Morgunblaðið - 11.01.2013, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.01.2013, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Vestmannaeyingar undirbúa nú minningarathöfn vegna 40 ára frá upphafi eldgossins í Heimaey hinn 23. janúar 1973. Athöfnin miðviku- daginn 23. janúar næstkomandi verður á lágstemmdum nótum, að sögn Kristínar Jóhannsdóttur, ferða- og menningarmálafulltrúa Vestmannaeyjabæjar. Von er á sendiherrum erlendra ríkja sem komu mikið við sögu í gosinu, bisk- upi Íslands og fleiri fyrirmennum til Eyja. Forseta Íslands hefur einnig verið boðið til athafnarinnar. „Sendiherra Bandaríkjanna kem- ur en Bandaríkjamenn hjálpuðu okkur mikið og eins sendiherra Nor- egs og Norðmenn gerðu mikið fyrir okkur. Þeir hafa báðir staðfest komu sína,“ sagði Kristín. Hún sagði að minninarathöfnin ætti að vera tákn- ræn og lágstemmd. „Við ætlum að hittast í Landa- kirkju og þar verður stutt athöfn. Agnes M. Sigurðardóttir biskup verður þar og eitthvað af prestum sem hafa starfað hér í gegnum tíð- ina,“ sagði Kristín. „Það verður kveikt á blysum eftir allri gos- sprungunni sem opnaðist um nóttina forðum. Einnig verður farin blysför frá kirkjunni og niður að höfn. Það fer eftir veðri hvort við förum inn í Herjólf eða verðum úti. Þar verða bæði ávörp og tónlistaratriði sem hæfa þessu tilefni.“ Goslokanefnd og Vestmannaeyja- bær hafa óskað eftir því við útgerð Herjólfs að seinni ferð ferjunnar falli niður hinn 23. janúar nk. Það er til þess að skipið verði til taks vegna minningarstundarinnar. Dagskráin hefst um klukkan 19.00. Kristín sagði að bæði Ríkis- sjónvarpið og Stöð 2 ætluðu að fjalla um 40 ára afmæli Heimaeyjargoss- ins. Ljósmyndasýning um Heimaeyj- argosið verður opnuð í Sagnheimum, byggðasafni Vestmannaeyja, klukk- an 17.00 um daginn. Þar verða sýnd- ar myndir eftir ljósmyndara sem störfuðu í Vestmannaeyjum í gosinu. Þar á meðal má nefna Sigurgeir Jón- asson, Guðmund Sigfússon, Hjálmar R. Bárðarson og Kristin Benedikts- son. Eftir að dagskrá lýkur við höfnina verða opin kaffihús, m.a. Vinaminni og Kaffi Kró. Þar verða bæði veit- ingar og tónlistaratriði. „Þetta verður upphafið á stóru af- mælisári,“ sagði Kristín. Goslokahá- tíðin verður haldin helgina 5.-7. júlí í sumar. Þar verður mikil dagskrá. Í haust, 14. nóvember, verða 50 ár lið- in frá upphafi Surtseyjargossins. Kristín sagði stefnt að því að halda Surtseyjarhátíð í Eyjum í haust. Lágstemmd gosminningar- hátíð í Vestmannaeyjum Morgunblaðið/Ól.K.M. Eyjagosið 1973 Eldsprungan opnaðist aðfaranótt 23. janúar. Vestmannaeyingar flúðu á fiskibátum til lands.  Vestmannaeyingar minnast þess að 40 ár eru frá upphafi eldgossins í Heimaey Eldgosið í Heimaey sem hófst þann 23. janúar 1973 var fyrsta eldgosið í byggð á Íslandi. Gosið hófst um fimm mínútum fyrir klukkan tvö um nóttina. 1.600 metra löng gossprunga opnaðist á austurhluta Heimaeyjar. Fólk vaknaði eða var vakið, það yfirgaf heimili sín og streymdi nið- ur á bryggjur og um borð í fiski- báta sem voru í landi vegna brælu daginn áður. Fyrsti báturinn lagði úr höfn rúmum hálftíma eftir að gosið hófst. Einnig streymdu flug- vélar til Eyja að sækja fólk. Goslokum var lýst yfir þann 3. júlí 1973. Nánar má lesa um eldgosið á vefsíðunni Heimaslóð (heimaslod.is). Flúðu heimili sín að næturlagi HEIMAEYJARGOSIÐ VAR FYRSTA ELDGOSIÐ Í BYGGÐ Á ÍSLANDI Aska yfir öllu. Lögreglustjórinn á höfuðborgar- svæðinu afgreiddi ekki beiðni ein- staklings um að fá skýrslu um mót- mæli á árunum 2008 til 2011 afhenta á réttum lagagrundvelli og þarf að taka beiðnina til umfjöll- unar á nýjan leik. Þetta er niður- staða úrskurðarnefndar upplýs- ingamála en einstaklingurinn kærði höfnun lögreglustjórans til nefndarinnar. Skýrslan kallast „Samantekt á skipulagi lögreglu við mótmælin 2008 til 2011“ en lögreglustjóri neitaði að afhenda hana, meðal annars á þeim forsendum að hún innihéldi ítarlegar upplýsingar úr málaskrá lögreglu, þar á meðal upplýsingar um afskipti lögreglu af nafngreindum einstaklingum. Skýrslan félli því undir undantekn- ingar í upplýsingalögum um gögn úr rannsókn eða saksókn sakamáls. Kærandinn hélt því hins vegar fram ekki væri skýrt að um rannsóknar- gagn væri að ræða. Þar sem úrskurðarnefndin gat ekki fullyrt að í skýrslunni væru ekki upplýsingar sem rétt væri að færu leynt var lögreglustjóra skip- að að fjalla aftur um beiðnina. Morgunblaðið/Golli Búsáhaldabyltingin Skýrslan fjall- aði um mótmæli í kjölfar hrunsins. Fjalli aftur um ósk um mótmæla- skýrslu DREIFARAR • SNJÓTENNUR • SNJÓBLÁSARAR • SLITBLÖÐ A. Wendel ehf | Tangarhöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 551 5464 | wendel.is Tæki til vetrarþjónustu Stofnað 1957 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum þann 15. janúar á frábæru tilboði. Þú bókar flugsæti og þremur dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. frá kr. 89.900 Kanarí 15. janúar í 2 vikur Frá kr. 89.900 Netverð á mann, m.v. 2 – 4 í studio / íbúð í 14 nætur. stökktu til

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.