Morgunblaðið - 11.01.2013, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013
um fyrr en í fyrra og að hálft ár sé
síðan hann setti einhvern kraft í þá
vinnu. „Ég hef fjárfest í þremur fyr-
irtækjum og nokkrum fasteignum.
Það er ágætis byrjun,“ bendir hann
á.
„Ég hef áhuga á að fjárfesta í fleiri
nýsköpunarfyrirtækjum. Það er
skemmtilegra en að fjárfesta í fast-
eignum,“ segir hann og horfir til
fyrirtækja sem hafi metnað til að
vaxa og bjóða vörur og þjónustu á er-
lendum mörkuðum. Hann hafi þekk-
ingu á slíku og gæti lagt sitt af mörk-
um. Jón veltir því fyrir sér hvort
hann eigi að stofna fyrirtæki eða láta
sér nægja að fjárfesta og láta gott af
sér leiða með þeim hætti. Það sé stór
ákvörðun því það fari mikill tími í að
reka fyrirtæki. En það hafi tekið
hann tíma að venjast breyttum takti í
lífinu eftir að hann fór að starfa sem
fjárfestir í stað þess að reka fyrirtæki
sem sé nánast sólarhrings vinna.
„Að því sögðu þykir mér afskap-
lega gaman að vinna með fyrirtækj-
unum sem ég hef fjárfest í.“
Fjárfestingarleið Seðlabankans
gengur út á að fjárfestar komi með
erlendan gjaldeyri til landsins, skipti
honum í krónur og fjárfesti hér til
lengri tíma, en gulrótin fyrir fjár-
magnseigendur er að krónurnar eru
um 20% ódýrari en ef þær hefðu verið
keyptar með hefðbundnum hætti.
Þessi leið er liður í því að reyna að
leysa hinn svokallaða aflandskrónu-
vanda, svo hægt sé að aflétta gjald-
eyrishöftunum.
Efnaðist í Noregi og kemur
með milljarð til Íslands
Jón von Tetzchner hefur fjárfest í atvinnuhúsnæði og á hlut í nýja OZ
Morgunblaðið/Þorkell
Nýsköpun „Ég hef áhuga á að fjárfesta í fleiri nýsköpunarfyrirtækjum. Það
er skemmtilegra en að fjárfesta í fasteignum,“ segir Jón S. von Tetzchner.
Synti næstum frá Noregi
til Bandaríkjanna
» Jón lýsti því yfir árið 2005
að ef fjöldi niðurhala nýs net-
vafra, Opera 8, næði 1 milljón á
fyrstu fjórum dögunum, myndi
hann synda frá Noregi til
Bandaríkjanna og aðeins koma
við á Íslandi til að drekka kakó-
bolla hjá móður sinni.
» Hann stakk sér til sunds en
komst ekki alla leið til Banda-
ríkjanna. Enda var um að ræða
skemmtilega auglýsingabrellu.
» Jón flutti tvítugur til Nor-
egs. Hann flutti í sumar til
Boston.
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Jón S. von Tetzchner, annar stofn-
andi norska hugbúnaðarfyrirtækis-
ins Opera, hefur komið með 1,1 millj-
arð króna til landsins í gegnum
fjárfestingarleið Seðlabankans. „Ég
hef mikla trú á Íslandi,“ segir hann í
samtali við Morgunblaðið. Hann hef-
ur fjórum sinnum farið í gegnum
fjárfestingarleiðina. „Það er ekki enn
búið að fjárfesta fyrir alla þessa fjár-
muni. En það er gott að hafa þá til
reiðu því ég hef trú á því að álitleg
fjárfestingartækifæri finnist.“
Hann hefur fjárfest í nokkrum at-
vinnufasteignum og tveimur tölvu-
fyrirtækjum hér á landi: OZ, sem
hefur þróað nýja aðferðafræði við að
dreifa sjónvarpsútsendingu í há-
skerpu á netinu, og Íslenskum vef-
verslunum. Auk þess hefur hann
fjárfest í nýsköpunarfyrirtæki í Nor-
egi, I want to know, sem framleiðir
forrit fyrir snjallsíma sem kennir
stærðfræði á skemmtilegan máta.
Hann á enn hlut í Opera.
Sumarið 2011 var tilkynnt að Jón
væri á förum frá Opera, en hann var
þá forstjóri fyrirtækisins. Í kjölfar
breyttra aðstæðna ákvað hann að
flytja til Boston í sumar. Hann segist
ekki hafa farið að sinna fjárfesting-
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Bjarni Ármannsson fjárfestir keypti
rúmlega 40% hlut í Keldunni fyrir 20
milljónir króna. Hann keypti bréfin í
hlutafjáraukningu í sumar.
Fram kom í Morgunblaðinu í síð-
ustu viku að Bjarni hefði keypt hlut-
inn. Fram kemur í gögnum til Hluta-
félagaskrár að hlutafjáraukningin
hafi numið 30 milljónum króna en
tveir hluthafar breyttu 10 milljóna
króna kröfu á félagið í hlutafé. Halldór
Friðrik Þorsteinsson, stofnandi Hf.
