Morgunblaðið - 18.12.2012, Síða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2012
Ævintýraleg teiknimynd, Rise of
the Guardians eða Goðsagnirnar
fimm, tyllir sér nú á topp bíólistans
eftir að hafa verið tvær vikur í sýn-
ingu. Ný kvikmynd, Red Dawn,
skaut Bond-myndinni Skyfall aftur
fyrir sig eftir fyrstu sýningarhelgi.
Bond nýtur þó áfram vinsælda og
margir gefa sér tíma til að sjá nýju
kvikmyndina á aðventu en eftir átta
vikur í kvikmyndahúsum hafa hátt í
áttatíu þúsund manns séð myndina,
sem margir telja þá bestu um njósn-
ara hennar hátignar.
Bíólistinn 14. desember-16. desember 2012
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
Rise Of The Guardians
Red Dawn
Skyfall
So Undercover
Here Comes The Boom
Killing Them Softly
Niko 2: Bræðurnir fljúgandi
Silver Linings Playbook
The Twilight Saga: Breaking Dawn - Part 2
Playing For Keeps
1
Ný
2
3
5
4
9
8
6
11
2
1
8
2
4
3
4
4
5
2
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Goðsagnir
á toppnum
Bíóaðsókn helgarinnar
Ævintýri Margir sáu fjölskyldu-
ævintýrið Goðsagnirnar fimm.
Spennandi uppskriftir
bbbnn
Eftir Guðrúnu Jóhannsdóttur.
Salka 2012. 132 bls.
Hollt og hátíðlegt er handhæg
bók sem hefur að geyma 52 upp-
skriftir. Bókinni er skipt í fjóra
kafla eftir árstíðum, en í hverjum
kafla eru uppskriftir að aðalréttum,
smáréttum, meðlæti og eftirréttum.
Óhætt er að
segja að sjáv-
arfang sé í
talsverðu aðal-
hlutverki í
bókinni.
Margar upp-
skriftanna eru
áhugaverðar
og spennandi,
s.s. „Sumarsalat með lárperum og
graslauksblómum“, „Hangikjöts-
flatkökur með tvisti“, „Bakaðar
mangófylltar gráfíkjur“ og „Lax
með fenniku“.
Guðrún Jóhannsdóttir á heiður af
bæði texta og myndum og er full
ástæða til að hrósa henni fyrir
hvort tveggja. Leiðbeiningarnar eru
oftast skýrar, en á einstaka stað
saknaði undirrituð ögn greinarbetri
upplýsinga.
Himnasending fyrir sælkera
bbbbm
Eftir Kristínu Þóru Harðardóttur og
Sigrúnu Óskarsdóttur.
Ljósmyndir: Sigurjón Ragnar.
Teikningar: Sól Hrafnsdóttir.
Veröld 2012. 169 bls.
Orð, krydd og krásir er sann-
kölluð himnasending fyrir sælkera.
Höfundar bókarinnar, þær Kristín
Þóra Harðardóttir og Sigrún Ósk-
arsdóttir, sækja sér hugmyndir og
innblástur í Biblíuna hvað varðar
hráefni og stemningu, en eins og
þær benda réttilega á er lítið um
nákvæmar uppskriftir í bókinni
helgu. Helsta markmið höfunda er
að nýta þá dýrmætu matarkistu
sem lesendur hérlendis hafa aðgang
að og tekst það með miklum ágæt-
um. Uppskriftirnar eru einfaldar og
leyfa hráefn-
unum að
njóta sín til
fulls.
