Morgunblaðið - 11.01.2013, Side 35

Morgunblaðið - 11.01.2013, Side 35
Lækjarbakka við Hvammstanga frá 2010. Hún var auk þess kennari við Grunnskólann á Skagaströnd er fjöl- skyldan bjó þar og kennari við Grunnskóla Snæfellsbæjar. Á Hvammstanga starfaði Berglind hjá Fæðingarorlofssjóði 2010-2012. Berglind söng á árum áður með Kór Menntaskólans í Kópavogi og með Hjallakirkjukór, söng með kirkjukórunum á Skagaströnd og í Ólafsvík eftir því sem þau hjón gátu komið því við og syngur nú með kirkjukórnum á Hvammstanga. Þá starfar hún og prjónar með Prjónó, sem eru gallvaskar prjónakonur á Hvammstanga. Jóga og kristileg íhugun Berglind ólst upp við það að faðir hennar stundaði jógaæfingar um árabil. Hún fór því sjálf að æfa jóga og öðlaðist síðan kennsluréttindi í hatha-jóga. Hún hefur nú boðið upp á hatha-jógaæfingar og kristilega íhugun í safnaðarheimilinu á Hvammstanga í eitt ár og fengið við því góð viðbrögð. „Hatha-jógaæfingar snúast í raun um ýmsar jógastöður, öndunar- æfingar og slökun. Jafnframt þess- um æfingum ástundum við kristilega íhugun og endum hvern fund á fal- legri bæn. Ég hef stjórnað vikulegum fund- um af þessu tagi nú í eitt ár og fengið mjög góð viðbrögð við því. Það hafa töluvert margir komið á þessar æf- ingar og síðan er fastur hópur sem mætir í hvert skipti.“ Magnús, eiginmaður Berglindar, er frá Staðarbakka í Miðfirði en þar byggðu þau hjónin sér hús á árunum 2004-2007 og eru þar búsett í dag. Auk söngsins og áhuga á jóga blundar í Berglindi mikil sveita- manneskja. „Ég er nú reyndar ekki alin upp í sveit en ég hef verið alsæl hér á landsbyggðinni og hef mikinn áhuga á sauðfjárbúskapnum hér, sauð- burðinum á vorin og réttunum á haustin. Síðan eigum við hjónin hesta og erum svona í rólegheitum að koma okkur upp góðum stofni.“ Fjölskylda Eiginmaður Berglindar er Magn- ús Magnússon, f. 9.12. 1972, sókn- arprestur Breiðabólstaðarpresta- kalls. Hann er sonur Magnúsar Guðmundssonar, fyrrv. bónda á Staðarbakka, og Guðrúnar Helgu Jónsdóttur, húsfreyju þar, sem er látin. Börn Berglindar og Magnúsar eru Guðrún Helga, f. 15.8. 1996, nemi við FNV á Sauðárkróki; Rannveig Erla, f. 4.7. 2000, og Guðmundur Grétar, f. 6.1. 2004. Systkini Berglindar eru Áslaug, f. 10.5. 1957, hjúkrunarfræðingur í Noregi; Rannveig, f. 31.10. 1959, matráður í Kópavogi; Þorkell, f. 14.6. 1961, vélvirki í Reykjavík; Hilmar, f. 18.8. 1963, verktaki í Kópavogi; Heimir, f. 2.4. 1965, pípulagn- ingameistari í Kópavogi; Gunnar, f. 12.10. 1966, verktaki í Kópavogi; Smári, f. 10.4. 1969, skrúðgarðyrkju- meistari í Kópavogi, og Birgir, f. 4.7. 1971, starfrækir Barkasuðu Guð- mundar með föður sínum. Foreldrar Berglindar eru Guð- mundur Þorkelsson, f. 10.10. 1935, plötu- og ketilsmiður, og Erla Sæ- unn Guðmundsdóttir, f. 7.12. 