Morgunblaðið - 18.12.2012, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 18.12.2012, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2012 ● Í Morgunkorni greiningar Ís- landsbanka í gær er því spáð að at- vinnuleysi muni fara lækkandi á næsta ári og spáir greining Íslands- banka því að skráð atvinnuleysi á næsta ári verði 4,6% að með- altali. „Tökum við þar inn í reikninginn að bráðabirgðaákvæðið um rétt ein- staklinga til atvinnuleysisbóta í fjögur ár í stað þriggja verður ekki fram- lengt nú um áramótin. Atvinnuleysi samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar mun lækka af þessum sökum, en um 3.000 ein- staklingar, sem er tæplega þriðjungur af þeim sem skráðir voru án atvinnu í nóvember sl., munu fullnýta sinn bótarétt á næsta ári,“ segir orðrétt í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Dregur úr atvinnuleysi? Fækkar atvinnu- lausum 2013? ● Sala á ríkis- og íbúðabréfum fór fram hjá Lánamálum ríkisins í gærmorgun. Útboðinu var þannig háttað að öll sam- þykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Í boði voru eftirfarandi flokkar: RIKB 19 0226 og HFF150224. Alls bárust í fyrri flokkinn tilboð að fjárhæð 5.200 m.kr. að nafnverði. Til- boðum var tekið fyrir 2.700 m.kr. að nafnverði á verðinu 113,400 (6,08% ávöxtunarkrafa). Alls bárust í seinni flokkinn tilboð að fjárhæð 3.120 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 1.000 m.kr. að nafnverði á verðinu 109,050 (2,13% ávöxtunarkrafa). Ríkis- og íbúðabréf Stuttar fréttir…                                         !"# $% " &'( )* '$* +,-./0 ,/0.1+ +,2.-3 ,,.,++ ,,.02- +4.50+ +12.,1 +.3/02 +50.+ +-3.23 +,-.10 ,/0.4+ +,4./, ,,.,2- ,,.30, +4.55- +12.-+ +.3/5+ +50.-4 +--.,+ ,,2.4151 +,-.-0 ,/3.1+ +,4.15 ,,.10+ ,,.-/4 +5./3+ +12.55 +.3+13 +53.,- +--.-2 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Viðræðum um fríverslunarsamning á milli Evrópusambandsins og Singapúr lauk í fyrradag og er gert ráð fyrir að drög að samningi liggi fyrir næsta vor samkvæmt fréttavefnum Euobserver.com. Haft er eftir viðskiptastjóra Evrópusambandsins, Karel De Gucht, að ásamt fríverslunarsamn- ingi við Suður-Kóreu, sem tók að hluta til gildi á síðasta ári, muni samningurinn við Singapúr festa sambandið í sessi á mörkuðum í Asíu. Samningurinn mun auka að- gengi evrópskra fyrirtækja að mörkuðum í Asíu en samningar EFTA, sem Ísland er aðili að, um fríverslun við Singapúr tóku gildi árið 2003. Semja um fríverslun  Evrópusambandið og Singapúr að ljúka samningsgerð sín á milli Á lokastigi Fríverslunarsamningum ESB við Singapúr er að ljúka. Vanskil einstaklinga hjá Íbúðalána- sjóði námu 4,91 milljarði króna í lok nóvember og er undirliggjandi lána- virði 90,3 milljarðar króna eða um 13,7% útlána sjóðsins til ein- staklinga. Heimili í vanskilum eru 4.795 og þar af eru 616 heimili með frystingu á lánum sínum. Alls voru því 9,4% þeirra heimila sem eru með fast- eignalán sín hjá ÍLS með lánin í van- skilum í lok nóvember 2012. Í lok nóvember nam fjárhæð van- skila útlána til lögaðila alls 3,3 millj- örðum króna og nam undirliggjandi lánavirði 30,5 milljörðum króna. Lækkun vanskila lögaðila það sem af er ári skýrist að stórum hluta af því að undirliggjandi veðandlag útláns hafi verið yfirtekið af Íbúðalánasjóði. Í lok nóvember náðu vanskil ein- staklinga á höfuðborgarsvæðinu til 2.641 heimila og vanskil einstaklinga utan höfuðborgarsvæðisins náðu til 2.154 heimila, samkvæmt skýrslu Íbúðalánasjóðs fyrir nóvember. Vanskil 4,9 milljarðarÖÐRUVÍSI JÓLAGJAFIR LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646FACEBOOK.COM/GLERAUGNAMIDSTOÐIN LEIKHÚSSJÓNAUKAR STÆKKUNARGLERS LAMPAR SJÓNAUKAR Í MIKLU ÚRVALI SPORTGLERAUGU Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Óánægja er hjá rútufyrirtækjum vegna útboðs Sambands sveitarfé- laga (SSS) á Suðurnesjum á akstri hópferðabifreiða á milli Flugstöðv- ar Leifs Eiríkssonar og Reykjavík- ur. Framkvæmdastjóri Kynnis- ferða sem hafa haft þennan akstur með höndum í áratugi segir að fyr- irtækið muni halda akstri sínum áfram, hver sem niðurstaða út- boðsins verður. Kynnisferðir íhuga að bera útboðsskilmála undir Sam- keppniseftirlitið og að kæra útboð- ið í heild til kærunefndar útboðs- mála. Sveitarfélögin á Suðurnesjum tóku við sérleyfisakstri á Suður- nesjum fyrir nokkrum árum með samningum við Vegagerðina og samþættu almenningssamgöngur á vegum sveitarfélaga. Samið var við Kynnisferðir sem lengi hafa annast akstur á milli flugstöðvarinnar og Reykjavíkur. Síðustu ár hefur Allrahanda ekið leiðina í sam- keppni við Kynnisferðir, þótt SSS hafi reynt að koma í veg fyrir það. Lagagrundvöllur einkaleyfis sveit- arfélaga var styrktur fyrir um ári og endurnýjaði Vegagerðin samn- inga við SSS. Vegagerðin hefur samið á sama hátt við sveitarfélög víða um land. Falið að annast verkefnið Nú hefur SSS auglýst útboð á akstri til flugstöðvarinnar og hyggst bjóða út annan akstur í byrjun næsta árs. „Ríkið fól okkur að sjá um þessa leið. Við höfum undirbúið útboð frá því í sumar og reynt að vanda okkur við það,“ segir Gunnar Þórarinsson, formað- ur SSS, um ástæður útboðsins. Hver er þörfin? Kristján Daníelsson, fram- kvæmdastjóri Kynnisferða, segir að fyrirtækið hafi byggt upp flug- rútuna frá 1976 og verið með sér- leyfi á leiðinni í mörg ár. Rekst- urinn hafi gengið upp þrátt fyrir að annar aðili hafi ekið á leiðinni um tíma. Nú eigi að útiloka þá sem þarna eru með rekstur, með því að færa rútur þeirra lengra frá flug- stöðinni en væntanlegs verktaka og veita verktakanum einum leyfi til að vera með sölubás inni í stöð- inni. Þá hyggist sveitarfélögin taka að lágmarki 35% af fargjaldinu til eigin ráðstöfunar sem honum finnst ansi hátt hlutfall. Pening- arnir verða notaðir til að efla al- menningssamgöngur á svæðinu. „Við höfum fjárfest mikið í vöru- merki, aðstöðu, bílum, söluleiðum og viðskiptasamböndum til þess að komast á þann stað sem við erum á nú. Við sjáum ekki ástæðu til að bjóða út almenningssamgöngur þegar samkeppni virkar á leiðinni. Hver er þörfin?“ segir Kristján Daníelsson. Gunnar segir að fyrirtækin geti keppt um að fá samninginn. Í því felist samkeppnin. Íhuga að kæra útboð  Ólga meðal rútufyrirtækja vegna útboðs SSS á akstri til flugstöðvarinnar  Kynnisferðir hyggjast aka áfram, hver sem niðurstaða útboðsins verður Morgunblaðið/Kristinn Rútur Hópferðafyrirtækin hafa keppt um flugfarþega við flugstöðina. Kynnisferðir gagnrýna ýmsa þætti útboðsins. Telja að mörgum spurn- ingum sé ósvarað. Fyrirtækið gerði bréflega athugasemd við að skráð vörumerki þess, „Flugrútan“, væri notað í útboðsgögnum og að aka ætti til Umferð- armiðstöðvarinnar í Reykjavík en það hús hafa Kynnisferðir á leigu. Í svari SSS er því heitið að virða einkarétt Kynnisferða á vörumerkinu „Flugrútan“. Þá er sagt að í útboði verði ekki gerð krafa um sérstakan komu- og brottfararstað í Reykjavík. Staðsetning verði ákveðin í samráði við akstursaðila en tilboð skuli miðast við 101 Reykjavík. Flugrútan skráð vörumerki ATHUGASEMDIR GERÐAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.