Morgunblaðið - 11.01.2013, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013
✝ Ólafur Jónssonfæddist í Skál-
holtsvík, Bæjar-
hreppi í Stranda-
sýslu, 2. desember
1923. Hann and-
aðist á Droplaugar-
stöðum 1. janúar
2013.
Foreldrar Ólafs
voru Jón Ólafsson
frá Strandasýslu, f.
1891, d. 1971, og Al-
dís Ósk Sveinsdóttir frá Árnes-
sýslu, f. 1895, d. 1990.
Systkini Ólafs eru Guðrún, f.
1921, Þórhallur, f. 1926, Borg-
hildur, f. 1928, Höskuldur, f.
Einar Veigar, Jóhönnu Margréti
og Ýri. 3) Ragnheiður Ólafs-
dóttir, f. 1953, gift Stig Faber
Rasmussen og á hún eina dóttur,
Söru Tänzer.
Eftirlifandi eiginkona Ólafs er
Þórlaug Guðbjörnsdóttir, f. 1940.
Ólafur ólst upp á Hömrum í
Laxárdal og kom til Reykjavíkur
1945. Þá vann hann ýmis verka-
mannastörf þar til að hann hóf
störf hjá BP. Þar starfaði hann
m.a. sem olíuflutningabílstjóri og
rak Bón- og þvottastöðina. Eftir
að hann lauk störfum hjá BP hóf
hann störf hjá Mýrarhúsaskóla
þar sem hann starfaði sem hús-
vörður og síðustu árin vann hann
í skólaskjólinu.
Útför Ólafs fer fram frá Sel-
tjarnarneskirkju í dag, 11. jan-
úar 2013, og hefst athöfnin kl. 13.
1929, Ægir, f. 1938.
Bróðir hans sam-
mæðra er Þorsteinn
Erlingsson Ólafs-
son, f. 1916, d. 1984.
Fyrri eiginkona
Ólafs var Jóhanna
Margrét Jóhannes-
dóttir, f. 1921, d.
1972. Börn þeirra
eru: 1) Anna Sigríð-
ur Ólafsdóttir, f.
1944, gift Sigmundi
Tómassyni og eiga þau þrjú
börn, Ólaf, Margréti og Tómas
Jón. 2) Jón Ólafsson, f. 1947, d.
1994, kvæntur Þorbjörgu Ein-
arsdóttur og eiga þau þrjú börn,
Tengdafaðir minn Ólafur Jóns-
son kvaddi þetta jarðlíf 1. janúar
sl., 89 ára að aldri. Þegar ég fyrir
tæpum 49 árum kom inn í fjöl-
skyldu Óla og Möggu var mér
strax afar vel tekið og boðinn vel-
kominn. Urðum við Óli miklir
mátar og duglegir að aðstoða hvor
annan þegar á þurfti að halda.
Þegar Óli rak Bón- og þvotta-
stöðina á Klöpp við Skúlagötu var
ég oft aðstoðarmaður hjá honum.
Eins var það að þegar við Anna
keyptum okkar fyrstu íbúð í Hafn-
arfirði, þá var Óli boðinn og búinn
að aðstoða okkur á allan máta. Óli
var mikill bílaáhugamaður og
höfðu þeir feðgar Jón heitinn son-
ur hans gaman af að skoða gamla
og nýja bíla.
Óli vann í mörg ár hjá BP, bæði
sem bílstjóri og við afgreiðslu olíu-
skipa í Laugarnesi, en stutt var í
vinnu fyrir hann þar sem fjöl-
skyldan bjó við Kleppsveginn. Óli
var vel látinn af vinnufélögum sín-
um, vinmargur og hvers manns
hugljúfi. Óli var söngelskur maður
og var oft gaman þegar þeir bræð-
ur tóku lagið saman. En gleðin er
ekki eilíf, sorgin á það til að banka
á dyrnar, þegar Jóhanna Margrét
tengdamóðir mín veikist skyndi-
lega og var dáin tveimur mánuð-
um síðar, og rúmum tuttugu árum
seinna lést Jón sonur hans eftir
stutta baráttu við krabbamein.
