Morgunblaðið - 18.12.2012, Blaðsíða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2012
Snjóleysi Gott er að nýta hvern dag sem snjólaust er til að liðka leggina og njóta útiveru.
Golli
Danir segja þá, sem eru
ómótstæðilegir, vera „char-
metrold“. Slík tröll dáleiða við-
mælendur á þægilegan hátt.
Göran Persson er eitt slíkt.
Hann var hér fyrir skömmu
og hélt erindi. Þá kom hann í
sjónvarpsviðtal í ríkisfjölmiðl-
inum. Persson er reyndur
maður, vel að sér og skýr í
framsetningu. Hann velur orð-
in vandlega og gæðir allt sem
hann segir hlýjum og
landsföðurlegum blæ. Meðal
þess, sem hann fræddi Íslendinga um, voru
tvö stórmerki.
Í fyrsta lagi tvítók hann, að Íslendingar
hefðu komið lagi á ríkisfjármál sín. Að vísu
dró hann nokkuð skyndilega í land síðar
meir, þegar fréttamaður spurði hvort fram-
tíðin væri ekki björt. Hún gæti verið það,
sagði Persson, en það væri hins vegar búið
að taka mikið út á reikning framtíðarinnar.
Ókomin ár gætu því orðið snúin.
Hin stórtíðindin sneru að vandræðagang-
inum innan ESB og þó einkum á evrusvæð-
inu. Persson var á því að þar á bæ væri ekki
allt sem sýndist. Það þyrfti skarpskyggni til
að átta sig á raunverulegum styrkleika Evr-
ópusambandsins og evrunnar. Besta vís-
bendingin um leyndan styrkleika evrunnar
væri sú ákvörðun Svisslendinga að tengja
svissneska frankann við evruna. Þannig
væru þeir búnir að átta sig á mikilvægi evr-
unnar til lengri tíma.
Það er rétt hjá Göran Persson að Sviss-
lendingar eru ekki fæddir í gær. Á hinn bóg-
inn er flestum ljóst, sem fylgdust með þeirri
ákvörðun Svisslendinga nú fyrir skömmu að
tengja gengi svissneska frankans við evruna,
að það skref var ekki stigið vegna styrkleika
evrunnar, hvorki nú sem stendur né í fram-
tíð. Upplausnin innan ESB og gríðarlegir
veikleikar, sem komið hafa í ljós innan evru-
svæðisins, geta valdið stórtjóni í efnahags-
málum Sviss. Vandræðagangur evrusvæð-
isins beinir athyglinni að svissneska
frankanum og er líklegur til að hækka verð
svissneska gjaldmiðilsins umfram það, sem
kalla mætti raungildi. Svisslendingar eiga
sterkan útflutningsiðnað, en hækkandi gengi
svissneska frankans myndi skaða stöðu hans
á samkeppnismarkaði. Veikleikar evrunnar
geta einnig ýtt undir áhuga spákaupmanna á
að kaupa svissneska franka og valda með
þeim hætti hækkandi gengi gjaldmiðilsins.
Svisslendingar muna þá tíð, þegar upp-
lausn í gjaldeyrismálum Ítalíu, Spánar,
Portúgals, Stóra-Bretlands og jafnvel
Þýskalands leiddi til mikillar hækkunar
svissneska frankans. Þá fylgdi þeirri þróun
útgáfa aðila utan Sviss á skulda-
bréfum í svissneskum frönkum,
sem gat jafngilt peningaprentun.
Á þeim tíma gripu Svisslend-
ingar til varna, en þær komu
ekki að gagni, eftir því sem þeir
hafa tjáð mér.
Nú grípa þeir til þess ráðs að
tengja sig vandamálagjaldeyr-
inum. Það skýrist að sjálfsögðu,
þegar litið er til mikilvægis ESB
fyrir svissneskar vörur og þjón-
ustu. Með þeirri ráðstöfun eru
Svisslendingar að lágmarka
tjónið sem vandræðin geta vald-
ið. Veikleiki evrunnar er leiddur tímabundið
inn í svissneskt efnahagslíf til að halda jafn-
vægi í samkeppnisstöðu ESB-ríkja og Sviss.
Að lýsa þessu sem framtíðaráhuga Sviss-
lendinga á að tengjast evrunni og Evrópu-
sambandinu er því mjög villandi, svo ekki sé
dýpra tekið í árinni.
