Morgunblaðið - 18.12.2012, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 18.12.2012, Qupperneq 33
77, og 1983-85, var formaður SUS 1985-87, í kauplagsnefnd 1982-87, í Verðlagsráði 1987-1993, var formað- ur EAN á Íslandi 1987-2003 og for- maður EDI-félagsins 1989-99. Vilhjálmur var stjórnarformaður Skjaldar hf. á Sauðárkróki 1989-93 og Kvikmyndasjóðs 1994-2003. Hann sat í þingmannanefnd EFTA/EES 1991- 2003 og var formaður Íslandsdeild- arinnar þann tíma, sat í sjávarútvegs- nefnd Alþingis 1991-2003, í efnahags- og viðskiptanefnd 1991-2003 og for- maður hennar 1992-93 og 1995-2003. Hagfræðin og fótboltinn Vilhjálmur sat í stjórn lífeyris- sjóðsins Gildis 2006-2012, ýmist for- maður eða varaformaður, og hefur setið í stjórn VIRK – starfsend- urhæfingarsjóðs frá stofnun, 2008. Vilhjálmur er umhyggjusamur fjölskyldufaðir, hæglyndur að eðl- isfari, hreinskiptinn og einlægur í samskiptum og stendur fast á sínu. Hann er ekki sprelligosi en kankvís og býr yfir skemmtilegum húmor. Áhugamálin snúast um fjölskyld- una, fótbolta, sumarbústaðinn og Tyrkland, auk þess sem hann les mikið: „Ég les töluvert um ýmis sam- félagsmálefni, sagnfræði og hagfræði og lykilrit um efnahagsmál. Ég hef haft áhuga á knattspyrnu alla tíð, æfði og keppti með Tindastóli þar til ég flutti alfarinn suður, hélt með Val hér fyrir sunnan en hef í raun taugar til Vals og KR, enda Vesturbæingur og krakkarnir öll KR-ingar. Í enska boltanum held ég með Tottenham og svo sparka ég bolta reglulega úti í KR-heimili með föstum hópi góðra félaga.“ Fjölskylda Vilhjálmur kvæntist 12.10. 1974 Ragnhildi Pálu Ófeigsdóttur, f. 17.9. 1951, ljóðskáldi og sérkennara við Borgarholtsskóla. Foreldrar hennar voru Ófeigur J. Ófeigsson, f. 12.5. 1904, d. 2.1. 1993, læknir í Reykjavík, og Ragnhildur Ingibjörg Ásgeirs- dóttir, f. 16.7. 1910, d. 22.7. 1981, kennari. Börn Vilhjálms og Ragnhildar eru Anna Katrín, f. 14.7. 1975, deild- arstjóri fjölþjóða þróunarsamvinnu í utanríkisráðuneytinu; Bjarni Jóhann, f. 28.11. 1978, doktor í lífupplýs- ingatækni við University of Southern California en hann er í rann- sóknastöðu hjá Harvard School of Public Health. Kona hans er Dorte Pedersen, félagsráðgjafi og mann- fræðingur, frá Jótlandi og er dóttir þeirra Anna Silja; Ófeigur Páll, f. 19.8. 1985, BA í forngrísku og meist- aranemi í miðaldafræði við Háskóla Íslands; Ragnhildur Alda María, f. 30.7. 1990, nemi í lyfjafræði við Há- skóla Íslands, í sambúð með Jóhanni Má Valdimarssyni, BA í sagnfræði og laganema, og er sonur þeirra Vil- hjálmur Andri. Systkini Vilhjálms eru: Ásta, f. 12.12. 1953, kennari á Akranesi; Bjarni, f. 24.1. 1955, verkstjóri á Reyðarfirði; Árni, f. 1.9. 1959, fjár- málastjóri á Sauðárkróki. Foreldrar Vilhjálms eru Egill Bjarnason, f. 9.11. 1927, fyrrv. ráðu- nautur og framkvæmdastjóri Bún- aðarsambands Skagfirðinga á Sauð- árkróki, og k.h., Alda Vilhjálmsdóttir, f. 20.11. 