Morgunblaðið - 11.01.2013, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013
um jarðar á helgistað Íslands.
Það var einfaldlega allt fallegt við
hann Bjössa og það var ekki í
hans anda að kveðja nema í feg-
urð.
Kveðjustundin er sérstaklega
sár; ungur maður sem lagt hefur
hart að sér við nám og þroska og
náð hverjum áfanganum á fætur
öðrum, stendur á tindinum þegar
honum er kippt burt. Ekki efa ég
þó að hann hefði átt eftir að njóta
útsýnisins af enn hærri tindum.
Hann var nokkurn tíma að átta
sig á því hvað hann vildi gera í líf-
inu, enda móðurmissir á unga
aldri ekki léttur. En þegar hann
hafði fundið sína leið hurfu allir
farartálmar og með sínu góða
veganesti birtist leiðin, bein og
breið og bara upp á við. Á þeim
stutta tíma frá því hann lauk námi
hafði hann náð einstökum árangri
í starfi. Það er huggun harmi
gegn að hann fékk að njóta ávaxta
erfiðis síns, þó ekki væri lengi.
Mín ósk er að líf hans geti orðið
þeirri kynslóð sem mun taka við
landinu hvatning.
Líf Bjössa varð stutt en það
var gott og innihaldsríkt líf. Hann
átti mörg áhugamál sem hann
sinnti af eldmóði. Hann var leit-
andi og forvitinn og vopnaður
hugrekki naut hann sín í útivist
jafnt og hugleiðingum um stóru
málin. Glaðlegt og hlýlegt viðmót
hans í allra garð endurspeglaði
hans góða innræti og gleði yfir líf-
inu. Í starfi sínu sem fulltrúi Ís-
lands út um allan heim naut hann
virðingar en ég tel samt að allir
þeir sem kynntust honum, bæði í
starfi eða leik, minnist aðallega
hans einstaklega góðu nærveru,
hlýleika, heiðarleika og hrein-
skilni.
Allt frá barnæsku var Bjössi
með skemmtilegt „glimt í öjet“
sem lýsti upp andlit hans í sam-
blandi af glettni og góðmennsku.
Mér fannst þessi bróðursonur
minn alltaf sérstaklega fallegur.
Eitt sinn var ég að passa hann hér
í Lönguhlíðinni og horfði á hann
sofandi og þeirri hugsun laust
niður að það væri ekki til neitt fal-
legra né fullkomnara en þessi sof-
andi drengur. Þegar hann óx úr
grasi jókst bara við sjarmann og
útgeislunin var áþreifanleg.
Hann var ekkert að láta mig
föðursysturina finna fyrir aldurs-
muninum og ræddi opnum huga
sín persónulegu málefni við mig
ef svo bar við. Eftir að hann flutti
til Genfar plönuðum við að heim-
sækja hvort annað. Ég mun alltaf
sjá eftir að hafa ekki látið verða af
því en sem betur fer var hann
fyrri til og heimsótti mig til Ítalíu.
Hann var ekki fyrr kominn en
hann var rokinn af stað að kanna
fjalllendið, það varð að heils dags
fjallgöngu. Eðalrauðvínsflöskuna
sem hann skildi eftir hjá mér á ég
enn óupptekna og ég mun opna
hana á afmælisdaginn hans í sum-
ar, minnug þess að það sem lirfan
kallar endalok lífsins kalla allir
aðrir fiðrildi (Lao Tze).
Megi björt og fögur minning
Bjössa vera ávallt með okkur öll-
um sem nutum þeirra forréttinda
að fá að ganga með honum um
stund. Foreldrum og systkinum
óska ég styrks og blessunar.
Guðrún S. Sigurðardóttir.
Mín sterkasta minning um
Bjössa er einnig mín fyrsta. Það
var á stofugólfinu í Lönguhlíð 11,
hann var rúmlega eins árs og ég
rúmlega tíu. Við höfðum saman
fundið upp einfaldan leik og sát-
um þarna á gólfinu og hlógum og
endurtókum leikinn og hlógum
meira og endurtókum. Ég man
eftir andliti þessa káta og fallega
barns, hann var eins fríður og
hægt var að vera. Ég heyri ennþá
hlátur hans. Það var eins og eitt-
hvað úr þessum litla leik þarna á
stofugólfinu væri alltaf með okk-
ur Bjössa, allavega var ég alltaf
kát að hitta hann, þó stundum liðu
ár á milli.