Seinni kona Ólafs er Þórlaug
Guðbjörnsdóttir, og reyndist hún
honum og fjölskyldunni allri ákaf-
lega vel. Þau byggðu sér hús við
Sævargarða á Seltjarnarnesi og
tók ég þátt í að reisa það. Þegar
húsið var tilbúið undir tréverk, var
bílskúrnum breytt í trésmíðaverk-
stæði og voru flestar innréttingar í
húsið smíðaðar þar.
Óli hóf störf við Mýrarhúsa-
skóla sem húsvörður og var vel
virtur af kennurum sem nemend-
um. Þau hjón voru dugleg að
ferðast og fóru víða jafnt innan-
lands sem erlendis. Það var nota-
legt að koma í garðinn til þeirra á
sumrin, þiggja veitingar og ekki
spillti það fyrir að þau höfðu gam-
an af að taka á móti börnunum og
leyfðu þeim að hoppa um í garð-
inum.
Svo gerðist það sem enginn
bjóst við, Óli veiktist fyrir níu og
hálfu ári og var bundinn við hjóla-
stól eftir það. Hann dvaldi á Drop-
laugarstöðum í um það bil níu ár
og var hugsað vel um hann þar og
var hann dáður á meðal starfs-
fólks og vistmanna. Þórlaug var að
sjálfsögðu hans hjálparhella og
var dugleg að taka hann heim um
helgar og annaðist hann alveg frá-
bærlega vel.
Óli minn, ég kveð þig nú með
þökk frá börnum og barnabörn-
um. Vertu sæll að sinni, minning
þín lifir í hjörtum okkar.
Þinn tengdasonur,
Sigmundur.
Afi minn var mjög góður karl.
Hann keyrði um á Bens og fórum
við í þó nokkra bíltúra þar sem afi
veifaði öllum krökkum sem hann
sá á Seltjarnarnesi og þegar ég
spurði hann hver þetta væri þá
sagði hann: Þetta er vinur minn.
Öll börnin á Nesinu voru vinir
hans afa. Hann vann lengi við
Mýrarhúsaskóla og meira að
segja eftir starfslok kom hann aft-
ur þangað til að opna skólann fyrir
krakkana sína.
Ein minning af mörgum var
þegar ég var lítill, þá hjóluðum við
vinahópurinn út á Nes og ég ákvað
að kíkja á afa og Þórlaugu, þá var
okkur, öllum hópnum, boðið inn í
flottar veitingar, þetta er svona
ekta afi og Þórlaug. Allir velkomn-
ir alltaf og maður átti helst að
borða á sig gat og aðeins meira.
Afi var mjög duglegur að rækta
garðinn sinn og vildi hafa hann fal-
legan, ég fékk stundum að hjálpa
til við að slá garðinn. Það fannst
mér mjög gaman.
Afi passaði vel upp á hópinn
sinn og var kakóboð á Sævargörð-
um á aðfangadagskvöldi hluti af
jólunum þar sem öll fjölskyldan
hittist.
Síðustu ár eftir að veikindin
voru farin að taka sinn toll af hon-
um fylgdist hann samt mjög vel
með afkomendum sínum og spurði
fregna af öllum.
Elsku afi minn, hvíldu í friði.
Þinn
Tómas Jón.
Er held ég enn á æskuslóð
úti er napurt og sól er sest
og er nóttin skellur á
verð ég magnlaus í myrkrinu
og minning þín er sterk sem bál.
Ó hve sárt ég sakna þín
sem lýstir mér inn í ljóðaheim
og lífs mér sagðir sögur
um landið okkar ljúfa
og lífsins leyndarmál.
En morgundaggar ég fer á fund
og finn þar huggun í dalsins kyrrð
og minningarnar lifna við
um sveitina, fólkið og fjöllin
sem fylgdu þér hvert fótmál.
(Haraldur Haraldsson)
Við munum alltaf minnast þín,
afi.
