Morgunblaðið - 18.12.2012, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2012
FRÉTTASKÝRING
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Enginn árangur varð á fundi strand-
ríkja um stjórnun veiða úr norsk-
íslenska síldarstofninum á næsta ári.
Auk kröfu Færeyinga um aukna
hlutdeild í síldveiðum á næsta ári
deildu Evrópusambandið og Noregur
um gagnkvæman aðgang til síld- og
kolmunnaveiða.
Kristján Freyr Helgason, sérfræð-
ingur í atvinnuvegaráðneytinu, fór
fyrir íslensku sendinefndinni á fund-
inum, sem haldinn var í London á
föstudag. Hann segir að staðan sé
erfið og framhaldið óljóst.
„Á sama tíma og síldin er í nið-
ursveiflu eru komnar fram kröfur
Færeyinga um aukna hlutdeild.
Reynslan sýnir að ef lokið er tekið af
hlutfallslegri skiptingu strandríkj-
anna þá getur tekið langan tíma að
komast að nýju samkomulagi,“ segir
Kristján Freyr.
Boðað verður til nýs fundar um
stjórnun veiða á norsk-íslenskri síld
og kolmunna um miðjan janúar.
Færeyingar hafa enn ekki gefið
upp hverjar kröfur þeirra eru um
hlutdeild. Nú er skiptingin þannig að
hlutur Norðmanna er 61%, Íslands
14,51%, Rússlands 12,82%, Evrópu-
sambandsins 6,51% og hlutdeild
Færeyinga er upp á 5,16%.
Vilja svipað og Íslendingar
Norska blaðið Fiskaren segist hafa
heimildir fyrir því að Færeyingar
vilji fá sambærilega hlutdeild og Ís-
lendingar. Þeir byggja kröfu sína á
því að meira hafi verið af norsk-
íslenskri síld í færeyskri lögsögu síð-
ustu ár heldur en þegar samning-
urinn var gerður fyrir fimm árum. Þá
kemur fram í blaðinu að óánægja sé
með hversu stór hlutur ESB er í veið-
unum þar sem nánast engin síld hafi
síðustu ár veiðst á svæði ESB.
Norðmenn hafa sagt upp tvíhliða
samningi við Færeyinga um heimild
þeirra síðarnefndu um makrílveiðar í
norskri lögsögu. Á fundinum
áréttuðu Færeyingar að Norðmenn
hefðu ekki lengur leyfi til kolmunna-
veiða í færeyskri lögsögu og hafa þeir
sent Norðmönnum formlegt erindi
þessa efnis, eins og greint er frá á
heimasíðu færeyska sjávarútvegs-
ráðuneytisins.
Ágreiningur Noregs og ESB
Þegar ljóst varð á fundinum að nið-
urstaða fengist ekki um síldveiðarnar
var haldinn fundur strandríkjanna
fjögurra, án Færeyinga. Þar var í
farvatninu að semja um óbreytta
hlutdeild þessara aðila, en taka hlut
Færeyinga til hliðar. Þá kom í ljós
ágreiningur á milli Norðmanna og
Evrópusambandsins um kolmunna-
veiðar og í framhaldinu einnig um
síldveiðar. Á heimasíðu færeyska
sjávarútvegsráðuneytisins segir að
ósamkomulag Noregs og ESB hafi
valdið því að ekki var gengið frá
samningu um stjórnun veiða á kol-
munna.
Á vettvangi Norðaustur-
Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar
(NEAFC) eru í undirbúningi reglur
sem koma í veg fyrir veiðar annarra
þjóða úr þessum stofnum á al-
þjóðlegu hafsvæði á meðan ósamið
er.
Færeyingar vilja meira,
Noregur og ESB deila
Ljósmynd/Börkur Kjartansson
Á loðnu Færeyska skipið Finnur Fríði og Aðalsteinn Jónsson frá Eskifirði á siglingu á Lónsbugt í fyrravetur.
Hvorki samið um stjórnun veiða á síld né kolmunna
Heildarafli á fyrsta ársfjórðungi fisk-
veiðiársins, frá 1. september til loka
nóvember, nam 296 þúsund tonnum.
Á sama tíma í fyrra var aflinn 287
þúsund tonn Aukning í heildarafla
nemur samkvæmt því um 3,1% eða
um 9 þúsund tonnum. Þar af er aukn-
ing um 6 þúsund tonn í botnfiski og 3
þúsund í uppsjávarfiski. Á myndinni
að ofan er yfirlit yfir aflamarksstöðu í
nokkrum tegundum miðað við gær-
daginn.