1935, húsfreyja. Úr frændgarði Berglindar Guðmundsdóttur Berglind Guðmundsdóttir Dagbjört Ásmundsdóttir húsfreyja Sigurður Guðmundsson b. á Ölverskrossi Áslaug Sigurðardóttir húsfr. í Rvík Guðmundur Steinþór Magnússon vörubílstj. í Rvík Erla Sæunn Guðmundsdóttir húsfr. í Kópavogi Anna Sigurbjörg Sigurbrandsdóttir húsfr. í Hrútsholti Magnús Þórarinsson sjóm. í Ólafsvík Þórunn Kristjánsdóttir húsfreyja, ættuð frá Skógarkoti í Þingvallasveit Ísak Bjarnason útvegsm. og fyrsti form. Hlífar í Hafnarfirði Bergþóra Rannveig Ísaksdóttir húsfr. í Kópavogi Þorkell Guðmundsson járnsmiður við Landsmiðjuna Guðmundur Þorkelsson plötu- og ketilsmiður Gíslína Gísladóttir húsfreyja á Fjalli, frá Stokkseyri Guðmundur Þorkelsson b. á Fjalli á Skeiðum, af Bergsætt Áð í útreiðartúr Berglind í tungls- ljósi með Mána sér við hlið. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013 Guðmundur fæddist í Reykjavík11.1. 1932. Foreldrar hansvoru Georg Júlíus Guð- mundsson, stýrimaður í Reykjavík, og Jónína Ingibjörg Magnúsdóttir húsfreyja. Georg var sonur Guð- mundar Júlíusar Jónssonar, útvegs- bónda í Görðum í Önundarfirði, og Gróu Finnsdóttur húsfreyju. Jónína var dóttir Magnúsar Jónssonar, skip- stjóra í Reykjavík, og Sigurveigar Runólfsdóttur húsfreyju. Guðmundur lauk stúdentsprófi frá MR 1952, prófi í læknisfræði frá HÍ 1960, doktorsprófi frá Háskólanum í Bonn 1966, og fékk viðurkenningu sem sérfræðingur í meinafræði 1967. Guðmundur var aðstoðarlæknir við Landspítalann 1960-1961, héraðs- læknir 1961, aðstoðarlæknir við meinafræðideild HÍ 1962-1963, stundaði sérfræðinám og var síðar aðstoðarlæknir í meinafræði við Há- skólann í Bonn 1963-1968, sérfræð- ingur í líffærameinafræði við Til- raunastöð HÍ í meinafræði að Keldum 1968-1994 og var forstöðu- maður þar og prófessor við lækna- deild HÍ 1994-2001. Meinafræði hefur lengi verið stór þáttur í vísindarannsóknum að Keldum en þar starfaði Guðmundur lengst af með príon- og veirusjúk- dóma í sauðfé. Framlag hans efldi skilning á framgangi sjúkdóma og samspili hýsils og sýkils. Guðmundur var sjálfur í mikilvægri alþjóðlegri samvinnu við vísindamenn beggja vegna Atlantshafs og sem for- stöðumaður að Keldum vann hann að því að efla Tilraunastöðina sem al- þjóðlega vísindastofnun. Guðmundur var formaður Meina- fræðifélags Íslands, formaður Sam- taka herstöðvarandstæðinga, sat í stjórn Félags norrænna taugameina- fræðinga, í stjórn líf- og læknis- fræðideildar Vísindaráðs og var fé- lagi í Vísindafélagi Íslendinga frá 1977. Guðmundur var mikilvirkur fyrir- lesari en eftir hann liggur mikill fjöldi vísindagreina. Eftirlifandi eiginkona Guðmundar er Örbrún Halldórsdóttir og eign- uðust þau fjögur börn. Guðmundur lést 13.6. 