Sú fullyrðing Görans Perssons, að tekist
hafi að koma lagi á ríkisfjármál Íslendinga,
er ekki síður djörf. Gífurlegur hallarekstur
hefur viðgengist í tíð núverandi rík-
isstjórnar. Frá þeim tíma er hún tók til
starfa og til loka september nemur hallinn
um fjögur hundruð milljörðum króna. Að
sjálfsögðu eru þar ekki taldir með þeir tugir
milljarða í viðbótarskuldum, sem rík-
isstjórnin reyndi ítrekað að hlaða á íslenska
skattgreiðendur með Icesave-þráhyggju
sinni. Hvorki eru heldur meðtaldar óreikn-
ingsfærðar lífeyrisskuldbindingar og björg-
unarframlag til Íbúðalánasjóðs.
Það er erfitt að horfa fram hjá því að full-
yrðingar Görans Perssons hafi verið nokkuð
fjarri sannleikanum. En maðurinn hefur
persónutöfra. Fréttamaður hlýddi á erki-
biskups boðskap og kinkaði kolli.
Ríkisstjórnin hefur lagt ofurkapp á að
koma þjóðinni í ESB. Hraðferðin, sem lagt
var upp í, hefur breyst í vergang og betl.
Engu að síður er lítill hluti þjóðarinnar nú
þegar farinn að haga sér eins og undirsátar
bandalagsins. Í þeim flokki sitja menn hóg-
værir undir föðurlegum útskýringum for-
ingjanna og bíða þess prúðir að ganga í
björgin.
Þar rauður loginn brann.
Eftir Tómas Inga Olrich
»Upplausnin innan ESB og
gríðarlegir veikleikar, sem
komið hafa í ljós innan evru-
svæðisins, geta valdið stór-
tjóni í efnahagsmálum Sviss.
Tómas Ingi
Olrich
Höfundur er fv. alþm. og ráðherra.
Gakk í björg
og bú með oss
Það henti Pál Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóra Heimssýnar, að
blogga stórkarlalega á dögunum í
garð Vinstri-grænna. Allt var það
rétt sem hann sagði nema það að það
á engum að útrýma og Heimssýn á
sér ekkert markmið um að útrýma
Vinstri-grænum í kosningunum í
vor. Auðvitað hrukku menn við í öll-
um flokkum en ekki síst Vinstri-
grænir.
Páll ræddi réttilega um endaskipti
þeirra í fangi Samfylkingarinnar þar
sem flokkurinn hlaut atkvæði
margra heitustu andstæðinga þess
að Ísland gangi í ESB í síðustu kosn-
ingum. Því henti það flokkinn eftir
kosningar sem kallast kosningasvik
á mannamáli. Það er ekki lengur
hægt að réttlæta þessar brigður á
heitasta kosningaloforðinu frá 2009.
Ég finn hins vegar að margir kunn-
ingjar mínir í Vinstri-grænum fagna
skrifum Páls. Skrifin vöktu þá til vit-
undar um að þeir verða að klára mál-
ið fyrir kosningar eigi þeir að eiga
tiltrú þess stóra hóps innan flokksins
sem vill að vegferðinni til Brussel
ljúki sem fyrst. Aðildarumsóknin
verði afturkölluð eða lögð til hliðar
með samþykki Alþingis. Og aldrei
tekin upp á ný nema
þjóðarvilji standi til
þess og þjóðin verði
spurð um það.
Verða götubardagar
í ESB-löndum?
Allir sem sjá og heyra
skynja að innganga í
ESB er helmingi verra
markmið nú en hún var
við stofnun ríkisstjórnar
Jóhönnu og Steingríms
J. Sigfússonar. Bresk
alþýða kýs t.d. að fara
út úr ESB og helstu
andstæðingar ESB þar segja að þeir
ráði engu þótt þeir eigi 67 fulltrúa af
750 á Evrópuþinginu. Við munum
eiga einn mann af 750 – „gríðarleg
áhrif“ eða hvað? Aðildarviðræðurnar
eru ekki samningaviðræður þótt
Össur og félagar Samfylkingarinnar
skrökvi því að Íslendingum. Samn-
ingamenn ESB skilja ekkert í þess-
ari umræðu, þeir segja að þetta sé
aðlögun sem endi jafnan með inn-
göngu eftir langan feril.
