Morgunblaðið - 11.01.2013, Page 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013
London. AFP. | 150 ár eru nú liðin frá því að elsta
jarðlestakerfi heimsins var opnað, þ.e. jarð-
lestakerfið í London sem flytur um fjórar millj-
ónir farþega á dag.
Fyrsta brautarspor lestakerfisins var opnað al-
menningi 10. janúar 1863, um þremur árum eftir
að framkvæmdirnar hófust. Langar biðraðir
mynduðust á lestarstöðvunum því margir höfðu
beðið spenntir eftir því að fá tækifæri til að
ferðast með jarðlestunum sem voru gufuknúnar
og lýstar með gaslömpum. „Í fyrsta skipti í sögu
heimsins geta menn ferðast í notalegum vögnum,
með verulegum þægindum, neðar en gas- og
vatnsleiðslur borgarinnar … neðar en grafirnar,“
sagði í forystugrein dagblaðsins Daily News á
þessum tíma.
„Við fundum ekki neina vonda lykt, fyrir utan
þá lykt sem er algeng í göngum. Það er svo hátt til
lofts í vögnunum að sex feta maður getur staðið
þar uppréttur, með hattinn á höfðinu,“ var haft
eftir William Hardman, einum af fyrstu farþegum
jarðlestanna.
Á þessum tíma var London fjölmennasta borg
heimsins og mikil þörf á því að bæta almennings-
samgöngurnar. Jarðlestakerfinu var komið upp til
að tengja þrjár lestarstöðvar (Paddington,
Euston og King’s Cross) við miðborgina.
402 kílómetra löng
Fyrsta brautarsporið, nefnt Metropolitan Rail-
way, var nær fimm kílómetra langt og stöðvarnar
voru sjö. Hálfri annarri öld síðar eru brautar-
sporin alls 402 km löng og lestarstöðvarnar eru
270. Á ári hverju flytja jarðlestirnar 1,1 milljarð
farþega.
„Það varð lífæð Lundúna,“ segir David Laboso,
einn framkvæmdastjóra Transport for London,
fyrirtækis sem stjórnar almenningssam-
göngukerfi borgarinnar. „Merki jarðlestanna
varð að tákni Lundúna,“ segir Oliver Green sem
hefur skrifað bók um sögu jarðlestanna.
Jarðlestakerfið tengist mörgum mikilvægum
atburðum í sögu borgarinnar. Göng jarð-
lestakerfisins gegndu t.a.m. mikilvægu hlutverki
sem loftvarnabyrgi í síðari heimsstyrjöldinni þeg-
ar London varð fyrir árásum þýskra flugvéla.
Tugir þúsunda borgarbúa sváfu þá í lestarstöðv-
unum, stundum hátt í 200.000 manns. Til að
mynda leituðu um 177.500 manns athvarfs í jarð-
lestastöðvunum 27. september 1940.
Lestarstöðvarnar voru einnig notaðar sem spít-
alar. Hvítar línur voru málaðar á brautarpalla til
að aðgreina svæði sem ætluð voru sjúklingum eða
fólki sem svaf í lestarstöðvunum.
Sex áratugum síðar, 7. júlí 2005, urðu jarð-
lestarstöðvarnar sjálfar fyrir árásum þegar til-
ræðismenn sprengdu sig í loft upp í þremur lest-
um og einum strætisvagni. 52 biðu bana í
sprengingunum, auk tilræðismannanna fjögurra.
Green segir að ef til vill líti ferðamenn ekki
lestakerfið sömu augum og borgarbúar sem nota
lestirnar á hverjum degi til að ferðast langan veg
milli heimilis og vinnustaðar á aðalumferðartíma.
„Það er ástar- og haturssamband á milli Lund-
únabúa og jarðlestanna,“ segir hann. „Þeir eru
alltaf að kvarta yfir þeim en þurfa að nota þær.“
Helstu umkvörtunarefnin eru tafir vegna bil-
ana, sífelldar endurbætur og hátt verð farmiða.
Að sögn breska dagblaðsins Telegraph er jarð-
lestakerfið úr sér gengið vegna þess að síðustu
áratugi hafi of lítið fé verið lagt í það til að bæta
það.