Á síðustu árum fann ég betur
og betur hvað við áttum margt
sameiginlegt, bæði í áhugamálum
og á einhvern hátt líka varðandi
störf okkar, þó ólík væru. Núna
er ég óendanlega þakklát fyrir að
hafa að minnsta kosti átt örlítinn
tíma til að kynnast Bjössa sem
fullorðnum manni, sjá inn í líf
hans í Genf og heimsækja hann
þar.
Bjössi bjó yfir mörgum góðum
gáfum. Hann var skarpgreindur
og það sýndi sig vel í lögfræðinni
og starfi hans og frama hjá EFTA
í Genf. Bjössi kunni að halda uppi
fjöri, hvort sem var í Skátum eða
á meðal vina, og það var alltaf
stutt í húmorinn. Hann tók sjálf-
an sig ekki of alvarlega. Það var
gott að leita til hans og viðmót
hans var alltaf jákvætt, opið og
einlægt.
Það að reyna að sætta sig við
að Bjössi sé farinn frá okkur, á
þann stað þaðan sem ekki verður
aftur snúið, er sárt og manni
finnst það eiginlega ómögulegt.
Ég mun alltaf sakna hans. Ég er
þakklát fyrir tíma okkar saman,
sem var alltof stuttur. Maður
stólar alltaf á framtíðina, svo einn
daginn er framtíðin orðin að for-
tíð. En áfram lifir ástin á Bjössa,
og stolt yfir lífi hans og afrekum.
Hvíl í friði, fallegi frændi minn.
Katrín Sigurðardóttir.
Með sorg í hjarta kveð ég besta
vin minn, hann Björn Kolbeins-
son.
Hann Bjössi, eins og ég kallaði
hann alltaf, var einstakur maður.
Hann var aldrei hræddur við að
prófa eitthvað nýtt eða ferðast á
framandi staði, ég dáðist að því
hvað hann var hugrakkur og æv-
intýragjarn. Það var alltaf
skemmtilegt að heyra sögurnar
hans frá ferðalögum hans um
heiminn.
Hann var vinur vina sinna, ég
vissi alltaf að ég gæti leitað til
hans og ósjaldan spjölluðum við
um allt á milli himins og jarðar.
Það var alltaf gaman með Bjössa,
við gátum endalaust sagt hvort
öðru aulabrandara og hlegið og
látið eins og kjánar. Hann hafði
góða nærveru og öllum líkaði vel
við hann.
Hvert sem hann fór fylgdi hon-
um alltaf gleði og hlátur.
Ég man enn þann dag þegar
við kynntumst fyrir allmörgum
árum, hvað hann var opinskár og
með einstakt bros, við urðum
bestu vinir frá fyrsta degi. Þó að
við byggjum seinna sitt í hvoru
landinu þá héldum við alltaf sam-
bandi og hittumst eins oft og
hægt var. Mér þótti óskaplega
vænt um hann Bjössa og ég sendi
foreldrum hans og fjölskyldu
mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Ég vil gjarnan lítið ljóð
láta af hendi rakna.
Eftir kynni afargóð
ég alltaf mun þín sakna.
(Guðrún V. Gísladóttir.)
Elsku Bjössi. Takk fyrir allt,
elsku vinur minn, ég gleymi þér
ekki.
Anna Einarsdóttir-Kaaber.
Björn Kolbeinsson, lögfræð-
ingur á Genfarskrifstofu Frí-
verslunarsamtaka Evrópu (
EFTA), gekk til liðs við samtökin
í september 2009. Hann var þá
rétt rúmlega þrítugur, en bar
með sér þroska og reynslu um-
fram aldur sinn. Hann naut upp-
vaxtar síns erlendis, talaði helstu
tungur meginlandsins og þekkti
ólíka menningarheima þess og
venjur. En hann var umfram allt
einlægur Íslendingur. Á Íslandi
var fjölskylda hans og við Ísland
var hugur hans jafnan bundinn.
Stjórnarskrá, Icesave eða eldgos.
Við landar hans á EFTA-gangin-
um í Genf gátum ætíð gengið að
því vísu að Björn yrði fyrstur með
fréttirnar.
