Morgunblaðið - 11.01.2013, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert í léttu skapi þessa dagana og
átt auðvelt með að umgangast fólk á öllum
aldri. Samskiptin í fjölskyldunni fela í sér
valdabaráttu.
20. apríl - 20. maí
Naut Veltu þér ekki upp úr gömlum málum
því öllum verða á mistök. Gerðu það upp við
þig hvort þú viljir eiga viðskipti við slíka að-
ila.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Reyndu að halda þig sem mest við
dagskrána, því nú er ekki rétti tíminn til þess
að breyta út af. Elska er vinátta en ekki vald-
beiting.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert óvenju orkumikil/l í dag.
Reyndar finnst einhverjum að duttlungar
þínir og furðulegar venjur séu ótrúlega
heillandi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það skiptir sköpum að þú hagir mál-
flutningi þínum svo að fólk þurfi ekki að
velkjast í vafa um fyrirætlanir þínar. Að vera
sparsamur gerir mann skapandi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Stundum er ekki nóg bara að heyra
það sem sagt er heldur þarf líka að taka með
í reikninginn hvernig hlutirnir eru settir fram.
Þú vilt lyfta þér upp.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ýmsir möguleikar eru í stöðunni svo þú
skalt ekki skrifa undir neitt fyrr en þú hefur
kynnt þér alla málavöxtu. Málið er, að þú ert
með fullkomnunaráráttu og fullkomnun er
óhugsandi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu ekki útlit fólks og blíðan
róm blekkja þig því að enn sannast hið forn-
kveðna að oft er flagð undir fögru skinni.
Gættu þess að setja ekki aðra út af laginu
með ákveðni þinni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér hefur tekist að koma ár þinni
svo fyrir borð að aðrir eru fúsir til að fylgja
þér. Vertu ánægður með þinn hlut því grasið
er ekkert grænna handan girðingarinnar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að gæta þess vel að fá
nægan svefn því of miklar vökur fara illa
með sál og líkama. Reyndu að koma
snemma auga á mynstrið og forðaðu þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nú væri kjörið að versla eða
skrifa undir samninga. Hálfbakaðar eða
óljósar skuldbindingar þarfnast úrlausnar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einhvern veginn er eins og allt og allir
fari í taugarnar á þér þessa stundina. Þú
gætir fundið upp á því að koma fjölskyldu-
meðlimi til hjálpar.
Hörður Þorleifsson sendi svar viðvísnagátu Páls Jónassonar sem
birtist í Vísnahorninu í gær:
Valur mannsnafn ágætt er
sem ekki leyndist fyrir mér.
Það er einnig hentugt hér
að hundur nafnið fái sér.
Kerlingin á Skólavörðuholti hlust-
ar stundum á Rás 2 kl. 8 á morgn-
ana, en þá eru vísnagátur lagðar fyr-
ir hlustendur. Og hún bætir í þann
sarp með persónulegri vísnagátu:
Hvað er það sem varma veitir.
Vímu ljúfrar tendrar glóð.
Illa mig til reiði reitir.
Ranglar gjarnan sömu slóð.
Ráðningin er vitaskuld í bundnu
máli:
Murrar líkt og hrjóti hrútur.
Hrekkjóttur og fyrir slark.
Þetta er Lurkur labbakútur,
Laugavegsins kennimark.
Ármann Þorgrímsson kippir sér
ekkert upp við það að árin færist yfir:
Á afturfótum enn um sinn
uppi stendur kallinn
þó bætist ár við aldurinn
en alltaf stækkar skallinn.
Enn bættist vísa við í dagbók Dav-
íðs Hjálmars Haraldssonar, 9. janúar:
Flytur mig sem fugl um geim
flaugarinnar kraftur.
Í dag ég sæki Drottin heim.
Það dregst ég komi aftur.
Heyr á endemi, hváði Sigrún
Haraldsdóttir og er löngu búin að
sjá í gegnum hann:
Hefur víst af göflum gengið,
galnar sögur Davíð ort.
Muncahausen hefur fengið
heilkenni af verstu sort.
En Davíð gefur lítið fyrir vantrú
Sigrúnar:
Vandi er að verja sig,
ég vil þó reyna að svara:
Sigrún ljúga segir mig
en sjálf hún lýgur bara.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Fía á
Sandi, leggur orð í belg:
Ef hann Davíð ekki lýgur
sem akkúrat ég held.