1928, húsfreyja og fyrrv. verkstjóri. Úr frændgarði Vilhjálms Egilssonar Vilhjálmur Egilsson Guðrún Jónsdóttir húsfr. á Selá Kristmundur Guðmundss. b. á Selá á Skaga Ásta Kristmundsdóttir húsfr. á Hvalsnesi Leó listmálari (Ljón norðursins) Alda Vilhjálmsdóttir húsfr. og fyrrv verkstj. á Sauðárkróki Anna Tómasdóttir húsfr. í Víkum Árni Guðmundsson smiður í Víkum á Skaga Anna Kristín Jónsdóttir húsfr. á Völlum Jónas Egilsson b. á Völlum í Vallhólma Sigurlaug Jónasdóttir húsfr. á Uppsölum Bjarni Helldórsson b. á Uppsölum í Skagafirði Egill Bjarnason fyrrv. héraðsráðunautur á Sauðárkróki Helga Sölvadóttir húsfr. á Ípishóli Vilhjálmur Árnason b. á Hvalnesi á Skaga Indriði Einarss. hagfr. og leikritaskáld EufemíaWaage leikkona HákonWaage leikari Ingibjörg Thors eiginkona Ólafs forsætisráðherra Thor Thors framkvæmdastj.Íslenskra aðalverktaka Einar Viðar söngvari Jórunn Viðar tónskáld Katrín Fjeldsted læknir og fyrrv. alþm. Halldór Einarsson b. á Ípishóli Morgunblaðið/Golli Oddvitar á vinnumarkaði Gylfi Arn- björnsson og Vilhjálmur Egilsson. ÍSLENDINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2012 Sigurður fæddist í Vigur í Ísa-fjarðardjúpi 18.12. 1915 ogólst þar upp. Foreldrar hans voru Bjarni Sigurðsson, hreppstjóri í Vigur, og k.h., Björg Björnsdóttir húsfreyja. Bjarni var sonur Sigurð- ar, pr. og alþm. í Vigur, bróður Stef- áns skólameistara og alþm., föður Valtýs, ritstjóra Morgunblaðsins. Móðir Bjarna var Þórunn, systir Brynjólfs, langafi Þorsteins Gunn- arssonar, leikara og arkitekts. Meðal systkina Bjargar voru Har- aldur leikari; Sigurður, faðir Björns, læknis og forstöðumanns á Keldum; Björgvin, hrl. og framkvæmdastjóra VSÍ, og Jón, skólastjóri og heiðurs- borgari Sauðárkróks, afi Óskars Magnússonar, útgefanda Morgun- blaðsins. Björg var dóttir Björns, dbrm. og ættföður Veðramótaættar Jónssonar, b. í Háagerði Jónssonar, á Finnastöðum Jónssonar, bróður Jónasar á Gili, föður Meingrundar- Eyjólfs, langafa Jóns, föður Eyjólfs Konráðs, alþm. og ritstjóra Morgun- blaðsins. Sigurður lauk stúdentsprófi frá MA 1936, lögfræðiprófi frá HÍ 1941 og framhaldsnámi í lögfræði í Cam- bridge á Englandi. Hann var stjórn- málaritstjóri Morgunblaðsins frá 1947 og ritstjóri blaðsins 1956-69, var alþm. Norður-Ísafjarðarsýslu fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1942-59, og alþm. Vestfjarðakjördæmis 1963-70. Hann var sendiherra Íslands í Dan- mörku, fyrsti sendiherra Íslands í Kína, í Bretlandi og víðar. Hann vann ötullega að heimkomu handrit- anna til Íslands, var forseti bæjar- stjórnar Ísafjarðar, formaður Blaða- mannafélags Íslands og Norræna blaðamannasambandsins, var for- maður Útvarpsráðs, formaður Ís- landsdeildar Norðurlandaráðs og einn af forsetum ráðsins, sat í Þing- vallanefnd og var formaður Nor- ræna félagsins. Sigurður kvæntist Ólöfu Páls- dóttur myndhöggvara og eignuðust þau tvö börn, Hildi Helgu, sagn- fræðing og blaðamann, og Ólaf Pál bókmenntafræðing. Sigurður lést 5.1. 