Fríverslunarmálin eru stærstu
og þýðingarmestu störf fasta-
nefndar Íslands í Genf. Vegna
þeirra er sendiherrann þar í dag-
legu sambandi við EFTA-skrif-
stofuna og haustið 2009 fangaði
hinn nýi liðsmaður EFTA strax
athygli mína. Vinnubrögð hans og
eljusemi vöktu traust. Á löngum
og oft erfiðum samningaferðum
til fjarlægra heimshorna kynntist
ég honum líka sem góðum og
hjálpsömum félaga.
Birni voru fljótlega falin stór
verkefni hjá EFTA. Hann fór
með vandasama málaflokka svo
sem hugverkarétt og síðar sam-
keppnismál. Hann sá um fram-
kvæmd fríverslunarsamninga við
m.a. Arabaríkin við Persaflóa,
Suður-Kóreu og Serbíu. Frá síð-
asta sumri bar hann líka ábyrgð á
lögfræðistörfum Genfarskrifstof-
unnar á fríverslunarsviðinu.
Hann var einnig umsjónarmaður
yfirstandandi viðræðna EFTA-
ríkjanna við Rússland, Hvíta-
Rússland og Kasakstan, ein-
hverra flóknustu fríverslunar-
samninga sem EFTA hefur enn
hleypt af stokkunum. Allt ber
þetta vott um það traust sem
Björn naut, bæði meðal sam-
verkamanna sinna og aðalsamn-
ingamanna EFTA-ríkjanna.
Þegar ég hóf svo störf sem
framkvæmdastjóri samtakanna
síðastliðið haust urðu mér mann-
kostir Björns enn ljósari. Hann
var afburðastarfsmaður. Hann
var hlýr, einlægur og hjarta-
hreinn. Hann var harðjaxl til
verka og hvers manns hugljúfi.
Hann var í stjórn starfsmanna-
félags EFTA og starfandi for-
maður þegar hann lést. Þannig
kynntist ég einnig þeirri hlið
Björns sem laut að áhuga hans á
velferð félaga sinna og á samtök-
unum sem stofnun og vinnustað.
Hann var rökfastur en sanngjarn,
og samstarfsfólk og yfirstjórn
treystu honum í hvívetna.
Nú er þessari alltof stuttu sam-
ferð lokið. Björns verður sárt
saknað. Fyrir hönd samtakanna
og starfsfólksins vil ég votta fjöl-
skyldu Björns, foreldrum og
systkinum, einlæga samúð.
Kristinn F. Árnason,
framkvæmdastjóri EFTA.
Það er óendanlega sársauka-
fullt að þurfa að skrifa þessar lín-
ur. Ég er ennþá að venjast þeirri
tilhugsun að þú sért farinn. Mað-
ur í blóma lífsins sem áttir fram-
tíðina fyrir þér. Maður sem var
holdgervingur lífsins.
Ég kynntist Bjössa þegar við
leigðum saman íbúð á Guðrúnar-
götu í Norðurmýrinni. Mér byrj-
aði strax að líka við hann eftir
fyrsta símtalið. Við áttum margt
sameiginlegt, vorum jafnaldrar,
þekktum sama fólkið en höfðum
aldrei hist áður. Við urðum mjög
góðir vinir á mjög stuttum tíma
og leigðum saman í tvö ár. Það
var aldrei nein lognmolla í kring-
um Bjössa, hann var alltaf kátur
og hress. Hann kunni að
skemmta sér og njóta lífsins.
Hann kom alltaf vel fyrir en gat
bitið frá sér ef honum var misboð-
ið. Bjössi hafði mikla réttlætis-
kennd. Hann var mesti dýravinur
sem ég hef kynnst og tók hags-
muni kattarins Jóhannesar fram
yfir flesta aðra hagsmuni. Hann
hafði róttækar skoðanir, var víð-
sýnn og laus við allan rétttrúnað.
Hann var mjög rökfastur og það
var erfitt að stoppa hann þegar
hann komst í gang. Í Búsáhalda-
byltingunni naut Bjössi sín í botn
og vorum við oft saman að mót-
mæla. Bjössi lagði sitt af mörkum
í þeirri byltingu.
Þó að Bjössi hafi farið alltof
snemma naut hann lífsins á með-
an hann lifði og upplifði margt.
Bjössi var mikill ævintýramaður,
hann ferðaðist víða og bjó í mörg-
um löndum. Hann var sannkall-
aður heimsborgari, bæði í hugsun
og útliti. Bjössi spilaði í mörgum
hljómsveitum og hafði þann
sveigjanleika að geta unnið á
skrifstofu á daginn og slammað á
kvöldin. Hann samdi mikið af lög-
um og hefði getað spjarað sig
ágætlega á hinu listræna sviði.