2010. Merkir Íslendingar Guðmundur Georgsson 90 ára Elísabet M. Jóhannesdóttir Margrét Oddgeirsdóttir 85 ára Ásta Hildur Sigurðardóttir Ingigerður K. Gísladóttir Margrét S. Guðmundsdóttir 80 ára Aðalfríður Pálsdóttir Fríða Ólafsdóttir Guðbjörg J. Óskarsdóttir Ingibjörg S. Björnsdóttir Kristján Jóhannsson Svanhildur Friðriksdóttir 75 ára Björgvin Hagalínsson Guðlaug Steingrímsdóttir Halla Bjarnadóttir Hallfreður Björgvin Lárusson Hrafnkell Ársælsson Ingileif Sveina Andrésdóttir Selma K. Jónsdóttir Stefán Björn Steingrímsson Stefán Böðvar Þórðarson 70 ára Edda Einarsdóttir Gerður Óskarsdóttir Guðrún Guðbjörnsdóttir Hjördís Árnadóttir Matthildur Ósk Óskarsdóttir Þorsteinn Gíslason 60 ára Aðalsteinn Örnólfsson Egill Ásmundsson Hannes Ragnar Reynisson Hörður Albertsson Kristján Júlíus Friðgeirsson Már Ólafsson 50 ára Agnar Svavarsson Björgvin Daníelsson Brynja Jóna Jónasdóttir Dorota Sobera Fannar Jósef Viggósson Garðar Þór Garðarsson Gunnar Kjartan Þorleifsson Helgi Magnússon Pétur Pétursson Vilhjálmur V. Matthíasson William S. Silverthorn 40 ára Andri Steinþór Björnsson Berglind Jónsdóttir Birgir Jón Birgisson Guðmundur Hafsteinn Árnason Guðni Kristófer Hjaltalín Harpa Dís Jónsdóttir Hulda María Einarsdóttir Jenný Kristín Valberg Manon Laméris Mariusz Dariusz Michalak María Rós Karlsdóttir Ottó Geir Borg Sigurður Rúnar Samúelsson 30 ára Ásta María Karlsdóttir Chaemsri Kaeochana Dainis Kalnins Elsa Blöndal Sigfúsdóttir Erla Jónsdóttir Gunnar Birgir Sandholt Haukur Benediktsson Justyna Izabela Kieszkowska Kristine Macanova Lovísa Ósk Jónsdóttir Lukasz Stanislaw Janca Monika Klonowski Reynir Þór Reynisson Sarah Roswitha Holzem Sebastian Zygmunt Mical Til hamingju með daginn 30 ára Unnur Edda ólst upp á Selfossi, lauk BSc- prófi í fjármálaverkfræði frá HR 2012 og starfar hjá Vodafone. Maki: Leifur Örn Leifsson, f. 1982, tæknifræðingur. Sonur: Leifur Freyr Leifs- son, f. 2010. Foreldrar: Elínborg Högnadóttir, f. 1962, verslunarmaður, og Jón Sigursteinn Gunnarsson, f. 1957, framhaldsskóla- kennari. Unnur Edda Jónsdóttir 40 ára Hjalti lauk MA- prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Árósum og starfar við bókhald og uppgjör á Selfossi. Maki: Jódís Ásta Gísla- dóttir, f. 1975, bygginga- fræðingur. Synir: Þorvarður, f. 2001, og Gísli Steinn, f. 2006. Foreldrar: Þorvarður Hjaltason, f. 1951, fram- kvæmdastjóri SASS, og Ólafía Sigurðardóttir, f. 1950, meinatæknir. Hjalti Þorvarðarson 30 ára Sigurgeir ólst upp í Reykjavík, lauk prófum í húsasmíði og vinnur nú hjá Graníthúsinu. Dóttir: Auður Hulda, f. 1999. Systur: Rakel Ragn- arsdóttir, f. 1973, og Ragna Björk Ragn- arsdóttir, f. 1979. Foreldrar: Erna Björk Guðmundsdóttir, f. 1952, hjúkrunarfræðingur, og Ragnar Geir Tryggvason, f. 1950, skipasmiður. Sigurgeir Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.