Morgunblaðið - 18.12.2012, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 18.12.2012, Qupperneq 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2012 Íljóðabókinni Tuttugu þúsundflóð eru á sjötta tug ljóðasem hverfast flest á einn eðaannan hátt um netaveiðar á laxi og náttúru og mannlífið við jökulfljótið sem veitt er í, Ölfusá. Tónninn er sleginn í fyrsta ljóðinu þar sem ljóðmælandinn framkallar í myrkra- herbergi gulnað blað sem hann finnur í gamla bænum og þegar hann lítur svo hið liðna „streyma orðin áreynslulaust / í leysingum blaðs- ins í augun / – ár mæta grænum sjónum // Og þar birtist smám sam- an ljóð / sem hann hafði fundið í ár- farveginum / sumarið sjötíu og fjögur“. Ljóðaheimurinn mótast af minn- ingum frá þessu löngu liðna sumri. Lífið við bakkana, veiðifiðringur og annar fiðringur í tilfinningalífi ungs manns eru áberandi – oft hugsanir um stúlkur. Í ljóðinu „Einn á báti“ kallar piltur nafn einnar af öllum kröftum og „… vængjað kallið / berst yfir rautt vatn og svartan sand / þessa fimm kílómetra heim // Smám saman dregur úr því mátt- inn / uns það snertir loks glugga- rúðu hennar / létt sem vængjatak fiðrildis / um leið og hún / byltir sér í rúminu …“ Og hugsað er til annarrar stúlku sem ánetjaðist ekki: Hann felldi net hárfínt táranet Svo hárfínt að hún fann ekki fyrir því Ég vissi reyndar aldrei hvar ætti að leggja það Netið er endurtekinn efniviður mynda og sjálf viðureignin við lax- inn kallar. Veiðieðlið getur verið sterkt í mönnum og tengslin við náttúruna verða iðulega sterk við veiðar. Í sumum ljóðanna kemst það vel til skila. En eins og með önnur ljóð bókarinnar eru veiði- ljóðin afar missterk. Þau bestu eru yfirleitt þau einföldu, þar sem skáldið gengur ekki langt í mynd- byggingum, og gætir þess að nykra ekki. Þegar best tekst til eru myndirnar vel lukkaðar eins og í „Kvöldvitjun“ þar sem síðasta er- indið er: Ég skeyti ekki um kvöldið en þegar hallar að óttu hrindi ég bátnum á flot og læt ána bera mig til þín inn í risbláan morgun. Í heildina er bókin nokkuð sund- urlaus – og finna má fyrir áhrifum frá ólíkum skáldum – og hefði að ósekju mátt þétta verkið betur. Á stundum hættir skáldinu til að segja of mikið, halda of lengi áfram með útskýringu á hugsun, í stað þess að treysta uppbyggingu fyrstu erindanna til að skapa heim og stemningu í huga lesandans. En á milli eru prýðileg kvæði og sterkar myndir, enda heildarhugmyndin áhugaverð. Bókin er skreytt rúmlega 20 svarthvítum teikningum Soffíu Sæ- mundsdóttur. Annars vegar hlut- bundið riss af mönnum, fjalla- formum og árlandslagi. Þessar myndir vinna ágætlega með ljóð- unum og heimi þeirra, en óhlut- bundin form sem standa á móti sumum ljóðanna, ljóðræn blekform og daufar blýantsskissur, ná vart að lifna á síðunum. Morgunblaðið/Golli Skáldið Ljóðin í bók Þorláks hverf- ast flest á einn eða annan hátt um netaveiðar á laxi. Ljóð með sprett- hörðum löxum Ljóð Tuttugu þúsund flóð bbmnn Eftir Þorlák Karlsson. Myndskreytingar: Soffía Sæmundsdóttir. Sæmundur, 2012. 83 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Limrur eru óheilagasturalls kveðskapar, svostirðlega sem það hljóm-ar. Því má það merkilegt heita, ef marka má formála Péturs Blöndals að Limrubókinni, að einna fyrst sé bragarháttinn að finna á Íslandi í sálmi eftir sr. Valdimar Briem. Sá formáli er fróðlegur um margt varðandi limruna, einkenni hennar, uppruna og íslensk sérkenni. Hún er vissu- lega knappur háttur sem byggir á kerskni og klámi. Þrjár langar lín- ur og tvær stuttar. Limrur eru hvorki ortar fyrir teprur né femín- ista. Þær eru oftast ortar af mið- aldra karlmönnum sem reyna að vera fyndnir á