Morgunblaðið - 11.01.2013, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013
SVIÐSLJÓS
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Vonir standa til að framkvæmdir
hefjist á næstu vikum við stækkun
fræðslumiðstöðvarinnar á Hakinu
og stækkun bílastæða til að þjóna
megi betur gestum þjóðgarðsins á
Þingvöllum. Að sögn Ólafs Arnar
Haraldssonar þjóðgarðsvarðar er
unnið að undirbúningi byggingar
veitingahúss í stað Valhallar, en það
verkefni er skemmra á veg komið.
Hann segist þó reikna með að ráðist
verði í slíka framkvæmd jafnvel á
næsta ári og vill að í byggingunni
verði aðstaða fyrir fundi Alþingis.
„Slíkt er einfaldlega samofið sögu
staðarins og eðlilegt að Alþingi eigi
þar ríkan þátt,“ segir Ólafur.
Sótt er um fjárveitingar úr Fram-
kvæmdasjóði ferðamannastaða, en
ákveðið var á fjárlögum að setja 500
milljónir króna í ár í framkvæmdir í
þjóðgöðrum og öðrum fjölsóttum
stöðum. Forsvarsmenn slíkra staða
hafa verið boðaðir á fund stjórnar
sjóðsins um miðjan mánuðinn og
segist Ólafur gera sér vonir um að
160 milljónir verði í ár veittar til
uppbyggingar á Hakinu.
Örtröð á hverjum sumardegi
Þetta er fyrsti áfangi og er þar
m.a. fyrirhuguð stækkun fræðslu-
miðstöðvar með nýrri margmiðl-
unarsýningu. Byggja á þjónustuhús
með verslun og kaffistað, lítið starfs-
mannahús og stækka bílaplanið.
Ólafur segir að þessar framkvæmdir
rúmist innan gildandi deiliskipulags
og hægt að hefja framkvæmdir um
leið og fjárveiting liggi fyrir.
„Á Hakinu er örtröð, ekki bara á
stórhátíðum Íslendinga, heldur nán-
ast daglega á ferðamannatímanum,“
segir Ólafur Örn. „Ein milljón
manna fer á hverju ári í gegnum
þjóðgarðinn og tekið er á móti um
hálfri milljón manns á Hakinu ár-
lega. Þar er í rauninni einn helsti
staður þjóðarinnar til að taka á móti
erlendum og innlendum gestum og
gríðarleg örtröð og mikið álag. Það
er sómi okkar að vel sé tekið á móti
öllu þessu fólki og okkur er ekkert
að vanbúnaði að byrja.
Við viljum bæta við nýrri marg-
miðlunarsýningu um söguna, nátt-
úruna og staðinn og auka þjónustu
við gesti. Bílastæði þarf að stækka
til að auka öryggi því oft eru þarna
12-20 rútubílar og að auki einkabílar
sem er lagt út eftir öllum afleggj-
aranum, langleiðina út á þjóðveg.
Þessari bílaþvögu fylgir slysahætta
og álag á umhverfið, sem brýnt er
að bæta úr.“ Arkitektastofan Gláma
Kím og Landslag ehf. hafa starfað
með Þingvallanefnd að undirbúningi
framkvæmda á Hakinu.
Notalegt veitingahús
Varðandi aðra uppbyggingu á
Þingvöllum segir Ólafur að ekkert
sé ákveðið, en mikil vinna hafi þegar
verið unnin við undirbúning upp-
byggingar frekari þjónustu á svæð-
inu. Hugmyndaleit meðal almenn-
ings hafi skilað mörgum hug-
myndum og flestir hafi viljað aukna
þjónustu. Unnið hafi verið úr þess-
um hugmyndum með aðstoð fyr-
irtækisins Alta og fleiri aðila.
„Í þeirri vinnu var spurt hvar ný
Valhöll ætti að vera og hvers konar
þjónusta ætti að vera þar,“ segir
Ólafur. „Niðurstaðan er sú að þarna
verði notalegt veitingahús fyrir
ferðamenn með góðri þjónustu en
þó ekki of dýrt. Í öðru lagi veislusal-
ur sem m.a. mætti nota við stór-
afmæli og brúðkaup. Þar mætti líka
halda minni ráðstefnur og þar á Al-
þingi að geta komið saman, því þing-
ið og Þingvellir eru samofnir þættir
í sögu okkar og menningu.