Einar Veigar, Jóhanna
Margrét og Ýr.
Hvert örstutt spor var auðnuspor með
þér,
– hvert andartak er tafðir þú hjá mér
var sólskinsstund og sæludraumur
hár,
minn sáttmáli við Guð um þúsund ár.
Hvað jafnast á við andardráttinn þinn?
Hve öll sú gleði’ er fyrr naut hugur
minn
er orðin hljómlaus utangátta’ og tóm
hjá undrinu að heyra þennan róm,
hjá undri því, að líta lítinn fót
í litlum skóm, og vita’ að heimsins
grjót
svo hart og sárt er honum fjarri enn,
og heimsins ráð sem brugga vondir
menn,
já vita eitthvað anda hér á jörð
er ofar standi minni þakkargjörð
í stundareilífð eina sumarnótt.
Ó, alheimsljós, ó, mynd sem hverfur
skjótt.
(Halldór Kiljan Laxness)
Elsku besti langafi.
Óskar Tumi spyr hvernig við
komum hjólastólnum þínum upp
til himna. En ég held að þegar
maður er á himnum þá þurfi mað-
ur ekki hjólastól því núna geturðu
labbað aftur og á himnum er eng-
inn sársauki, bara gleði og ham-
ingja.
Við vorum svo heppnir að fá að
kynnast þér, það áttu ekki allir
strákar langafa sem kunni að
prjóna. Langafi reyndi eins og
hann gat að fylgjast með hvað
gekk á í okkar lífi og gladdist yfir
sigrunum.
Elsku langafi, við vonum að þú
hafir það sem allra best á himn-
inum og við sjáumst síðar.
Þínir langafastrákar,
Sigmundur Nói, Benedikt
Snær og Óskar Tumi
Tómassynir.
Kveðja til bróður
Fram í fögrum Laxárdal
fyrstu sporin lágu.
Svanir svifu um fjallasal
með söng á vötnin bláu
en lóa og þröstur hófu hjal
um haga og túnin gráu.
Oft var kátt í okkar hóp
allir þurftu að vinna.
Starfið okkur skyldur skóp
skepnum þurfti að sinna.
Stundum kapp í kinnar hljóp
kærra vina minna.
Svífa fyrir sjónum mér
svið frá barnæskunni.
Sveitin kæra ennþá er
okkur sterk í minni.
Hún í dag vill þakka þér
þessi fornu kynni.
Höskuldur Jónsson.
Í dag kveðjum við hinstu
kveðju elskulegan mág okkar,
Ólaf Jónsson, er lést hinn fyrsta
janúar sl. á hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum á nítugasta
aldursári. Við kynntumst Ólafi
fyrst er hann kom inn í líf systur
okkar, Þórlaugar, fyrir hartnær
40 árum. Strax tókst með okkur
góð vinátta og tengsl, enda mað-
urinn glaðsinna og félagslyndur
og hafði mörg áhugamál sem féllu
að okkur öllum. Þar á meðal var
ferðaáhuginn þar sem við nutum
glaðværðar hans og félagsskapar
bæði hér innanlands og á góðum
stundum erlendis. Ekki er síður
vert að minnast næmni hans við að
tengjast öðrum fjölskyldumeðlim-
um og má þar nefna hvernig börn
okkar tengdust honum og báru
mikla virðingu fyrir honum og
minnast hans með þökkum við
leiðarlok. Ólafur var alla tíð mjög
starfsamur maður bæði heima og
heiman og má það meðal annars
sjá á fallegum garðinum þeirra að
Sævargörðum sem ber natni hans
vitni. Hann starfaði lengi sem um-
sjónarmaður við Mýrarhúsaskóla
á Seltjarnarnesi en er hann fór á
eftirlaun sinnti hann öðrum störf-
um við skólann um tíma. Fyrir um
níu árum veiktist hann þannig að
upp frá því var hann bundinn við
hjólastól. Hann dvaldist síðan á
Droplaugarstöðum og reyndi þá
mikið á Þórlaugu er stóð sem
klettur við hlið hans í veikindum
hans. Að leiðarlokum kveðjum við
Ólaf Jónsson með þakklæti og
söknuði og sendum öllum aðstand-
endum hans innilegar samúðar-
kveðjur. Blessuð sé minning hans.
