Morgunblaðið - 11.01.2013, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.01.2013, Blaðsíða 29
ir utan Hólmavík. Við komu þeirra breyttist þetta litla kot í yndislegan samverustað. Í Kálfa- nesi nutu þau tengslanna við náttúruna og gamlar æskuslóðir Finns. Olla tók á móti okkur systkin- unum þegar við komum í heim- inn. Alla tíð var mikil samheldni innan fjölskyldunnar, farið var í margar skemmtilegar ferðir og reglulega komið saman. Olla var létt í lund og hrókur alls fagnaðar á þessum stundum. Okkur þótti mjög vænt um að hún skyldi geta tekið þátt í litlu ættarmóti í sept- ember sl. skömmu áður en hún hélt hún upp á 90 ára afmælið sitt. Við kveðjum Ollu með söknuði en vitum að Finnur hefur breitt út faðminn og tekið vel á móti henni. Guðrún, Sigrún og Ólafur Reykdal. Með hryggð í huga sest ég nið- ur til að minnast Ollu systur minnar og náins vinar. Enn geng- ur á okkar stóra systkinahóp og nú aðeins fimm eftir. Olla var ein af okkar stóru fjöl- skyldu, en við urðum 14 systkinin og komust 12 þeirra á legg. Flest vorum við 12 systkinin í heimili samtímis í litla húsinu okkar á Ósi, sem stóð fyrir neðan þorpið Bakkagerði í Borgarfirði eystra, og var þar oft þröng á þingi, en samkomlagið var gott og fundum við ekki svo mikið fyrir þrengsl- unum. Eldri systkini mín fóru snemma að heiman, eða þegar þau gátu farið vinna fyrir sér, og þar sem Olla var átta árum eldri en ég vorum við lítið saman í bernsku. Þó að Olla ætti ekki lengi heima í gamla húsinu okkar að Ósi í uppvextinum þá tók hún sérstöku ástfóstri við þann stað og eiginlega allt sem tilheyrði næsta umhverfi þess. Þegar hætt var fastri búsetu á Ósi tókum við systkinin við eignarhaldi á því og stofnuðum félag um það til þess annast rekstur þess og viðhald. Þá var Olla kosin formaður fé- lagsins og var það til margra ára og var driffjöðrin í því að láta við- halda húsinu svo vel sem kostur var á. Olla systir var alltaf svolítið sérstök og skar sig úr fjöldanum sökum glaðværðrar og kröftugr- ar framkomu hvar sem hún fór, hvort sem var í leik eða starfi. Það var sjaldan ládeyða í kring- um hana og var þá sama hvaða verk þurfti að leysa af hendi, stíga dansinn eða skemmta sér rækilega. Hún var ákaflega ná- tengd minni fjölskyldu og var í miklu uppáhaldi hjá mínum börn- um. Hún var ómissandi í okkar fjölskylduboðum þar sem hún var hrókur alls fagnaðar. Þar var gjarna mikill glaumur og gleði og mikið sungið. Þá var nú ekki ónýtt að hafa hann Finn, eigin- mann hennar, með í hópnum. Hann var sérlega góður söng- maður með hreina og mjúka bassarödd og kunni ósköpin öll af alþýðusöngvum, fallegum ljóðum og lögum. Þá má nú aldeilis minn- ast þeirra dýrðardaga þegar við Bryndís vorum saman með þeim í Lúxemborg. Það voru ógleyman- legar dýrðarstundir. Við minn- umst þess oft hvað hún var frá- bær og er oft minnst á það innan fjölskyldunnar, þegar stórfjöl- skyldan var að halda eitt af okkar niðjamótum, sem haldin eru á fimm ára fresti heima á Borgar- firði. Í þetta skiptið vorum við með tjaldbúðir okkar fyrir innan þorpið á svonefndum Brandsböl- um. Þá gengu margir seint til hvílu það kvöld og trúlega ekki langt í sólarupprás. Þá var með því allra síðasta sem heyrðist sönglið í Ollu systur þar sem hún kvað við raust eitt af sínum uppá- haldslögum, „Sævar að sölum“, og viti menn, fyrsta lífsmark sem vart varð við um morguninn var raulið í Ollu þar sem hún sat framan við tjaldið sitt og