En hann fór í lögfræði og fann sig
vel á því sviði líka. Á seinni árum
breyttist hann svo í útivistarfrík
og var búinn að taka allan skalann
í þeim efnum. Það var í eðli
Bjössa að taka allt með trompi.
Ég fór einu sinni með Bjössa á
skíði og hann endaði á spítala, við-
beinsbrotinn.
Það varð mikil breyting á lífi
Bjössa þegar hann fékk starfið
hjá EFTA. Hann var valinn úr
hópi mörg hundruð umsækjenda
og enginn skildi hvernig nýút-
skrifaður og reynslulítill lögmað-
ur gat skákað öllum hinum. Hann
trúði því varla sjálfur. Ég tel að
persónuleiki Bjössa hafi ráðið þar
miklu; hann hafði svo gott lag á að
ná til fólks. Bjössi var allt í einu
kominn í vel launað starf hjá al-
þjóðlegri stofnun í Sviss. Maður
sem bjó í kjallaraíbúð í Norður-
mýrinni og spilaði í pönkhljóm-
sveit var allt í einu orðinn samn-
ingamaður hjá EFTA. Einhverjir
hefðu sennilega misst tengsl við
raunveruleikann við það að kom-
ast í slíka stöðu, en það gerði
Bjössi ekki. Þegar ég heimsótti
hann í sumar hafði Bjössinn ekk-
ert breyst. Hann var að vísu kom-
inn í dýr jakkaföt og keyrði um á
blæjubíl, en hans innri maður var
sá sami. Og kötturinn var á sínum
stað eftir að hafa þurft að dúsa í
einangrun í margar vikur. Bjössi
var algjör höfðingi heim að sækja,
við fórum saman í ferðalag um
Alpana og mun ég seint gleyma
þeirri ferð. Það voru mínir síð-
ustu dagar með Bjössa. Þeir
hefðu mátt vera fleiri. Hvíl í friði
kæri vinur.
Grímur Hákonarson.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjót-
andi að kynnast mikilmenninu og
gleðigjafanum Birni Kolbeinssyni
í gegnum hljómsveitarstúss í
Reykjavíkurborg og öll þau æv-
intýri sem slíku fylgja; margt
langt og gott spjall við bjórblaut
barborð meðan á hljóðprufum
stóð, stolnir smókar meðan beðið
var átekta, rótferðir og biðraða-
barningur. Hvílík ævarandi ham-
ingja.
Leiðir okkar lágu saman um
miðjan síðasta áratug þar sem
hann gerði garðinn frægan með
hinum mikilfenglegu Skátum.
Skátar voru ákaflega merk
hljómsveit, en lengi var eitt helsta
einkennismerki hennar breitt og
blítt bros Björns sem skein af
sviðinu eins og sólin og sást
lengst aftur í sal. Þrátt fyrir að
Skátar hafi leikið oft á tíðum flók-
ið stærðfræðirokk sem jafnvel
gæti fælt einhverja frá gerði fas
sveitarinnar og framkoma það að
verkum að allir fundu sig á tón-
leikum hennar – og þar réð kæti
og brosmildi Bjössa miklu um.
Björns má minnast fyrir marg-
ar sakir, en þegar ég hef hugsað
til hans síðustu daga stendur upp
úr hvað hann virtist eiga auðvelt
með að vera hlýr, glaður og já-
kvæður í allra garð, hvernig hann
bauð nýtt fólk velkomið, lét því
finnast það vera hluti af hópnum,
og naut þess að eignast nýja fé-
laga og spjalla við ókunnuga.
Þetta vil ég taka mér til fyrir-
myndar og það mættu aðrir eins
gera.
Eftir að Björn lagðist í heims-
hornaflakk hittumst við ekki oft,
en þegar svo bar að við mættumst
í Reykjavík urðu ávallt fagnaðar-
fundir. Við minntumst liðinna
tíma og ráðgerðum frekara fjör í
framtíðinni. Við ætluðum alltaf að
hittast meira og betur síðar, eins
og maður ætlar alltaf.
Elsku gleðigjafi, kæri Bjössi.