Halla, Sigurmundur, Jón,
Áslaug, Guðrún, Sigmar
og fjölskyldur.
Ólafur Jónsson
✝ Ólöf ÞórannaJóhannsdóttir
fæddist í Brúnavík
við Borgarfjörð
eystra 26. sept-
ember 1922. Hún
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Eir föstu-
daginn 14. desem-
ber sl.
Hún var ein af
14 börnum
hjónanna Berg-
rúnar Árnadóttur og Jóhanns
Helgasonar sem bæði voru frá
Borgarfirði eystra og bjuggu
þar.
Ólöf stundaði nám við Hús-
mæðraskólann á Staðarfelli
1942-1943. Hún starfaði hjá
dagvistarheimilinu Tjarnarborg
í Reykjavík frá 1944-1947 og
1950-1952 og við verslunarstörf
í Stykkishólmi 1947-1950. Hún
Finni Benediktssyni frá Hólma-
vík, f. 21.5. 1921, d. 5.6. 1997.
Þau Ólöf og Finnur eignuðust
ekki börn. Barn Ólafar og Hin-
riks Eiríkssonar verslunar-
manns í Reykjavík er Þórhildur
Hinriksdóttir, f. 30.3. 1947,
maki hennar er Þórður Sigur-
jónsson, f. 10.10. 1946, þau hafa
verið búsett í Lúxemborg í 42
ár. Börn þeirra eru: a) Sigurjón,
f. 1969, maki Jóhanna Jak-
obsdóttir, eiga þau tvo syni. b)
Ólöf Dís, f. 1971, maki Birgir
Örn Björnsson, eiga þau tvo
syni. c) Finnur Dór, f. 1979, d.
2011. d) Harpa Rún, f. 1982,
sambýlismaður Romain Buch-
holtz og á hann einn son.
Ólöf fór snemma að heiman
til að vinna fyrir sér en átti
miklar rætur á Borgarfirði
eystra. Þar er æskuheimilið Ós,
í eigu stórfjölskyldunnar, og
dvaldi Ólöf þar mikið á sumrin
eftir að hún varð ekkja. Hennar
aðaláhugamál seinni ár var við-
hald Óshússins.
Útför Ólafar fer fram frá
Langholtskirkju í dag, 11. jan-
úar 2013, kl. 13.
lauk ljósmæðra-
prófi frá LMSÍ
30.9. 1953 og
endurhæfingar-
námskeiði LMSÍ
haustið 1981. Hún
starfaði sem ljós-
móðir á Hólmavík
1953-1961 og á
sjúkrahúsinu á
Hólmavík 1953-
1954.
Árið 1961 flutti
hún til Reykjavíkur og starfaði
nokkur ár á barnaheimilinu
Brákarborg og síðan á fæðing-
ardeild Landspítalans þar til
hún fór á eftirlaun 1986. Eftir
að hún fór á eftirlaun starfaði
hún eitt ár á leikskóla, en réð
sig síðan á Hjúkrunarheimilið
Skjól, þar sem hún starfaði til
1995.
Ólöf giftist hinn 25.12. 1954
Þegar maður sest niður og
hugsar um Ollu ömmu er bara
hægt að brosa. Allt sem við up-
lifðum með ömmu var skemmti-
legt. Hún smitaði alla með létt-
leika og jákvæðni.
Vinum okkar fannst gaman að
heimsækja Ollu ömmu, sitja með
henni við eldhúsborðið og hlæja.
Við komum líka oft með útlenska
vini í heimsókn eða hún kynntist
þeim hjá okkur í Lúxemborg.
Þeir voru oftast í djúpum sam-
ræðum við ömmu. Skipti þar
engu máli að hún talaði ekki stakt
orð í öðru en íslensku. Hlátur er
eins á öllum tungumálum.