Í Himnaranni hátt hann svífur
eða Hel að vaða eld.
Að síðustu vísnagáta úr fórum
Sigrúnar:
Fyrst ég konu freista hlaut.
Fröken eitrað kæfði.
Valin bæði í vín og graut.
Vilhjálmur mig hæfði.
Svarið birtist á þriðjudag en gam-
an væri að fá lausnir í bundnu máli.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af fugli, dagbók og vísna-
gátu kerlingarinnar
eftir Jim Unger
„NEI, ÉG VIL EKKI FÁ LÁNAÐA PENINGA,
MIG LANGAR BARA AÐ SJÁ NOKKRA.“
HermannÍ klípu
„HEILSA HANS HEFUR
TEKIÐ ÓVÆNTA STEFNU.“
eftir Mike Baldwin
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að skoða andlits-
málninguna áður
en þú kveikir á
vefmyndavélinni.
LÁNADEILD
SMJATT
SMJATT
SMJATT
ÞETTA VAR BESTA
SMÁKAKA SEM ÉG HEF
BORÐAÐ Í ALLAN DAG!
OG EKKI VANTAÐI
SAMKEPPNINA!
HELGA, ÉG
ER KOMINN
HEIM!
GOTT, VAR ÞETTA
ÁRANGURSRÍK RÁNSFERÐ?
JÁ, EN ÞÚ VERÐUR AÐ
KOMA ÚT TIL AÐ SJÁ
HVERSU ÁRANGURSRÍK!
Víkverji hallast að því að nýhafið árverði gjöfult og gott, lands-
mönnum til ánægju og blessunar. Að
minnsta kosti sumum.
x x x
Á ferð um götur höfuðborgarinnarsér Víkverji að margir ökumenn
mega ekki vera að því að sinna akstr-
inum því þeir eru svo uppteknir við að
tala í farsíma. Þetta veit auðvitað á
ekkert nema gott. Töluð orð eru til
alls fyrst og þó þau geti valdið mikl-
um skelli, ekki síst undir stýri á stofn-
brautum í hálu og slæmu skyggni, er
um að gera að koma þeim frá sér áður
en í óefni er komið.
x x x
Mörgum þykir miður að Íslend-ingar alist ekki upp við hirð og
þekki því ekki hirðlíf nema af af-
spurn. Víkverji er alsæll með að vera
ekki í konungsríki en tekur eftir að
ákveðnir menn á þingi hafa tamið sér
háttsemi hirðfífla. Sá sem gerir mest í
því að draga Alþingi niður í svaðið
minnir einna helst á Curley í sögu
Johns Steinbecks um Mýs og menn
og þeir sem fá ekki miða á samnefnt
leikrit í Borgarleikhúsinu geta virt
manninn og framgöngu hans fyrir sér
á þingi. Tvær flugur í einu höggi þyk-
ir ekki slæmt.
x x x
Í áratugi hefur mönnum orðið tíð-rætt um hornsteina samfélagsins.
Þar hafa fjölskyldan, kirkjan, skól-
arnir og heilbrigðisþjónustan gegnt
veigamiklu hlutverki en stjórnendur
borgar og ríkis hafa séð að við svo bú-
ið má ekki öllu lengur standa. Þing-
maður í kapphlaupi undir þrýstingi
álasar nýkjörnum biskupi fyrir að
vilja efna til almennrar söfnunar til að
styrkja tækjakaup á Landspítalanum
og prestum er bannað að fara með
bænir með börnum í heimsókn í
kirkjum. Þetta kallar Víkverji að
hraustlega sé tekið á málum og hvað
er betra en heilbrigð sál í hraustum
líkama?
x x x
En það sem sannfærir Víkverjamest um ágæti líðandi árs var ein
mest lesna netfrétt vikunnar þess
efnis að Kristrún Ösp væri byrjuð í
menntaskóla á ný. víkverji@mbl.is
Víkverji
Ég veit að lausnari minn lifir og hann
mun síðastur ganga fram á foldu.
(Jobsbók 19:25)
Kolabrautin er á 4. hæð Hörpu
Borðapantanir í síma 519 9700
info@kolabrautin.is
www.kolabrautin.is
LA PRIMAVERA
dagar í janúar