Mikill vandi steðjar að evrunni og
búast má við uppreisn í sumum evru-
löndum ESB sem eru undir hælnum
á Þjóðverjum og Frökkum. Götubar-
dagar gætu brotist út vegna atvinnu-
leysis og þrenginga fátæks fólks á
Grikklandi, Spáni eða
Írlandi og víðar. Ís-
land ætlar ekki að
fórna auðlindum sín-
um inn í þetta sam-
band; landhelginni,
norður-
slóðartækifærunum,
olíunni eða landbún-
aðinum. Svo ekki sé
talað um fullveldisrétt
þjóðarinnar og frelsi.
Við eigum í dag nóg af
atvinnulausu fólki og
landflótta fólki þótt við
fáum ekki atvinnuleysi
Spánar yfir okkur. Megi hins vegar
ESB komast sem fyrst út úr sínum
vandræðum.
Orð Páls vöktu Vinstri-græna
Nei, nú er komið að kosningum og
þjóðin vill ekki að einn flokkur, Sam-
fylkingin, haldi áfram að nauðga
okkur inn í ESB. Steingrímur J. Sig-
fússon og flokkur hans verður að
segja hvert ferðinni er heitið. Ætlar
hann áfram að standa í þessari von-
lausu vegferð gegn sínu fólki og
þjóðinni? Orð Páls vöktu Vinstri-
græna til vitundar um að þeir verða
að segja satt. Stendur til af þeirra
hálfu að vera áfram næstu fjögur ár-
in með allt undir í þessu ferli? ESB
ætlar ekki að láta fella samningana,
nú auka þeir kynningarstarfið og
áróðurspeningana, „mútuféð“. Er
það Vinstri-grænum þóknanlegt að
nú hefur Samfylkingin sett út björg-
unarleiðangur til að safna þingmönn-
um svo ríkisstjórn undir forystu
Samfylkingarinnar lifi? Árni Páll
Árnason, næsti formaður þeirra,
segir að þeir ætli og muni halda
ESB-vegferðinni áfram, auðvitað
með þér Steingrímur J. en illa trúi
ég að Ögmundur Jónasson og fleiri
gangi þá götu áfram. Besti flokk-
urinn og Björt framtíð eru með sömu
kennitöluna og Samfylkingin segja
innanbúðarmenn. Þar er skipstjóri
Guðmundur Steingrímsson, stýri-
maður Róbert Marshall, eldheitur
samfylkingarmaður, og glittir í Jón
Gnarr í aftursætinu og Bestaflokk-
inn, sem var og er systurflokkur
Samfylkingarinnar í Reykjavík. Allt
er þetta fólk sem vill í ESB og ætlar
Vinstri-grænum að róa ESB-fleyinu
með sér og Samfylkingunni.
Framsókn búin að
hreinsa sig af ESB
Ég fagna því að t.d. Framsókn-
arflokkurinn er búinn að hreinsa sig
af ESB-„draumnum“, en flokkurinn
var grátt leikinn af þeim átökum
sem geisuðu um að Brussel yrði
æðsta stefnumark flokksins. Búið er
að rétta kúrsinn af og þingmenn
sem studdu aðildina ákveða að
hætta. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
einnig náð að marka skýra stefnu
um að þessari vegferð ljúki. Ég óska
grasrót Vinstri-grænna heilla ef
þeim auðnast í vetur að rétta sinn
kúrs af. Að vega tvisvar í sama kné-
runn er dauðasökin, nú verður
flokkurinn að tala skýrt. Auðvitað er
gott fólk í öllum flokkum sem vill
vel, en það dugir ekki að berja
hausnum við steininn og dauðrota
flokk sinn og fylgi bara fyrir völd og
ráðherrastóla. Um það var Páll að
blogga.
Eftir Guðna
Ágústsson » Auðvitað er gott fólk
í öllum flokkum sem
vill vel en það dugir ekki
að berja hausnum við
steininn og dauðrota
flokk sinn og fylgi bara
fyrir völd og ráðherra-
stóla. Um það var Páll
að blogga.
Guðni
Ágústsson
Höfundur er fyrrv. alþm. og ráðherra.
Bloggarinn Páll ærði Vinstri-græna