Uppsetn-
ing bókar-
innar er sér-
lega vel
heppnuð. Í
stað þess að
setja alla
forrétti í
einn kafla, aðalrétti í annan og
þannig koll af kolli er bókin kafla-
skipt eftir veislum. Alls eru veisl-
urnar tólf í bókinni, sem hver bygg-
ist upp á þremur til sex réttum
þannig að úr verður áhugaverð
blanda af forréttum, aðalrétti og
eftirrétti. Veislurnar tólf bera
skemmtileg og lýsandi nöfn eins og
„Mörtur bjóða Maríum til veislu“,
„Nesti til 40 daga“, „Hráfæðisveisla
fyrir hlaupara sem ætla að láta
drauma sína rætast“ og „Veisla
áhyggjuleysis og einfaldleika“.
Hverjum kafla bókarinnar fylgir
síðan hugleiðing höfunda þar sem
lagt er út af völdum Biblíutextum,
án þess að höfundar taki sig of há-
tíðlega. Rétt er að geta þess að bók-
in ætti að geta höfðað til allra sæl-
kera óháð trúarbrögðum, enda er
maturinn og samfélagið sem mynd-
ast við matarborðið í aðalhlutverki.
Orð, krydd og krásir er falleg
bók prýdd guðdómlegum myndum.
Undirrituð saknaði reyndar mynda
af öllum réttum bókarinnar. Þetta
er bók sem minnir okkur á að mat-
ur er svo miklu meira en magafylli
því hann er minning, tilfinning og
ást. Og sá boðskapur er gott vega-
nesti.
Nauðsynlegur dýrgripur
fyrir allt ástríðufólk um mat
bbbbb
Eftir Gísla Egil Hrafnsson og
Ingu Elsu Bergþórsdóttur.
Vaka-Helgafell 2012. 249 bls.
Óhætt er að segja að það sé
skammt stórra högga á milli hjá
hjónunum Gísla Agli Hrafnssyni og
Ingu Elsu
Bergþórs-
dóttur. Ekki
er nema ár
síðan þau
sendu frá sér
hina frábæru
bók Góður
matur – gott
líf í takt við
árstíðirnar
sem tilnefnd
var til Íslensku bókmenntaverð-
launanna. Á dögunum sendu þau
svo frá sér bókina Eldað og bakað í
ofninum heima: Góður matur – gott
líf sem er sjálfstætt framhald af
fyrri bókinni.
Að þessu sinni er ofninn í eldhús-
inu í aðalhlutverki, hvort heldur
hann er notaður til að baka brauð,
Handhæg, 12 veislur
og kræsingar í ofni
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Yfirlit yfir nýjar íslenskar matreiðslubækur
Ljósmynd/Sigurjón Ragnar
Veislur Orð, krydd og krásir geym-
ir tólf dásamlegar veislur.
Vefðu þig hlýju
Ábreiða úr hinni einstöku íslensku ull gerir
hverja stund hlýja og notalega...
Sjá sölustaði á istex.is
FAGNIÐ MEÐ FYLGIFISKUM
UM JÓL OG ÁRAMÓT
Humarragú í rjóma-saffran-sósu
Skelfiskssalat í sherry-fíkju-vinegrette
Tvílitt sjávarréttapate með piparrótarrjóma
Kryddað humarkjöt (tilvalið í súpuna eða til steikingar)
Reyktur skötuselur með fennel og trönuberjasósu
Fylgifiska graflax með hunangs-sinnepssósu
Ferskur mangó & lime rækjukokteill
Fjórar tegundir af síld
Koníaksbætt rjómalöguð humarsúpa
Rjómalöguð fiskisúpa
Humarsoð & fiskisoð
Piparrótarrjómi
Hunangs-sinnepssósa
Hvítvínssósa
Skötuselur í kryddjurtahjúpi
Innbakaður lax í smjördeigi með stjörnuanís bættu hunangi og dijonsinnepi
Blandaðir sjávarréttir í hátíðarbúningi með hvítvínssósu
22. des - kl. 11.00 - 14.00
23. des - kl. 11.00 - 18.30
27. des - hefðbundin opnun
Skata í pottinum
í hádeginu
á Þorláksmessu
OPIÐ YFIR HÁTÍÐIRNAR
Svarið við spurningu dagsins
Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is