Það var heiður að fá að kynnast
þér og starfa með þér. Takk fyrir
að vera sá sem þú varst. Ég
hlakka til að sjá þig síðar.
Haukur Sigurbjörn
Magnússon.
Björn Kolbeinsson var í fyrsta
nemendahópnum sem hóf nám
við lagadeild Háskólans í Reykja-
vík haustið 2002. Hann lauk BA-
prófi frá deildinni 2006 og meist-
araprófi 2009. Sá sem þetta ritar
varð þeirrar ánægju aðnjótandi
að kynnast Birni meðan á námi
hans við deildina stóð, bæði sem
stjórnandi og kennari. Alls hóf 81
nemandi nám við deildina haustið
2002 og höfðu þeir verið valdir úr
hópi á þriðja hundrað umsækj-
enda. Valið var erfitt enda upp-
fylltu flestir umsækjenda þær al-
mennu kröfur sem deildin gerði
fyrir inngöngu. Þar við bættist að
ljóst var að frammistaða fyrsta
hópsins myndi ráða miklu um
framtíð deildarinnar og jafnframt
að hópurinn myndi upplifa að
vera fremstur á nýrri leið, braut-
ryðjendur í nýrri háskóladeild,
nýju námsskipulagi og mjög
krefjandi námi. Björn hafði áður
en hann sótti um nám við deildina
dvalið um árabil erlendis og sótt
skóla þar. Ég minnist þess að við
skoðun á umsókn hans hafði ég
áhyggjur af því að af þessari
ástæðu hefði hann e.t.v. ekki
nægileg tök á íslensku ritmáli,
sem skiptir miklu máli í laganámi.
Það sem réð hins vegar úrslitum
við mat á umsókn Björns var
greinargerð sem hann sendi með
umsókninni en þó ekki síður sam-
tal sem ég átti við hann af því til-
efni. Mér varð ljóst að Björn hafði
ekki eingöngu góðar námsgáfur
heldur fór þar afar vandaður ein-
staklingur með ríka réttlætis-
kennd, viðkvæmur og listrænn en
jafnframt rökfastur og málefna-
legur. Í mínum huga var, eftir
samtal okkar, engin spurning um
að Björn ætti heima í fyrsta hópn-
um okkar.
Meðan á námi Björns við deild-
ina stóð áttum við mörg samtöl,
bæði að mínu frumkvæði og hans.
Að sjálfsögðu ræddum við um
námið og frammistöðu hans, sem
var góð, en ekki síður um framtíð-
arvonir hans og áætlanir og
hvaða eiginleika góður lögfræð-
ingur en umfram allt góð mann-
eskja ætti að hafa til að bera. Í öll-
um samtölum okkar var Björn
opinn, hlýr og gefandi, hæversk-
ur og mildur í umtali um menn og
málefni. Ég var stoltur af að
Björn skyldi vera nemandi okkar
og þótti vænt um hann. Það kom
mér ekki á óvart þegar Björn var
að námi loknu ráðinn til starfa hjá
EFTA, úr hópi mjög hæfra um-
sækjenda. Ég gladdist yfir fregn-
um sem ég fékk af frammistöðu
hans hjá EFTA og þeim vanda-
sömu viðfangsefnum sem hann
var að fást við. Ég talaði við hann
skömmu áður en hann hélt til
starfa í Genf. Hann var fullur til-
hlökkunar að takast á við krefj-
andi verkefni í alþjóðlegu um-
hverfi og frá honum stafaði eins
og áður hlýja, hógværð og vin-
semd. Ég var þess fullviss að
Björns biði björt framtíð og ég
myndi á komandi árum fá næg til-
efni til að stæra mig af þessum
fyrrverandi nemanda mínum.
Ég ætla ekki að lýsa þeim til-
finningum sem ég upplifði þegar
ég fékk fréttirnar af andláti
Björns. Efst í huga mér er samúð
með foreldrum og systkinum
Björns og öðrum ættingjum hans
og ástvinum. Megi Guð styrkja
þau í sorg þeirra. Eftir stendur
minningin um góðan dreng. Hún
lifir áfram.
Þórður S. Gunnarsson.
Það stríðir gegn allri hugsun
okkar að við þau eldri skulum
standa eftir og kveðja ungan
mann sem hverfur úr hópnum í
blóma lífsins. En slysin gera ekki
boð á undan sér, og við stöndum
slegin eftir og leitum svara við
óttanum og skimum eftir huggun.