var farin að baka pönnukökur á prímusn- um sínum. Ég flyt Tótu og Dodda og allri þeirra fjölskyldu hugheilar sam- úðarkveðjur frá systkinunum frá Ósi og þeirra fjölskyldum og við biðjum þeim öllum blessunar um ókomin ár. Ég bið góðan Guð að leiða og blessa hana Ollu systur mína á sinni hinstu för og ég veit að hann lýsir henni leiðina til end- urfunda við þá sem á undan eru farnir og voru henni kærir. Hvíli hún í friði. Jón Þór Jóhannsson. Elsku Olla frænka. Nú hefir þú fengið hvíldina, var það mjög friðsælt. Enda ekki í þínum anda að láta sitja yfir þér, hvað þá að hafa fyrir þér og alls ekki að láta nudda tærnar. Þú hafðir verið aðeins 9 mán- uði á stofnun eða sem samsvarar einni meðgöngu. Ég held að þú sért mjög fegin að hafa ekki þurft að vera lengur upp á aðra komin. Bjóst alltaf ein í Ljósheimunum eftir að Finnur dó og undir þér vel þar, enda heimilið þitt ynd- islegt. Þú reyndist mér sem móð- ir í yfir 40 ár og hefur verið ómet- anlegt að eiga þig að. Þú varst alltaf til staðar þegar á þurfti að halda og var ég ómöguleg ef þú varst lengi í burtu. Síðustu ár höfðum við mikið samband og töluðum saman í síma nær daglega, en aldrei lengi, það var ekki þinn stíll, bara taka stöðuna. Ég kom oft við eftir vinnu og var þá alltaf boðið upp á kaffi, hafrakex, salat og osta. Ein af ástæðunum fyrir því hve lengi þú gast verið ein heima var aðstoð Rögnu frænku okkar sem sá einstaklega vel um þig, einnig var ómetanleg hjálp frá ná- grannakonum þínum þeim Guð- laugu og Sólveigu (Gullu og Sollu) enda fylgdust þær mjög vel með að allt væri í lagi. Gaman fannst þér að fá gesti, Olla mín, og var oft gestkvæmt í Ljósheimunum, ef ekki var boðið upp á kaffi var gjarnan boðið upp á líkjör, ekkert bölvað sérrí eins og þú sagðir sjálf. Mikið held ég að jólin hafi verið skemmtileg hjá ykkur þarna á himnum, Finnarnir þínir leikið á als oddi að hafa fengið nýjan skemmtikraft, ég held að það hafi verið dansað í kringum jólatréð og sungið smá og hún Freyja vin- kona þín sem fór fyrir ekki svo löngu verið glöð að hitta þig, Olla mín. Allir sem þekktu þig minn- ast þín með sérstakri hlýju og söknuði, þú varst slíkur gleði- gjafi. Nú verður auður stóll hjá okkur í Jakaselinu á gamlárs- kvöld, en þín minnst sérstaklega með því að skála í líkjör. Elsku Olla mín, ég ætla ekki að segja mikið meira, gæti rifjað upp ýmislegt skemmtilegt en þér hefði fundist það hinn mesti óþarfi. Ef eitthvað bjátaði á eða þú vildir að hlutirnir gengju eftir fórstu upp í Hallgrímskirkju og hést á Hallgrím eins og þú sagðir. Þú vildir að karlakór myndi syngja yfir þér, sagðist ekki þola kvennakóra og þá ósk þína færðu að sjálfsögðu uppfyllta. Þín einlæg frænka og systur- dóttir, Rósa Guðný. Nú er komið að kveðjustund. Þá rifjast upp minningarnar. Fyrir rúmri hálfri öld fluttum við hjónin í nýja blokk við Ljósheima 6 á 5. hæð. Í íbúð á móti okkur komu yndisleg hjón með dóttur sína sem voru að flytja til Reykja- víkur frá Hólmavík. Það voru þau Finnur, Ólöf og Þórhildur. Með okkur tókst góður vinskapur sem aldrei bar skugga á. Við kynnt- umst fjölskyldum þeirra og áttum margar góðar stundir með þeim. Olla, eins og hún var ætíð köll- uð, var mér meira en nágranni, þarna eignaðist ég góða vinkonu fyrir lífið. Í mínum huga var hún ljósmóðirin sem hafði þörf fyrir að hlúa að lífinu, alltaf tilbúin að rétta fram hjálparhönd. Hún bar mikla umhyggju fyrir mér og var næm fyrir því þegar ég