Þriðji rekstrarþátturinn væri síð-
an hótel, en engin niðurstaða er á
þessu stigi hvort af slíkri byggingu
og rekstri verði. Bent hefur verið á
að sú framkvæmd sé dýrari og
flóknari en hinar, kalli á flóknari
rekstur og umhverfisáhrifin séu
meiri.“
Nýlega lauk vinnu við úttekt á
byggingarstæðum fyrir nýja Valhöll
og var í forsendum miðað við núver-
andi ýmsar tæknilegar aðstæður svo
sem í samgöngum, veitukerfi, jarð-
fræði, vernd vatnasviðs sem og
stefnur og áætlanir.
Hakið hentar best
Fjórir staðir voru skoðaðir fyrir
slíka byggingu og er það mat VSÓ
verkfræðistofu að uppbygging við
Hakið falli best að þeim matsþáttum
sem til skoðunar voru. Næst væri
það Gjábakki, svo Efri-Vellir, þ.e.
neðan við Öxarárfoss nærri Furu-
lundinum, og að lokum gamla Val-
hallarsvæðið. VSÓ bendir á að eftir
er að skoða svæðin með tilliti til
sjónrænna áhrifa, notagildis auk
annarra þátta sem skoðaðir verða í
framhaldi af þessari úttekt.
Ólafur telur ekki óeðlilegt að úr
því verði skorið á þessu ári hvar
byggingin á að vera og hvaða starf-
semi hún hýsi. Hann segist gera sér
vonir um að framkvæmdir geti haf-
ist árið 2014. Fjármögnun liggur
ekki fyrir og ekki hefur enn verið
gengið frá greiðslu tryggingabóta til
ríkisins vegna brunans í Valhöll
sumarið 2009.
Vilja hefja úrbætur á Hakinu í vor
Ljósmynd/Einar Á.E. Sæmundsen
Örtröð Mikið álag er á og við Hakið flesta daga ferðamannatímans, enda talið að um hálf milljón manna stoppi þar árlega. Brýnt er að bæta aðstöðuna þar og fjölga bílastæðum.
Um hálf milljón ferðamanna kemur við á Hakinu árlega Sótt um fjárveitingu úr Framkvæmda-
sjóði ferðamannastaða Framkvæmdir við nýtt veitingahús í stað Valhallar hefjast mögulega 2014
Miðað við tæknilegar forsendur kemur Hakið best út hvað varðar bygg-
ingu veitingahúss. Spurður hvort Hakið gegni sama hlutverki í hugum
fólks og svæði nálægt gömlu Valhöll, segir Ólafur Örn Haraldsson þjóð-
garðsvörður að sjónarmið fólks séu eflaust margvísleg.
Vissulega hafi hann heyrt fólk segja að Þingvellir væru ekki á Hakinu
heldur nær þinghelginni þar sem er vatnið og meira skjól og sagan við
hvert fótmál. Á móti komi að þar eru áhrif mannvirkja og umferðar meiri
og umhverfi viðkvæmara. Í þeirri tæknilegu úttekt sem nú liggi fyrir sé
engin afstaða tekin til þessa og næsti kafli hljóti að snúast um mögulega
staðsetningu þar sem tillit verði tekið til sjónrænna, sögulegra og tilfinn-
ingalegra þátta.
Þingvellir nær þinghelginni
MARGVÍSLEG SJÓNARMIÐ ÞEGAR KEMUR AÐ STAÐSETNINGU
Þingvallakirkja í haustlitum.
Þingvellir
Efrivellir
Valhöll
Hakið
Gjábakki
Þingvallavatn
Loftmyndir ehf.
Rauðukusunes
Lambhagi Vatnsvík
Öx
ar
á
Þingvallahraun
Aðstaðan á Hakinu
Mynd: Landslag/Gláma•Kím
88 bílastæði
Starfsm
annahú
s Sal
ernista
ðstaða
Stækkun
miðstöðvar
Fræðslu-
miðstöð
Núv.
bygging
Óraskað
land Óraskað
land
Óraskað
land
Al
m
an
na
gj
á
Morgunblaðið/Ómar
Gestir Margir tignir gestir heimsækja Þingvelli á hverju ári. Ólafur Örn
Haraldsson með Helle Thorning Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur.
Morgunblaðið/Ómar