sinni að lágmarki tvisvar í höfuðið
með krepptum hnefa, taka hann
hálstaki og snúa hann í gólfið.
Árásin hafði þær afleiðingar að
stjúpfaðirinn hlaut eymsli í baki,
brjósti og hnakka, hrufl og mar á
vinstri upphandlegg og bólgu, mar
og fleiður á vinstra gagnauga.
Þá var pilturinn sakfelldur fyrir
tilraun til sérstaklega hættulegrar
líkamsárásar með því að hafa stuttu
seinna sótt hníf með 21 cm löngu
blaði í eldhús íbúðarinnar og otað
hnífnum með ógnandi hætti að
stjúpföður sínum. Hann komst und-
an piltinum með því að læsa sig inni
í baðherbergi en pilturinn stakk þá
hnífnum í gegnum baðherbergis-
hurðina. Hnífurinn kom í gegn þar
sem stjúpfaðirinn var rétt áður með
höfuðið.
Við ákvörðun refsingar var litið
til þess að pilturinn var í mikilli
geðshræringu og miklir erfiðleikar
höfðu verið í samskiptum hans og
stjúpföðurins, sem viðurkenndi að
hafa lagt hendur á bróður piltsins.
Dæmdur fyrir árás
á stjúpföður sinn