km
150 ára afmæli jarðlestakerfisins í London
186
3
197
8
193
3
Ha
rry
Bec
k h
ann
ar
fyrs
t ko
rt ja
rðle
sta
-
ker
fisin
s
193
9-4
5
Íbú
ar L
ond
on
not
uðu
gön
g le
sta
ker
fisin
s s
em
loft
var
nab
yrg
i í s
íða
ri
hei
ms
sty
rjöl
din
ni
194
8
Sam
gön
guk
erfi
bor
gar
inn
ar þ
jóð
nýt
t
196
8
Fyr
sta
tölv
ust
ýrð
a
neð
anj
arð
ars
por
ið í
hei
min
um
opn
að
Fyr
sti
kve
nle
sta
rstj
órin
n
hef
ur s
törf
198
7
31
bei
ð b
ana
í el
dsv
oða
200
3
200
5
Mik
lar
end
urb
ætu
r
á le
sta
ker
finu
haf
nar
56
ma
nns
bíð
a b
ana
í sp
ren
gju
árá
sum
í ja
rðle
sta
ker
finu
Fyr
sta
bra
uta
rsp
or
jarð
les
tak
erfi
sin
s
opn
að
Clapham-stöðin í
síðari heimsstyrjöldinni
Ljósmyndir: The Art Archive / Central Office of Information
Merki jarðlestakerfisins er orðið að
einu af helstu táknum borgarinnar
5 km
Westminster
Hyde Park
Tower-
brúin
Th
am
es
á
LONDONPaddington
Farringdon
Fyrsta brautarsporið
var 4,8 km langt
með sjö
viðkomustöðum
Gufuknúin
lest árið 1900
Jarðlest
sem notuð
er núna
UNDERGROUND
stöðvar
(402 km)
Stysta
ferðin:
(Leicester Square
til Covent Garden)
metrar
Lengsta
ferðin:
(West Ruislip
til Epping)
km
, , ,Verðfarmiða
sem gildir
í mánuð
evrur
Verð
eins
farmiðaevrur
milljarður
Fjöldi
farþega
á ári
Jarðlestakerfið 150 ára
Elsta jarðlestakerfi heimsins flytur 1,1 milljarð farþega á ári Lestarstöðv-
unum hefur fjölgað úr sjö í 270 frá því að fyrsta brautarsporið var tekið í notkun
Allt að helm-
ingur allra mat-
væla í heiminum
fer til spillis.
Þetta jafngildir
um tveimur millj-
örðum tonna af
mat. Stofnun
vélaverkfræð-
inga í Bretlandi
(The Institution of Mechanical Eng-
ineers) heldur þessu fram í nýrri
skýrslu.
Fjallað er um málið á vef breska
ríkisútvarpsins. Í skýrslunni er
bent á að þættir eins og slæm
geymsla matvæla, strangar reglur
um síðasta söludag, magntilboð og
duttlungar neytenda hafi áhrif á
þessa sóun.
Þá kemur fram í rannsókn verk-
fræðinganna að um 30% allrar
grænmetisuppskeru séu látin eiga
sig vegna útlits. Haft er eftir dr.
Tim Fox, sem er yfirmaður orku-
og umhverfismála hjá stofnuninni,
að þetta sé yfirgengileg sóun.
Í skýrslunni er fullyrt að á milli
30 og 50% af matvælaframleiðslu
heimsins, sem nemi fjórum millj-
örðum tonna á ári, fari til spillis.
Talið er að helmingur alls matar
sem er keyptur í Evrópu og í
Bandaríkjunum fari beint í tunn-
una. jonpetur@mbl.is
MAT SÓAÐ Í HEIMINUM
Helmingur matvæla
fer til spillis
Tallinn varð um
áramótin fyrsta
höfuðborgin í
Evrópusam-
bandslandi til að
veita öllum íbú-
unum rétt til
ókeypis ferða
með öllum
strætisvögnum
og sporvögnum borgarinnar. Sam-
kvæmt reglum sem tóku gildi á ný-
ársdag fengu nær 420.000 skráðir
íbúar borgarinnar rétt til ókeypis
almenningssamgangna eftir að
hafa keypt sérstakt kort sem kostar
aðeins tvær evrur, jafnvirði 340
króna.
Vinstrimenn í Miðflokknum, sem
er við völd í Tallinn, segja að mark-
miðið með þessu sé að draga úr
bílaumferð og loftmengun í borg-
inni. Andstæðingar flokksins segja
hins vegar að markmið hans sé að-
eins að auka fylgi sitt fyrir borgar-
stjórnarkosningar sem fara fram í
október.
EISTLAND
Allar strætisvagna-
ferðir ókeypis
Stjórnarformað-
ur Google, Eric
Schmidt, segist
hafa hvatt stjórn-
völd í Norður-
Kóreu til að
binda enda á ein-
angrun landsins
og leyfa íbúunum
að nota netið.
Schmidt sagði eftir ferð banda-
rískrar sendinefndar til Pjongjang,
höfuðborgar Norður-Kóreu, að
landið myndi ekki rétta úr kútnum
efnahagslega nema netfrelsi yrði
komið á þar.
Bill Richardson, fyrrverandi
sendiherra Bandaríkjanna hjá Sam-
einuðu þjóðunum, fór fyrir sendi-
nefndinni. Hann segir að nefndin
hafi hvatt N-Kóreumenn til að
hætta að þróa kjarnavopn og lang-
drægar eldflaugar. Þeir voru einn-
ig hvattir til að leysa bandarískan
fanga úr haldi.
NORÐUR-KÓREA
Íbúarnir fái frelsi til
að nota netið
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Fyrir þá sem
hönnun