Morgunblaðið - 18.12.2012, Síða 19
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2012
Alls var 109 kaupsamningum þing-
lýst á höfuðborgarsvæðinu 7. desem-
ber til og með 13. desember 2012.
Þar af voru 82 samningar um eignir í
fjölbýli, 16 samningar um sérbýli og
11 samningar um annars konar eign-
ir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan
var 4.368 milljónir króna og meðal-
upphæð á samning 40,1 milljón
króna.
Á sama tíma var tíu kaupsamn-
ingum þinglýst á Suðurnesjum, segir
á vef Þjóðskrár Íslands. Þar af voru
fjórir samningar um eignir í fjölbýli,
fimm um sérbýli og einn um annars
konar eignir en íbúðarhúsnæði.
Heildarveltan var 226 milljónir
króna og meðalupphæð á samning
22,6 milljónir króna.
Á sama tíma var 13 kaupsamning-
um þinglýst á Akureyri. Þar af voru
sex samningar um eignir í fjölbýli,
þrír um sérbýli og fjórir um annars
konar eignir en íbúðarhúsnæði.
Heildarveltan var 547 milljónir
króna og meðalupphæð á samning
42,1 milljón króna.
Á sama tíma var sex samningum
þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þeir
voru um eignir í sérbýli. Heildarvelt-
an var 264 milljónir króna og með-
alupphæð á samning 43,9 milljónir.
109 fasteignir
fyrir 4,4 ma
Morgunblaðið/Ómar
Fasteignir 109 kaupsamningum var þinglýst á einni viku á landinu.
Boris Johnson,
borgarstjóri
Lundúnaborgar,
hefur skorað á
Breta að gera
ekki lítið úr fyr-
irætlunum
bandarísku kaffi-
húsakeðjunnar
Starbucks um að
greiða umtals-
verða skatta í
Bretlandi á næsta og þarnæsta ári,
samtals um 20 milljónir punda, eða
sem svarar liðlega fjórum millj-
örðum íslenskra króna.
Keðjan hefur átt í vök að verjast
gagnvart breskum neytendum, eftir
að í hámæli komst, að hún hefur ekki
greitt penní í skatta í Bretlandi und-
anfarin þrjú ár og samtals hefur
keðjan greitt 8,6 milljónir punda í
skatt þau 14 ár sem hún hefur starf-
að á Bretlandseyjum. Heildarsala
Starbucks á Bretlandseyjum einum
árið 2011 er sögð hafa verið næstum
400 milljónir punda, eða sem svarar
82 milljörðum íslenskra króna.
Gagnrýnendur keðjunnar hafa
sagt að þetta nýjasta útspil sé ekk-
ert annað en aumt yfirklór, til þess
að vinna sig í áliti á ný hjá breskum
almenningi, en margir hafa sagt
ætla að hætta að kaupa kaffið sitt
hjá Strabucks í refsingarskyni.
Boris Johnson sagði við breska
ríkisútvarpið, BBC, að fólk ætti ekki
að gera lítið úr þessari viðleitni keðj-
unnar, sem þessum fyrirætlunum
sýndi „samfélagslega ábyrgð“.
Borgar-
stjóri ver
Starbucks
Bris Johnson, borg-
arstjóri Lundúna.
Á laugardaginn var, hinn 15. desember
sl., voru 20 ár liðin frá því að HB Grandi
var fyrst skráð í Kauphöllina, en það var
15. desember árið 1992.
Í tilefni af því var fulltrúum fyrirtæk-
isins boðið í heimsókn hjá Kauphöllinni
þar sem Páll Harðarson, forstjóri Kaup-
hallarinnar, og Vilhjálmur Vilhjálmsson,
forstjóri HB Granda, sögðu nokkur orð.
Eins og vaninn er við tímamót fyrir-
tækja sem skráð eru á Nasdaq-markaði
var tilkynnt um 20 ára afmælið á skilti
markaðarins á Time Square í New York
núna um helgina.
Af íslenskum fyrirtækjum hefur aðeins
Marel lengri samfellda skráningu, en fyr-
irtækið náði 20 ára skráningu fyrr á
árinu.
20 ár frá skráningu HB Granda
Kolabrautin er á 4. hæð Hörpu
Borðapantanir í síma 519 9700
info@kolabrautin.is
www.kolabrautin.is
JÓLAHÁTÍÐ
frá 14. nóv. til 23. des.
Það er eins með jólamatseðilinn
okkar og jólapakkana, það er
ekkert gaman nema hlutirnir komi
svolítið á óvart. Að þessu sinni
bjóðum við upp á sjö rétta jóla-
veislu þar sem við bregðum á leik
með jólahlaðborð að okkar hætti.