Athygli vekur að krókaaflamarks-
bátar höfðu nýtt um helming afla-
heimilda í ýsu á þessum fyrsta fjórð-
ungi fiskveiðiársins, segir á vef
Fiskistofu. Krókaaflamarksbátar
höfðu nýtt 26,3% af heildaraflaheim-
ildum sínum á fyrstu þremur mán-
uðum ársins reiknað í þorskígildum
samanborið við 27,5% í fyrra.
Fyrstu þrjá mánuði fiskveiðiársins
veiddu íslensk skip rúmlega 10 þús-
und tonnum meira af þorski en á
sama tímabili í fyrra og er það um
20% aflaaukning. Ýsuaflinn dróst aft-
ur á móti saman á milli ára um 2.300
tonn eða um tæp 17%.
Meira af ýsu í VHS-afla
Í lok nóvember hafði 572 tonnum
verið landað sem VS-afla samanborið
við 458 tonn í fyrra, en hluti af and-
virði þess afla greiðist í Verkefnasjóð
sjávarútvegsins. Megnið af VS-
aflanum var þorskur en mikil aukn-
ing er í löndun ýsu sem VS-afla, segir
á vef Fiskistofu. Ýsan fer í 151 tonn
en var 48 tonn á sama tíma í fyrra.
Leyfilegur VS-afli reiknast nú fyr-
ir hvern ársfjórðung í stað ársins í
heild og ekki er hægt að flytja heim-
ildir í VS-afla á milli ársfjórðunga.
aij@mbl.is
H
ei
m
ild
:F
is
ki
st
of
a.
is
Þorskur
34.6%Aflamark
160.151
Afli t/ aflamarks
55.485
Ýsa
Aflamark
30.860
Afli t/ aflamarks
10.164
32.9%
Ufsi
32.6%Aflamark
42.170
Afli t/ aflamarks
13.735
Karfi/gullkarfi
Aflamark
45.016
Afli t/ aflamarks
13.332
29.6%
Keila
Aflamark
5.909
Afli t/ aflamarks
1.406
23.8%
Steinbítur
Aflamark
7.458
Afli t/ aflamarks
1.098
14.7%
Grálúða
Aflamark
13.538
Afli t/ aflamarks
2.711
20%
Skarkoli
Aflamark
6.252
Afli t/ aflamarks
1.717
27.5%
Langa
Aflamark
9.342
Afli t/ aflamarks
2.099
22.5%
Krókabátar hálfn-
aðir með ýsuna
Umhverfis- og samgöngunefnd Al-
þingis hefur lagt fram frumvarp um
breytingu á umferðarlögum. Breyt-
ingin er í þá veru að ökuskírteini verði
frá og með 19. janúar 2013 aðeins gef-
in út til 15 ára. Um er að ræða lögleið-
ingu tilskipunar Evrópuþingsins og
Evrópuráðsins.
Í greinargerð segir að tilskipun
Evrópuþingsins og ráðsins frá 20.
desember 2006 um ökuskírteini hafi
verið tekin upp í EES-samninginn
með ákvörðun sameiginlegu EES-
nefndarinnar hinn 14. mars 2008 og
að með umræddri lagabreytingu sé
innleitt ákvæði í tilskipuninni.
Er lögð til sú breyting á gildandi
lögum að fullnaðar-
skírteini gildi ekki
lengur þar til hlutað-
eigandi er fullra 70
ára heldur einungis í
15 ár frá útgáfu þess.
Breytingin hefur
ekki áhrif á ökurétt-
indi sem hafa verið veitt eða verið afl-
að fyrir gildistökudag laganna.
Gildistökuákvæðið er miðað við
gildistöku 19. janúar 2013 en frá og
með þeirri dagsetningu skulu skír-
teinin gefin út samkvæmt hinum nýja
gildistíma, í 15 ár. „Því er áríðandi að
lögin verði samþykkt og birt fyrir 19.
janúar 2013,“ segir í greinargerðinni.
Ökuskírteinin til 15 ára
Komdu við og kynntu
þér samskiptatæki
sem gætu opnað nýjan
heim fyrir þig og þína.
Ellisif Björnsdóttir
heyrnarfræðingur
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur
Sími 534 9600 · heyrn.is
Opið kl. 9.00-16.30
Verð nú
27.455 kr.
Einfalt
og ódýrt
samskiptatæki
með
15% jóla-
afslætti
til áramóta
Jólagjöfin fyrir þá sem vilja heyra betur
Jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur er hafin
Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur
íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning,
hver og einn eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma
s. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is