Við vorum alltaf jafn hissa
hversu margir þekktu hana
ömmu. Sama hvar maður var, þá
var alltaf einhver sem kom bros-
andi út að eyrum og faðmaði
hana. Hún var ekki fræg og ekk-
ert þekkt í fjölmiðlum, en hún var
stórstjarna þar sem hún mætti.
Ástæðan var brosið hennar og út-
geislun. Hún skóf ekki utan af
neinu og var oft svolítið kaldhæð-
in, en henni var líka sama hvað
öðrum fannst. En mest gat hún
samt hlegið að sjálfri sér. Hún
tók sig ekki alvarlega og talaði
aldrei um það sem hún hafði
áorkað á sinni ævi. Hún bara
vann vinnuna sína, var góð og
hjálpaði ef hún gat og svo naut
hún lífsins og skemmti sér.
Hún var mjög heiðarleg kona,
en svolítið óhlýðin. Hún sagði
bara já og gerði svo bara það sem
henni datt í hug.
Þegar við sitjum hér og hugs-
um um Ollu ömmu er Finnur Dór
bróðir okkar alltaf með. Enda
voru þau tvö alltaf mjög góðir vin-
ir og hlógu mikið saman.
Það verða miklir fagnaðar-
fundir þarna uppi, þegar Finnur
og amma sameinast á ný.
Elsku mamma. Hún amma var
rosalega stolt af dóttur sinni og
dáðist alltaf að því hvað hún er
dugleg, klár og góð manneskja.
Við munum halda minningu um
hana lifandi og segja börnunum
okkar margar langömmusögur.
Sigurjón, Ólöf Dís
og Harpa Rún.
Margar góðar minningar koma
upp í hugann þegar við hugsum
til hennar Ollu. Hún kom norður
til Hólmavíkur til að starfa sem
ljósmóðir og giftist Finni, móður-
bróður okkar, árið 1954. Þau
bjuggu í Afahúsi þar til þau flutt-
ust suður til Reykjavíkur 1961 og
settust að í Ljósheimum 6.
Eiginlega mátti setja sama-
semmerki á milli Ljósheima 6 og
Reykjavíkur í huga okkar á
barns- og unglingsárunum. Í ár-
legum Reykjavíkurferðum á
haustin var gist hjá Ollu og Finni
og hjá þeim fengum við afar hlýj-
ar móttökur. Á sumrin komu þau
norður til Hólmavíkur og var það
alltaf tilhlökkunarefni. Þegar þau
komu þá gistu þau gjarnan í
litlum bústað í Kálfanesi rétt fyr-
Ólöf Þóranna
Jóhannsdóttir
✝ Guðrún Sig-urðardóttir
fæddist í Grindavík
11. september
1943. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi 5. janúar 2013.
Foreldrar henn-
ar voru Sigurður
Magnússon skip-
stjóri, f. 16.8. 1915,
d. 16.8.1992, og
Þórlaug Ólafsdóttir húsfreyja, f.
15.10. 1920, d. 15.2. 1999. Systk-
ini Guðrúnar eru: Ólafur Ragn-
ar, f. 14.2. 1941, Sóley Jóhanna,
f. 25.3. 1945, d. 22.10. 1957,
Bjarney Kristín, f. 25.3. 1945, d.
6.12. 1962, Guðjón, f. 12.6. 1950,
æviárin í Hafnarfirði. Börn Guð-
rúnar og Sigurðar eru: 1) Sóley
Ólöf, f. 1960, maki Heiðar Jó-
hannsson, börn þeirra: Davíð
Bjarni, Arnór og Bjarkey, 2)
Bjarney Kristín, f. 1963, maki
Ólafur Ingólfsson, börn þeirra:
Guðrún Sif, Sigrún Inga og
Erna Rún, 3) Þórey Maren, f.
1966, maki Óskar Thorarensen,
börn þeirra: Maren, Unnur Ósk
og Birta, 4) Sveinbjörn Sigurð-
ur, f. 1972, maki Arndís Þor-
valdsdóttir, börn þeirra:
Thelma, Sigurður Pétur, Elma
Valgerður, Hekla Rut, Glódís
Ýr, Eyþór Haukdal og Ernir
Haukdal.