annarra kostnað og hafa með hættinum einstakt tæki- færi til að bulla á mótsagnafullan hátt án þess að verða sér til skammar. Þær eru því oft óprent- hæfar. Kristján Karlsson komst svo að orði um þær: „Mergurinn málsins er sá að þetta ljóðform, limran, er alin upp við alls konar sóðaskap frá fyrstu tíð og kann bezt við sig í honum, þó að ýmsir hafi leitazt við að siða hana …“ Af þessu leiðir að úrvalið í Limrubókinni er afar fjölbreyti- legt, allt frá klámi, kerskni og níði til fágaðrar hnyttni. Sumt er glæsilega ort, annað skondið og á mörkum þess að vera prenthæft. Margar perlur limruskáldskapar- ins er að finna í þessari bók eftir höfunda á borð við Þorstein Valdi- marsson, Kristján Karlsson, þá langfeðga, Kristján, Þórarin og Ara Eldjárn, Jóhann S. Hannes- son, Hrólf Sveinsson (sem hét víst líka öðru nafni), Anton Helga Jónsson og Jónas Árnason, svo að einhverjir séu nefndir. Það er við hæfi að tilfæra eina limru, kannski lýsir hún landanum vel. Hún er eftir Jóhann S. Hannesson: Að uppruna erum við norsk, að innræti meinleg og sposk, en langt fram í ættir minna útlit og hættir á ýsu og steinbít og þorsk. Limrubókin er full með gaman- mál sem gætu meitt viðkvæmar sálir. En margar limrurnar í bók- inni eru sannar perlur og inngang- urinn eftir Pétur Blöndal er fróð- legur. Morgunblaðið/Kristinn Gamanmál „Sumt er glæsilega ort, annað skondið og á mörkum þess að vera prenthæft,“ segir um Limrubókina sem Pétur Blöndal hefur tekið saman. Limrukveðskapur Ljóð Limrubókin – Snjöllustu, fyndnustu og furðulegustu limrurnar bbbnn Pétur Blöndal tók saman. Almenna bókafélagið 2012, 260 bls. SKAFTI Þ. HALLDÓRSSON BÆKUR MBL Í 2D OG 3D MEÐ ÍSLENSKU TALI Í 2D MEÐ ENSKU TALI/ÍSL TEXTA -FBL -FRÉTTATÍMINN L FRÁBÆR FJÖLSKYLDUSKEMMTUN FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR OG TILB OÐ TILB OÐ TILB OÐ TILB OÐ TILB OÐ TILB OÐ TILB OÐ TILB OÐ MÖGNUÐSPENNUMYND „BESTA ILLMENNI ÞESSA ÁRS – MATTHEW FOX“ PETE HAMMOND - BOX OFFICE EGILSHÖLLÁLFABAKKA VIP RED DAWN KL. 5:50 - 8 - 10:10 RED DAWN VIP KL. 5:50 - 8 - 10:20 RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTALI3D KL. 5:50 RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTALI KL. 5:50 RISE OF THE GUARDIANS ENSTALI KL. 10:10 PLAYING FOR KEEPS KL. 8 - 10:20 CHRISTMAS VACATION KL. 5:50 - 8 ALEX CROSS KL. 10:30 TWILIGHT: BREAKING DAWN PART 2 KL. 8 WRECK-IT RALPH ÍSL.TALI KL. 5:50 ARGO KL. 8 - 10:30 AKUREYRI RED DAWN KL. 8 - 10:10 RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTALI3D KL. 6 CHRISTMAS VACATION KL. 6 - 8 ALEX CROSS KL. 10:10 KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI RED DAWN KL. 10:20 - 11 RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTAL3DK L . 3 RISEOFTHEGUARDIANS ÍSLTALKL. 5:50 RISE OF THE GUARDIANS ENSTALKL. 8 PLAYING FOR KEEPS KL. 5:40 - 8 SKYFALL KL. 5 - 8 - 10:10 KEFLAVÍK RED DAWN KL. 10:10 RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTALKL. 5:50 PLAYING FOR KEEPS KL. 8 CHRISTMAS VACATION KL. 5:50 - 8 ALEX CROSS KL. 10:10 RED DAWN KL. 8 - 10:10 RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTAL3DKL. 5:30 RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTALKL. 5:50 ALEX CROSS KL. 8 - 10:20 TWILIGHTBREAKINGDAWNPART2 KL. 5:30 - 8 HERE COMES BOOM KL. 8 - 10:30 ARGO KL. 10:20 WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 5:40 ÞRIÐJUDAGS TILBOÐ Í DAG TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á TILBO Ð TILB OÐ LINNETSSTÍG 2 | SÍMI: 565-4854 Mánudag - Föstudag 11:00 - 18:00 | Laugardagur 11:00 - 14:00 w w w . s i g g a o g t i m o . i s Handsmíðað í Hafnarfirði síðan 1993

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.