Verðbréfa, lánaði félaginu níu milljón-
ir sumarið 2011 og Gunnar Halldór
Sverrisson, sem stýrir Íslenskum að-
alverktökum, eina milljón veturinn
2011. Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi
forstjóri Fjármálaeftirlitsins, er
stjórnarformaður Keldunnar.
Um er að ræða lítið þriggja
manna fyrirtæki sem stofnað var
haustið 2009 og er ekki enn farið að
skila hagnaði. Bjarni sagðist í
Morgunblaðinu í liðinni viku hafa
áhuga á að styðja við bakið á Keld-
unni til að efla góða og óháða upp-
lýsingagjöf fyrir fjármálamarkað-
inn.
Keppinautur Keldunnar er Cred-
itInfo. „Okkur fannst það verðugt
verkefni að veita þeim samkeppni,“
sagði Friðrik Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Keldunnar, við
Morgunblaðið í liðinni viku.
Bjarni keypti fyrir 20 milljónir
Keypti rúmlega 40% hlut í Keldunni
í sumar Vill efla upplýsingagjöf
Morgunblaðið/Frikki
Fjárfestir Bjarni Ármannsson styð-
ur við bakið á ungu fyrirtæki.
● Peninga-
stefnunefnd Seðla-
banka Evrópu
ákvað á fundi sín-
um í gær að halda
stýrivöxtum á evru-
svæðinu óbreytt-
um í 0,75%. Hafa
vextirnir aldrei ver-
ið jafn lágir.
Ákvörðunin var í
samræmi við
væntingar flestra greinenda á markaði.
Hins vegar hafði verið nokkur þrýst-
ingur á peningamálayfirvöld að lækka
vexti til að stemma stigu við minnkandi
heildareftirspurn á evrusvæðinu.
Englandsbanki gerði heldur ekki
breytingu á stýrivöxtum sínum í gær og
eru þeir enn 0,5%. Hafa vextir bankans
verðið óbreyttir í tæp fjögur ár. Eins var
ákveðið að halda áfram að dæla lausafé
út í hagkerfið, en frá mars 2009 hefur
bankinn veitt samtals 375 milljarða
punda í tengslum við slíkar aðgerðir.
Óbreyttir stýrivextir
Mario
Draghi.
● Eignir íslensku lífeyrissjóðanna juk-
ust um 10 milljarða í nóvember síðast-
liðnum. Það er mun minni aukning en
síðustu þrjá mánuði þar á undan þegar
aukningin hefur verið að meðaltali 28
milljarðar í hverjum mánuði. Hrein eign
sjóðanna nemur 2.337 milljörðum
króna, eða sem nemur 137% af vergri
landsframleiðslu. Þetta kemur fram í
Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.
Eign sjóðanna í innlendum hlutabréf-
um og hlutabréfasjóðum jókst um 12
milljarða og nam sú eign sjóðanna nú í
lok nóvember samtals 184,6 millj-
örðum, eða sem nemur 7,9% af heild-
areignum þeirra. Hefur þetta hlutfall
ekki verið svo hátt síðan í september
2008 þegar það var 8,5%.
Meira vægi hlutabréfa
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
,/1.+2
+0/.34
,,.254
,0.++0
+-.2-+
+0-.1-
+.425
+-1.0
+2-./0
+,-.04
,/1.22
+0+.,,
,,.1,
,0.+3+
+-.14-
+4/.+3
+.42-0
+-1.3-
+2-.5
,0,.1210
+,-.25
,/3.+2
+0+.2
,,.132
,0.,4-
+-.3/1
+4/.51
+.4102
+-3.43
+2-.-1
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Sameinað sveit-
arfélag Garða-
bæjar og Álfta-
ness, undir nafni
Garðabæjar, hef-
ur í samstarfi við
Markaðsviðskipti
Íslandsbanka
gefið út skulda-
bréfaflokk til
endurfjármögn-
unar á láni fyrir
alls 1.187 milljónir króna. Þetta
kemur fram í tilkynningu til Kaup-
hallar Íslands.
Skuldabréfin eru verðtryggð jafn-
greiðslubréf til tíu ára og bera fasta
2,95% árlega vexti og verða skráð í
Kauphöllina. Haft er eftir Gunnari
Einarssyni, bæjarstjóra sameinaðs
sveitarfélags, að kjörin séu mjög góð
og endurspegli trausta fjárhags-
stöðu hins nýja sveitarfélags og um
leið trú markaðarins á því.
Sameining Garðabæjar og Álfta-
ness tók gildi 1. janúar 2013.
Endurfjár-
magna lán
Gunnar
Einarsson
Tri ehf.
Suðurlandsbraut 32
104 Reykjavík www.tri.is
Verslunin er opin:
Alla virka daga kl. 09:00-18:00
Laugardaga kl. 10:00-16:00
ÚTSÖLUHELGI
Opið á milli kl. 10:00-16:00
alla helgina