þurfti á hjálp að halda. Fyrir það er ég henni ævinlega þakklát. Ef ég á að lýsa henni með orð- um koma upp orðin hreinskilin, ákveðin, heiðarleg, gefandi og alltaf var stutt í brosið hennar. Hún var alltaf á miklum hraða og kom til dyranna eins og hún var klædd. Hún kallaði ekki allt ömmu sína og kom oft labbandi til mín eftir að ég flutti á Langholts- veginn, og oft var hún að koma úr sundi og var þá búin að vinna heil- an vinnudag. Hún var þakklát fyrir það að hafa góða heilsu og var dugleg að halda henni við með sínum dugn- aði og krafti. Eftir að hún hætti að vinna gekk hún í Kvenfélag Langholtskirkju. Þar náðum við saman aftur og áttum okkar hug- ljúfu stundir. Hún hlúði vel að fjölskyldu sinni og dótturbörnin hennar voru hennar guðsgjafir sem gáfu henni tilgang í lífinu. Þau fengu alla hennar ástúð og umhyggju. Þegar sorg var í lífi hennar tók hún henni með miklu æðruleysi. Þegar maður reynir að lýsa mannkostum látinnar vinkonu verða öll orð máttlaus og lítils megnug, en minningarnar koma upp og varðveitast. Elsku Tóta mín og fjölskylda, mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning hennar. Súsanna Kristinsdóttir. Láttu nú sanna blessunar brunna blómlega renna á móti mér, svo sæluna sanna, ég fái að finna og fögnuð himnanna, þá ævin þver. (Höf. ókunnur) Þá er hún elsku Olla farin frá okkur. Ólöf Jóhannsdóttir var af flestum kölluð Olla og hún var yndisleg og hún var einstök. Hún var skólasystir mín frá Ljós- mæðraskólanum, elst í okkar 12 kvenna hópi, en duglegust að hóa okkur skólasystrunum saman á stórafmælum sem og oftar. Við vorum 11 sem útskrifuðumst haustið 1953 en því miður er farið að fækka verulega í þeim hópi. Síðastliðið haust kvaddi Freyja okkur, en Olla og Freyja áttu það til að dansa saman við góð tæki- færi. Hópurinn allur var mjög sam- stilltur og við nutum þess að hitt- ast og jafnvel ferðast. Til dæmis, þegar 40 ár voru liðin frá útskrift, var það Olla sem sá alfarið um að við færum saman til Lúxemborg- ar, til Þórhildar dóttur hennar og fjölskyldu. Svo var það dóttur- dóttirin hún Olla Dís sem keyrði okkur, hvert sem við fórum, til dæmis til Þýskalands þar sem gist var eina nótt. Að vísu komust ekki nema 7 af okkur í þessa ferð, því miður, því þetta var svo gam- an. Það hefði verið minna um sam- verustundir hjá okkur skóla- systrunum ef Ollu hefði ekki not- ið við og hún var búin að tala um það í fyrra að við yrðum að koma saman árið 2013, á 60 ára út- skriftinni. Það verður örugglega ekki, fyrst Olla er ekki til að minna okkur á það. Skólasysturnar Elín, Herdís, Steinunn og Sigrún þakka Ollu fyrir alla þá góðu hluti sem hún gerði fyrir okkur og einnig Mar- grét, sem var með okkur í byrjun í skólanum en varð að hætta vegna veikinda og lauk sínu námi ári seinna. Það var alltaf fjör í kringum Ollu og glatt á hjalla hjá henni og Finni þegar þau buðu okkur heim til sín. Olla náði þeim áfanga sl. haust að ná 90 ára aldri. Hún var komin í öruggt skjól og leið vel á Eir. Hún þurfti nánast ekkert að liggja rúmföst áður en kallið kom hægt og hljótt. Við hjónin minnumst Ollu sem gleðigjafa og Sveinn þakkar líka fyrir alla samveru og ekki síst dansana. Við sendum þér, Þór- hildur, allri þinni fjölskyldu og öllum hinum stóra frændgarði innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Ólafar Jóhanns- dóttur. Ása Marinósdóttir. HINSTA KVEÐJA Ég langömmu á sem að létt er í lund, hún heitir Olla og fer oft í sund, hún kann ekki að prjóna, en heklar samt vel og pönnukökur bakar já það elska ég. Þórður Ingi, Ari, Mathis, Daniel Snær og Björn Hinrik. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013 frétti ég að þú værir farin frá okk- ur. Ég mun standa við þau loforð sem ég gaf fyrir þig, amma, og ég ætla alltaf að vera jafn dugleg og kraftmikil og þú varst í lífinu. Ég sé það svo mikið með hverju árinu hvað ég er lík og er að líkjast þér og mömmu, eitthvað sem ég var alfarið á móti þegar ég var yngri en er hæstánægð með núna. Þið eruð mínar fyrirmyndir ásamt Sigrúnu ömmu. Elsku amma, takk yndislega mikið fyrir allt sem þú hefur kennt mér og allar þær stundir sem við áttum saman, t.d. í Grindavík, Lyngheimum, göngu- túrana, ferðalög, hringinn í kring- um landið, jól og hátíðardaga, af- mæli og útskriftir, þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig öll mín 24 ár og það er mjög óraunverulegt að þú sért í alvörunni farin frá okkur og ég get ekki talað við þig á skype eða í símann né hitt þig og varið tíma með þér þegar ég kem til Íslands. En ég veit að nú á ég annan verndarengil sem mun passa mig mjög vel á ferðalögum mínum um heiminn og hjálpa mér í gegnum lífið ef mig vantar hjálp- arhönd. Elsku amma, ég veit þér líður betur núna á meðal hinna engl- anna í paradís og Siggi afi hefur tekið vel á móti þér. Ég mun varð- veita minninguna um þig vel, dugnað þinn og allt sem þú hefur kennt mér. Ég elska þig, Gógó amma mín. Þín litla Gógó, Guðrún Sif. Hetjan hún Gógó er fallin frá. Við vorum 9 sem fermdumst í Grindavíkurkirkju árið 1957 og er hún sú fyrsta sem kveður þetta líf. Við Gógó brölluðum margt saman þegar við vorum stelpur: 12 ára gamlar fórum við sem barnfóstrur til frænkna okkar í Reykjavík. Ár- ið sem við fermdumst fórum við sem kaupakonur í sveit, hún í Biskupstungur en ég í Hruna- mannahrepp. Þá um haustið fór- um við ásamt nokkrum krökkum úr Grindavík í Héraðsskólann að Núpi í Dýrafirði því í Grindavík var ekki hægt að stunda fram- haldsnám. Þar kynntumst við mörgum skemmtilegum krökkum sem við höfum haldið sambandi við æ síðan. Gógó greindist með krabba- mein fyrir fáeinum árum sem hún hefur háð baráttu við síðan. Aldrei var hægt að skynja eða sjá að veikindi hrjáðu hana. Hún sagði alltaf allt gott, „annað væri ekki í boði“. Hún var alltaf til í að gera eitthvað skemmtilegt, má segja til hinsta dags. Gógó var mikill Grindvíkingur og hugur hennar var oft hér. Hún var mjög minnug á allt gamalt og var mjög gaman að ræða við hana um liðna tíð. Hún verður lögð til hinstu hvílu við hlið eiginmanns síns í kirkju- garðinum að Stað í Grindavík. Ég kveð kæra vinkonu með söknuði og þakka henni fyrir vin- áttu og tryggð. Kolbrún. Það er margt sem kemur upp í hugann þegar ég minnist æsku- vinkonu minnar Gógóar. Hún var fyrsta stelpan sem ég kynntist eft- ir að ég flutti til Grindavíkur. Það er langt um liðið síðan, það var ár- ið 1947, þá var Grindavík lítið sjávarþorp með aðeins tæplega 300 íbúa. Gógó sem þá var bara tæplega fjögurra ára gömul kom röltandi yfir í Pálshús til að kíkja á þessa nýfluttu stelpu sem var einu ári eldri en hún. Við náðum strax vel saman og lékum okkur mikið eins og þá tíðkaðist hjá litlum stelpum, með útibú og í dúkku- leikjum ýmist heima hjá mér eða heima hjá henni. Aðeins eitt hús var á milli æskuheimila okkar, Sólheima þar sem Gógó átti heima og Pálshúss. Gógó átti mjög fallegt dót sem Jón móðurbróðir hennar sem þá var í siglingum keypti handa henni, dót sem ekki var til í búðum hér á landi og var mér sveitastelpunni framandi. Mér er minnisstætt þegar við vorum að leika okkur á loftinu á Sólheimum að Ragna amma Gógóar sem hafði herbergi á efri hæðinni og lá rúmföst eftir lær- brot og hafði gaman af að spila, kallaði alltaf ef hún heyrði til okk- ar: „Stelpur, Gógó og Stína, komið að spila.