Drottinn hefur bent okkur á
hættur og sorgir jarðlífsins, en
SJÁ SÍÐU 32
251658240
V i n n i n g a s k r á
37. útdráttur 10. janúar 2013
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
4 9 2 5 0
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
9 6 6 3 3 0 4 1 6 3 3 9 2 6 4 1 3 1 0
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
13286 16180 21669 33993 42027 72250
14569 17634 27031 36447 65609 77688
V i n n i n g u r
Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur)
1 8 6 4 9 5 5 7 2 1 1 4 3 2 9 6 5 5 3 3 9 4 0 4 2 7 6 3 5 6 4 6 1 6 5 7 9 5
1 9 1 1 1 3 9 2 7 2 3 0 1 9 2 9 8 6 2 3 5 2 2 0 4 3 8 4 4 5 6 8 9 6 6 6 3 7 9
2 0 6 7 1 4 7 4 3 2 3 9 9 0 3 1 1 0 1 3 6 8 0 6 4 4 9 7 4 5 7 8 9 9 6 6 4 4 1
2 2 6 1 1 5 1 5 7 2 5 2 4 5 3 2 2 5 4 3 7 1 4 7 4 6 3 5 1 5 9 7 6 6 6 8 7 6 8
3 0 5 3 1 5 3 3 2 2 6 2 4 5 3 2 5 7 2 3 7 3 6 8 4 6 6 6 4 6 0 0 7 0 6 9 8 7 2
3 5 9 9 1 7 9 0 6 2 6 7 9 9 3 2 8 2 8 3 9 4 2 2 4 8 7 0 4 6 0 9 6 3 7 0 4 7 1
3 9 0 8 1 7 9 3 9 2 7 0 6 3 3 2 8 7 6 4 1 5 7 5 5 0 5 8 9 6 1 7 8 5 7 2 2 4 7
3 9 5 7 1 8 1 7 7 2 7 4 8 4 3 2 9 0 5 4 1 7 8 4 5 2 2 2 1 6 4 1 6 9 7 8 9 6 1
8 9 6 4 1 9 3 3 6 2 8 7 9 6 3 3 1 2 7 4 2 0 4 8 5 4 7 8 6 6 4 9 3 8 7 9 1 0 8
9 3 7 5 2 0 1 8 5 2 8 9 4 5 3 3 8 0 2 4 2 3 5 7 5 5 8 6 8 6 5 6 5 2 7 9 1 4 2
V i n n i n g u r
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
1 0 6 1 2 5 1 1 2 1 5 3 2 3 1 2 4 4 4 5 4 6 0 5 2 8 6 1 6 2 8 6 6 7 2 5 0 3
8 9 2 1 3 2 5 6 2 1 9 6 1 3 1 3 7 7 4 5 7 8 9 5 3 2 3 3 6 2 9 4 0 7 2 6 8 7
1 5 7 0 1 3 2 5 7 2 1 9 7 8 3 1 5 0 5 4 6 1 4 4 5 3 4 7 3 6 2 9 7 3 7 2 7 4 6
1 9 0 7 1 3 8 5 2 2 2 0 7 9 3 2 0 6 3 4 6 1 4 7 5 3 8 0 0 6 3 4 6 4 7 3 3 0 5
2 3 9 2 1 4 8 8 8 2 3 6 4 1 3 2 0 9 6 4 6 2 1 5 5 3 8 1 0 6 3 5 3 1 7 3 5 9 4
2 9 5 6 1 5 3 3 0 2 3 6 5 8 3 2 3 1 7 4 6 4 6 7 5 4 0 8 5 6 3 7 7 3 7 3 6 2 1
3 2 4 6 1 5 3 8 0 2 3 6 6 8 3 3 1 8 9 4 6 6 4 5 5 4 1 2 7 6 4 5 3 2 7 3 7 5 3
3 6 1 4 1 5 4 7 1 2 3 7 0 1 3 3 2 8 1 4 6 6 8 1 5 4 1 4 2 6 4 9 9 8 7 4 2 8 2