Guðrún sinnti ýmsum störfum
m.a. verslunar-, umönnunar- og
þjónustustörfum, ásamt því að
sinna uppeldi barna sinna. Hún
var mjög virk í félagsstörfum.
Útför Guðrúnar verður gerð
frá Grindavíkurkirkju í dag, 11.
janúar 2013, og hefst athöfnin
kl. 13.
Sóley Þórlaug, f.
17.6. 1958, og
Hrafnhildur, f.
13.6. 1962.
Guðrún ólst upp í
Grindavík, gekk í
barnaskólann þar
og stundaði síðan
nám við Héraðs-
skólann á Núpi í
Dýrafirði. Guðrún
kynntist Sigurði
Bjarna Svein-
björnssyni frá Ljótsstöðum á
Höfðaströnd í Skagafirði 1965
og giftu þau sig 14. maí 1966.
Sigurður sinnti verslunar-
störfum og var heimili þeirra
hjóna í Grindavík. Sigurður lést
árið 2002. Guðrún bjó síðustu
Elsku besta amma, þú varst
svo ótrúlega sterk og frábær kona
og það geta allir verið sammála
því sem þekktu þig. Þú varst ekki
bara amma mín heldur líka vin-
kona mín. Þú kenndir mér svo
margt og hafðir alltaf tíma fyrir
mig. Sumarbústaðarferðirnar eru
ógleymanlegar, þá tókum við allt-
af upp prjónana og höfðum það
gott. Ég á svo margar góðar
minningar um þig sem ég mun
aldrei gleyma. Þú ert fyrirmyndin
mín. Ég elska þig, amma mín, þú
munt alltaf lifa í hjarta mínu.
Þitt barnabarn,
Unnur Ósk Thorarensen.
Elsku Gógó amma mín. Takk
fyrir allar gleðistundirnar sem þú
hefur gefið mér í lífinu, það vermir
hjarta mitt mikið að hugsa um
þær allar, og ég mun alltaf varð-
veita minningarnar vel og vand-
lega sem við eigum saman og
segja sögur af þér og okkur sam-
an þeim sem vilja gleðjast yfir
þeim með mér og heyra af því
hversu frábær kona þú varst í alla
staði. Þú gafst svo mikið af þér til
allra í kringum þig og þú kenndir
mér svo margt.
Þú elskaðir mikið að búa til alls
konar hekl, prjón, föndur og
handverk, og mér þykir svo vænt
um alla þá hluti sem þú hefur búið
til handa mér og þeir hvetja mig
til að vera eins hugmyndarík og
dugleg í höndunum eins og þú
varst.
Ég er svo þakklát að ég náði að
komast til Íslands frá Dubai og fá
að sjá þig og verja tíma með þér á
þínum síðustu dögum og mér þyk-
ir svo vænt um það að ég náði að
kveðja þig mjög vel á gamlárs-
kvöld áður en ég hélt aftur út í
hinn stóra heim, óviss um það
hvort ég myndi sjá þig aftur eða
ekki.
Við áttum góða kveðjustund,
þar sem þú sagðir við mig sem þú
segir alltaf við mig þegar við
kveðjumst eða þegar þú skrifar
kort til mín, mína uppáhaldssetn-
ingu frá þér sem mér þykir svo
vænt um, og ég spila það aftur og
aftur inni í mér og les setningu á
kortum frá þér aftur og aftur.
Þann 5. janúar var ég stödd í
Melbourne, Ástralíu. Ég fór í
göngutúr í fallegan garð, tók ljós-
myndir og settist á bekk og las
bók í sólskininu. Mér varð mikið
hugsað til þín, amma, og ég bjó til
markmið fyrir árið og nokkur lof-
orð til þín. Nokkrum klukkutím-
um seinna á leiðinni í vinnuna
Guðrún
Sigurðardóttir