“ Þarna lærðum við að spila manna og fleiri spil, stundum fórum við hljóðlega um til þess að hún heyrði ekki í okkur þegar við nenntum ekki að spila, vildum heldur leika okkur. Gógó var skemmtilegur leik- félagi og mjög uppátækjasöm. Við uxum úr grasi og bernskuár okkar að baki eins og gengur og ung- lingsárin tóku við með ýmsum uppátækjum sem verða ekki rakin hér. Ævilöng vinátta okkar sem hófst með bernskuleikjum hefur haldist alla tíð. Þegar ég hringdi í Gógó á afmælinu hennar 11. sept- ember sl. áttum við langt og gott samtal og rifjuðum upp gamla daga, bernskubrek okkar og uppátæki. Gógó var einstaklega minnug og hafði alltaf gaman af að rifja upp það gamla. Gógó bar veikindi sín vel, þrátt fyrir margar og erfiðar lyfjameð- ferðir kvartaði hún aldrei. „Hef það bara ágætt, það er ekki annað í boði,“ sagði hún ævinlega þegar hún var spurð um heilsufarið. Nú að leiðarlokum vil ég þakka Gógó æskuvinkonu minni ævilanga vin- áttu. Börnum Gógóar og fjöl- skyldunni allri sendum við Jonni innilegar samúðarkveðjur. Kristín Thorstensen. Guðrún Sigurðardóttir er látin eftir hetjulega baráttu við erfið veikindi. Gógó skólasystir okkar og vinkona í yfir hálfa öld var í hópnum okkar sem vorum sam- skóla á Núpi í Dýrafirði veturinn 1958-59. Við höfum í gegnum tíð- ina hist tvisvar á ári, síðast í fal- lega sumarbústaðnum hennar í Þrastaskógi. Hún var ávallt sú glaða, yfirvegaða og jákvæða í hópnum sem hélt traustu vina- sambandi við okkur hinar og lét sig aldrei vanta í hópinn sem nú minnkar svo um munar. Við kveðjum þig, kæra vinkona, með söknuði og þakklæti fyrir samfylgdina. Hvíl í friði. Fyrir hönd skólasystranna, Hekla. Í dag er Gógó vinkona okkar lögð til hinstu hvílu við hliðina á honum Sigga sínum. Þau urðu bæði að lúta fyrir sama illvíga sjúkdómnum, á besta aldri að okk- ur finnst. Nú eru þau saman á ný. Við viljum þakka henni fyrir 35 ára samfylgd og vináttu sem byrj- aði þegar við fluttum til Grinda- víkur. Það var margt brallað og áttum við margar góðar stundir saman. Við biðjum fjölskyldu hennar Guðs blessunar. Hvíldu í friði, kæra vina þú komin ert í himnavist. Til þess er allar þrautir linar og þeirra er fyrr þú hefur misst. (I.K.) Sigrún og Ingólfur, Sigrún og Jóhannes, Aldís og Haraldur. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS KJARTANSSON, fyrrum bóndi í Hjallanesi, Landsveit, sem andaðist föstudaginn 28. desember, verður jarðsunginn frá Skarðskirkju á Landi laugardaginn 12. janúar kl. 14.00. Pálína H. Magnúsdóttir, Hallgrímur H. Óskarsson, Kjartan G. Magnússon, Elínborg Sváfnisdóttir, Bryndís H. Magnúsdóttir, Rúnar Hauksson, barnabörn og barnbarnabörn. Hjartans þakkir til ættingja, vina, samstarfs- fólks og annars samferðafólks fyrir stuðning og samhug við veikindi og andlát INGUNNAR JÓNSDÓTTUR. Sérstakar kveðjur færum við starfsfólki líknardeildarinnar við Kópavog fyrir góða umönnun. Magnús Skúlason, Hlynur Magnússon, Skúli Magnússon, Guðrún Katrín Oddsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.