2012. Merkir Íslendingar Sigurður Bjarnason 90 ára Aðalheiður Guðmundsdóttir Anna Bergsdóttir Guðmundur Skaftason Guðrún Lovísa Magnúsdóttir 85 ára Rósamunda Hjartardóttir Sesselja Jóna Karlsdóttir 80 ára Guðbjartur Eggertsson Höskuldur Eyfjörð Guðmannsson Kristján Kristjánsson Magnús Þorleifsson Ragnheiður Jónsdóttir 75 ára Björn Sverrisson Einar Brynjólfsson Eveline Ella E. Haraldsson Finnur Sæmundur Bjarnason Sigvaldi Arason 70 ára Conkordia Konráðsdóttir Guðlaugur Guðmundsson Hanna M. Benediktsdóttir Jóhann Ólafsson Sigurður L. Einarsson 60 ára Guðjón Egilsson Guðríður Þorvarðardóttir Guðrún Sigurðardóttir Gunnar F. Sigursteinsson Halldór Halldórsson Hrafnhildur Þorgeirsdóttir Kristbjörg Sigurnýjasdóttir Milorad Todorovic Sif Ragnhildardóttir Þorlákur Pétursson Þórkell Geir Högnason 50 ára Bryndís Sigurðardóttir Guðjón Gunnarsson Guðmundur Baldvin Guðmundsson Jozef Farkalin Margrét Gunnarsdóttir Víðir Ragnarsson 40 ára Arnaldur Haraldsson Ásgeir Ásgeirsson Georg Garðarsson Gerður Rún Guðlaugsdóttir Halldór Örn Ólafsson Haraldur Haukur Þorkelsson Jóhann Þórir Guðmundsson Marcel Mendes da Costa Rut Jónsdóttir 30 ára Andri Ólafsson Árni Steinarsson Bergdís Ingibergsdóttir Björn Viðar Sigurðsson Gunnar Ingi Guðmundsson Harpa Snæbjörnsdóttir Janis Adata Siddharth Swaminathan Sigrún Birna Þórarinsdóttir Stefán Sigurkarlsson Stefán Örn Guðmundsson Stella Vestmann Valdimar Þór Skarphéðinsson Þórhildur Snædís Kjartansdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Magnús ólst upp á Seltjarnarnesi og í Hafna- firði, lauk prófi í húsa- smíði og rekur veitinga- staðinn Thai Keflavík í Reykjanesbæ. Maki: Benedikta Björns- dóttir, f. 1984, nemi. Dóttir: Freyja Björk, f. 2008. Foreldar: Heimir Há- varðsson, f. 1954, fisk- verkandi, og Þuríður Magnúsdóttir, f. 1956, matráður. Magnús Heimisson 40 ára Lilja ólst upp í Grundarfirði, Hafnarfirði og Garðinum, lauk sjúkra- liðaprófi og er snyrtifræð- ingur með eigin stofu. Maki: Sumarliði Þór Jós- efsson, f. 1970, bílstjóri. Börn: Sigurþór, f, 1993; Hrafnhildur Sandra, f. 1997, og Arnþór, f. 2006. Foreldrar: Ragnheiður Benidiktsdóttir, f. 1933, húsfreyja og Högni Guð- jónsson, f. 1928, d. 2008, fangavörður. Lilja Högnadóttir 30 ára Kristín ólst upp í Reykjavík, lauk BS-prófi í viðskiptafræði frá Bifröst og starfar við flugrekstur. Sonur: Aron Ingvi Guð- mundsson, f. 2008. Foreldrar: Sigmundur Eyþórsson, f. 1958, fyrrv. slökkvilðsstjóri, og Sigríð- ur Björg Gunnarsdóttir, f. 1959, starfsmaður hjá Ar- ionbanka. Stjúpfaðir: Dagbjartur Kristjánsson, f. 1952, skipstjóri. Kristín Linda Sigmundsdóttir Hverafold 1-3 | Grettisgötu 3 | Smáralind | Langholtsvegi 113 | Turninn Höfðatorgi 511 1710 | svanhvit@svanhvit.is | svanhvit.is LÁTTU OKKUR SJÁ UMHEIMILISÞVOTTINN! LÍTIL VÉL 7 KG. 1.790 KR. STÓR VÉL 15 KG. 3.290 KR. Efnalaug - Þvottahús SVANHVÍT EFNALAUG - NÚ Á FIMM STÖÐUM Hverafold 1-3, 112 Reykjavík Langholtsvegi 113, 104 Reykjavík Grettisgötu 3, 101 Reykjavík Smáralind, 201 Kópavogur Turninn Höfðatorgi, 105 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.