3 6 2 4 1 6 2 4 3 2 3 7 3 6 3 3 5 2 7 4 7 1 7 6 5 4 2 6 9 6 5 0 6 5 7 4 8 0 7
3 9 5 6 1 6 3 0 0 2 3 9 7 6 3 3 5 8 5 4 7 2 3 5 5 4 5 3 0 6 5 5 0 3 7 5 0 0 1
4 3 5 3 1 6 6 3 7 2 4 2 3 4 3 4 2 1 0 4 7 2 4 0 5 4 7 4 3 6 5 5 1 4 7 5 3 3 7
4 5 4 1 1 6 7 7 7 2 5 3 7 6 3 5 6 0 7 4 7 5 0 9 5 5 5 5 5 6 6 5 9 6 7 5 4 6 2
5 4 7 1 1 6 8 8 8 2 5 5 9 8 3 7 2 4 6 4 7 7 8 8 5 5 6 9 3 6 6 7 5 5 7 5 4 7 3
5 5 7 7 1 6 9 0 7 2 6 0 6 1 3 7 4 6 9 4 7 8 4 9 5 6 0 6 3 6 6 9 5 3 7 5 6 5 8
5 9 6 7 1 7 0 5 4 2 6 1 4 4 3 7 5 1 9 4 7 8 5 8 5 6 0 8 3 6 7 4 6 4 7 6 9 4 5
6 2 2 5 1 7 3 6 9 2 6 6 3 6 3 8 6 1 8 4 8 7 4 0 5 6 2 7 5 6 7 5 0 4 7 6 9 8 3
6 6 2 3 1 7 6 2 1 2 6 8 3 7 3 8 6 2 1 4 8 7 5 3 5 7 1 1 7 6 7 5 6 4 7 7 7 1 9
7 5 6 6 1 7 7 6 6 2 7 0 4 4 3 9 6 1 0 4 8 8 1 6 5 8 1 0 0 6 7 5 9 4 7 8 0 1 4
7 7 1 0 1 7 9 6 6 2 7 2 5 9 3 9 6 2 4 4 9 5 0 4 5 8 8 6 1 6 7 6 8 4 7 8 3 0 3
8 2 1 1 1 8 1 9 0 2 7 5 7 6 4 0 1 7 0 4 9 6 7 8 5 8 9 4 2 6 7 9 7 3 7 8 3 0 7
8 2 3 0 1 8 4 2 2 2 7 7 0 1 4 0 3 8 9 4 9 9 0 9 5 8 9 9 7 6 8 1 9 6 7 8 7 9 0
8 3 6 1 1 9 2 2 2 2 7 9 3 0 4 0 9 8 1 5 0 2 6 6 5 9 1 4 8 6 8 9 7 9 7 8 8 6 3
8 9 5 6 1 9 2 6 2 2 8 7 9 4 4 1 0 7 6 5 0 5 2 6 5 9 3 4 3 6 9 2 2 0 7 8 9 6 2
9 0 3 2 1 9 3 2 3 2 8 9 6 8 4 1 0 9 2 5 0 6 1 1 5 9 3 9 8 6 9 7 1 6 7 9 3 8 5
9 3 6 5 1 9 4 8 7 2 8 9 7 7 4 1 3 1 8 5 0 6 7 5 5 9 4 6 7 7 0 1 1 8 7 9 4 1 4
9 5 5 9 1 9 5 1 9 2 9 0 5 4 4 1 9 6 8 5 0 8 9 7 5 9 4 7 5 7 0 2 0 8 7 9 9 4 1
9 5 7 0 1 9 6 7 5 2 9 4 7 2 4 2 0 2 0 5 0 8 9 9 5 9 7 1 3 7 0 2 9 9
1 0 0 0 8 1 9 8 9 0 2 9 6 8 2 4 3 2 7 4 5 0 9 5 1 5 9 9 1 7 7 0 6 0 6
1 0 3 3 8 2 0 2 7 9 2 9 9 2 4 4 4 0 1 7 5 1 3 4 3 6 1 0 8 8 7 0 6 2 5
1 1 1 7 9 2 0 6 6 6 3 0 1 4 4 4 4 3 5 8 5 1 7 5 3 6 1 2 6 3 7 1 0 4 7
1 1 5 6 0 2 1 0 5 6 3 0 3 2 9 4 5 0 2 8 5 2 0 3 9 6 1 5 0 6 7 2 0 5 8
1 1 7 6 6 2 1 3 7 0 3 0 3 9 2 4 5 1 4 8 5 2 8 1 6 6 2 6 8 1 7 2 3 3 6
Næstu útdrættir fara fram 17. jan, 24. jan & 31. jan 2013
Heimasíða á Interneti: www.das.is